Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
E
ldhúsið eins og við
þekkjum það í dag
verður hugsanlega
safngripur eftir ein-
hver ár. Það verður
ekki lengur fyrst og fremst her-
bergið þar sem við eldum matinn,
heldur stjórnstöð þar sem við gefum
tækjum og áhöldum skipanir. Þró-
uninni í snjalltækninni í tólum og
tækjum sem tengjast eldamennsku
og mat virðast lítil takmörk sett og
það eru spennandi tímar fram undan
fyrir áhugafólk um tækni og tæki.
Þeytarar og sleifar sem mæla
skammtastærðir og senda upplýs-
ingar um þyngd hráefnanna sem
verið er að vinna með í app eru dæmi
um hversu snjalltækjavædd elda-
mennskan er að verða.
Alexa: Hitaðu upp lasagnað!
Bandarísku raftækjarisarnir
LG og Whirlpool kynntu nýverið
nýja línu eldhús- og heimilistækja
sem stjórna má með snjallsímum og
raddstýringartækjum og netversl-
unin Amazon hóf nýlega framleiðslu
raddstýrðra eldhústækja og er það
fyrsta komið á markað, örbylgjuofn
sem lýtur stjórn raddstýringartæk-
isins Alexu. Hvorki þarf að stilla inn
tíma né kerfi, heldur er nóg að gefa
honum skipanir á borð við: „Alexa:
poppaðu!“ Eða: Alexa: „Hitaðu upp
lasagnað síðan í gær!“
Hapifork er stytting fyrir
Happy Fork eða hamingjugaffall og
hann nemur hreyfingar og neyslu-
mynstur þess sem borðar með hon-
um. Þegar hamingjugaffallinn
skynjar að of hratt sé borðað fer
hann að titra og blikka ljósum. Gaff-
allinn sendir líka boð í app í snjall-
símanum um hversu mikið var borð-
að og þannig geta þeir sem það vilja
haft yfirsýn yfir hvað þeir borða.
Í snjallbollanum Ember verður
kaffið aldrei kalt, en hann er þeirrar
náttúru að stilla má hversu heitur
vökvinn í honum á að vera. Hitinn er
stilltur í appi í símanum sem lætur
vita þegar drykkurinn hefur náð því
hitastigi sem óskað er. Einnig er
hægt að tala við bollann og segja
honum hvað hann á að vera heitur.
Snjallbox og kokteilavél
Er frystirinn þinn fullur af
afgöngum í plastboxum sem hafa
verið þar lengur en elstu menn
muna og enginn hefur lyst á? Banda-
ríska fyrirtækið Ovie hefur hannað
snjallbox. Matur er settur í boxið og
ýtt á takka á loki þess, en við það
tengist það appi sem m.a. inniheldur
upplýsingar um æskilegan geymslu-
tíma matvæla. Appið er síðan látið
vita hvað er í boxinu og þegar líða
fer á geymslutímann og innihaldið
enn ósnert sendir það áminningu um
hvort ekki eigi að borða matinn.
Þetta er að sjálfsögðu líka raddstýrt.
Ekki má gleyma matardisknum
SmartPlate. Hann er búinn þremur
myndavélum og skynjurum sem
skrá inn í app í símanum hversu
mikið er sett á hann og hann lætur
vita sé skammturinn of stór. Einnig
er hægt að skrá í appinu hvaða mat-
ur er á diskinum og reiknar það þá
samstundis út hitaeiningafjölda og
gildi næringarefna.
Svo er eitt splunkunýtt tæki til
viðbótar sem fellur reyndar ekki
undir snjalltæki en þykir býsna ný-
stárlegt. Það er kokteilavélin Barte-
sian sem er ekki ósvipuð Nes-
presso-kaffivél að gerð. Í henni eru
fimm tankar, í einum er vatn og í
hinum áfengistegundir og í stað
kaffihylkja notar vélin hylki sem
innihalda bragðefni fyrir vinsæla
kokteila. Það eina sem þarf að gera
er að stinga hylkinu í vélina, velja
áfengistegundina (eða vatnið, ef út-
búa á óáfengan kokteil) og síðan
rennur dýrðin úr vélinni.
Talsvert hefur verið fjallað um
Bartesian í erlendum fjölmiðlum
sem eitt athyglisverðasta eldhús-
tækið á árinu 2019, en samkeppnin
um þá nafnbót virðist ætla að verða
býsna hörð.
Athugull gaffall og snjall diskur
Raddstýrðar sleifar og
kaffibolli sem tekur við
skipunum. Þetta eru ekki
fyrirbæri í hrollvekjandi
framtíðarskáldskap um
að heimilistækin hafi tek-
ið völdin heldur eru þetta
boðberar nýrra tíma í
eldhúsum og meðal þess
sem framleiðendur eld-
hústækja og -áhalda hafa
kynnt til sögunnar að
undanförnu.
Hamingjugaffallinn Hann áminnir þá sem háma í sig matinn með titringi
og ljósum og sendir boð í snjallsíma um magn þess sem borðað er.
Snjallbolli Í þessum bolla verður
kaffið aldrei kalt, en bollanum er
gefin skipun um hvert hitastig inni-
haldsins í honum eigi að vera.
Má bjóða þér kokteil? Bartesian afléttir þeirri þungu byrði af fólki að
blanda eigin kokteila. Vélinni er spáð velgengni á eldhústækjamarkaðinum.
Snjalltæki í eldhúsinu Sífellt fleiri framleiðendur eldhústækja og -áhalda framleiða tæki sem tengjast netinu og eldamennskan verður sífellt snjall-
tækjavæddari. Mörgum þessara tækja er stýrt með raddstýringarbúnaði og virðist hugmyndaflugi framleiðenda vera fá takmörk sett.
Tekur ál, stál og ryðfrí
hnoð upp að 4,8mm.
LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem
virkar með öllum Milwaukee®
M12™ rafhlöðum.
Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu)
M12 BPRT
Alvöru hnoðbyssa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888