Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það sem við erum fyrsta hand- verksbrugghús landsins fannst okk- ur að við ættum að gera eitthvað sniðugt. Þetta verður heljarinnar hátíð enda ber bjórdaginn upp á föstudag,“ segir Agnes Anna Sig- urðardóttir, framkvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar Kalda á Ár- skógssandi. Bjóða öllum í heimsókn Hinn 1. mars næstkomandi verða 30 ár liðin frá því sala bjórs var leyfð á ný hér á landi og hyggjast Agnes og hennar fólk fagna því með viðeig- andi hætti – stórri bjórhátíð. „Við ákváðum að bjóða öllum brugghús- um landsins í heimsókn til okkar og halda alvöru bjór festival. Hátíðin verður haldin í brugghúsinu okkar og hérna getur fólk smakkað alls- konar íslenska framleiðslu,“ segir Agnes. Hún kveðst búast við því að 12-15 brugghús taki þátt, öll brugghús í næsta nágrenni og mörg að sunnan. Hvert þeirra mun kynna bjóra sína á eigin bás. Miðaverði verður stillt í hóf en innifalið í því verður bjór- smakkið, smáréttir og rútuferðir til og frá Akureyri. Hátíðin mun standa yfir frá 16-22 á bjórdaginn sjálfan. „Við verðum með um það bil 450 miða til sölu og ég held að það muni seljast upp,“ segir Agnes en hátíðin verður kynnt í næstu viku. „Það verður nóg pláss fyrir alla og hér mun öllum líða vel þegar þeir labba á milli og smakka. Svo eru auðvitað Bjórböðin okkar og veitingastaður- inn þar skammt frá.“ Sérstakur gestur frá Tékklandi Þó að íslensk brugghús verði í að- alhlutverki á hátíðinni verður þó minnst einn erlendur gestur. „David Masa, fyrsti bruggarinn okkar, kem- ur í heimsókn. Hann á orðið sjálfur brugghús í Tékklandi og er mjög ánægður að geta tekið þátt í þessu.“ Fagna 30 ára afmæli bjór- dagsins með veglegri hátíð  450 manna hátíð hjá Kalda á Ár- skógssandi Morgunblaðið/Hari Skál! Þrjátíu ár eru liðin síðan bjórbanninu var aflétt og hinn 1. mars verð- ur því fagnað í brugghúsi Kalda. Myndin er úr Bjórböðum Kalda. Freyr Bjarnason Jóhann Ólafsson Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra sagði að engin loforð hefðu verið gefin um það að Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, yrði skipaður sendiherra. Kom þetta fram á fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær, en til- efnið er ummæli Gunnars Braga á Klausturbar í nóvember sl. um til- högun skipunar í embætti sendi- herra. Aðspurður neitaði Guðlaugur því að ýjað hefði verið að því við hann, í tengslum við fyrri embættis- færslur, að hann stæði í skuld við einhvern eða bæri að gjalda ein- hverjum greiða. Guðlaugur Þór kvaðst kannast við að hafa setið fund í Alþingishúsinu síðasta haust með Bjarna Benedikts- syni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, og sagði hann Sigmund Davíð hafa farið yfir áhuga Gunnars Braga á að vera skip- aður sendiherra. Sagðist Guðlaugur Þór ekki hafa verið beittur þrýstingi af þeim sem sátu fundinn, varðandi fyrirgreiðslu eða eitthvað í þeim dúr. Aðdragandi fundarins ekki samkvæmt reglum „Ég verð að halda því til haga að mér sýnist að aðdragandi þess að halda þennan opna fund sé ekki eins og reglurnar kveða á um en það truflar mig ekkert,“ sagði Bjarni Benediktsson við upphaf fundarins í gær. Bjarni sagði að Gunnar Bragi hefði áður afturkallað allt sem kom fram í máli hans í upptökunum þar sem skilja mátti svo að hann ætti inni greiða hjá Sjálfstæðisflokknum vegna skipunar Geirs H. Haarde sem sendiherra í Washington. „Ég ítreka að ég átti enga aðkomu að þeirri ákvörðun sem hann tók um sendiherrastöðu í Washington og það lágu engin loforð fyrir frá mér um þá stöðu,“ sagði Bjarni. Spurður sagðist hann kannast við að hafa heyrt Gunnar Braga nefna að hann hefði áhuga á því að starfa í utanríkisþjónustunni í framtíðinni. „Þau mál voru ekki rædd við mig til að tryggja einhver loforð. Ég sat og sit sem fjármálaráðherra og hef ekk- ert með skipan sendiherra að gera,“ sagði Bjarni. Ólögmæt hljóðritun Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, las upp yfirlýsingar þeirra Gunnars Braga og Sigmundar Davíðs, þing- manna Miðflokksins, við upphaf fundar en hvorugur þeirra mætti á fundinn. Í yfirlýsingu Gunnars Braga kom fram að tilefni fundarins væri „ólögmæt hljóðritun af ummæl- um sem ég lét falla í trúnaðarspjalli á veitingastað í borginni“. Hann segist hafa viðurkennt að hafa farið með rangt mál sem eigi ekki við rök að styðjast og kveðst engu hafa við það að bæta. Hann segir að alþingismönnum beri ekki skylda til að mæta á fund- inn sem um ræðir og talar um að boðað hafi verið til fundarins „í þeim annarlega tilgangi til að koma höggi á andstæðinga“. Í yfirlýsingu Sigmundar Davíðs kom fram að engin rannsókn hefði farið fram á tildrögum þess að hljóð- upptökurnar voru teknar á barnum og að ógjörningur sé að segja til um hvað hafi verið klippt út úr þeim og hvað hafi verið „soðið saman“. Engin loforð gefin um stöðuna  Ráðherrar mættu á opinn fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vegna ummæla Gunnars Braga um skipun í sendiherrastöðu  Gunnar Bragi og Sigmundur Davíð fjarverandi þrátt fyrir fundarboð Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson sagðist sem fjármálaráðherra ekki hafa neina aðkomu að því að skipa sendiherra. Engin loforð um skipun Gunnars Braga væru frá honum komin. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Utanríkisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson sagði að hann hefði aldrei lofað því að Gunnar Bragi yrði skipaður sendiherra og að ekki stæði til að skipa hann í stöðuna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Gunnar Bragi Sveinsson Grikklandsævintýri sp ör eh f. Vor 7 Í þessari mögnuðu ferð munum við kynnast einstöku samspili náttúru og sögu Grikklands. Við skoðum þorpin Fira og Oia á eyjunni Santorini, merkar fornminjar verða á vegi okkar á meginlandinu og við kynnumst Aþenu sem er heill heimur út af fyrir sig. Ferðinni lýkur með nokkurra daga dvöl í Vouliagmeni þar sem stöðuvatn, strönd og náttúra kemur saman í fögru samspili. 19. apríl - 2. maí Fararstjóri: Þóra Björk Valsteinsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 537.700 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.