Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 59
ÍSLENDINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Veldu mat frá yfir 100 veitingastöðum, við sendum eða þú sækir er ég bara að fjalla um og skrifa um bækur á samfélagsmiðlunum.“ Kolbrún vann einnig í nokkur ár í leikhúsum landsins og kom stutt- lega við í kvikmyndabransanum líka. Kolbrún greindist með berkla- æxli við heilann eftir leiklistar- ferðalag til Búdapest og var skorin upp og æxlið fjarlægt í febrúar 2002. „Ég var á lyfjum í heilt ár á eftir og frá vinnu í einhvern tíma en fór svo að vinna aftur hjá Ey- mundsson eftir að ég jafnaði mig af þessu. Vann um tíma hjá Ey- mundsson í Leifsstöð en eftir að ég eignaðist fyrri son minn 2007 fór ég aftur að vinna hjá Eymundsson í bænum. Eftir að ég lét af störfum hjá Eymundsson fór ég að vinna í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð og er mjög stolt af störfum mínum þar í að gera það að almennilegri bókabúð með góðu úrvali.“ Þaðan fór Kolbrún svo að vinna hjá Heim- kaup.is – byrjaði þar sem vöru- stjóri bóka og er í dag ennþá vöru- stjóri en með töluvert fleiri flokka af vörum á sínum snærum heldur en bara bækur. „Með fastri vinnu hef ég líka í 10 ár unnið aukalega við það að vera plötusnúður, en er nýlega hætt því, og var þá aðallega að spila á árshá- tíðum, í brúðkaupum og veislum ásamt Nalla vini mínum.“ Fjölskylda Eiginkona Kolbrúnar er Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, f. 12.10. 1979, gervahönnuður. Hún vann Edduna í fyrra fyrir gervahönnun í sjónvarpsþáttunum Föngum. For- eldrar hennar: Sigurður Jónsson og Anna Skúladóttir. Fyrrverandi eiginkona Kolbrúnar er Lilja Torfadóttir, f. 9.6. 1976, hársnyrtir. Núverandi maki Lilju er Guðbjörg Árnadóttir grunnskólakennari. Börn: 1) Felix Skafti Liljuson, f. 31.12. 2007, 2) Róbert Máni Kol- brúnarson, f. 8.11. 2016. „Einnig tel ég mig eiga stóran hlut í fyrrver- andi stjúpbörnum mínum þeim Alex Una Haraldssyni, f. 2000 og Elísabetu Rut Diego, f. 1995, sem eru börnin hennar Lilju sem ég var gift. Sem og Bríet Ólínu Kristins- dóttur sem ég passaði mikið fyrstu fimm árin hennar.“ Systkini: Hjalti Þór Skaftason, f. 24.10. 1989, sérfræðingur í fyrir- tækjaráðgjöf hjá Kviku, bús. í Reykjavík, og Hanna Kristín Skaftadóttir, f. 21.9. 1981, frum- kvöðull í Bandaríkjunum. Foreldrar: Hjónin Sara Magnús- dóttir, f. 23.6. 1956, forstöðumaður í Reykjavík, og Skafti Harðarson, f. 10.9. 1956, framkvæmdastjóri í Reykjavík. Úr frændgarði Kolbrúnar Óskar Skaftadóttur Kolbrún Ósk Skaftadóttir Hörður Felixson skrifstofustj. í Rvík og fv. landsliðsm. í fótbolta Skafti Harðarson framkvæmdastjóri Í Reykjavík Guðjón Bjarnason brunavörður í Rvík Ágústa Bjarnadóttir kennari í Reykjavík Felix Pétursson bókari í Reykjavík Sigurbjörg Sigurðardóttir húsmóðir í Reykjavík Skafti Þórarinsson skrifstofumaður í Rvík Hörður Felixson skrifstofustj. í Rvík og fv. landsliðsm. í fótbolta Bjarni Felixson fv. íþróttafréttam. og landsliðsm. í fótbolta Gunnar Felixson fv. forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar og fv. landsliðsm. í fótbolta Sara Magnúsdóttir húsmóðir á Ytra-Lágafelli í Miklaholtshr., síðar í Hafnarfirði Hulda Svava Elíasdóttir húsfr. á Skarði á Ströndum og í Rvík Elías Snæland Jónsson rithöfundur og fv. ritstjóri Elías Kristjánsson bóndi í Arnartungu og á Elliða í Staðarsveit, síðar á Ytra-Lágafelli Magnús Elíasson sölumaður í Hafnarfirði Hanna Elíasdóttir kaupmaður í Reykjavík Arndís Ingunn Kjartansdóttir saumakona í Hafnarfirði Elías Gíslason sjómaður í Hafnarfirði Sara Magnúsdóttir forstöðumaður í Reykjavík Kristján Elíasson ritstjóri í Rvík Gay Pride Kolbrún ásamt eldri syni sínum og stjúpbörnum. Árni Einarsson fæddist 17. jan-úar 1907 á Hvoli á Akranesi.Foreldrar hans voru hjónin Einar Tjörfason, f. 1864, d. 1922, sjó- maður á Akranesi, og Sigríður Guð- rún Sigurgeirsdóttir, f. 1876, d. 1956. Árni ólst upp í foreldrahúsum á Akranesi og hóf þar bakaranám 1922. Hann flutti til Reykjavíkur og hélt áfram námi í iðninni til 1925 en veiktist þá af berklum og var mikið til á sjúkrahúsum til 1933. Árni var meðal stofnenda Sam- bands íslenskra berklasjúklinga (SÍBS) 1938 og sat í stjórn þess í mörg ár. Hann var kjörinn formaður fyrstu byggingarnefndar Reykja- lundar 1942. Fyrsti áfangi Reykja- lundar varð tilbúinn á tilsettum tíma 1.2. 1945 og varð Árni formaður stjórnar heimilisins. Fyrst varð Oddur Ólafsson bæði yfirlæknir og framkvæmdastjóri á Reykjalundi en hjá ört vaxandi stofnun var það orðið of mikið starf svo að Árni tók við sem framkvæmdastjóri á Reykja- lundi. Hann flutti að Reykjalundi með fjölskyldu sína og gegndi starf- inu til 1977. Árni starfaði í Kommúnistaflokki Íslands 1934-38 og var meðal stofn- enda Sósíalistaflokksins 1938 og gegndi ýmsum nefndarstörfum fyrir flokkinn 1938-48. Áður en Árni var framkvæmdastjóri á Reykjalundi hafði hann fyrst verið afgreiðslu- maður hjá Verkalýðsblaðinu eftir að hann náði sér af berklunum og síðan Þjóðviljanum og var framkvæmda- stjóri Prentsmiðju Þjóðviljans og Þjóðviljans 1944-48. Í minningargrein um Árna skrif- aði Oddur læknir: „Þjóðin stendur því í þakkarskuld við þann sem nú er kvaddur, starf hans mun um ókomin ár tryggja betur en ella félagslegt öryggi og heilbrigði í þessu landi. Árni var greindur og bókhneigður maður sem las hvenær sem færi gafst. Heimili hans var þekkt menn- ingarheimili.“ Eiginkona Árna var Hlín Ingólfs- dóttir, f. 20.10. 1909, d. 8.11. 1993. Börn þeirra: Auður, Svala, Ingólfur, Hlín, Einar og Páll. Árni Einarsson lést 5.4. 1979. Merkir Íslendingar Árni Einarsson 104 ára Guðríður Guðmundsdóttir 90 ára Sigurður Haraldsson 85 ára Björgvin Salómonsson Höskuldur Jónsson Jóhanna Þorbjarnardóttir Sigurjón Þorbergsson 80 ára Hersilía Guðrún Þórðardóttir María Ólafsdóttir Signý Gunnarsdóttir 75 ára Arnþrúður Sæmundsdóttir Ella Dóra Ólafsdóttir Fanney M. Karlsdóttir Þórður Tyrfingsson 70 ára Björg Jósepsdóttir Guðrún Alfreðsdóttir Jóhanna Jósefsdóttir Ólafur Ágústsson Sveinfríður Ragnarsdóttir Viðar Aðalsteinsson 60 ára Friðrik Gunnarsson Guðmundur Ásberg Arnbjarnarson Gunnar Þór Hannesson Hrund Ólafsdóttir Jón Hörður Hafsteinsson Lára Hrönn Árnadóttir Margrét Sigurðardóttir Steinar Steinarsson Sveinrún Bjarnadóttir 50 ára Agnar Páll Agnarsson Andrejus Dasevskis Elín Bára Einarsdóttir Guðbjörg Steinunn Sigfúsdóttir Guðríður Svavarsdóttir Kolbrún Hjálmtýsdóttir Kristjana Guðrún Sigurðardóttir Lilja Jónsdóttir Maria Victoria Sastre Padro Oddur Gunnar Jónsson Rakel Bjarnadóttir 40 ára Alda Björk Óskarsdóttir Ágúst Elvar Bjarnason Beata Honorata Neumann Bryndís Björg Einarsdóttir Hrólfur Hreiðarsson Jón Sigurður Friðriksson Justyna Teresa Grosel Katla Marín Jónsdóttir Kolbrún Ósk Skaftadóttir Matthildur Ragnarsdóttir Ólöf Kristín Daníelsdóttir Rúnar Pálmarsson Snæbjörn Kristjánsson Tinna Guðmundsdóttir Þórhildur Rún Guðjónsdóttir 30 ára Benjamín Ingi Guðgeirsson Bjarki Jónsson Grzegorz Pawel Misiak Guðbjörg Lára Guðjónsdóttir Hugrún Margrét Óladóttir Jón Anton Stefánsson Ragnar Tryggvi Snorrason Reda Rimkute Sigurður Kjartan Kristinsson Sæunn Skúladóttir Sævar Sveinsson Torfi Ásgeirsson Til hamingju með daginn 40 ára Katla er Reykvík- ingur en býr á Álftanesi. Hún er hjúkrunarfr. Maki: Guðfinnur Karls- son, f. 1974, er með sjálf- stæðan rekstur. Börn: Birta Marín, f. 1999, Nanna Lilja, f. 2006, Lovísa Sóley, f. 2009, Aníta Kristín, f. 2010, og Lena Kamilla, f. 2017. Foreldrar: Jón Steinar Ingólfsson, f. 1955, og Berglind Ólafsdóttir, f. 1959. Katla Marín Jónsdóttir 40 ára: Þórhildur er úr Hveragerði en býr í Mos- fellsbæ. Hún er fram- kvæmdastj. öryggistækni- fyrirtækisins Nortek. Maki: Sveinn Líndal Jó- hannsson, f. 1968, með- eigandi auglýsingastof- unnar ENNEMM. Börn: Jökull Ari, f. 2009, og Óskar Örn, f. 2012. Foreldrar: Guðjón Sig- urðsson, f. 1948, og Vera Ósk Valgarðsdóttir, f. 1953, skólastjórnendur. Þórhildur Rún Guðjónsdóttir 30 ára Sæunn er Norð- firðingur en býr á Eski- firði. Hún er lærður hár- snyrtir en vinnur á leikskólanum Dalborg. Maki: Andri Bergmann Þórhallsson, f. 1983, netagerðarmaður hjá Egersund. Dóttir: Ylfa Bergmann, f. 2018. Foreldrar: Skúli Aðal- steinsson, f. 1956, og Guðrún Brynjarsdóttir, f. 1963, bús. í Neskaupstað. Sæunn Skúladóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.