Mosfellingur - 10.01.2019, Síða 24
- Mosfellingurinn Eva Björk Sveinsdóttir24
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Aníta Jóhannsdóttir og úr einkasafni.
Barn getur aðeins átt eitt lögheimili og það telst eiga fasta búsetu þar sem það á lögheimili. Það getur
því oft reynst erfið ákvörðun fyrir foreldra
sem standa í skilnaði hvar skal skrá barn-
ið eða börnin. Oftar en ekki eru foreldrar
hvattir af fulltrúum Sýslumanns að fara
út í sameiginlega forsjá.
Eva Björk Sveinsdóttir er ein af þeim
sem fór þá leið er hún stóð í skilnaði. Hún
á tvo syni og voru þeir skráðir hvor á sitt
heimilið. Það sem Eva gerði sér ekki grein
fyrir þá er að hún yrði ósýnileg í kerfinu
og samfélaginu gagnvart syninum sem
skráður var hjá föðurnum.
Eva Björk er fædd í Reykjavík 25. júní
1976. Foreldrar hennar eru þau Sigurbjörg
Guðjónsdóttir fyrrv. starfsmaður í Varmár-
skóla og Sveinn Árnason fyrrv. verktaki.
Eva á tvö systkini, þau Brynjar Örn f. 1971
og Önnu Rún f. 1984.
Þetta var oft mikið ævintýri
„Ég flutti í Mosfellssveitina fjögurra ára
gömul, það var yndislegt að alast hér upp
enda vil ég hvergi annars staðar búa. For-
eldrar mínir, systkini og tengdaforeldrar
búa hér líka svo hér er allt mitt fólk,“ segir
Eva og brosir.
„Í æsku minni dvaldi fjölskyldan öll
sumur úti á landi þar sem pabbi vann við
að plægja niður símastreng út um allt land
og svo síðar þegar ljósleiðarinn var lagður
hringinn í kringum landið.
Mamma sá um að elda fyrir pabba og hina
vinnumennina og við systkinin fylgdum
með. Við bjuggum í hinum og þessum sam-
komuhúsum, skólum og gömlum bónda-
bæjum og þetta var oft mikið ævintýri.“
Keyptum gjafirnar í Mosraf
„Ég gekk í Varmárskóla og Gagnfræða-
skóla Mosfellsbæjar. Ég var í frábærum
bekk sem hélst alveg upp í 10. bekk.
Kristín Sigsteinsdóttir kenndi okkur öll
árin í Varmárskóla og bekkurinn var mjög
samheldinn. Við áttum það t.d. til að safna
reglulega í púkk og kaupa gjöf fyrir kennar-
ann okkar en þá var Mosraf aðal
gjafavöruverslunin. Þar fékkst
hið fína úrval af kökudiskum og
kisustyttum og einhverra hluta
vegna held ég að hún hafi átt
orðið mikið safn af þessu öllu saman,“ segir
Eva og hlær.
„Það var líka virkilega skemmtilegur
tími í Gaggó Mos og við æskuvinkonurnar
höfum alltaf haldið góðu sambandi. Eftir
Gaggó fór ég í Verzlunarskóla Íslands.“
Fjölbreytt og skemmtileg vinna
„Eftir stúdentinn tók ég mér frí frá námi
og vann í eitt ár en fór svo í Tæknihá-
skóla Íslands og útskrifaðist þaðan með
BSc í alþjóðamarkaðsfræði. Mér fannst
markaðsfræðin mjög skemmtileg en tölur
lágu betur fyrir mér og ég fór að vinna í
bókhaldi í heildverslun foreldra
minna. Við það kviknaði áhugi á
frekara námi svo ég skellti mér í
Háskóla Íslands og sótti svo um
vinnu hjá KPMG og byrjaði þar
á endurskoðunarsviði árið 2005.
Ég starfaði við endurskoðun í sex
ár en flutti mig svo á skatta- og
lögfræðisvið árið 2011 og er þar
enn. Ég hef sérhæft mig í tekju-
skatti félaga og stýri verkefnum
við gerð skattalegra áreiðanleika-
kannana. Þetta er mjög fjölbreytt
og skemmtileg vinna.“
Allir fá að njóta sín í sínu
Eva á tvo syni með fyrrverandi
eiginmanni sínum, þá Ísak Mána
f. 2003 og Adam Orra f. 2006
en þau slitum samvistum árið
2008. Hún kynntist núverandi
eiginmanni sínum, Valdimari
Róberti Tryggvasyni, sölustjóra hjá Gler-
borg árið 2010 og þau gengu í hjónaband
árið 2016.
„Þegar við Valdi fórum að vera saman
þá græddi ég fjögur stjúpbörn í leiðinni,
Breka f. 1997, Heklu f. 2000, Telmu f. 2003
og Viktor f. 2006. Við bjuggum hvort á
sínum staðnum fyrstu tvö árin eftir að við
kynntumst.
Það getur verið flókið að sameina tvær
fjölskyldur, sérstaklega þegar þær búa í
sitthvoru sveitarfélaginu og því tókum við
okkur góðan tíma í þetta allt saman. Við
keyptum okkur svo hús í Mosfellsbæ 2012.
Allir í fjölskyldunni eiga svo sín áhuga-
mál og við höfum reynt að leyfa hverjum og
einum að njóta sín. Við förum svo öll sam-
an í sumarbústaði, útilegur og svo höfum
við skroppið út fyrir landsteinana.“
Sorgleg staðreynd
„Við búum í þjóðfélagi þar sem bland-
aðar fjölskyldur eru orðnar normið. Þegar
ég og barnsfaðir minn skildum ákváðum
við eftir ráðleggingu frá fulltrúa
sýslumanns að hafa sameigin-
lega forsjá yfir sonum okkar. Við
skiptum þessu þannig að annar
var með lögheimili hjá mér og
hinn hjá pabba sínum enda
áttum við þessa stráka saman
og ætluðum að halda áfram að
ala þá upp til jafns, annað kom
aldrei til greina.
Við gerðum ráð fyrir við þessa
ákvörðun að báðir foreldrar
tækju jafna ábyrgð á uppeldi
barnanna en annað átti svo eftir
að koma í ljós. Reyndin er sú að
sameiginleg forsjá hefur mjög
lítið gildi fyrir það foreldri sem
ekki er með barnið skráð með
lögheimili hjá sér. Lögheimilisforeldrið er
skráð í opinberar skráningar. Hitt foreldrið
er einfaldlega ekkert tengt barninu hjá hinu
opinbera og er kallað umgengnisforeldri.
Mér finnst það sorgleg staðreynd að son-
ur minn sem ég gekk með og kom í heim-
inn, hef fætt og klætt og alið upp til jafns við
föður hans sé hvergi skráður sonur minn af
því lögin eru gölluð og kerfið úrelt.“
Sárt að geta ekki sinnt sínu eigin barni
„Það er langt frá því að vera eðlilegt að
maður geti ekki sinnt sínu eigin barni og
gert einföldustu hluti fyrir það eins og að
stofna bankareikning, skrá það í tómstund-
ir, unglingavinnu eða mötuneytisáskrift í
skólanum svo dæmi séu tekin.
Ég þarf oft og iðulega að segja við son
minn þegar hann biður mig um eitthvað að
því miður geti ég ekki gert það fyrir hann,
hann verði að biðja pabba sinn. Þetta er
ótrúlega sárt, bæði fyrir mig og hann.
Ég get ekki skoðað sjúkrasögu hans á net-
inu því ég hef ekki aðgang, eingöngu annar
sonur minn er skráður á skattframtalið mitt
og tryggingafélögin neita að tryggja þau
börn sem búa á heimilinu hjá okkur aðra
hverja viku, bara af því að þau eru ekki
skráð með lögheimili. Til að kóróna allt þá
barst bréf til okkar frá Sjúkratryggingum
Íslands vegna heilsufarsmála sonar mins
og var það stílað á stjúpföður hans en ekki
mig, móðurina. Þegar ég leitaði upplýsinga
hverju þetta sætti þá var mér tjáð að það
væri regla að senda bréf á elstu kennitölu
heimilisins.“
Það þarf að byggja upp nýtt kerfi
„Málefni fráskildra foreldra og skiln-
aðarbarna eru flókin. Það er löngu orðið
tímabært að byggja upp kerfi þar sem báðir
foreldrar eru skráðir forsjáraðilar og geta
sinnt þörfum barna sinna jafnt. Þessu þarf
að breyta hið fyrsta,” segir Eva að lokum er
við kveðjumst.
Við gerðum ráð fyrir við
þessa ákvörðun að báðir
foreldrar tækju jafna ábyrgð á
uppeldi barnanna en annað átti
svo eftir að koma í ljós.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Eva Björk Sveinsdóttir verkefnastjóri hjá KPMG lætur sig málefni fráskildra foreldra varða HIN HLIÐIN
Hvaða app notar þú mest? Outlook.
Draumabíllinn? Var alltaf Ford Mustang
en þegar maður eldist þá tekur praktíkin
við svo núna er ég að skoða að skipta yfir
í Golf rafmagnsbíl.
Hvað hefur haft mest áhrif á líf þitt?
Að finna ástina aftur.
Ferðu ein í bíó? Nei, alls ekki.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Vinna á bókasafni eða í
banka.
Hver er besta tilfinning allra tíma?
Að elska og vera elskuð.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að
hafa misst af? Ed Sheeran tónleikum í
Svíþjóð en hann kemur til Íslands í sumar
og ég á miða á þá tónleika.
Fallegasta augnablikið?
Brúðkaupið okkar Valdimars.
Sameiginleg forsjá
hefur mjög lítið gildi
tveggja ára á brúðkaupsdaginn
Adam Orri, Viktor Rafn, Ísak Máni, Telma,
Hekla, Eva Björk, Breki og Valdimar.
á ferðalagi í ljubljana