Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
ÚR BÆJARLÍFINU
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Það var allt vaðandi í kökum og
kruðeríi í Valsárskóla á Svalbarðs-
strönd um liðna helgi. Tilefnið enda
ærið til að koma saman og gúffa í sig
kökum. Sá langlangþráði áfangi hef-
ur nú loksins náðst að Vaðlaheiðar-
göng hafa verið opnuð fyrir umferð.
Formlegi borðaklippingadagurinn
var á laugardag, viðstaddir allir
helstu mektarmenn og máttar-
stólpar byggðalaganna sín hvorum
megin ganganna auk lengra að kom-
inna gesta. Vel var til fundið að fá
elstu íbúa sveitarfélaganna, Sval-
barðsstrandahrepps og Þingeyj-
arsveitar, til að klippa á borðann,
þau Hólmfríði Ágústsdóttur á Sval-
barðsstönd, 92 ára og Friðrik
Glúmsson í Vallakoti í Reykjadal,
sem verður 100 ára á komandi
sumri.
Og talandi um kökur. Gestum
var líka boðið upp á sætabrauð í
gamla barnaskólanum í Skógum en í
tilefni dagsins var sett upp bækistöð
austan megin ganganna. Þangað var
stöðugur straumur yfir daginn. Fé-
lagar úr björgunarsveitinni Súlum á
Akureyri voru á svæðinu og sá um
að ferja fólkið á milli skólans og
ganganna, en þar var metanstræó í
stöðugum ferðum enda á milli. Súlu-
félagar sáu líka um að flytja bakk-
elsið frá Valsárskóla og yfir í Skóga
þegar fór að ganga á veitingarnar
eystra. Rétt að geta þess í framhjá-
hlaupi að heiðurinn af öllum köku-
bakstrinum áttu konur í kven-
félögum Fnjóskdæla og
Svalbarðsstrandar.
Hátíðarhöld eru að baki og
hversdagsleikinn tekinn við með sín-
um ísköldu vetrardögum. Og veg-
gjöldum. Nú þarf að veifa kortum,
skrá bílinn sem á að fara um göngin
á vefsíðunni veggjöld.is og borga
uppsett verð, 1.500 krónur fyrir eina
staka ferð fólksbíls. Einmitt þessi
veggjöld og útfærslan á þeim hefur
orðið mönnum umræðuefni í bland
við annað síðustu daga.
Sumum finnst verðið sann-
gjarnt, enda hægt að fara um göngin
á lægra verði ef keyptar eru margar
ferðir fyrirfram í einu. Öðrum finnst
verðið of hátt og láta að því liggja að
Víkurskarðið muni njóta þess um
ókomna tíð. Á þann veg hafa for-
svarsmenn SBA-Norðurleiðar talað,
en þeir eru umsvifamiklir í ferða-
þjónustu norðan heiða og víðar.
Gríðarlegur fjöldi áætlanabíla á
þeirra vegum er á ferðinni með far-
þega úr skemmtiferðaskipum austur
í Mývatnssveit að sumarlagi. Veg-
gjöldin koma því vel við pyngjuna
segja þeir, 700 þúsund kall eða um
það bil þegar ferðirnar eru hvað
flestar.
Tíminn mun leiða í ljós hvernig
mál þróast, en í ljósi reynslunnar
hafa samgöngubætur á borð við
jarðgöng ævinlega haft jákvæð áhrif
á samfélagið. Engin ástæða er til að
ætla annað en sú verði raunin með
Vaðlaheiðagöng.
Og þá er kannski rétt að nefna
að Akureyringar rétt löfðu í að vera
19 þúsund talsins um nýliðin áramót,
18.927 nákvæmlega svo því sé til
haga haldið. Bæjarbúum fjölgaði um
140 á milli ára. Sem þykir nú ekki
neitt svakalegt. Og varð til þess að
Reykjanesbær skaust upp fyrir höf-
uðborg hins bjarta norðurs, sem nú
vermir fimmta sæti þegar kemur að
fjölda íbúa í hverju sveitarfélagi.
Fæðingum á Sjúkrahúsinu á
Akureyri fjölgaði þó um 3% á milli
áranna 2017 og 2018, en á liðnu ári
fæddust þar 392 börn samanborið
við 382 árið á undan.
Það hversu nákvæmlega margir
íbúarnir eru skiptir eflaust ekki höf-
uðmáli. Aðalatriðið að fólkinu líði
sæmilega og búi við góða þjónustu.
Yfir því er í flestum tilvikum ekki
hægt að kvarta. Að minnsta kosti
ekki yfir snjómokstri. Hann er yfir-
höfuð með mestu ágætum. Einn
gaurinn sem vinnur við að moka snjó
af götum bæjarsins vakti á því at-
hygli nýverið að þess væru þó nokk-
ur dæmi að íbúar væru með leiðindi
og gerðu lítið annað en að ausa sér
yfir moksturmenn. Tilefnið á stund-
um æði lítið. Því er hér lagt til að Ak-
ureyringar andi eðlilega næstu ríf-
lega tvo mánuði og taki lífinu, með
eða án snjómoksturs með ró.
Akureyrarbær rekur líkast til
eina umsvifamestu matsölu bæjar-
ins, en nokkur þúsund börn borða
hádegismat í grunnskólunum sem
foreldrar og forráðamenn greiða
fyrir. Hádegisverðurinn hækkaði
um 3% um nýliðin áramót og kostar
nú fyrir barn sem er í áskrift, þ.e.
borðar í mötuneytinu alla skóladaga,
446 krónur hver máltíð. Hægt er að
vera utan áskriftar og kaupa staka
máltíð, en sú regla er í gildi að
minnst þarf að panta 10 slíkar stak-
ar máltíðir. Stöku máltíðirnar kosta
599 krónur eftir áramótahækkunina.
Munurinn er 26%.
Starfsfólkið fær hádegismat-
inn í grunnskólunum og kannski víð-
ar á 318 krónur, næstum því helm-
ingi lægra verði en þau börn sem
kaupa staka máltíð. Vissulega er Ak-
ureyrarbæ heimilt að gera vel við
starfsfólk sitt og selja því hádegis-
verð gegn vægu gjaldi. En þessi 26%
munur á verði máltíðanna á milli
blessaðra barnanna þykir fleirum en
þeim sem þetta ritar heldur mikill.
Það er nefnilega svo að þau
börn sem ekki borða kjöt og fisk, eru
grænmetisætur af ýmsum ástæðum
hafa ekki kost á að komast í áskrifta-
hópinn og fá hádegismatinn á lægra
verðinu. Það eru ekki í boði nema
örfáar máltíðir sem henta þeim hópi,
súpur, grautar og skyr og að jafnaði
er ein máltíð í mánuði grænmetis-
tengd. Og auðvitað má í framhaldinu
spyrja sig af hverju ætti að kaupa
eina skál af skyr af Akureyrarbæ og
greiða fyrir það 600 kall þegar hægt
er að kaupa skyrdós í lágvöruverðs-
verslun fyrir 200 krónur. En það er
svo sem annað mál.
Sú nýjung hefur verið tekin upp
í einhverjum af grunnskólum bæjar-
ins að bjóða nemendum upp á vísi að
salatbar meðfram hádegisverðinum
og hafa þeir þá val um hvað þeir
setja á diska sína. Sá galli er þó á
þeirri góðu gjöf Njarðar að ekki er
hægt að kaupa einungis aðgang að
salatbarnum góða. Hann er bara
innifalinn í verðinu hjá þeim sem
kaupa matinn. Þannig að hann
gagnast ekki áðurnefndum hópi
barna sem ekki vilja kjöt og fisk.
Bæjarfélag sem reynir að koma
á móts við þarfir sem flestra hlýtur
að taka þetta mál upp, einhvern tíma
að minnsta kosti. Því þeim sem kjósa
að haga mataræði sínum með þeim
hætti að sneiða hjá kjöti og fiski mun
aðeins fara fjölgandi á komandi ár-
um.
Jarðgöngum fagnað með kökum og kruðeríi
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Moka snjó Snjómokstur er yfirhöfuð með ágætum á Akureyri þótt fyrir komi að bæjarbúar séu ekki alveg sáttir.
Hollt Salatbar í skólamötuneyti.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Klippt á borðann Friðrik Glúmsson og Hólmfríður Ásgeirsdóttir opnuðu Vaðlaheiðargöngin með formlegum hætti.
www.apotekarinn.is
- lægra verð
REYKLAUS
VERTU
Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ
Nicotinell
Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsog , p ín.
Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
stöflur orða lástur. Inniheldur nikót
*
* 15% afsláttur af öllu lyfjatyggigúmmí, öllum styrkleikum
og pakkningarstærðum. Afslátturinn gildir út janúar 2019.
Ný vefsíða
www.Nicotinell.is