Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Sálfræðiþjónusta er ókeypisfyrir börn og unglinga að 18ára aldri á öllum stöðvum
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Öflugur hópur sálfræðinga starfar á
stöðvunum við mat á vanda, með-
ferð og ráðgjöf. Sálfræðingarnir
eru í samstarfi við lækna, hjúkr-
unarfræðinga og annað fagfólk á
hverri stöð. Einnig er samstarf eft-
ir þörfum við skóla- og félags-
þjónustu, barnavernd og barna- og
unglingageðdeild Landspítalans.
Kvíði, þunglyndi
og heðgunarvandi
Þeir sem telja barn sitt þurfa að-
stoð eða þjónustu sálfræðinga
panta tíma hjá heimilislækni. Í
samráði við hann er ákveðið hvort
vísa eigi til sálfræðings á stöðinni.
Bið eftir tíma hjá sálfræðingi er
nokkuð mismunandi eftir stöðvum.
Stundum er engin bið og almennt
er bið ekki lengri en tólf vikur.
Málefni hvers og eins er skoðað og
erindum forgangsraðað þannig að
ef málið er aðkallandi þá er tími
gefinn fljótt. Ef um biðtíma er að
ræða getur fólk fengið upplýsingar
um sjálfshjálparefni til dæmis á
vefsíðum og bókum. Lista yfir
sjálfshjálparefni má sjá hér fyrir
neðan.
Hægt er að leita til sálfræðinga á
heilsugæslustöðvum með ýmis mál.
Sálfræðingar meta eðli vanda og í
framhaldinu er ákveðið hvort þörf
sé á meðferð og þá hvernig. Vandi
eins og kvíði, þunglyndi og hegð-
unarvandi eru mjög algengt við-
fangsefni. Til dæmis þegar barn á í
erfiðleikum með að fara eftir fyrir-
mælum eða tekur tíð skapofsaköst,
getur ekki gist hjá vinum eða farið í
skólaferðalög eða vill ekki mæta í
skóla.
Foreldrar með í fyrsta viðtal
Þegar barn á erfitt með að mæta
í skóla þarf að ganga úr skugga um
hvar vandinn liggur, til dæmis
hvort námserfiðleikar eða einelti sé
til staðar, erfiðar heimilisaðstæður,
þunglyndi eða hvort barnið sé að
gera allt of miklar kröfur til sjálfs
sín um frammistöðu. Einnig þarf að
muna að kvíði, depurð, sorg og
pirringur geta verið mjög eðlilegar
tilfinningar við ákveðnar aðstæður
og krefjast ekki endilega inngripa.
Þegar vandi er alvarlegur eða
sérhæfður getur sálfræðingur á
heilsugæslustöð vísað í greiningu
og meðferð annars staðar og auð-
veldað þannig aðgengi að þeirri
þjónustu sem barnið eða unglingur-
inn þarfnast. Sálfræðingar á heilsu-
gæslustöðvunum gera ekki grein-
ingar á námserfiðleikum eða
þroskafrávikum eins og ADHD og
einhverfu.
Boðið er upp á einstaklings-
meðferð, foreldraráðgjöf og á sum-
um stöðvum hópmeðferð. Foreldrar
koma yfirleitt með í fyrsta viðtal,
gefa upplýsingar um þroskasögu og
sína sýn á vandann ásamt því að
leitað er eftir upplýsingum frá
barninu eða unglingnum. Stálpaðir
unglingar mæta oftast einir í ein-
staklingsviðtöl eða í hópmeðferð.
Foreldrar taka yfirleitt fullan þátt í
meðferð barna undir 12 ára, það er
mæta með barninu og aðstoða við
heimaæfingar á milli tíma, hvort
sem um er að ræða einstaklings-
viðtöl eða hópmeðferð.
Árangur næst oft fljótt
Meðferð barna á leikskólaaldri
fer nær eingöngu fram í gegnum
foreldra. Það á einnig við um ráð-
gjöf vegna hegðunarvanda. Þá eru
t.d. viðbrögð foreldra skoðuð og síð-
an fá foreldrar leiðbeiningar um
æskilegri viðbrögð í samskiptum
við barnið. Lengd meðferðar er
mismunandi og fer eftir vanda. Al-
mennt næst árangur á 4-6 tímum,
jafnvel á styttri tíma en stundum
lengri. Þegar meðferð er lokið þá er
hægt að bjóða eftirfylgdartíma eða
símtal eða bjóða foreldrum að hafa
samband ef bakslag verður. – Nán-
ari upplýsingar um sálfræðiþjón-
ustu á heilsugæslustöðvum má
finna á www.heilsugaeslan.is
/thjonusta-stodvanna/salfraedi-
thjonusta
Bjargráð á biðtíma
Upplýsinga- og fræðsluvefur:
heilsuvera.is
Reiði, neikvæðni, áhyggjur,
svefnvandi: Hvað get ég gert bæk-
urnar. hvadgeteggert.is
Ýmis hagnýt ráð frá Þroska- og
hegðunarstöð – ADHD og kvíði:
www.heilsugaeslan.is/serthjonusta/
throska-og-hegdunarstod
Fræðsluefni frá BUGL:
www.barnaspitali.is/barnaspitali-
hringsins/barna-og-unglingaged-
deild-bugl/fraedsluefni-bugl
Sjálfsstyrking og sjálfsmynd:
sjalfsmynd.com
Fræðsla um Hugræna atferlis-
meðferð, ætlað unglingum:
thinnbestivinur.is
Greina hvar vandi liggur
Heilsuráð
Dr. Agnes Agnarsdóttir og
Sigríður Snorradóttir sál-
fræðingar við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Getty Images
Barn Fyrir unga sál er lífið oft þraut og þá er gott að eiga hjálpina vísa.
Sálfræðingar Sigríður Snorradóttir t.v. og Agnes Agnarsdóttir eru í hópi
sem starfar á heilsugæslustöðvum og metur vanda og veitir ráð.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Þrír hlutu viðurkenningu jafnréttis-
og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar
fyrir árið 2018, Sólveig Magnúsdóttir,
kennari við Kópavogsskóla, Berglind
Pála Bragadóttir, kennari við Snæ-
landsskóla, og Samkóp, samtök for-
eldrafélaga í Kópavogi. Viðurkenn-
ingin var afhent í Salnum í Kópavogi
síðastliðinn fimmtudag.
Sólveig Magnúsdóttir starfar með
íslensku sem annað móðurmál. Hún nýtir fjölbreytilega kennsluhætti við
kennsluna og hefur hag nemenda af erlendum uppruna í huga í sínum störf-
um. Berglind Pála Bragadóttir er kennari í samfélagsfræði og hefur m.a. sett
upp frumsamda söngleiki og kennt félagsfærni á unglingastigi. Samkóp,
samtök foreldrafélaga í Kópavogi, sem einnig fengu verðlaun, halda úti öfl-
ugu starfi sem styrkir skólana m.a. í þágu velferðar barna.
Fengu viðurkenningar í Kópavogi
Kópavogur Viðurkenningar afhentar.
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar
með ferskum kryddjurtum og rjómaosti, ásamt
fylltum paprikum. Bragðlaukarnir verða ekki
sviknir af þessari hollustu.
gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn
aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og
snjallsímanum.
bakaðar
kjúklingabringur
Hollustan hefst á gottimatinn.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Nýkomin sending
af buxum frá
Str.
38-58