Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 39
FRÉTTIR 39Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Árleg bílasýning í Detriot í Michigan
í Bandaríkjunum stendur nú sem
hæst. Þar sýna bílaframleiðendur
bæði bíla sem eru að koma á markað
og einnig tilraunabíla sem hugsan-
lega gefa til kynna hvernig farar-
tæki verða á götum eftir ár eða ára-
tugi.
Það hefur vakið athygli á sýning-
unni að bílaframleiðendur virðast
ætla að veðja á að sportjeppar og
-jepplingar séu að leysa hefðbundna
fjölskyldubíla af hólmi en sala á
litlum og miðlungsstórum fjöl-
skyldubílum hefur dregist saman í
Bandaríkjunum síðustu ár. Því eru
fáir slíkir bílar til sýnis í Detroit.
Meira er um sportjeppa, öfluga pall-
bíla, stóra jeppa og sportbíla.
„Bílafyrirtæki gera sér grein fyrir
því að sportjeppasprengingin mun
halda áfram,“ hefur AFP-fréttastof-
an eftir Michelle Krebs, sérfræðingi
hjá bílablaðinu Autotrader.
AFP
Vísindi Innréttingin í Infiniti QX Inspiration-hugmyndabílnnum gæti sem
best verið tekin beint úr tölvuteiknuðum bíl í vísindaskáldsagnakvikmynd.
AFP
Dreki Bandaríski bílaframleiðandinn GAC sýndi tilkomumikinn bíl sem nefndur er Entranze og minnir á dreka.
Lúxus Japönsku bílaframleiðendurnir Nissan og Toyota sýndu báðir lúxusbíla í Detroit sem hugsanlega munu sjást
á götunum eftir nokkur ár. Til vinsti er IMs EV-bíll úr smiðju Nissan og til hægri er Lexus LC-sportbíll frá Toyota.
Skyggnst inn í bíla
framtíðarinnar
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Í YFIRRÉTTI
(E. HIGH COURT OF JUSTICE) CR-2018-006267
FYRIRTÆKJA- OG EIGNADÓMSTÓLAR
(E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS)
ENGLANDS OG WALES
FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL
(E. COMPANIES COURT)
VARÐANDI
ROYAL & SUN ALLIANCE INSURANCE PLC
OG
VARÐANDI
RSA LUXEMBOURG S.A.
OG
VARÐANDI
LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI
FRÁ ÁRINU 2000 (E. THE FINANCIAL SERVICES
AND MARKETS ACT 2000)
HÉR MEÐ TILKYNNIST skv. 2. mgr. 114. gr. og 2. mgr.
114. gr. A í lögum um fjármálaþjónustu og -markaði frá
árinu 2000 („lögin”) að úrskurður skv. 111 gr. laganna um
að heimila áætlun um framsal („framsalið”) frá Royal &
Sun Alliance Insurance plc („RSAI”) á: (a) almennri
vátrygginga- og endurtryggingastarfsemi hollenskra,
belgískra, þýskra, franskra og spænskra útibúa RSAI (fyrir
utan ákveðna endurtryggingastarfsemi, sem er undanskilin
áætluninni); og (b) þeim hluta allra og hvers kyns
vátrygginga (að undanskildum skírteinum sem sýna fram
á samning um endurtryggingu) sem hið breska félag RSAI
hefur veitt eða yfirtekið og varða áhættu sem er staðsett í
EES-ríkjum öðrum en Bretlandi, ásamt tengdum sjóðum
og endurtryggingaeignum og tiltekinni afgreiðslu krafna,
til RSA Luxembourg S.A. („RSAL”) var kveðinn upp af
yfirrétti Englands (e. High Court of Justice in England) hinn
29. nóvember 2018. Framsalið tók gildi í samræmi við
ofangreindan úrskurð hinn 1. janúar 2019, þegar í stað
eftir miðnætti (GMT).
Í tilvikum þar sem áhættan í tengslum við framselda
vátryggingu (að undanskildum skírteinum sem sýna fram
á samning um endurtryggingu) er staðsett í EES-ríki er
vátryggingartaka heimilt að nýta sér hvern þann rétt sem
hann hefur samkvæmt lögum viðkomandi EES-ríkis til að
segja upp vátryggingunni með skriflegri tilkynningu til
RSAL stílaðri á RSA Luxembourg S.A., 3rd Floor, 40 rue
du Cure, L-1368 Luxembourg, með skýrri eftirfarandi
utanáskrift á framhliðinni: „RSA Luxembourg Part VII
Transfer”, á allt að 21 dags tímabili frá birtingardegi
þessarar tilkynningar eða í lengri tíma (eigi það við) sem
kveðið er á um í lögum viðkomandi EES-ríkis.
Dags.: 17. janúar 2019
Reynolds Porter Chamberlain LLP
Tower Bridge House, St Katharine’s Way,
London E1W 1AA, Bretlandi
Tilv.: ROY25.23/AP02/MG02
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron
sameinar tvo heima
Þú kemst á raforkunni einni saman í flestar
ferðir með allt að 50 kílómetra drægni,
eftir það tekur sparneytin bensínvélin við.
Verð frá 4.560.000 kr.
Til afhend
ingar strax
SMARTLAND Hvað er í bíó? mbl.is/bio