Mosfellingur - 10.01.2019, Side 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
sunnudagur 13. janúar
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Batamessa í Lágafellskirkju kl. 17,
messa á vegum Vina í bata.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
sunnudagur 20. janúar
Kvöldguðsþjónusta í Lágafellskirkju
kl. 20. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
sunnudagur 27. janúar
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl.11.
Sr. Arndís Linn.
Sunnudagaskólinn hefst 13. janúar
og verður á sunnudögum kl. 13
í Lágafellskirkju
- Fréttir úr bæjarlífinu64
Vinningshafar í jóla
krossgátu blaðsins
Í jólablaði Mosfellings gafst
lesendum kostur á að spreyta sig á
verðlaunakrossgátu. Dregið hefur
verið úr innsendum lausnum og
eru sigurvegararnir þau Ólafur
Guðmundsson, Klapparhlíð 1 og
Hafdís Óskarsdóttir, Reykjabyggð
24. Vinningshafarnir fá gjafabréf á
veitingastaðinn Blik Bistro & Grill
og verður gjafabréfum komið til
þeirra á næstu dögum. Lausnarorð
krossgátunnar var „Gátan er ráðin“.
Við þökkum þeim fjölmörgu sem
sendu inn rétta lausn og óskum
vinningshöfum til hamingju.
- Jólakrossgáta 201838
Verðlauna
krossgáta
Mosfellingur og Blik Bistro & Grill bjóða upp á jólakrossgátu Verðlaun
í boði Blik
Dregið verður úr
innsendum lausnar
orðum og fá tveir
heppnir vinningshafar
5.000 kr. gjafabréf
frá Blik Bistro & Grill.
Sendið lausnarorðið sem er í tölusettu reitunum, 112, á netfangið krossgata@mosfellingur.is
eða heimilisfangið Mosfellingur, Spóahöfða 26, 270 Mosfellsbæ.
Merkt „Jólakrossgáta”. Skilafrestur er til 6. janúar.
Rafræn kosning um
íþróttakarl og konu
Búið er að tilnefna 22 einstaklinga
til íþróttakarls og -konu Mosfells-
bæjar 2018. 13 karlar eru tilnefndir
og 9 konur. Íþróttafólkið er kynnt
betur til sögunnar annars staðar í
blaðinu. Bæjarbúum gefst kostur
á, ásamt aðal- og varamönnum í
íþrótta- og tómstundanefnd, að
kjósa. Kosningin fer fram á vef
Mosfellsbæjar www.mos.is dagana
10.-15. janúar. Velja skal í 1., 2. og
3. sæti. Úrslit verða kynnt fimmtu-
daginn 17. janúar kl. 19 í íþrótta-
miðstöðinni að Varmá. Þangað eru
allir velkomnir. Á myndinni hér að
ofan má sjá íþróttamenn Mosfells-
bæjar 2017, þau Guðmund Ágúst og
Thelmu Dögg.
sÓkn Í sÓkn
– liFandi saMFÉlag
Vertu með í sókninni!
Komið er að því að hefja skólastarf í Helga-
fellsskóla tveimur árum eftir að skóflu-
stunga var tekin að skólabyggingunni.
Í upphafi verður einn af fjórum áföngum
skólans tekinn í notkun. Í sumar verður
annar áfangi tilbúinn til notkunar og síðari
tveir áfangarnir verða svo teknir í notkun í
framhaldinu.
Þriðjudaginn 8. janúar var skrúðganga
frá Brúarlandi yfir í Helgafellsskóla. Nem-
endur og starfsfólk skólans gengu fylktu
liði og tóku með sér í krukkum hið góða og
notalega andrúmsloft Brúarlands sem var
svo sleppt út í Helgafellsskóla.
Bæjarfulltrúar og nemendur opnuðu
Þegar í skólann var komið hófst opnunar-
athöfnin. Gestir voru nemendur og starfs-
fólk skólans, fulltrúar í ráðum og nefndum
bæjarins og fulltrúar þeirra fyrirtækja sem
komið hafa að byggingu skólans.
Við opnunina fluttu Haraldur Sverris-
son bæjarstjóri og Kolbrún Þorsteinsdóttir
formaður fræðsluráðs ávörp þar sem þau
fóru yfir aðdragandann að stofnun skólans
og þeirri hugmyndafræði sem skólinn mun
byggja á.
Nemandi skólans, Katla Birgisdóttir,
spilaði á þverflautu. Nemendur opnuðu svo
skólann með formlegum hætti með aðstoð
bæjarfulltrúa.
Opið hús sunnudaginn 13. janúar.
Sunnudaginn 13. janúar verður opið
hús í skólanum þar sem öllum bæjarbúum
og öðrum þeim sem áhuga hafa á skóla-
starfinu er boðið að heimsækja skólann.
Helgafellsskóli verður opinn frá kl. 13 til 15
og verða uppákomur og skemmtiatriði flutt
af nemendum skólans.
Skólastarf hefst mánudaginn 14. jan-
úar en í upphafi verða í skólanum um
hundrað nemendur í 1. til 5. bekk en þeim
mun fjölga ört á næstu misserum. Innan
skamms hefst svo leikskólastarf en í upp-
hafi verður um að ræða eina deild fyrir
elstu árganga leikskólabarna.
listaskólinn með aðsetur á staðnum
Tómstunda- og tónlistarstarf verður
fléttað inn í skólastarfið og mun Listaskóli
Mosfellsbæjar hafa aðstöðu til kennslu í
skólanum.
Frístundastarf verður í skólanum að lok-
inni kennslu fyrir yngstu nemendurna og
einnig munu tómstundafræðingar koma að
Fyrsti áfangi Helgafellsskóla tilbúinn • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá á mánudag • Skrúðganga frá Brúarlandi • Opið hús á sunnudaginn
Opnunarhátíð í helgafellsskóla
nemendur fengu aðstoð bæjarfulltrúa
og opnuðu skólann með formlegum hætti
rósa skólastjóri
og nemendur í röðum
stór dagur í mosfellsbæ Vinkonur Við Vígsluathöfn
MOSFELLINGUR
hvað er
að frétta?
sendu Okkur línu...
mosfellingur@mosfellingur.is