Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 41

Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 41
FRÉTTIR 41Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vandaðir þýskir póstkassar, hengi- lásar, hjólalásar og lyklabox. MIKIÐ ÚRVAL Vefverslun brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Fagmennska í 100 ár ins myndu samþykkja það ef ljóst væri að það gæti leitt til samkomu- lags. Embættismenn ESB hafa sagt að mögulegt sé að framlengja samn- ingaviðræðurnar við Bretland en þeim þurfi þó að ljúka áður en Evr- ópuþingið kemur saman í júní eftir kosningar. Breska forsætisráðuneyt- ið sagði þó í gær að afstaða stjórn- arinnar hefði ekki breyst og enn væri stefnt að því að útgangan úr ESB tæki gildi 29. mars. Leiðtogar Evrópusambandsins sögðu ítrekað fyrir atkvæðagreiðsl- una um brexit-samninginn á breska þinginu í fyrrakvöld að þeir myndu ekki ljá máls á breytingum á honum. Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, sagði þó eftir atkvæðagreiðsl- una að ef til vill væri „svigrúm til að gera úrbætur á einu eða tveimur at- riðum“, að sögn fréttaveitunnar AFP. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, léði einnig máls á frekari samn- ingaviðræðum við bresku stjórnina. „Við höfum enn tíma til að semja en við bíðum núna eftir því að forsætis- ráðherrann leggi fram tillögur sínar,“ sagði Merkel. Vilja nýtt þjóðaratkvæði Leiðtogar ESB gáfu þó ekki til kynna að þeir léðu máls á tilslökunum í þeim málum sem hafa mætt mestri andstöðu á breska þinginu. Stjórn- völd í nokkrum ESB-landanna sögðu að auknar líkur væru á því að Bretar gengju úr sambandinu án samnings og margir bresku þingmannanna ótt- ast að það skaði fyrirtæki og efnahag Bretlands. Jean-Claude Juncker, for- seti framkvæmdastjórnar ESB, hvatti Breta til að útskýra hvað þeir vildu. „Tíminn er að renna út,“ sagði hann. Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, virtist leggja til að Bretland yrði áfram í Evrópusambandinu. „Ef samningur er ekki mögulegur og enginn vill brexit án samnings, hver verður þá loksins nógu hugrakkur til að þora að segja hver eina jákvæða lausnin er?“ tísti hann á Twitter. Þingmennirnir sem greiddu at- kvæði gegn brexit-samningnum gerðu það af ólíkum ástæðum. Sumir þeirra töldu hann verða til þess að Bretland yrði áfram í of nánum tengslum við ESB en aðrir að hann tryggði ekki nægan aðgang að innri markaði sambandsins. Tugir breskra þingmanna hafa hvatt til þess að efnt verði til nýrrar þjóðaratkvæða- greiðslu um málið og þjóðin verði þá spurð hvort hætta eigi við brexit. Brexit og sterlingspundið Heimild: Yahoo Finance/Ljósmyndir: AFP 23. júní 2016 Brexit samþykkt í þjóðar- atkvæði 15. jan. 2019 Breska þingið hafnaði brexit-samningnum 8. júní Íhaldsflokkurinn missti meirihluta á þinginu David Cameron forsætis- ráðherra sagði af sér daginn eftir 13. júlí 2016 Theresa May varð forsætisráðherra 29. mars 2017 Bretar virkjuðu 50. grein Lissabon-sáttmálans um útgöngu úr ESB 8. des. 2017 Stjórn May og ESB náðu samkomulagi í megindráttum um brexit 26. júní 2018 Frumvarp um útgöngu úr ESB varð að lögum 8. júlí 2018 Brexit málaráð- herrann David Davis sagði af sér 29. mars Bretland á að ganga úr ESB 14. nóv. Stjórn May samþykkti brexit- samninginn 15. nóv. Fjórir ráð- herrar sögðu af sér 12. desember 2018 May stóð af sér vantraust- lögu í Íhaldsflokknum 16. jan., kl. 08.30 1,30 1,20 1,40 1,50 $ á pund 1 £ = 1,2840 $ 2016 2017 2018 2019 Helstu atburðir í tengslum við brexit, útgöngu Bretlands úr ESB Gengi pundsins gagnvart dollar Bresk dagblöð sögðu í gær að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar á breska þinginu um brexit- samninginn í fyrrakvöld væri auð- mýkjandi ósigur fyrir Theresu May forsætiráðherra. „Algjör auðmýking,“ sagði The Daily Telegraph í forsíðufyrirsögn. Blaðið sagði í forystugrein að May hefði lagt rangt mat á þingið. „Ríkisstjórnin þarf að endur- heimta traust þingsins, endur- skoða samninginn, leita aftur til ESB-ríkjanna og sýna samstöðu. Hvort það verður May sem stjórn- ar þeirri umleitun er ákvörðun sem hún þarf að íhuga vandlega.“ „Brexit-samningur May er dauður eins og dúdú,“ sagði The Sun með teikningu á forsíðu þar sem höf- uð forsætisráðherrans var sett á dúdú, ófleygan fugl sem varð útdauður fyrir löngu. Einn stjórnmálaskýrenda blaðsins lýsti leiðtogum stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar sem „uppvakningum“ og sagði að þingið þyrfti að taka fram fyrir hendurnar á þeim til að ráða fram úr vandanum. „Enginn samningur, engin von, engin vitglóra, ekkert traust,“ sagði The Daily Mirror í forsíðufyrirsögn. The Daily Mail sagði að May berðist nú fyrir pólitísku lífi sínu. „Nú er kominn tími til að þingmenn geri skyldu sína og vinni með Theresu May að samkomulagi sem samræmist vilja þeirra 17,4 milljóna kjósenda sem greiddu atkvæði með brexit … Ekki bregðast okk- ur!“ sagði The Daily Express á forsíðu. „Algjör auðmýking“ fyrir May BREXIT-SAMNINGURINN „DAUÐUR EINS OG DÚDÚ“ Ósigur Theresu May og samningi hennar var líkt við dúdú-fugl á forsíðu The Sun. AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.