Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
upplýsingar að lítil von væri til þess
að lömunin gengi til baka. Hann seg-
ist hafa haldið lengi í vonina um
kraftaverk. Tryggvi var settur í önd-
unarvél og gat ekkert tjáð sig í byrj-
un. Hann segir að það hafi verið mik-
ið áfall að geta ekki gert neitt sjálfur.
Ekki einu sinni dregið andann. Verst
hafi verið að þurfa hjálp við alla
hluti. Tryggvi segir að hann hafi ekki
beint fengið þá tilfinningu að hann
væri fangi í eigin líkama en vissulega
megi segja að svo sé. Í byrjun sept-
ember sama ár var búnaði komið
fyrir í hálsi Tryggva sem gerði hon-
um kleift að tjá sig. Fram að því
hafði hann reynt að tjá sig með vara-
lestri sem eiginkona hans, Elísabet
sá að mestu um að túlka.
„Það var rosalega erfitt að geta
ekki tjáð sig. Ekki bara fyrir mig
heldur líka fyrir fjölskylduna og þá
sem önnuðust mig. Það var því al-
gjör bylting þegar ég gat loksins tjáð
mig. Ég myndi nú ekki mæla neitt
sértaklega með svona einangrun en
allt hafðist þetta nú,“ segir Tryggvi
sem telur að hann hafi ekki farið í
gegnum neitt sorgarferli vegna af-
leiðinga slyssins. Hann hafi ekki
fundið til mikillar reiði en vissulega
skipti hann skapi eins og hver annar
enda væri annað óeðlilegt. Hann
segist aldrei hafa dottið niður í dep-
urð frá því að hann slasaðist en tím-
inn hafi verið erfiður þegar honum
hafi verið meinað að komast aftur á
hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol á
Hvolsvelli þar sem hann hafði búið
við gott atlæti í rúm 11 ár.
Tímamótaaðgerð á Íslandi
Rúmu ári eftir að Tryggvi lamað-
ist fór hann í aðgerð þar sem fjögur
rafskaut voru grædd í þind hans til
þess að líkja eftir hefðbundinni önd-
un. Tryggvi var fyrsti Íslendingur-
inn sem fór í slíka aðgerð. Aðgerðin
á Tryggva var sú fyrsta sem gerð
var utan Bandaríkjanna en þar
höfðu 40 einstaklingar farið í slíka
aðgerð. Eftir raföndunaraðgerðina
losnaði Tryggvi fljótlega við önd-
unarvélina.
Hann segir að tíu árum seinna hafi
hann fundið að eitthvað var að. Þann
11. desember 2017 var Tryggvi lagð-
ur inn á lungnadeild Landspítala,
LSH. Þar dvelur hann enn, þrátt
fyrir að hann hafi samkvæmt læknis-
vottorði verið útskriftarfær frá 27.
mars 2018 og fullfær um að búa á
hjúkrunarheimili.
Í lok febrúar 2018 var staðfest að
Tryggvi þyrfti að fara í aðgerð sem
gerð var 14. mars þar sem ný raf-
skaut voru sett í þind hans.
„Tólf dögum síðar var ég útskrif-
aður af LSH. Undirbúningur að
heimkomu minni var í fullum gangi.
Daginn áður en ég átti að fara heim
fóru læknir og hjúkrunarfræðingur
austur á Hvolsvöll til að undirbúa
starfsfólkið fyrir komu mína heim. Á
miðri leið sinni austur fengu þau
símtal frá forstöðukonu Kirkjuhvols
þar sem hún tjáði þeim að þau þyrftu
ekki að koma. Ástæðan var að 12
starfsmenn á Kirkjuhvoli sögðust
ganga út ef ég kæmi heim aftur,“
segir Tryggvi sem vissi ekki hvaðan
á sig stóð veðrið. Hann segir að þetta
hafi verið mesta áfallið í öllu ferlinu
og hann hafi upplifað mikla höfnun,
varnarleysi og reiði. Hann segir að
það hafi verið sárt að horfa á áhrifin
sem þetta hafði á fjölskylduna.
Fékk ekki fund með starfsfólki
„Ég leit á starfsfólkið á Kirkju-
hvoli sem vini mína sem alltaf hugs-
uðu vel um mig og mér þykir sárt að
hafa ekki fengið tækifæri til þess að
koma austur og ræða málin. Reyna
að leysa þau og biðja fólk afsökunar
ef ég hef komið illa fram við það,“
segir Tryggvi sem óskaði í tvígang
eftir að fá að koma til fundar við
starfsmenn á Kirkjuhvoli en því hafi
verið hafnað í bæði skiptin.
„Tilfinningin að fá ekki að fara
heim til sín og þurfa að vera fjarri
fjölskyldunni um langan tíma er
vond. Þegar ég bjó á Kirkjuhvoli gat
ég við bestu aðstæður farið sjálfur
heim í sérútbúna hjólastólnum mín-
um. Ég fékk fleiri heimsóknir og var
í samskiptum við íbúa Kirkjuhvols
sem ég þekkti vel og ég gat farið
heim nánast um hverja helgi,“ segir
Tryggvi sem nú hefur verið félags-
lega einangraður á sjúkrahúsi í
þrettán mánuði.
Tryggvi hefur tvisvar komist út
undir bert loft, eins og hann orðar
það, frá því í desember 2017. Hann
segir hjúkrunarnema hafa farið með
sig í útsýnisferð upp á þyrlupall
Landspítalans annars vegar og hins
vegar hafi hjúkrunarfræðingur boð-
ist til þess að fara með honum á Sel-
foss til dóttur hans þar sem öll fjöl-
skyldan var samankomin. Tryggvi á
fimm börn og níu barnabörn sem
flest búa á Suðurlandi.
„Starfsfólk lungnadeildar LSH
hefur reynst mér mjög vel, ekki síst
síðustu níu mánuðina þegar ég fékk
ekki að fara heim þrátt fyrir að ég
væri fær um það. Þeir mánuðir hafa
verið mér erfiðir,“ segir Tryggvi
sem eygir nú von um að komast af
LSH og nær fjölskyldunni. Hjúkr-
unarheimilið Lundur á Hellu hefur
fengið leyfi til þess að auglýsa eftir
starfsfólki svo Tryggvi geti flutt
þangað.
„Það mun breyta miklu og mér
líst vel á að fara á Lund en það er
óskaplega sárt að fá ekki að fara á
Hvolsvöll þar sem ég hef búið alla
mína ævi,“ segir Tryggvi sem dvelja
mun áfram á sjúkrahúsi þar til hann
kemst á Lund.
Ljósmyndasýning með syninum
Tryggvi segist hafa nóg að gera
fram að hádegi í þjálfun, böðun og
þess háttar. Eftir hádegi verji hann
tímanum í tölvunni, flakki um á net-
inu, lesi blöðin og fylgist með Man-
chester United. Sem fyrrverandi
verktaki finnst honum gaman að
fylgjast með verklegum fram-
kvæmdum. Tryggvi hefur í gegnum
tíðina tekið mikið af ljósmyndum og
hefur fengið aðstoð við að koma
þeim í tölvutækt form. Það gefur
honum mikið að vinna myndirnar og
deila með öðrum. Tryggvi segir að
hann og sonur hans hafi haldið vel
heppnaða ljósmyndasýningu á
Hvollsvelli fyrir tveimur árum.
Hann segist ekki reikna með ann-
arri í sýningu í bráð en það sé aldrei
að vita hvað gerist í framtíðinni.
Í legunni á LSH fékk Tryggvi
legusár og getur af þeim sökum ekki
setið eins lengi í sérútbúna stólnum
og hann vill. Á stól Tryggva er stýri-
pinni sem hann notar til að stjórna
aðgerðum í tölvunni. Hökuna notar
hann til þess að stjórna stýripinn-
anum.
Tryggvi segir að fjölskylda sín
hafi stutt hann vel. Hann hafi farið
eins oft heim til sín og hægt var þeg-
ar hann var á Hvolsvelli og þegar
hann komst ekki heim hafi Elísabet
komið til hans á Kirkjuhvol.
„Nema á þriðjudögum, við gerð-
um með okkur samkomulag um að
taka frí frá hvort öðru á þriðjudög-
um,“ segir hann brosandi.
Tryggvi á sér enn þann draum að
búa á Hvolsvelli og er fullur tilhlökk-
unar að komast nær fjölskyldu sinni
eftir 13 mánaða fjarveru.
Morgunblaðið/Eggert
Seigur Tryggvi Ingólfsson sem féll af hestbaki og lamaðist frá hálsi getur með þrautseigju og
lagni stýrt rafdrifnum hjólastól og unnið í tölvu, hann notar kinnar og höku til þess að stýra för.
Hestamaður Tryggvi er mikill hestamaður og lamaðist 56 ára gamall. Eftir að hafa búið í 11
ár á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli var honum meinuð heimkoma eftir aðgerð á sjúkrahúsi.
Þrjóskur með sterkan lífsvilja
Félagslega einangraður í 13 mánuði á sjúkrahúsi Eigir von um að komast nær fjölskyldunni
Vinnur ljósmyndir með hökunni Fyrstur manna utan Bandaríkjanna í raföndunaraðgerð
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það hlýtur að vera sterkur lífsvilji,
þrjóska eða þá að það er seigt í mér,
ég veit það ekki,“ segir Tryggvi Ing-
ólfsson, 69 ára gamall Rangæingur.
Hann var 56 ára og starfaði sem
verktaki þegar hann féll af hestbaki
og lamaðist frá hálsi vorið 2006.
Tryggvi er sá fyrsti á Íslandi sem
komist hefur lifandi á sjúkrahús með
svo mikinn mænuskaða og lifað
lengst Íslendinga með slíkan áverka.
„Ég gerði mér strax grein fyrir
því hvað hafði gerst. Ég heyrði brot-
hljóð og svo varð allt svart. Það
næsta sem ég man var þegar læknir-
inn vakti mig á gjörgæslu daginn eft-
ir og sagði mér að ég væri lamaður
frá hálsi. Það kom mér ekki á óvart,“
segir Tryggvi sem fékk strax þær
FELDUR
verkstæði
Opið virka daga 10-18
laugardaga 12-17
VERSLUN
Snorrabraut 56,
105 Reykjavík
Sími 588 0488
feldur.is