Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 7. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 14. tölublað 107. árgangur
WIZAR
HÆGINDASTÓLL
Fullt verð frá: 199.900 (Tau)
ÚTSÖLUVERÐ FRÁ 159.920
STILLANLEG
HEILSURÚM
VERÐ FRÁ 264.065
Á ÚTSÖLUNNI
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-70% AFSLÁTTUR
HANGIR STUND-
UM ALGERLEGA
Á NÖGLUNUM
TÆKIFÆRI Í
GAGNA-
VERUNUM
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
VIÐSKIPTAMOGGINN FINNA VINNU 8 SÍÐURELÍSABET RONALDSDÓTTIR 62
Ljósmynd/NASA/C. Perry
Tækni Eldflaug Nasa skotið á loft í Noregi.
„Við byrjuðum í þessu verkefni af
alvöru haustið 2017 en háskólinn í
Ósló hefur unnið að þessu samstarfi
við NASA síðustu fjögur ár. Þetta
gekk vel og það er vilji til að halda
þessu samstarfi áfram,“ segir
Tinna Líf Gunnarsdóttir, nemi í
geimverkfræði við háskólann í
Tromsö í Noregi.
Tinna er í hópi þeirra sem fengu
það verkefni að hanna, smíða og
setja tæki í eldflaug í samstarfi við
geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA. Var eldflauginni skotið á
loft síðastliðinn sunnudag með góð-
um árangri.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Tinna það í raun hafa verið tilviljun
að hún komst í verkefnið. „Ég fór
til Kanada til að gera annað verk-
efni og af því ég tók þátt í því komst
ég inn í þetta,“ segir hún. »26
Komst í eldflauga-
verkefni með NASA
fyrir tilviljun
Skattrannsóknarstjóri
» Bryndís Kristjánsdóttir hef-
ur verið skattrannsóknarstjóri
frá árinu 2007.
» Hótanir og tilraunir til múta
eru hluti af starfi þeirra sem
vinna hjá embættinu.
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Bryndísi Kristjánsdóttur, skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins, hefur
margsinnis verið hótað og reynt að
múta henni í starfi en hún tók við
embættinu árið 2007. Aukinheldur
hefur starfsmönnum embættisins
verið hótað sem og stofnuninni sem
slíkri, meðal annars pólitískum af-
skiptum í einstökum málum. Þetta
kemur fram í viðtali við Bryndísi í
ViðskiptaMogganum.
„Ég hef fengið hótanir og það hef-
ur líka verið reynt að múta mér,“
segir Bryndís en hún segir að í slík-
um málum sé þó erfitt með sönnun
þar sem slíkar hótanir séu sjaldnast
gerðar í vitna viðurvist. Bryndís seg-
ir þó slík afskipti engin áhrif hafa.
Þau séu hluti af starfinu.
„Það er auðvitað mitt starf og okk-
ar hérna að láta þetta ekkert á okkur
fá. Þetta hefur engin áhrif á það
hvernig við tökum á málum og hvort
við tökum á málum eða ekki. Ég full-
yrði það og stend og fell með því,“
segir Bryndís, sem staðið hefur í
hringiðu mála sem fylgdu fjármála-
hruninu.
Hótað og reynt að múta
Skattrannsóknarstjóri segir hótanir og tilraunir til múta vera hluta af veruleika
þeirra sem vinna hjá embættinu Brotastarfsemin skipulagðari en áður var
MViðskiptaMogginn »8-9
Stjórn Theresu May, forsætisráðherra Bret-
lands, hélt velli í atkvæðagreiðslu á þinginu um
vantrauststillögu gegn henni í gærkvöldi, sólar-
hring eftir að hún beið auðmýkjandi ósigur þeg-
ar neðri deild þingsins kolfelldi brexit-samning
hennar við Evrópusambandið. May sagði eftir að
tillagan var felld að hún hefði boðið leiðtogum
flokkanna á þinginu til viðræðna um hvernig
leysa ætti deilurnar um útgöngu Bretlands úr
Evrópusambandinu. May hlær hér að Jeremy
Corbyn, leiðtoga Verkamannaflokksins, í um-
ræðu á þinginu um vantrauststillöguna. »40-41
Býður leiðtogum flokkanna til viðræðna um brexit
AFP
Stjórn May hélt velli í atkvæðagreiðslu á breska þinginu eftir auðmýkjandi ósigur
„Þarna misnot-
aði Kastljós gróf-
lega viðtal við
mig, fleygði mér
inn í harkalega
samfélags-
umræðu án þess
að ég hefði hug-
mynd um það
fyrr en skaðinn
var skeður.
Þurfti ég að auki
að sæta því næstu vikur og mánuði
að heyra glósur um að ég hefði
beinlínis verið upphafsmaður að
málinu,“ segir Elín Björg Ragnars-
dóttir, lögmaður og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Samtaka fisk-
framleiðenda, í aðsendri grein.
Vísar hún í máli sínu til viðtals
sem Kastljós RÚV tók við hana árið
2012, klippti úr samhengi og birti
um tveimur mánuðum síðar í
tengslum við umfjöllun þeirra um
húsleit hjá Samherja. »43
Kastljós misnotaði
„gróflega viðtal“
Elín Björg
Ragnarsdóttir