Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 20

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Farðu nýja leið út í heim Safnaðu Vildarpunktum eftir ýmsum leiðum og draumafríið gæti verið innan seilingar. Þú getur blandað saman punktum og peningum þegar þú greiðir fyrir farmiðann. Hefur þú kannað hvað leynist í punktunum þínum? LEYNIST RÓMANTÍK Í PUNKTUNUM ÞÍNUM? PUNKTARPENINGAR ÍS L E N S K A S IA .I S IC E 8 86 18 01 /1 9 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stjórn Veiðifélags Hítarár hefur ekki kannað formlega hvort skylt er að gera umhverfismat vegna fram- kvæmda við að koma ánni í sinn fyrri farveg. Grafa þarf skurð í gegnum skriðu sem féll í sumar yfir farveg ár- innar þannig að hún varð að finna sér nýja leið. Formaður félagsins telur ólíklegt að svo sé, miðað við forsögu málsins. Verkfræðingur sem undirbúið hef- ur verkið fyrir stjórn Veiðifélags Hít- arár hefur reiknað út að grafa þurfi um 1,5 kílómetra leið í gegnum skrið- una, eftir gamla farveginum. Skriðan er 10 metra þykk þar sem dýpst er á farveginn. Telur verkfræðingurinn að moka þurfi til um 300 þúsund rúm- metrum af jarðvegi. Í lögum um mat á umhverfisáhrif- um segir að framkvæmdir þar efn- istaka sem raskar meira en 50.000 fermetrum eða efnismagn er meira en 150.000 rúmmetrar skuli ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum. Að því er fram kemur á vef Skipulags- stofnunar er forsendan sú að slíkt efnismagn teljist til stærri fram- kvæmda sem líklegar eru til að geta haft veruleg umhverfisáhrif. Við umhverfismat þarf að skila matsáætlun og síðan frummats- skýrslu og loks matsskýrslu áður en Skipulagsstofnun gefur álit á áhrifum framkvæmdarinnar. Almenningi og öðrum hagsmunaaðilum gefst tæki- færi til að segja álit sitt og kæra á fleiri en einu stigi og sýnir reynslan að ferlið getur tekið langan tíma, sér- staklega ef framkvæmdir eru um- deildar. Ekki verið að fórna neinu Ólafur Sigvaldason, formaður Veiðifélags Hítarár, telur ólíklegt að þörf verði talin á umhverfismati. Þótt efnismagn sé mikið sé ekki verið að fórna gróðri eða náttúru. Áin hafi runnið í þessum farvegi í þúsundir ára og því ljóst hvaða áhrif það hafi á umhverfið að færa ána í sinn forna farveg. Framkvæmdin hafi augljós- lega jákvæð áhrif á lífríkið. Nefnir Ólafur að 38% af búsvæðum seiða í ánni nýtist ekki vegna skriðunnar. Þannig sé svæðið sem þornaði upp mjög gott uppeldissvæði. Tekur hann fram að þetta þýði þó ekki endilega að veiði minnki mikið í framtíðinni. Ólafur segist hafa meiri áhyggjur af óbreyttu ástandi, það er að segja af nýja farveginum. Áin eigi eftir að festa sig í honum. Töluverður fram- burður af sandi sé til dæmis í hlið- arána, Tálma, sem vatn Hítarár fer nú um. Veiðifélagið hefur áhuga á að hefj- ast sem fyrst handa, helst í vor, og hefur óskað eftir leyfi Borgarbyggðar sem landeiganda til að byrja. Byggð- aráð hefur óskað eftir frekari upplýs- ingum og leitað álits umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar sveitarfélagsins. Ólafur á von á því að fjallað verði um málið á þeim vett- vangi í byrjun næsta mánaðar. Verkfræðingurinn áætlaði að gröft- urinn myndi kosta 264 milljónir en stjórnin vonast til að fá hagstæðari tilboð. Ólafur segir að vinna við fjár- mögnun verksins sé komin ágætlega af stað. Vonast hann til að Fiskrækt- arsjóður aðstoði félagið eitthvað. Náttúruhamfarasjóður bætir ekki slíkar skemmdir þar sem áin eða hlunnindi hennar eru eðli málsins samkvæmt ekki brunatryggð. Ólafur segir hins vegar ekki óeðlilegt að ríkið hjálpi til, til dæmis með því að sleppa virðisaukaskatti af vinnunni. Hítará gæti þurft umhverfismat  Ef endurheimt Hítarár í sinn fyrri farveg þarf að fara í umhverfismat getur verkið tafist  Moka þarf 300 þúsund rúmmetra  Formaður Veiðifélags Hítarár segir áhrif framkvæmdarinnar vera þekkt Berghlaup » Skriðan féll úr Fagraskógar- fjalli í Hítardal í byrjun júlí og er um 1,8 ferkílómetrar að flat- armáli. Er hún talin stærsta skriða sem fallið hefur hér á landi á sögulegum tíma. » Fjallshlíðin var vatnsósa eft- ir rigningar í sumar. Vatnið fór ofan í bergsprungur og veikti jarðveginn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hítardalur Skriðan fór yfir farveg Hítarár og við það lokuðust af 38% af uppeldissvæðum seiða í ánni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.