Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 upplýsingar að lítil von væri til þess að lömunin gengi til baka. Hann seg- ist hafa haldið lengi í vonina um kraftaverk. Tryggvi var settur í önd- unarvél og gat ekkert tjáð sig í byrj- un. Hann segir að það hafi verið mik- ið áfall að geta ekki gert neitt sjálfur. Ekki einu sinni dregið andann. Verst hafi verið að þurfa hjálp við alla hluti. Tryggvi segir að hann hafi ekki beint fengið þá tilfinningu að hann væri fangi í eigin líkama en vissulega megi segja að svo sé. Í byrjun sept- ember sama ár var búnaði komið fyrir í hálsi Tryggva sem gerði hon- um kleift að tjá sig. Fram að því hafði hann reynt að tjá sig með vara- lestri sem eiginkona hans, Elísabet sá að mestu um að túlka. „Það var rosalega erfitt að geta ekki tjáð sig. Ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir fjölskylduna og þá sem önnuðust mig. Það var því al- gjör bylting þegar ég gat loksins tjáð mig. Ég myndi nú ekki mæla neitt sértaklega með svona einangrun en allt hafðist þetta nú,“ segir Tryggvi sem telur að hann hafi ekki farið í gegnum neitt sorgarferli vegna af- leiðinga slyssins. Hann hafi ekki fundið til mikillar reiði en vissulega skipti hann skapi eins og hver annar enda væri annað óeðlilegt. Hann segist aldrei hafa dottið niður í dep- urð frá því að hann slasaðist en tím- inn hafi verið erfiður þegar honum hafi verið meinað að komast aftur á hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli þar sem hann hafði búið við gott atlæti í rúm 11 ár. Tímamótaaðgerð á Íslandi Rúmu ári eftir að Tryggvi lamað- ist fór hann í aðgerð þar sem fjögur rafskaut voru grædd í þind hans til þess að líkja eftir hefðbundinni önd- un. Tryggvi var fyrsti Íslendingur- inn sem fór í slíka aðgerð. Aðgerðin á Tryggva var sú fyrsta sem gerð var utan Bandaríkjanna en þar höfðu 40 einstaklingar farið í slíka aðgerð. Eftir raföndunaraðgerðina losnaði Tryggvi fljótlega við önd- unarvélina. Hann segir að tíu árum seinna hafi hann fundið að eitthvað var að. Þann 11. desember 2017 var Tryggvi lagð- ur inn á lungnadeild Landspítala, LSH. Þar dvelur hann enn, þrátt fyrir að hann hafi samkvæmt læknis- vottorði verið útskriftarfær frá 27. mars 2018 og fullfær um að búa á hjúkrunarheimili. Í lok febrúar 2018 var staðfest að Tryggvi þyrfti að fara í aðgerð sem gerð var 14. mars þar sem ný raf- skaut voru sett í þind hans. „Tólf dögum síðar var ég útskrif- aður af LSH. Undirbúningur að heimkomu minni var í fullum gangi. Daginn áður en ég átti að fara heim fóru læknir og hjúkrunarfræðingur austur á Hvolsvöll til að undirbúa starfsfólkið fyrir komu mína heim. Á miðri leið sinni austur fengu þau símtal frá forstöðukonu Kirkjuhvols þar sem hún tjáði þeim að þau þyrftu ekki að koma. Ástæðan var að 12 starfsmenn á Kirkjuhvoli sögðust ganga út ef ég kæmi heim aftur,“ segir Tryggvi sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hann segir að þetta hafi verið mesta áfallið í öllu ferlinu og hann hafi upplifað mikla höfnun, varnarleysi og reiði. Hann segir að það hafi verið sárt að horfa á áhrifin sem þetta hafði á fjölskylduna. Fékk ekki fund með starfsfólki „Ég leit á starfsfólkið á Kirkju- hvoli sem vini mína sem alltaf hugs- uðu vel um mig og mér þykir sárt að hafa ekki fengið tækifæri til þess að koma austur og ræða málin. Reyna að leysa þau og biðja fólk afsökunar ef ég hef komið illa fram við það,“ segir Tryggvi sem óskaði í tvígang eftir að fá að koma til fundar við starfsmenn á Kirkjuhvoli en því hafi verið hafnað í bæði skiptin. „Tilfinningin að fá ekki að fara heim til sín og þurfa að vera fjarri fjölskyldunni um langan tíma er vond. Þegar ég bjó á Kirkjuhvoli gat ég við bestu aðstæður farið sjálfur heim í sérútbúna hjólastólnum mín- um. Ég fékk fleiri heimsóknir og var í samskiptum við íbúa Kirkjuhvols sem ég þekkti vel og ég gat farið heim nánast um hverja helgi,“ segir Tryggvi sem nú hefur verið félags- lega einangraður á sjúkrahúsi í þrettán mánuði. Tryggvi hefur tvisvar komist út undir bert loft, eins og hann orðar það, frá því í desember 2017. Hann segir hjúkrunarnema hafa farið með sig í útsýnisferð upp á þyrlupall Landspítalans annars vegar og hins vegar hafi hjúkrunarfræðingur boð- ist til þess að fara með honum á Sel- foss til dóttur hans þar sem öll fjöl- skyldan var samankomin. Tryggvi á fimm börn og níu barnabörn sem flest búa á Suðurlandi. „Starfsfólk lungnadeildar LSH hefur reynst mér mjög vel, ekki síst síðustu níu mánuðina þegar ég fékk ekki að fara heim þrátt fyrir að ég væri fær um það. Þeir mánuðir hafa verið mér erfiðir,“ segir Tryggvi sem eygir nú von um að komast af LSH og nær fjölskyldunni. Hjúkr- unarheimilið Lundur á Hellu hefur fengið leyfi til þess að auglýsa eftir starfsfólki svo Tryggvi geti flutt þangað. „Það mun breyta miklu og mér líst vel á að fara á Lund en það er óskaplega sárt að fá ekki að fara á Hvolsvöll þar sem ég hef búið alla mína ævi,“ segir Tryggvi sem dvelja mun áfram á sjúkrahúsi þar til hann kemst á Lund. Ljósmyndasýning með syninum Tryggvi segist hafa nóg að gera fram að hádegi í þjálfun, böðun og þess háttar. Eftir hádegi verji hann tímanum í tölvunni, flakki um á net- inu, lesi blöðin og fylgist með Man- chester United. Sem fyrrverandi verktaki finnst honum gaman að fylgjast með verklegum fram- kvæmdum. Tryggvi hefur í gegnum tíðina tekið mikið af ljósmyndum og hefur fengið aðstoð við að koma þeim í tölvutækt form. Það gefur honum mikið að vinna myndirnar og deila með öðrum. Tryggvi segir að hann og sonur hans hafi haldið vel heppnaða ljósmyndasýningu á Hvollsvelli fyrir tveimur árum. Hann segist ekki reikna með ann- arri í sýningu í bráð en það sé aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni. Í legunni á LSH fékk Tryggvi legusár og getur af þeim sökum ekki setið eins lengi í sérútbúna stólnum og hann vill. Á stól Tryggva er stýri- pinni sem hann notar til að stjórna aðgerðum í tölvunni. Hökuna notar hann til þess að stjórna stýripinn- anum. Tryggvi segir að fjölskylda sín hafi stutt hann vel. Hann hafi farið eins oft heim til sín og hægt var þeg- ar hann var á Hvolsvelli og þegar hann komst ekki heim hafi Elísabet komið til hans á Kirkjuhvol. „Nema á þriðjudögum, við gerð- um með okkur samkomulag um að taka frí frá hvort öðru á þriðjudög- um,“ segir hann brosandi. Tryggvi á sér enn þann draum að búa á Hvolsvelli og er fullur tilhlökk- unar að komast nær fjölskyldu sinni eftir 13 mánaða fjarveru. Morgunblaðið/Eggert Seigur Tryggvi Ingólfsson sem féll af hestbaki og lamaðist frá hálsi getur með þrautseigju og lagni stýrt rafdrifnum hjólastól og unnið í tölvu, hann notar kinnar og höku til þess að stýra för. Hestamaður Tryggvi er mikill hestamaður og lamaðist 56 ára gamall. Eftir að hafa búið í 11 ár á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli var honum meinuð heimkoma eftir aðgerð á sjúkrahúsi. Þrjóskur með sterkan lífsvilja  Félagslega einangraður í 13 mánuði á sjúkrahúsi  Eigir von um að komast nær fjölskyldunni  Vinnur ljósmyndir með hökunni  Fyrstur manna utan Bandaríkjanna í raföndunaraðgerð VIÐTAL Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það hlýtur að vera sterkur lífsvilji, þrjóska eða þá að það er seigt í mér, ég veit það ekki,“ segir Tryggvi Ing- ólfsson, 69 ára gamall Rangæingur. Hann var 56 ára og starfaði sem verktaki þegar hann féll af hestbaki og lamaðist frá hálsi vorið 2006. Tryggvi er sá fyrsti á Íslandi sem komist hefur lifandi á sjúkrahús með svo mikinn mænuskaða og lifað lengst Íslendinga með slíkan áverka. „Ég gerði mér strax grein fyrir því hvað hafði gerst. Ég heyrði brot- hljóð og svo varð allt svart. Það næsta sem ég man var þegar læknir- inn vakti mig á gjörgæslu daginn eft- ir og sagði mér að ég væri lamaður frá hálsi. Það kom mér ekki á óvart,“ segir Tryggvi sem fékk strax þær FELDUR verkstæði Opið virka daga 10-18 laugardaga 12-17 VERSLUN Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 feldur.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.