Fréttablaðið - 10.05.2019, Qupperneq 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
Karólína Benediktsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
lést á heimili sínu í Kópavogi 23. apríl
sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Við þökkum
auðsýnda samúð.
Sæmundur Guðlaugsson
Díana Dögg Sæmundsdóttir Sigurður Brynjólfsson
Emilía Ýr Sigurðardóttir
Brynjólfur Nökkvi Sigurðsson
Sæmundur Breki Sigurðsson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sigurbjörg Sigurðardóttir
lést þriðjudaginn 16. apríl á
hjúkrunarheimilinu Eir. Útför fór fram
í kyrrþey. Aðstandendur vilja koma á
framfæri þakklæti til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Inga Lilja Jónsdóttir Margrét Harpa Hannesdóttir
Eva Björg Hafsteinsdóttir Jón Einarsson
Lilja Guðrún Sigurðardóttir Jessý Rún Jónsdóttir
Einar Jónsson
Elskuleg
Betty Berjouhi Nikulásdóttir
fyrrverandi menntaskólakennari
við Menntaskólann í Hamrahlíð,
lést föstudaginn 3. maí eftir langvinn
veikindi. Útför hennar fer fram frá
St. Garabed Armenian Apostolic Church,
Los Angeles, laugardaginn 11. maí kl. 11.30 og greftrun í
Forest Lawn, Hollywood Hills. Blóm og kransar afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á ARS Sepan
Chapter Salpe Hatzbanian Saturday School í Glendale,
Kaliforníu (http://arswestusa.org/donate).
Fari hún með friði.
F.h. aðstandenda,
Einar Árnason
Ara Oshagan
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, bróðir og mágur,
Guðmundur Pálsson
tæknifræðingur,
Hrísmóum 7, Garðabæ,
lést mánudaginn 6. maí. Hann
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju
fimmtudaginn 16. maí kl. 15. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðbjörg María Jóelsdóttir
Arnfríður María Guðmundsdóttir
Kristín Pálsdóttir Magnús Ingvarsson
Gissur E. Pálsson
Hjálmar Jóelsson Erla Salómonsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þuríður R.H. Sigfúsdóttir
Halldórs
lést miðvikudaginn 8. maí
á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Hjallatúni, Vík í Mýrdal.
Jóhannes St. Brandsson
Sigfús Jóhannesson Theresa A. O’Brien
Guðrún Jóhannesdóttir Þ. Daði Halldórsson
Stefán H. Jóhannesson Árný Lúthersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elsa Jóna Theódórsdóttir
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 14. maí
kl. 15.00.
Hjalti Garðar Lúðvíksson Ólafía Jóna Eiríksdóttir
Theódór Lúðvíksson Elísabet Jóhannsdóttir
Sigríður Einarsdóttir Laxness Paolo Turchi
Halldór E. Laxness Kristin McKirdy
Margrét E. Laxness Þórmundur Bergsson
Einar E. Laxness Steinunn Agnarsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn,
Þór Guðjónsson
bifvélavirki,
lést á LSH hinn 20. apríl sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey,
að ósk hins látna.
F.h. aðstandenda,
Guðbjörg Ragnarsdóttir
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
okkar yndislega eiginmanns, pabba,
tengdapabba og afa,
Jóns Halldórssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Sjúkrahúss Vestmannaeyja.
Svana Pétursdóttir
Guðríður Jónsdóttir Kolbeinn Agnarsson
Valgerður Jóna Jónsdóttir Viktor Ragnarsson
Svandís Jónsdóttir Hlynur Rafn Guðjónsson
Svana Björk, Arna Dögg og Vala Dröfn
Sigríður, Jón Valgarð og Helga Dís
Gyða Karen og Nökkvi Rafn
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Agnes Engilbertsdóttir
ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur,
lést þann 7. apríl sl. Útför hefur farið
fram í kyrrþey að hennar ósk.
Gunnsteinn Gunnarsson
Ása V. Gunnsteinsdóttir
Kristín Gunnsteinsdóttir Thomas Meyer Rogge
Eiríkur Gunnsteinsson Sigurlaug Björg Stefánsdóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Ásgerður
Jakobsdóttir
áður Álfheimum 44,
lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn
21. apríl. Útförin fer fram frá Langholts-
kirkju mánudaginn 13. maí klukkan 13.00.
Ólafur Pálsson Sigrún Edda Hálfdánardóttir
Gunnar Rúnar Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hú n st endu r ba k v ið afgreiðsluborðið í Hámu í Eirbergi við Eiríksgötu, hávaxin og tíguleg. Ágústa Sigurjónsdóttir fær örugg-
lega ófá knús í dag því þetta er síðasti
dagurinn hennar í afgreiðslunni. Hún
hefur staðið vaktina þar síðan árið 1986,
en bæði aðstaðan og veitingarnar hafa
tekið breytingum á því tímabili.
Eirberg er skólahúsnæði hjúkrunar-
og ljósmæðranema og þar eru 3-400
manns við nám þegar f lest er. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum hefur
Ágústa snert marga strengi hjá nem-
endum í gegnum tíðina og nýlega var
opnuð lesstofa með smá eldunaraðstöðu
í Eirbergi sem nefnd var í höfuðið á
henni. Þar hangir líka mynd af henni og
undir henni stendur: Hjartað í Eirbergi.
„Það kom mér algerlega á óvart að vera
heiðruð svona og yljaði mér sannarlega,
ég hélt ekki að ég ætti það skilið,“ segir
hún hrærð.
Háma er opin frá 9-15. Ágústa kveðst
mæta rúmlega 7.30 til að hella á könnuna,
baka hafrakökur, smyrja rúnnstykki,
flatkökur, skonsur og rúgbrauð og undir-
búa daginn. „Það er hellingur sem þarf að
hafa til reiðu, sérstaklega þegar skólinn
er fullur af fólki,“ bendir hún á.
Það er verið að loka Hámu fyrir sum-
arið. „Ég á nokkra daga eftir við uppgjör
og frágang en svo tekur nýr starfskraftur
við í ágúst,“ segir Ágústa sem verður 78
ára í haust. Hún kveðst líta á það sem
forréttindi að fá að vinna svona lengi
og hafa heilsu. „Ég er tvisvar búin að fá
krabbamein en hef staðið þau af mér
og kann enn betur að meta lífið fyrir
bragðið. Hér er gaman að vera en stund-
um alltof mikið að gera. Árið 2011 fékk
ég konu til að vera með mér fjóra tíma á
dag. Hún er alveg yndisleg en hætti fyrir
ári og engin kom í staðinn.“
Nú ætlar Ágústa að segja þetta gott.
„Mér finnst auðvitað skrítið að vera að
hætta að vinna, en mun ekki láta mér
leiðast því það kann ég ekki. Var nú að
taka að mér formennsku í Kvenfélagi
Fríkirkjunnar í Reykjavík í þriðja skipti,
ég lofaði tveimur árum. Það er verkefni.“
Hún kveðst líka eiga stóra fjölskyldu.
„Við hjónin eigum fjóra stráka og yndis-
legar þrjár tengdadætur, níu barnabörn,
vorum að fá fjórða langömmubarnið og
eitt er á leiðinni. Svo getum við vonandi
ferðast eitthvað og notið lífsins.“
gun@frettabladid.is
Kölluð hjartað í Eirbergi
Ágústa Sigurjónsdóttir hefur séð um að seðja hungur þeirra hjúkrunar- og ljósmæðra-
nema sem hafa stundað nám í Eirbergi síðustu þrjátíu og tvo vetur en nú eru tímamót.
Hér er Ágústa stödd í Ágústustofu sem nýlega var opnuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
8
-2
2
C
C
2
2
F
8
-2
1
9
0
2
2
F
8
-2
0
5
4
2
2
F
8
-1
F
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K