Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 57

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 ✝ Róbert Ró-bertsson fædd- ist á Urðarstíg 4 í Reykjavík 3. janúar 1925. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 8. jan- úar 2019. Foreldrar hans í Reykjavík voru Guðrún Bryndís Skúladóttir hús- freyja, f. 1901, d. 1938, og Róbert Þorbjörnsson bakarameistari, f. 1903, d. 1956. Systkini sammæðra voru Gunn- ar Aðalsteinn Ragnarsson, sjó- maður og smiður í Vestmanna- eyjum, f. 1922, d. 1954, og Stefanía Thoroddsen, f. 1934, d. 1935. Bróðir samfeðra var Sig- þór í Reykjavík, f. 1927, d. 1950. Fósturforeldrar hans voru hjónin á Gelti í Grímsnesi, Sig- ríður Guðrún Guðmundsdóttir ljósmóðir, f. 1876, d. 1960, og Brynjólfur Þórðarson bóndi, f. 1872, d. 1964. Börn þeirra voru: Guðmundur Ragnar, f. 1912, d. 1988, Kristinn, f. 1913, d. 1990, Borghildur, f. 1914, d. 1998, og Elínborg, f. 1919, d. 1995. Auk Róberts tóku Galtarhjónin í fóst- ur bræðurna Ásmund Jónsson, f. 1925, d. 1964, og Kristin Finn- björn Jónsson, f. 1928, d. 1964. Eiginkona Róberts var Ásdís Sveinsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1935 á Bjarnargili, Fljótum, Skagafirði, d. 17. apríl býlið Brún, á bökkum Brúarár, á spildu úr landi Syðri-Reykja, og reistu þar einbýlishús 1959, þar sem þau bjuggu frá 1960- 2005, er þau fluttu í Grænumörk 2 á Selfossi. Róbert sat í hreppsnefnd Biskupstungna 1962-90, í rit- nefnd Bergþórs 1962-68, gjald- keri fjallskilasjóðs Biskups- tungna 1966-2008, í skólanefnd barnaskólans í Reykholti í mörg ár, gjaldkeri húsnefndar Ara- tungu í níu ár, gjaldkeri Reyk- holtssundlaugar, í sóknarnefnd Torfastaðakirkju í 12 ár, gjald- keri Ungmennafélags Biskups- tungna 1987-90, og í stjórn Veiðifélags Hvítárvatns. Róbert var gjaldkeri sjálfstæðisfélags- ins Hugins í 15-16 ár. Róbert gekk í Vörubifreiða- stjórafélagið Mjölni 1951, var formaður félagsins 1966-67, endurskoðandi 1969-72, gjald- keri 1965, 1975-91 og 1993-96, meðstjórnandi 1963-64 og 1973- 74, ritari 1992, sat í trúnaðar- mannaráði 1957-60 og 1970-72, laganefnd frá 1970, húsbygg- ingarnefnd, Sjúkra- og styrktar- sjóði Mjölnis í 29 ár, og sat á þingum Landssambands vöru- bifreiðastjóra í fjögur ár. Róbert var gerður að heiðurs- félaga í Vörubifreiðastjóra- félaginu Mjölni 1991, og í Ung- mennafélagi Biskupstunga 2008, og fékk viðurkenningu Búnaðarfélags Biskupstungna fyrir félagsmálastörf. Útför Róberts fer fram frá Selfosskirkju í dag, 17. janúar 2019, klukkan 13.30. 2016. Börn þeirra eru: 1) Bryndís Guðrún, f. 22. júlí 1959. 2) Anna Rósa, f. 10. nóvember 1966, sambýlis- maður hennar er Tómas Luo Shunke, f. 5. ágúst 1956. Sonur hennar er Álfgeir Alej- andro Önnuson, f. 23. mars 1994. 3) Róbert Sveinn, f. 3. apríl 1968, sambýliskona hans er Þórunn María Bjarkadóttir, f. 3. sept- ember 1974. Synir þeirra eru Bjarki Fannar f. 14. nóvember 2008, og Birkir Róbert, f. 23. febrúar 2017. Róbert gekk í farskóla í Grímsnesi og tók fullnaðarpróf 1939. Hann tók meirapróf í Reykjavík 1946. Róbert var vinnumaður á Björk í Grímsnesi 1940-41, á Syðri-Reykjum í Biskupstungum frá 1942-48 og áfram samhliða eigin vöru- bifreiðarrekstri til 1959. Róbert rak eigin vörubifreið frá 1948- 98 og flutti m.a. vörur, græn- meti, tilbúinn áburð, steypumöl, rauðamöl og sand. Stór hluti af rekstri hans var einnig vega- gerð fyrir ríki, sveitarfélög og einkaaðila. Hann var fram- kvæmdastjóri Vörubifreiða- stjórafélagsins Mjölnis frá 1992 til dánardægurs. Róbert og Ásdís stofnuðu ný- Elsku besti pabbi minn. Það er næstum því óbærilega sárt að þú sért farinn frá okkur. Það er erfitt að hugsa til þess að geta aldrei komið við hjá þér á Selfossi aftur og spjallað um daginn og veginn, sérstaklega um pólitíkina sem þú hafðir svo gaman af. Á móti kemur mikið þakklæti. Þakklæti fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig og alla aðra í kringum þig. Hugur minn fer í ferðalag þegar ég hugsa um allar minningarnar, þá sérstak- lega frá æskuslóðunum að Brún. Þegar ég fékk að fara með þér í áburðarferð og við stoppuðum alltaf á Litlu kaffistofunni í Svína- hrauni og ég fékk malt og tebollu. Þegar þú tókst mig með í ferðir um sveitina til að safna fyrir aðra sem áttu bágt. Allar ferðirnar sem þú keyrðir mig á íþróttaæfingar í Aratungu. Ég tala nú ekki um ferðirnar sem við fórum til að vitja um netin í Hvítá eða allar fjall- göngurnar um helgar. Hvernig þú kenndir mér að brýna ljáinn og fyrsta skiptið sem þú leyfðir mér að setja rauða Bronco-inn í gang aleinn. Allt ógleymanlegar gæða- stundir. Það má segja að þú hafir verið maður verka og vinnu. Vinnusamur með eindæmum. Alla tíð hafðir þú eitthvað fyrir stafni. Ef það var ekki að flytja varning til fólks í sveitinni, þá voru það félagsmálastörfin eða hreppsnefndin og ekki síst starf þitt sem framkvæmdastjóri Mjölnis sem þú gegndir til dauða- dags – í orðsins fyllstu merkingu. Fólk af þinni kynslóð þekkti ekki annað. Þvílík atorka. Þú sagðir alltaf að þér myndi bara fara að leiðast heima ef þú hefðir ekki eitthvað fyrir stafni. Ég held að það hafi verið rétt. Þótt missirinn sé mikill og afar sár þá er samt gott að hugsa til þess hvað þú varst lánsamur á margan hátt um ævina. Sérstak- lega með heilsu. Það heilsuhraust- ur að ég man bara aldrei eftir þér veikum nema rétt undir lokin þá orðinn 93 ára. Ég held að þetta sé karma. Þú varst alltaf kærleiksríkur, vildir öllum vel í samfélaginu og hjálp- aðir þeim sem áttu bágt. Þú tal- aðir ekki mikið um þetta en varst góð fyrirmynd og í raun leiðtogi sem hægt var að læra af. Yndis- legt var hvernig þú leyfðir mér, án þess að segja orð, að gera allra handa vitleysu svo að ég gæti lært af skóla lífsins. Þú vissir að ég var að leita. Ég er nokkuð viss um að þú hafir ekki alltaf verið sammála mér um leiðir en þú kvartaðir aldrei. Þetta var mikilvægasti skólinn fyrir mig. Takk pabbi. Það var líka fallegt hvernig þú stóðst alltaf eins og klettur við hliðina á mömmu. Alla tíð. Fjöl- skyldan var ykkur allt. Ég veit að þú munt halda áfram að vaka yfir okkur og vernda um alla framtíð. Þín verður saknað afar sárt, elsku pabbi. Ég læt seinustu orðin sem ég sagði við þig áður en þú fórst að sofa aðfaranótt 8. janúar verða þau síðustu hérna líka – ég elska þig óendanlega. Þinn sonur, Róbert Sveinn. Róbert Róbertsson Afi í sveitinni er dáinn. Það er skrítið að hugsa til þess að knúsin og samver- urnar verði ekki fleiri. Elsku afi, það var svo gott að vera hjá ykkur ömmu í sveitinni. Við nutum þess að hjálpa til á sumrin, nóg var af verkefnum og okkur treyst fyrir hinum ýmsu störfum. Það hefur átt stóran þátt í því að móta þá einstaklinga sem við erum í dag. Við eigum öll svipaðar minn- ingar um veruna hjá ykkur þrátt fyrir aldursmuninn á okkur systkinum. Á vorin fengum við frí síðustu vikurnar í skólanum til að koma og hjálpa til við sauðburð. Það var skemmtilegur og lær- dómsríkur tími. Heyskapurinn var okkar uppáhaldstími á sumrin og öll fengum við þau verkefni að stýra böggunum í baggatínuna, losa þá ef þeir festust og jafnvel hlaupa á undan afa sem keyrði dráttarvél- ina og snúa böggunum. Gaman var að leika sér í hlöðunni þegar hún var orðin hálffull. Þá voru bundin reipi í sperrurnar og við sveifluðum okkur eins og Tarzan. Öll höfum við gist í hlöðunni á einhverjum tímapunkti sem var mjög spennandi en um leið nokk- uð ógnvekjandi. Okkur var treyst ungum til að fara niður að vatni og vitja um netin. Hermann Jónsson ✝ Hermann Jóns-son fæddist 13. nóvember 1938. Hann lést 1. janúar 2019. Útför Her- manns fór fram 12. janúar 2019. Afi var mikill húmoristi og höfð- um við gaman af því að horfa með honum á Spaug- stofuna í sjónvarp- inu. Við notuðum suma frasana mik- ið í samtölum okk- ar á milli. Hann var einnig mjög músík- alskur og spilaði oft á nikkuna. Afi eignaðist níu langafabörn og hafði gaman af því að fá þau í heimsókn og spjalla við þau. Elsku afi, þín verður sárt saknað. Bryndís, Hermann og Auður. Stundin líður, tíminn tekur toll af öllu hér sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veiti yl í veröld kaldri vermir ætíð mig að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. (Hákon Aðalsteinsson) Það var gott að eiga vináttu þína, Hermann minn. Það var gott að fá knúsin frá þér og finna hlýjuna og væntum- þykjuna. Skemmtilegar voru stundirnar þegar þú tókst upp nikkuna og sungið var af hjartans lyst. Þú átt stóran sess í hjörtum barna minna enda reyndist þú þeim góður afi. Hermann, takk fyrir allt sem þú varst mér. Kæra fjölskylda, mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Agnes. Yndislega Alda mín. Aldrei, aldrei er maður tilbúinn að kveðja góðan vin/ vinkonu. Ég kynntist Öldu þegar ég fór að vinna á Bautanum, þá 18 ára göm- ul og var svo lánsöm að öll þau 15 ár sem ég starfaði þar vorum við saman á vakt. Alda var ekki bara frábær samstarfsmaður hún var góð vinkona, traust, skemmtilega stríðin og margt gott sem maður gat lært af henni svo sem að virða vinnuveitendur, samstarfsfólk og starfið sem hún vann svo sannar- lega af mikilli vandvirkni, sam- visku, list og snyrtimennsku. Það var líka ósjaldan þegar ég mætti til vinnu að morgni kl. 8 að Alda var löngu mætt og búin að reiða fram marga bakka af snitt- um eða öðru góðgæti og hvergi hef Alda Þorgrímsdóttir ✝ Alda Þorgríms-dóttir fæddist 11. ágúst 1936. Út- för hennar fór fram 14. janúar 2019. ég fengið betri klein- ur en hjá Öldu minni. Aldrei fór ég til Íslands öðruvísi en að heimsækja Öldu á fallega og snyrtilega heimilið hennar og alltaf var tekið vel á móti manni og jafn- vel rifjuð upp Bauta- árin. En síðasta heim- sókn mín til Öldu sl. haust var á Kristnesi og þrátt fyr- ir veikindin brosti hún og bar sig vel. Það var líka árvisst eftir að ég flutti utan að við hringdumst á á afmælisdögum okkar en ekki heyrði ég þó frá henni síðast og óttaðist að nú hefði heilsu hennar hrakað sem var raunin. Ég er endalaust þakklát fyrir allar okkar samstarfs- og sam- verustundir og á góðar minningar um góða konu. Elsku Ómar, Smári, Palli, Ey- dís, Viddi og fjölskyldur, ykkar sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Svandís Guðmundsdóttir. Hún Laufey átti aldrei kost á lífi sem við göngum að sem vísu, jafnvel án þess að velta því fyrir okkur, að geta menntað okkur, valið okkur starf, stofnað fjölskyldu, ferðast um landið, ferðast um heiminn. Samt var hún alltaf glöð og kát, brosti til allra sem hún hitti, hló og kættist á góðri stund, naut þess að fara á skemmtanir. Þrátt fyrir fötlun sína naut hún þess að vera til, alltaf jákvæð og vildi endilega vera glæsilega til fara og ekki síð- ur vandlega snyrt. Fljótlega eftir fæðingu varð fjölskyldunni ljóst að litla stúlkan þyrfti mikla hjálp. Og hjálp og ástúð fékk hún. Þar sem Eiki var alltaf á sjón- um hvíldi álagið mest á Þrúðu, sem ætíð stóð með dóttur sinni í blíðu og stríðu. Með ótrúlegum dugnaði og seiglu tókst þeim að Laufey Eiríksdóttir ✝ Laufey Eiríks-dóttir fæddist 5. október 1980. Hún lést 26. desem- ber 2018. Útför Laufeyjar fór fram 8. janúar 2019. búa svo um hnútana að Laufey gat notið lífsins á sinn já- kvæða og glaðværa hátt. Fyrir rúmum tveimur árum greindist Laufey með illkynja sjúk- dóm og var ljóst að hverju stefndi. Við sem erum svo lán- söm að ganga heil til skógar eigum erfitt með að ræða um dauðann. Og Laufey var sleg- in yfir fréttunum og niðurdregin, og auðvitað ekki sátt, en hún gat rætt örlög sín. Þær mæðgur gátu rætt um sjúkdóminn og dauðann með aðstoð táknmáls. Þar kom vel í ljós að Laufey vissi hvað hún vildi. Á þessum erfiðu tímum gat hún rætt af yfirvegun um lífið og dauðann. Laufey hafði skoðanir á eigin útför, hún valdi bálför og að jarð- neskar leifar hennar skyldu hvíla í duftkeri. Það sýnir þroska Lauf- eyjar að geta rætt þessi mál af slíkri einurð og viljastyrk. Við munum alltaf dást að hennar léttu lund, jákvæðni, glaðværð og hlýju. Sigríður og Jón. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÖNNU PÁLU GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 5 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Leifur Ragnarsson Páll Ragnarsson Margrét Steingrímsdóttir Árni Ragnarsson Ásdís Hermannsdóttir Hólmfríður Ragnarsdóttir Ólöf Sigríður Ragnarsdóttir Pétur Heimisson Úlfar Ragnarsson Auðbjörg Friðgeirsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR ÓLAFÍU ÞORVALDSDÓTTUR, Hlíðarhúsum 7, Reykjavík. Einnig færum við sérstakar þakkir til starfsfólks á Eir fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur. Þorvaldur G. Ágústsson Anne Ágústsson Grétar E. Ágústsson Hafdís Gísladóttir Bárður J. Ágústsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður minnar og ömmu okkar, FJÓLU STEINSDÓTTUR MILERIS, Skálagerði 5, Reykjavík. Georg Mileris Ana Maria Mileris George David Mileris Vladimar Mileris Angelika Mileris Dawes Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.