Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 34

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi Margverðlaunuð baðvifta Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A) Innbyggður raka-, hita- og hreyfiskynjari. Vinnur sjálfvirkt 3W ALMAR BAKARI BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn Matreiðslumeistarinn Bjarni Sigur- óli Jakobsson hefur æft af kappi fyrir aðalkeppni Bocuse d’Or, sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims. Fer hún fram í Lyon í Frakklandi í lok janúar. Síðasta æfing Bjarna hér á landi fór fram í vikunni í húsakynnum Fastus í Síðumúla. Í keppninni hef- ur hann fimm og hálfa klukkustund til að matreiða forrétt og kjötrétt fyrir 20 dómara. Afraksturinn er sannkallað listaverk, borið fram á fallegum sérhönnuðum diskum og glæsilegu fati. Glæsilegur árangur Bjarna í for- keppni Evrópu í fyrra gaf honum keppnisrétt í aðalkeppni Bocuse d’Or. Þjálfari Bjarna er Viktor Örn Andrésson, bronshafi og Bocuse d’Or keppandi 2017, og aðstoðar- maður er Ísak Þorsteinsson. Bjarni Siguróli hefur rúma fimm tíma til að matreiða forrétt og kjötrétt fyrir 20 dómara Æfir stíft fyrir Bocuse d’Or í Lyon Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Meðalverð í viðskiptum með íbúðar- húsnæði var 50,1 milljón króna á höf- uðborgarsvæðinu á nýliðnu ári. Það var til muna lægra í þéttbýliskjörn- um næst höfuðborgarsvæðinu auk Akureyrar í fyrra eða 39,1 milljón og á öðrum svæðum landsins var með- alviðskiptaverð með íbúðarhúsnæði um 20,6 milljónir kr. Þessar upplýsingar koma fram á yfirliti Íbúðalánasjóðs yfir fasteigna- markaðinn í fyrra sem birt er í mán- aðarskýrslu sjóðsins. Fasteignaviðskipti með íbúðar- húsnæði voru meiri en á árinu á und- an fjölgaði kaupsamningum í heild vegna íbúðarhúsnæðis yfir landið allt um 3% frá fyrra ári. Þar af var 5,3% aukning á höfuðborgarsvæðinu frá árinu áður og 7,4 % í þéttbýlis- kjörnum næst höfuðborgarsvæðinu, auk Akureyrar. Á öðrum svæðum landsins varð hins vegar samdráttur í fyrra eða alls um 12,4% á milli ára. Mjög hægði á hækkun fasteigna- verðs í fyrra saman borið við árið á undan. Meðalverð íbúða hækkaði um 2,1% á höfuðborgarsvæðinu í fyrra og um 2% í kjörnum utan þess svæð- is en öllu meira á öðrum landsvæð- um, þar sem verðið hækkaði um 5,2% að jafnaði. Á árinu 2017 voru árshækkanir meðalverðs fasteigna aftur á móti 16% til 22% á þessum svæðum landsins. Samanlögð velta með íbúðir nam rúmlega 482 milljörðum króna á seinasta ári sem er um 6,8% veltu- aukning frá fyrra ári. Viðskipti með íbúðir í fjölbýli voru um 70,2% af heildaríbúðaviðskiptum árið 2018. Leiguverð hækkar Í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs er einnig farið yfir þróunina á leigu- markaði á seinustu mánuðum ársins 2018. Þar kemur fram að árshækkun vísitölu leiguverðs á höfuðborgar- svæðinu mældist 9,2% í nóvember en til samanburðar hækkaði vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 6%. Er þetta níundi mánuðurinn í röð þar sem árshækkun leiguverðs mælist meiri en hækkun íbúðaverðs. Í nóvember reyndist leigumarkað- ur íbúða vera hvað virkastur í vest- urhluta höfuðborgarsvæðisins og var 19% allra þinglýstra leigusamn- inga á landinu öllu vegna leigusamn- inga á svæðinu vestan við Kringlu- mýrarbraut að Seltjarnarnesi. Flestir samningar á því svæði voru vegna tveggja herbergja íbúða og var meðalfermetraverð slíkrar íbúð- ar rúmlega 3.000 kr. omfr@mbl.is 3% fjölgun kaupsamn- inga vegna íbúða 2018  Samanlögð velta með íbúðir rúmlega 482 milljarðar í fyrra Fjöldi árlegra kaupsamninga 2005-2018 Sem hlutfall af fjölda íbúða á viðkomandi svæði 16% 14% 12% 10% 8% 6% 4% 2% 0% 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Heimild: Íbúðalánasjóður Höfuðborgarsvæðið Önnur stærri kjarnasvæði Önnur svæði á landinu Forsætisráðherra tekur undir með ÖBÍ og Þroskahjálp og setur í gang vinnu við að móta stefnu um hlutastörf hjá hinu opinbera fyrir fólk með skerta starfsgetu. Þetta kemur fram á vef Öryrkjabandalagsins. Þar kemur fram að Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, hafi farið ítarlega yfir stöðu öryrkja á vinnumarkaði á fundi með Katrínu Jak- obsdóttur forsætisráðherra fyrir helgi. Þar benti Þuríður á að hið opinbera yrði að tryggja framboð hlutastarfa fyrir fólk með skerta starfsgetu og tók Katrín undir það markmið. Segir þar einnig að forsætisráðherra hafi jafn- framt lýst því opinberlega að hún muni setja í gang vinnu til að bæta úr og vill fá sveitarfélög til samstarfs. Einnig sé mikilvægt að atvinnurekendur taki þátt í vinnunni. Öryrkjabandalagið leggur til að forsætisráðherra setji saman starfshóp þar sem hagsmunasamtök fatlaðs fólks eigi m.a. sæti. Verkefni hópsins væri að marka stefnu stjórnvalda varðandi inngildan vinnumarkað og hvernig Ísland uppfylli alþjóðlegar skyldur sínar í atvinnumálum fatlaðs fólks. Starfshópurinn skili tillögum innan þriggja mánaða. Tryggi hlutastörf fólks með skerta getu Sigurður R. Ragnarsson, stjórnarformað- ur verktaka- fyrirtækisins Ósafls og for- stjóri Íslenskra aðalverktaka, heldur erindi í Háskólanum í Reykjavík í dag um Vaðlaheiðar- göngin. Erindið verður flutt kl. 12 í stofu V101 og er á vegum MPM-náms skólans. Er reiknað með að fundurinn taki um klukkustund. Sigurður mun fjalla sérstak- lega um áhættustjórnun og þær áskoranir sem einkenna verk af þessari gerð og stærðargráðu, út frá sjónarhóli verkefnastjórn- unar. Framkvæmd Vaðlaheiðarganga hófst árið 2013 en þau voru form- lega opnuð 12. janúar síðastlið- inn. Fundað um áhættu- stjórnun vegna Vaðlaheiðarganga Sigurður R. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.