Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 61

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef þú ert það sem þú borðar ættir þú að draga úr neyslu á fæðu sem er ekki holl fyrir þig. Magavandamál þín munu hverfa ef þú hlustar á líkamann. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að ráðast í þrif á heimilinu í dag og virkjaðu heimilisfólk með þér. Þér verður boðið í skemmtilega veislu innan skamms. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú ertu komin/n með lausn á vandamáli sem hefur verið að naga þig að undanförnu. Þú laðast að manneskju sem þú hefur nýverið hitt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki gera lítið úr heimspekilegum við- horfum eða trúarskoðunum einhvers í dag. Hlustaðu í einlægni og umhyggjusemi, alveg eins og þú vilt að aðrir hlusti á þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Óskhyggja getur verið upphaf vegferðar ef maður leyfir sér að tala upphátt. Tilhugs- unin um að þú getir allt sem þú vilt fyllir þig krafti. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einbeittu þér að því sem þú kemst auðveldlega yfir og getur leyst svo vel fari. Einhvern veginn tekst þér að finna leiðir til þess að nota hæfileika þína sem þú hefur nóg af. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur það á tilfinningunni að sam- starfsmenn þínir efist um hæfileika þína. Morgunstund gefur gull í mund, þú vaknar alltaf snemma, notaðu tímann í eitthvað upp- byggilegt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Annaðhvort ertu með frábært tengslanet eða þú ert ótrúlega heppin/n. Myrkar tilfinningar frá liðnum dögum eru horfnar. Leiðin til sigurs er breið og bein hjá þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Njóttu viðurkenningar og ástúðar sem þér er sýnd. Láttu þig dreyma um stund og helltu þér síðan út í framkvæmdir. Mundu að sinna vinum þínum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gætir þurft að sætta þig við málamiðlanir í dag. Hvað eina sem þú tekur upp á til þess að bæta líkamlegt form skilar sér margfalt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hláturinn lengir lífið svo það er ágætt að hafa gamanmál á takteinum þegar það á við. Nýr maki er ekki alltaf málið, hugs- aðu málið til enda. 19. feb. - 20. mars Fiskar Dómgreindin er ekki upp á sitt besta núna. Þú verður að kyrra hugann til að geta tekið góðar ákvarðanir. ÁLeirnum dregur Davíð Hjálm-ar Haraldsson upp mynd af nýjustu tíðindum af mengun hafsins: Í leirfjöru lá’ann í kasti og læknir sem skar’ann í hasti ögn ráðþrota stóð er rann ekkert blóð, svo fullur var Finnur af plasti. „Ófærð í höfuðborginni og víðar“ verður Davíð Hjálmari að yrkisefni: Í borginni það býr við vanda, blessað fólkið, óvant snjó, en upp úr ljósastaurar standa á stöku hæðum, tel ég þó. Davíð Hjálmar skilaði inn umsögn á samráðsgátt um klukku og sólar- gang: Nauðsynlegt er næturhúmið. Náttúran þitt bætti geð ef þú færir fyrr í rúmið og frúnni þinni byðir með. Á laugardaginn vakti Davíð Hjálmar athygli á því, að frétt og auglýsing komu í útvarpinu um að Vaðlaheiðargöng yrðu lokuð allan þann dag vegna formlegrar opn- unar ganganna. Göngin höfðu verið opin síðustu vikur og verða það áfram: Hér koma gestir með hátíðarbrag, heillafull mörg eru slokuð við göngin svo opin hvern einasta dag og opnuð í dag en þó lokuð. Og síðan bætti hann við: „Ég hélt að ég myndi skilja málið með því að yrkja um það en ég er engu nær!“ Þetta gaf Fíu á Sandi tilefni til að gera þessa athugasemd: „Vinkona mín sagði í gær að það eina sem gæti gert hana vita vitlausa væri óskiljanleg nútímatækni og óskilj- anlegt nútímamálfar. „Vilji er allt sem þarf“ er semsé frasi sem á ekki við hana lengur. Svo ég sendi henni þessa: Mig skortir ei hugrekki og veit hvað ég vil en víst er að núið er snúið. Það virðist þar fátt sem ég veit eða skil en verst er að ölið er búið.“ Þetta lét Ólafur Stefánsson ekki fram hjá sér fara: Víst er það snúið og verður ei bætt, þótt viljinn sé enn fyrir hendi, að lífið það býður oss súrt bæði’og sætt, og sullið með bjórinn fær endi. Þorsteinn Erlingsson orti: Líkast er það ljósum draum að liggja svona og heyra heillar nætur glasaglaum glymja sér við eyra. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Mengun hafsins, ófærð og Vaðlaheiðargöng „ÉG ER MEÐ MARGFALDAN PERSÓNULEIKA. ÉG ER HEILA EILÍFÐ AÐ KOMAST Í GEGNUM VEGABRÉFAEFTIRLITIÐ.” „VERTU ALVEG HEIÐARLEGUR! HANN ER SVOLÍTIÐ ELLILEGUR MIÐAÐ VIÐ AÐ VERA 56 ÁRA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera ánægð með líkama sinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VARÚÐ LYGAHUNDUR HEFURÐU GRENNST? ÞÚ HLÝTUR AÐ LYFTA ÞÚ ERT SVO UNGLEGUR JE, JE, JE … MAMMA, ERTU TILBÚIN AÐ FARA Á MARKAÐINN? JÁ, EN ÉG VIL EKKI AÐ PABBI ÞINN GLEYMI AÐ TAKA MEÐALIÐ SITT Á MEÐAN VIÐ ERUM Í BURTU! ÉG SETTI ÞAÐ ÞAR SEM ÞAÐ GETUR EKKI FARIÐ FRAMHJÁ HONUM! Tíminn er sjaldnast á bandi Vík-verja. Í það minnsta líður honum eins og tíminn sáldrist í gegnum hendurnar á honum gjörsamlega stjórnlaust. Þessa dagana er mikið rætt um tímann. Mætti ætla að með því að eiga við klukkuna yrði allt betra í samfélaginu. Allir yrðu morgunhressir, börnum yrði skemmt í skólum og allt myndi ein- faldlega ganga betur. Víkverji vonar vitaskuld að þetta sé allt saman hár- rétt. x x x Víkverji þekkir til erlendis og veittil þess að í mörgum löndum er meira samræmi milli klukkunnar og sólargangs en hér. Kemur þetta meðal annars fram í því að þar er há- degi þegar sól er hæst á lofti. Í mörgum þessara landa er í ofanálag hringlað með klukkuna tvisvar á ári, fram og til baka. Víkverji minnist þess ekki að hafa verið hressari á morgnana þegar hann hefur dvalið í löndum þar sem svo er búið um hnútana. Honum fannst annað fólk þar heldur ekkert áberandi hressara en annað fólk hér á landi. Hann hef- ur heldur ekkert séð um að ung- menni þar séu meiri námshestar eða gleðjist meira yfir skólagöngu sinni, en íslensk ungmenni. Honum virtist frekar að allur gangur væri þar á og var þá ekki að hugsa um sólargang. x x x Þessar athugasemdir eru hins veg-ar allt annað en vísindalegar og því sennilega ekkert að marka þær. x x x Víkverji hefur satt að segja meiriáhyggjur af því sem hann nefndi í upphafi þessa pistils. Honum finnst tíminn líða alltof hratt og hann sjaldnast ná að koma öllu því í verk, sem hann vildi. Helst vildi hann geta ýtt á taka sem frystir tímann. Vík- verji gæti þá unnið upp það sem hann á ógert og sett síðan tímann aftur í gang. Slíkur frystihnappur hefur nýst honum vel þegar hann horfir á sjónvarp og þarf að bregða sér frá. Þetta minnir Víkverja á til- vitnun, sem hann rakst á: „Gallinn er sá að tíminn flýgur, kosturinn er sá að þú ert flugmaðurinn.“ vikverji@mbl.is Víkverji Áform verða að engu þar sem engin er ráðagerðin en ef margir leggja á ráðin rætast þau. (Orðskviðirnir 15.22)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.