Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 33
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Sjónvarpsstöðin SportTV hefur
tryggt sér sýningarréttinn á þýsku
1. deildinni í knattspyrnu.
Stöðin hyggst sýna 5-6 leiki í
hverri umferð í opinni dagskrá.
Leikina má nálgast á netinu og á
sjónvarpsstöðvum Símans og Sýn-
ar.
Þýskir knattspyrnumenn snúa til
baka um helgina að loknu vetrar-
fríi. Á föstudagskvöldið klukkan
19.30 mun Sport TV sýna leik Hof-
fenheim og Bayern Munchen. Á
laugardag verða tveir leikir sýndir,
Augsburg-Fortuna Dusseldorf
klukkan 14.30 og RB Leipzig-
Borussia Dortmund klukkan 17.30.
Tveir Íslendingar leika með þýsk-
um liðum, Alfreð Finnbogason með
Augsburg og Aron Jóhannsson með
Werder Bremen. Sýn sýndi í fyrra-
vetur leiki í þýsku deildinni.
SportTV tryggði sér fyrr í vetur
sýningarréttinn á þýsku 1. deildinni
í handknattleik. Einnig eru sýndir
leikir í meistaradeildinni.
„SportTV var stofnuð í septem-
ber 2009 og skapaði sér sérstöðu
með netútsendingum frá inn-
lendum og erlendum íþrótta-
viðburðum,“ segir á heimasíðu fyr-
irtækisins. sisi@mbl.is
Þýski bolt-
inn í beinni
á SportTV
AFP
Þýski boltinn Alfreð Finnbogason
fagnar marki í leik Augsburg.
Ný söngbók, Rósin – Söngbók
heldri borgara, sem sérstaklega er
hugsuð til notkunar í söngstarfi
með eldri borgurum, hefur verið
gefin út. Fjöldi hjúkrunar- og dval-
arheimila, dagdvala, félagsmið-
stöðva og stofnana víða um land,
þar sem aldraðir dvelja eða koma
saman, hefur fengið bókina að gjöf.
Alls voru prentuð á annað þús-
und eintök og fór síðasta afhend-
ingin nýverið fram í Gerðubergi.
Gerðubergskórinn fékk söng-
bækurnar til eignar og af því tilefni
hélt kórinn opna æfingu þar sem
söngtextar bók-
arinnar voru á
efnisskránni.
Útgáfuna og
val á söngtextum
annaðist Páll V.
Sigurðsson, fé-
lagi í Kiwanis-
klúbbnum
Hraunborg. Bók-
in var gefin út af Styrktarsjóðnum
Rósinni, sem er í umsjá Hraun-
borgar. Þá studdu útgáfuna Sam-
tök fyrirtækja í velferðarþjónustu
sem sendu bréf til aðildarfélaga
sinna til að hvetja þau til að panta
bókina.
Upphaf þess að Páll ákvað að
gefa söngbókina út má rekja til sl.
vetrar þegar hann gaf líknardeild
Landspítalans í Kópavogi eintök af
Lífsperlunni, fyrirrennara nýju
bókarinnar, sem Páll gaf einnig út
fyrir nokkrum árum.
Útgáfan var fjármögnuð með
styrkjum frá ýmsum bakhjörlum,
svo sem LEB, Reykjavíkurborg,
FEB, Félagi íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, Hafnarfjarðarbæ og Sel-
tjarnarnesbæ.
Rósin fyrir heldri söngvara
Ljósmynd/Aðsend
Söngbók Gerðubergskórinn ásamt stjórnanda sínum, Kára Friðrikssyni,
með Rósina í hendi, eftir að hafa tekið opna æfingu í Gerðubergi.
Söngbók gefin út fyrir félagsstarf eldri borgara
Sjóveðurfréttir
verða framvegis
lesnar klukkan
5.03, að loknum
fimm fréttum alla
daga á Rás 1 hjá
RÚV.
Þetta kemur
fram í tilkynn-
ingu á veð Veður-
stofunnar. Áður
voru sjóveðurfréttir lesnar daglega
klukkan 4.30.
„Með breytingunum verða allir
veðurfréttatímar í kjölfar útvarps-
frétta á RÚV, en það fyrirkomulag
er talið henta notendum betur,“ seg-
ir í tilkynningunni.
Veðurstofan vekur athygli á því að
eftir sem áður sé nýjasta sjóveð-
urspáin ávallt aðgengileg á vef stofn-
unarinnar, www.vedur.is.
Sjóveðurfréttir
á nýjum tíma
Fjarfestu
f heilsunni
meiri hreyfing
betri heiIsa
meiri ancEgja
Eitt mesta urval landsins af t<Ekjum til
lfkamsr<Ektar fyrir heimili, fyrirt<Eki, skip
og lfkamsr<Ektarstoovar
rn af prektcekjalfnunni 2Synisho 019 - 2020
l>rekhj6I .&.
NordicTrack VR21 Recumbent
Vandao prekhj61 sem tengist snjallsfma
eoa spjaldtolvu meo Bluetooth.
Moguleiki a iFit tengingu.
Pulsm�lir handfongum..
Vero 179.990,-
Fjol�jalfi Proform 450 LE ►
Frab�r fjolpjalfi meo
mjukum hreyfingum
og miklum pyngdar
moguleikum.
Vero 139.990,-
◄ l>rekhj6I Proform 210CSX
Einfalt og vandao
prekhj61 sem hentar
vel til heimilisnota.
Vero 79.990,-
◄ Hlaupabraut
Proform 205 CST
Frab�r braut fyrir hlaup,
gongu og f heimanotkun,
samanbrj6tanleg.
Vero 174.990,-
... Hlaupabraut
Nordictrack T10.0
Mjog oflug braut sem hentar
f mikla notkun, hvort sem er heima
eoa a vinnustao, samanbrj6tanleg.
l>rekhj6I ►
Matrix Recumbent X1
Mjog vandao og oflugt prekhj61
meo led skja. Tengist snjallsfma
eoa spjaldtolvu meo Bluetooth.
USB tengi fyrir hleoslu
a sfmum og spjaldtolvum.
Mbguleiki a iFit tengingu.
Pulsm�lir f handfongum o.m.fl.
Vero 349.990,-
Vero 299.990,-
Meiri hreyfing fyrir
al/a fjolskylduna
ORNINN,-
STOFNAD 1925
Faxafeni 8, Sfmi 588 9890
Gerum tilboa - Eingongu toppmerki - Cybex - Matrix - Nordic Track - Proform
Opi8 virka daga 10-18 - Laugard. 11-15 -Visa-og Eurora5g - Netgfr6 -www.orninn.is