Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 31

Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 31
FRÉTTIR 31Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gottoggirnilegt Núer ljúffengaGoða upphengiáleggið komið í umhverfis- vænni umbúðir úr pappa. Því er ekkertmál að flokka og endurvinna. Betra fyrirumhverfið Goði - alltaf góður NÝTT Meðgóðri sAmvisku Fyrsta beina leiguflugið frá Íslandi til Grænhöfðaeyja, eða Capo Verde, var sl. mánudag á vegum ferða- skrifstofunnar VITA. Flogið var með vél Icelandair en ferðin var farin í samstarfi við Moggaklúbb- inn, sem er fríðindaklúbbur áskrif- enda blaðsins. Ferðaskrifstofan hyggst bjóða upp á fleiri ferðir til Grænhöfða- eyja í framtíðinni. Um er að ræða eyjaklasa um 570 km undan vestur- strönd Afríku og flugtími frá Kefla- vík er u.þ.b. 7 klst. og 20 mín. Fyrsta beina leiguflugið til Grænhöfðaeyja Grænhöfðaeyjar Ferðamannastaður sem þekktur er fyrir suðrænt veður- far, strendur, tæran sjó, menningu og sögu, segir í tilkynningu VITA. Unglingspiltur var í gær handtekinn vegna alvarlegrar líkamsárásar, en hann veittist að öðrum unglingspilti með eggvopni og hlaut sá stungu- áverka. Ódæðið átti sér stað við Fjöl- smiðjuna í Kópavogi í hádeginu. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Kópavogi er árásin í rann- sókn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á Landspítala. Ekki fengust í gær upplýsingar um líðan piltsins. Fjölsmiðjan í Ögurhvarfi er vinnu- setur fyrir ungt fólk á aldrinum 16- 24 til að þjálfa það fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu barst tilkynning um alvar- lega líkamsárás í hádeginu. Árásar- maðurinn var handtekinn á staðnum og er rannsókn á frumstigi. Fjölsmiðjan hóf starfsemi 2001. Stofnaðilar eru Rauði krossinn, fé- lagsmálaráðuneytið og Vinnumála- stofnun auk sveitarfélaga. Piltur veittist að öðrum með eggvopni  Handtekinn við Fjölsmiðjuna Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins sinnti í gærmorg- un tveimur út- köllum vegna bruna. Í öðru tilvikinu var tilkynnt um eld í dúfnakofa í Reykjavík, en eldurinn reyndist minniháttar og varð dúfunum ekki meint af, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Í hinu tilvikinu kviknaði í vinnuvél á vinnusvæði í borgarlandinu, en vél- in, sem er beltagrafa, var frosin við jörðina og hafði verið reynt að koma henni af stað með því að hita hana upp með gaslampa. Ekki vildi betur til en svo að eldur náði að læsa sig í belti gröfunnar. Tveir dælubílar voru sendir á vett- vang þar sem enginn brunahani var nálægur. Þurftu slökkviliðsmenn að dæla töluvert miklu magni af vatni og froðu á gröfuna til að ná tökum á brunanum. Tvö minni- háttar brunamál Slökkviliðsmenn voru snöggir til.  Eldur kom upp í dúfnakofa og gröfu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.