Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
ENNMEIRI
VERÐ-
LÆKKUN Á
ÚTSÖLU-
VÖRUM
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Komin undir 600 milljarða
Hrein skuld ríkissjóðs er nú lægri en 600 milljarðar í fyrsta sinn frá hruninu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heildarskuldir ríkissjóðs, að frádregnum endur-
lánum og sjóðsstöðu ríkissjóðs, námu um 593
milljörðum um áramótin, samkvæmt Lánamálum
ríkisins. Hrein skuld ríkissjóðs hefur því lækkað
um rúma 290 milljarða frá desember 2013. Með
þessum niðurgreiðslum hefur skuldin farið úr því
að vera 50% af vergri landsframleiðslu í að vera
rúm 21% af vergri landsframleiðslu.
Þær upplýsingar fengust frá Seðlabankanum að
hinn 26. febrúar næstkomandi væri stór flokkur á
gjalddaga, nánar tiltekið skuldabréf að fjárhæð 52
milljarðar króna. Skuldin væri í krónum og hefði
niðurgreiðslan áhrif á lausafjárstöðu ríkissjóðs.
Fyrir vikið myndi niðurgreiðslan væntanlega ekki
hafa áhrif á nettóskuldir en hins vegar lækka
brúttóskuldir. Um væri að ræða skuldabréf sem
gefið var út 2008 til 10 ára. Það var einmitt um
haustið 2008 sem bankakerfið hrundi og er upp-
gjörið á bréfinu því táknrænt fyrir hagsveifluna.
Hafa lækkað um rúma milljón á mann
Landsmenn voru 321.857 í ársbyrjun 2013 en
voru orðnir 355.620 í lok þriðja ársfjórðungs í
fyrra. Hefur hrein skuld ríkissjóðs á hvern lands-
mann því lækkað úr 2,75 milljónum í desember
2013 í hér um bil 1,67 milljónir. Endanleg tala fyrir
2018 verður ljós þegar íbúatölur verða uppfærðar.
Þessi afborgun samsvarar á fimmtu milljón á
hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu.
-293886
593
Hrein skuld ríkissjóðs
Í desember 2013-2018
*VLF=Verg landsframleiðsla Heimild: Lánamál ríkisins
50,0
21,1
-28,9
2013 2018
2013 2018
Milljarðar kr. % af VLF*
2013 886 50,0
2014 807 41,6
2015 820 37,3
2016 816 33,9
2017 704 27,9
2018 593 21,1
Breyting -293 -28,9
Hrein skuld, milljarðar kr.
Hlutfall skulda af VLF*
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Þetta er sennilega æfingasprengja
frá seinna stríði,“ sagði Ásgeir Guð-
jónsson, sprengjusérfræðingur hjá
Landhelgisgæslu Íslands, í samtali
við mbl.is í gærkvöldi.
Ásgeir er einn þeirra fulltrúa
Landhelgisgæslu Íslands sem voru
að störfum á Ísafirði ásamt lögreglu
eftir að tilkynnt var um torkennileg-
an hlut sem þar fannst í grunni húss
við Þvergötu.
Í ljós kom að um æfingasprengju
var að ræða og var hún í kjölfarið
fjarlægð úr húsinu og eytt á skömm-
um tíma með sprengihleðslu. Engin
hætta var á ferðum þar sem
sprengja sem þessi veldur almennt
ekki líkamstjóni á mönnum, en æf-
ingasprengjur gefa oftast frá sér ljós
eða reyk.
Ásgeir segir ekki alveg ljóst
hverrar tegundar sprengjan er sök-
um þess hve illa farin hún er. Hann
segir þó greinilega um einhvers kon-
ar æfingabúnað að ræða og hefur
sprengjan að öllum líkindum borist
inn í húsið með sjávarmöl sem finna
má í húsgrunninum.
„Okkur finnst líklegast að þetta
komi úr sjónum með einhverju slíku,
það hafa verið verkefni þar sem hafa
fundist gamlar sprengjur sem hafa
komið úr sjó, það er alveg þekkt. En
þetta er ekki eitthvað sem er í jarð-
veginum í gamla bænum [á Ísafirði].
Þetta hefur verið flutt að.“
„Sennilega æfingasprengja
frá seinna stríði“ á Ísafirði
Sprengjusérfræðingur Gæslunnar kallaður á staðinn
Ljósmynd/Ágúst Atlason
Ísafjörður Mikill viðbúnaður
var fyrir vestan í gærkvöldi.
Það var glampandi sól og snjór yfir öllu þegar
gervitungl NASA átti leið yfir landið og tók
þessa mynd klukkan 13.40. Landið skar sig vel
úr dökku hafinu og útlínur þess sáust vel. Þó var
aðeins skýjað yfir norðausturhorninu.
Þunn skýjaslæða teygði sig þvert yfir landið. Í
suðri má greina Heimaey í gegnum þunna slæð-
una og svo sést skugginn af henni norður yfir
Húnaflóa og Strandir.
Ísland bar nafn með rentu í gær
Gervihnattamynd/MODIS (NASA)
Skjannahvítt Ísland sást vel utan úr geimnum
Fólk hugsar meira um umhverfis- og
loftslagsmál en það gerði fyrir rúmu
ári. „Við sjáum að fólk hefur auknar
áhyggjur af áhrifum loftslagsbreyt-
inga á lifnaðarhætti þess. Íslend-
ingar segjast finna fyrir áhrifum
loftslagsbreytinga í sínu sveitarfé-
lagi, þeir telja sig vera að upplifa
breytingarnar,“ segir Ólafur Elínar-
son, sviðsstjóri markaðsrannsókna
hjá Gallup á Íslandi.
Fyrirtækið hefur kannað afstöðu
landsmanna til loftslagsbreytinga og
umhverfismála á síðastliðnum
tveimur árum. Á morgun, föstudag,
verða niðurstöður nýrrar könnunar
um þetta efni kynntar á umhverfis-
ráðstefnu Gallup og samstarfsaðila.
Ráðstefnan verður haldin í Norður-
ljósasal Hörpu. Þar verður fjallað
um viðhorf og hegðun í tengslum við
umhverfismál og loftslagsmál.
Standa sig betur
Meðal annarra niðurstaðna nýju
könnunarinnar má nefna að þeim
hefur fækkað lítillega sem telja að
stjórnmálamenn geri of lítið til að
takmarka losun gróðurhúsaloftteg-
unda hér á landi.
Dagskrá ráðstefnunnar hefst
klukkan níu um morguninn með
ávarpi Guðmundar Inga Guðbrands-
sonar, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra. Eftir að Ólafur hefur
kynnt niðurstöður rannsóknar Gall-
up segja fulltrúar nokkurra fyrir-
tækja, stofnana og samtaka frá því
hvernig þeir horfa til framtíðar varð-
andi umhverfismál og loftslags-
breytingar. helgi@mbl.is
Íslenskir stjórnmálamenn gera
of lítið til að takmarka losun
gróðurhúsalofttegunda?
H
ei
m
ild
: G
al
lu
p
Sammála
40%
Mjög
sammála
26%
sept. 2017 des. 2018
Sammála
42%
Mjög
sammála
21%
Áhyggj-
ur af
hlýnun
Gallup með um-
hverfisráðstefnu