Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 50

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 50
Hulda Bjarnadóttir hulda@k100.is „Ég ætla ekki að segja endilega að rykkornin hafi verið mörg, en hjartslátturinn varð aðeins örari, ég viðurkenni það alveg,“ segir Þorgerður einlæg. „Svo fer maður bara að horfa yfir völlinn og þá er það bara Ísland og það er stórkostlegt að horfa á strákana alla spila.“ Þetta er fyrsta stórmót Gísla í handboltanum með A-landsliðinu, sem og margra annarra í liðinu sem eru að stíga sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Kynslóðaskipti hafa orðið í liðinu og hefur Gísli Þorgeir þótt sprækur í leikjunum en þessi ungi handboltamaður spilar með Kiel í Þýskalandi, en þangað fór hann frá FH í fyrra. Þannig fetar hann í fótspor þeirra Arons Pálmarssonar og Guðjóns Vals Sigurðssonar sem báðir léku með þessu sigursælasta liði Þýskalands, sem Alfreð Gísla- son hefur þjálfað frá árinu 2008. Áhorfandi landsliðsins í rúm 30 ár Eiginmaður Þorgerðar og faðir Gísla er Kristján Arason, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og því má segja að Þorgerður sé að verða manna fróðust um karlalandsliðin í handbolta eftir að hafa fylgst vel með liðinu yfir 30 ár. En er einhver munur að horfa á barnið sitt spila eða eiginmann? Þorgerður hugsar sig um. „Það er móðurtilfinningin. Þú vonar bara að allt gangi vel en að hann slasist ekki. Og að honum líði vel. En hitt er kannski meira keppnis,“ segir Þorgerður einlæg. Hún segist finna mikla stemningu innan sem utan vallar og hrósar hún Þjóðverjunum fyrir framkvæmd mótsins og áhorfendum íslenska liðsins fyrir frábæra stemningu. Henni finnst óvenjugóð stemning í kringum mótið í samanburði við önnur stórmót. En varðandi liðið í heild og árangurinn á mótinu segist hún verða alsæl nái liðið í milliriðil. „Það sem ég er búin að sjá af liðinu hjá Gumma á þessu móti finnst mér gefa fyrst og fremst góð fyrir- heit um framtíðina.“ Munurinn er móðurtilfinningin „Það var skrýtið. Ég er búin að vera uppi á pöllum frá ’86, frá því á heims- meistaramótinu í Sviss þar sem við lentum í 6. sæti. Maður er búinn að horfa á manninn og fullt af góðum vinum og þetta var bara allt öðruvísi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í síðdeginu á K100 um það hvernig henni hafi liðið uppi í stúku í leiknum á móti Spánverjum þar sem sonur hennar, Gísli Þorgeir Kristjánsson lék með íslenska karlalandsliðinu í handbolta. Ljósmyndir/Úr einkasafni á Facebook Mæðgin Þorgerður Katrín og Gísli Þorgeir uppi í stúku eftir leik liðsins við Spánverja á HM. Handboltafjölskylda Fjölskylda Gísla var mætt til að fylgjast með í München. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Vantar þig pípara? FINNA.is Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum Loftkæling Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 og varmadælur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.