Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
deildinni við sama skóla frá og með
haustinu.
„Sviðsvinnan og leiklistin togar
enn í mig og því varð óperusöngur
fyrir valinu frekar en ljóðasöngur,“
segir Silja, sem var á leið á sína
fyrstu æfingu með Sinfóníuhljóm-
sveitinni þegar blaðamaður náði tali
af henni fyrr í vikunni. „Ég er bara
búin að æfa með píanista í Kalda-
lóni,“ segir Silja sem líka hafði náð
einni æfingu með hljómsveitarstjór-
anum. „Það eru ótrúleg forréttindi
að fá svona opinn og dásamlegan
hljómsveitarstjóra sem hlustar á
okkur sem tónlistarfólk og leyfir
okkur að taka þátt í ákvörðunartöku
um tónlistarflutninginn. Það er al-
veg einstakt. Því það er alls ekki
sjálfgefið að maður fái það. Hún er
rosalegur fagmaður,“ segir Silja um
Amadio, sem staðið hefur á stjórn-
endapallinum í yfir 20 ár og er í dag
aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníu-
hljómsveitar Bogotá í Kólumbíu.
Konsert í miklu uppáhaldi
„Þessi konsert hefur lengi verið í
miklu uppáhaldi hjá mér eða frá því
ég heyrði hann fyrst,“ segir Hjörtur
Páll um sellókonsertinn í e-moll eftir
Edward Elgar sem hann flytur
ásamt SÍ í kvöld. Rifjar hann upp að
hann hafi verið svo lánsamur að
leika með hljómsveit sem flutti verk-
ið með Sæunni Þorsteinsdóttur. „Þá
kynntist ég verkinu vel og hef síðan
látið mig dreyma um að spila þenn-
an konsert sem einleikari,“ segir
Hjörtur Páll og bendir á að konsert-
inn sé eðlilega í miklu uppáhaldi hjá
mörgum sellistum. „Enda er þetta
frábær tónsmíð.“
Aðspurður segir Hjörtur Páll
mikið fagnaðarefni að ungum ein-
leikurum gefist kostur á að leika
með SÍ. „Það er einstakt fyrir ungt
tónlistarfólk sem er að leggja sig
fram í námi erlendis að fá tækifæri
til að koma heim og leika með hljóm-
sveitinni. Í mörgum tilvikum eru
ungu einleikarnir að fá tækifæri til
að spila með framtíðarkollegum,“
segir Hjörtur Páll og segist þakk-
látur fyrir þá jákvæðu stemningu
sem ríki í garð ungu einleikaranna á
æfingum með SÍ.
Hjörtur Páll var aðeins tæplega
fimm ára þegar hann hóf sellónám í
Allegro Suzuki-tónlistarskólanum..
„Systkini mín þrjú spiluðu öll á fiðlu,
en ég hreifst miklu meira af sellóinu.
Þegar ég var pínulítill heyrði ég
upptökur með Pablo Casals og þá
varð ekki aftur snúið og sellóið eina
hljóðfærið sem kom til greina,“ segir
Hjörtur Páll sem er á öðru ári í
bachelor-námi í sellóleik við Kon-
unglega tónlistarskólann í Kaup-
mannahöfn og þegar farinn að skoða
möguleikann á því að halda áfram í
framhaldsnámi við sama skóla.
Auk framangreindra verka eru á
efnisskrá kvöldsins Depuis le jour
úr Louise eftir Gustave Charpen-
tier; Glitter and be Gay úr Candide
eftir Leonard Bernstein; Der Hölle
Rache kocht in meinem Herzen úr
Töfraflautunni eftir W.A. Mozart og
Fiðlukonsert í d-moll eftir Jean
Sibelius.
Eftirvænting Guðbjartur Hákonarson, Silja Elsabet Brynjarsdóttir, Hjörtur
Páll Eggertsson og Harpa Ósk Björnsdóttir koma fram í Eldborg í kvöld.
hjálpað til þegar kom að því að klipp-
ingu. Hún ber leikstjóra myndar-
innar, David Leitch, vel söguna.
„Hann er svo opinn fyrir tillögum,
fyrir þátttöku,“ segir hún og að hún
hafi m.a. bent honum á hvað mætti
betur fara þegar kom að kvikmynda-
tökunni, þ.e. hvað mætti betur fara út
frá sjónarhorni klipparans. „Betur
sjá augu en auga,“ bendir Elísabet á.
Egóinu strokið
Við víkjum talinu að Eddie-verð-
laununum fyrrnefndu og segir Elísa-
bet tilnefninguna mikinn heiður. „Ég
er náttúrlega tilnefnd með tveimur
öðrum því ég var í fjóra mánuði á
sjúkrahúsi, það þurfti að ráða aðra
klippara til að halda vinnunni áfram,“
segir hún. Hún hafi svo haldið áfram
þegar heilsan leyfði.
Elísabet hefur fimm sinnum verið
tilnefnd til Edduverðlauna og hefur
hlotið þau þrisvar. Hún er spurð að
því hvernig verðlaun leggist almennt
í hana, bæði að vera tilnefnd og hljóta
þau og segir hún þau vissulega hvatn-
ingu. „Þetta peppar mann upp þegar
maður hangir stundum algjörlega á
nöglunum. Þetta er líka einmanalegt
starf,“ svarar hún og líkir kvik-
myndaverkefnunum við börn sem
hún hafi tekið í fóstur.
„Maður gerir sitt besta og ferlið
vekur mestan áhuga hjá mér. Verð-
launaafhendingar eru svona egó-
klapp því það er enginn að halda því
fram að sú kvikmynd sem fær verð-
laun fyrir bestu klippingu sé endilega
sú best klippta heldur einfaldlega
hvatning til þess að fólk kíki í þessa
átt. Maður eyðir öllu árinu einn inni í
þessu herbergi,“ bendir Elísabet á og
hlær að einverunni, að enginn komi
að sjá hana og blaðamanni dettur í
hug leikurinn „Ein ég sit og sauma“.
Kannski litla músin kíki stundum í
heimsókn?
Varð ástfangin af ferlinu
Elísabet nam kvikmyndagerð í
London Film School og lagði sérstaka
áherslu á kvikmyndatöku og út á hana
gekk lokaverkefnið hennar. Að loknu
námi fór hún strax að vinna fyrir sér,
framan af sem aðstoðartökumaður hjá
Karli Óskarssyni. „Ég tók reyndar
upp eitt vídeó með Aha í London,“ seg-
ir hún sposk og á þar við norsku popp-
sveitina margfrægu. Sjá má af svip
hennar að það var mikið fjör.
En hvenær hófst þá klippiferillinn?
„Í rauninni þegar Kalli Óskars og
þeir komust að því að ég væri gengin
sex eða sjö mánuði á leið með annan
son minn. Ég var að setja upp ljós,
klifra upp vinnupalla og svona,“ segir
Elísabet sposk. Körlunum hafi þótt
óþægilegt að horfa upp á þetta og sent
hana inn í klippiherbergi hjá fyrirtæk-
inu Sýn sem framleiddi m.a. þættina
Maður er nefndur. „Ég varð bara ást-
fangin af klippiferlinu, fannst það ótrú-
lega skemmtilegt og þetta gerðist allt
á réttum tíma,“ rifjar Elísabet upp. Þá
varð ekki aftur snúið. Seinustu mynd-
ir Elísabetar, þær sem hafa verið
gerðar í Hollywood, eru allar hasar-
myndir og segist hún ekki vilja fá
þann merkimiða á sig að vera ein-
göngu hasarmyndaklippari.
„Mér er alveg sama hvort þetta er
ástarsaga eða eitthvað annað,“ segir
Elísabet, klippilistin snúist um ákveð-
inn takt.
Hún segist hafa ákveðnar áhyggj-
ur af hlutverki klipparans nú um
stundir. „Það er að verða sífellt
tæknilegra og ég er ekki tæknimann-
eskja, ekki frekar en rithöfundur er
tæknimaður,“ segir Elísabet. Hún sé
sögumaður, ekki tæknimaður.
„Ástæðan fyrir því að það eru til
svona rosalega margar illa klipptar
bíómyndir er að þar hafa verið ein-
hverjir tæknigaurar á ferð,“ bætir
hún við. Góðir klipparar þurfi að hafa
brennandi áhuga á kvikmyndagerð
og sinni starfi sínu af ástríðu.
Ólík sjónarhorn
En getur hún gefið dæmi um illa
klippta kvikmynd og vel klippta?
Elísabet svarar því til að þegar hún
sé að kenna kvikmyndanemum mæli
hún með því að þeir horfi á illa klippta
sjónvarpsþætti eða kvikmyndir. Og
þar sé af nógu að taka.
„Horfðu bara á The Bold and the
Beautiful, það er viss taktur í þátt-
unum sem höfðar til fólks. Fólk hefur
mismunandi sjónarhorn á kvikmynd-
ir og sumir geta horft á, að mínu mati,
ömurlegar kvikmyndir af því búning-
arnir eru æðislegir eða leikararnir
skemmtilegir eins og Ryan Reynolds
er í Deadpool 2. Auðvitað er myndin
skemmtileg en það er ekki mér að
þakka!“ segir Elísabet og hlær.
„Ég átti erfitt með að yfirgefa
klippið á Deadpool 2 og fannst ég
ekki ná að klára það sem ég vildi gera
en ég er líka haldin alvarlegri þrá-
hyggju!“ segir Elísabet og hlær. Hún
bendir á að klipparinn sé að vinna
bæði með eigin tilfinningar og ann-
arra og að starfið sé því snúið og flók-
ið en líka afar skemmtilegt og gef-
andi.
„Það mikilvægasta sem klippari
þarf að hafa er gott sjálfstraust og
það brotnaði dálítið upp úr því hjá
mér af því ég varð svo veik og tauga-
kerfið var ekki alveg upp á sitt besta.
Þannig að ég hafnaði því að fara með
David [Leitch] í næstu mynd sem
hann er að kvikmynda núna, ég þurfti
að komast aftur upp á þennan hest.
Ég klippti því tvo þætti í Netflix-seríu
og ætla að taka að mér litla gam-
anmynd í L.A.,“ segir Elísabet að lok-
um.
Vinir Elísabet Ronaldsdóttir með
Ryan Reynolds í gervi Deadpool.
Stuð Elísabet með Chad Stahelski,
leikstjóra John Wick-myndanna.
Í vinnunni Elísabet með aðstoðar-
manni sínum Matt Absher.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s
Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s
Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s
Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s
Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s
Allra síðasta sýning 1. febrúar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s
Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s
Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s
Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Sun 20/1 kl. 17:00 5. s Sun 27/1 kl. 20:00 7. s
Mið 23/1 kl. 20:00 6. s Mið 30/1 kl. 20:00 8. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s
Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Athugið. Aðeins verða átta sýningar.
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas.
Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas.
Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 5/5 kl. 13:00
Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 5/5 kl. 16:00
Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn
Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn
Insomnia (Kassinn)
Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 17/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30
Fös 18/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 2/2 kl. 19:30
Fös 18/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 22:00
Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 7/2 kl. 19:30
Lau 19/1 kl. 22:30 Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30
Fim 24/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200