Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 40

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 40
40 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ríkisstjórn Theresu May, forsætis- ráðherra Bretlands, hélt velli í at- kvæðagreiðslu í neðri deild breska þingsins í gærkvöldi þegar tillaga um vantraust gegn henni var felld með 325 atkvæðum gegn 306. Daginn áður beið stjórn May auð- mýkjandi ósigur á þinginu þegar neðri deildin kolfelldi samning henn- ar við Evrópusambandið um brexit, útgöngu Bretlands úr sambandinu. 432 þingmenn greiddu atkvæði á móti samningnum og aðeins 202 með hon- um, rúmum tveimur mánuðum áður en brexit á að taka gildi. Þetta er mesti ósigur ríkisstjórnar á þinginu í nútímasögu Bretlands, að sögn breskra fjölmiðla. Á meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn samningn- um voru 118 þingmenn Íhaldsflokks- ins, eða rúmur þriðjungur þing- manna hans, og þingmenn DUP, flokks sambandssinna á Norður-Ír- landi. Þrír þingmenn Verkamanna- flokksins greiddu atkvæði með samn- ingnum. Þessi sögulegi ósigur varð til þess að Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, lagði fram tillögu um vantraust gegn ríkisstjórninni og krafðist þess að efnt yrði til þingkosn- inga. Þingmenn Skoska þjóðarflokks- ins, Frjálslyndra demókrata, velska flokksins Plaid Cymru og Græna flokksins studdu vantrauststillöguna, auk þingmanna Verkamannaflokks- ins. Þingmenn DUP og Íhaldsflokks- ins greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni, þrátt fyrir andstöðu margra þeirra við stefnu stjórnarinn- ar í brexit-málinu, einkum vegna þess að þeir óttast að fall stjórnarinnar verði til þess að Corbyn komist til valda í kosningum. Kosningar „það versta sem gæti gerst“ Corbyn sagði í umræðunni á þinginu um vantrauststillöguna að stjórnin ætti að „gera það rétta“ og segja af sér. Hann lýsti henni sem „ríkisstjórn uppvakninga“ sem gæti ekki lengur stjórnað landinu eftir að hafa verið auðmýkt á þinginu. May sagði hins vegar að það þjónaði „ein- faldlega ekki hagsmunum þjóðarinn- ar“ að rjúfa þing núna og kosningar væru það „versta sem gæti gerst“. Þingið hefði ákveðið að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um brexit og þyrfti nú að ljúka verkefninu. Hún sagði að frestun á útgöngu Bretlands úr ESB til að hægt yrði að halda þing- kosningar gæti orðið til þess að brexit drægist á langinn. Kosningar myndu „auka sundrunguna, núna þegar Bretland þarfnast einingar, og valda glundroða“. Þingmenn Íhaldsflokksins tóku undir þetta. Einn þeirra, Chris Phil- ip, sakaði Corbyn um „blygðunar- lausa pólítíska hentistefnu“ og sagði hann setja hagsmuni Verkamanna- flokksins ofar þjóðarhag. May hét því að hefja viðræður við leiðtoga annarra flokka um hvernig ráða ætti fram úr vandanum og kvaðst ætla að leggja fram nýja brex- it-áætlun á þinginu á mánudaginn kemur. Hún sagði hins vegar ekkert um hvers konar tilslakanir kæmu til greina í viðræðunum við hina flokk- ana. Hún áréttaði að hún myndi standa fast á tveimur grundvallar- atriðum í brexit-stefnu stjórnarinnar, þ.e. rétti Breta til að takmarka inn- flutning fólks frá ESB-löndum og til að framfylgja sjálfstæðri stefnu í ut- anríkisviðskiptum. Verkamanna- flokkurinn er hlynntur því að Bret- land eigi aðild að tollabandalagi Evrópusambandsins en May virðist hafna þeim möguleika með því að standa fast á þessari grundvallar- stefnu sinni. May ýjaði að þeim möguleika að brexit yrði frestað til að hægt yrði að efna til frekari samningaviðræðna og sagði að leiðtogar Evrópusambands- Ríkisstjórn May hélt velli  Vantrauststillaga felld eftir að stjórnin beið auðmýkjandi ósigur í atkvæðagreiðslu um brexit-samn- ing hennar  Íhaldsmenn óttuðust að fall stjórnarinnar gæti orðið til þess að Corbyn kæmist til valda 320 Theresa May forsætisráðherra beið mikinn ósigur í atkvæðagreiðslunni Með Á móti Meirihluti Þingið hafnaði brexit-samningnum Heimild: Breska þingið Græni flokkurinn Íhaldsflokkurinn Frjálslyndir demókratar Verkamanna- flokkurinn Skoski þjóðar- flokkurinn Plaid Cymru (Wales) 118 248 202 35 3 3 1110 Flokkur sam- bandssinna á N-Írlandi Óháðir 5 1 196 432 4 Theresa May Forsætisráðherra Bretlands 62 ára Frá 1997 Þingmaður fyrir Íhaldsflokkinn 2010-16 Var innanríkisráðherra og beitti sér gegn fjölgun innflytjenda 2016 Var andvíg útgöngu úr ESB Júlí 2016 Varð forsætisráðherra 8. júní 2017 Íhaldsflokkurinn missti meirihluta sinn á þinginu í kosningum 15. janúar 2019 Beið ósigur í atkvæðagreiðslu á þinginu um brexit-samninginn AFP Verst vantrausti Theresa May talar á breska þinginu þegar vantrauststillaga gegn stjórn hennar var rædd í gær. Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, tilnefndi í gær Stefan Löf- ven, leiðtoga Sósíaldemókrataflokks- ins, í embætti forsætisráðherra og gert er ráð fyrir því að tilnefningin verði staðfest í atkvæðagreiðslu á þinginu morgun, föstudag, fjórum mánuðum eftir að þingkosningar fóru fram. Löfven stefnir að því að Sósíal- demókrataflokkurinn og Umhverfis- flokkurinn myndi stjórn með stuðn- ingi Miðflokksins og Frjálslynda flokksins eftir að hafa náð samkomu- lagi um það í vikunni sem leið. Mið- flokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn hafa verið í bandalagi með hægri- flokknum Moderaterna og Kristilega demókrataflokknum. Jonas Sjöstedt, leiðtogi Vinstri- flokksins, skýrði í gær frá því að flokkurinn ætlaði að sitja hjá við at- kvæðagreiðsluna á morgun og talið er að sú ákvörðun verði til þess að til- nefningin fái nægan stuðning á þinginu. Ekki er nauðsynlegt að til- nefningin fái meirihluta atkvæða, en hún fellur ef meirihluti þingmanna greiðir atkvæði gegn henni. Sjöstedt sagði að Vinstriflokkurinn hefði fallist á að sitja hjá við atkvæða- greiðsluna vegna þess að tryggt hefði verið að hann myndi hafa áhrif á stefnu stjórnarinnar. „Við höfum tryggt að þegar Löfven myndar ríkis- stjórn fái Vinstriflokkurinn pólitísk áhrif. Ákvæðið um að Vinstriflokkur- inn hafi ekki nein áhrif hefur í raun verið gert að engu,“ sagði Sjöstedt. Þetta stangast á við yfirlýsingu Annie Lööf, leiðtoga Miðflokksins, sem sagði að með samkomulaginu við Löfven væri tryggt að Vinstriflokk- urinn myndi aldrei hafa áhrif á stefnu stjórnarinnar. Stefnir í að Löf- ven myndi stjórn  Tilnefndur forsætisráðherra á ný AFP Tilnefning Þingforsetinn Andreas Norlén (t.v.) og Stefan Löfven.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.