Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverð-
laun kvenna, voru afhent í 13. sinn við
hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Í
flokki fagurbókmennta var valið best
smásagnasafnið Ástin, Texas eftir
Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Fíasól
gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur var valin sú besta í
flokki barna- og unglingabókmennta
og Þjáningarfrelsið – óreiða hug-
sjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla
eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld
Beck og Steinunni Stefánsdóttur var
valin sú besta í flokki fræðibóka og
rita almenns eðlis.
Hyggst beita öðrum brögðum
„Þessi verðlaun eru svo falleg og
sérstök. Ekki síst fyrir það sem er yf-
irlýst markmið þeirra sem er að
reyna að geta sér til um hvað verði
eftir þegar flóðið er komið og farið,“
segir Guðrún Eva Mínervudóttir, en
auk smásagnasafns hennar, Ástin,
Texas, voru í flokki fagurbókmennta
tilnefndar bækurnar Ungfrú Ísland
eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Kláði
eftir Fríðu Ísberg.
Í umsögn dómnefndar um Ástin,
Texas segir að smásagnasafnið
geymi fimm smásögur „sem láta ekki
mikið yfir sér; þær eru lágstemmdar
á yfirborðinu en undir niðri krauma
miklar tilfinningar. Sögurnar hverf-
ast allar um ástina og fjalla bæði um
nánd og skortinn á henni. Þetta er fá-
dæma vel gert; mannlýsingar eru
trúverðugar og vekja samkennd með
persónum og samskiptum þeirra er
lýst af slíkri dýpt og næmi að þau láta
lesandann vart ósnortinn.“
Spurð hvort Ástin, Texas sé besta
bók hennar til þessa svarar Guðrún
Eva því umsvifalaust játandi. „Ég
segi bara eins og Sartre, mér er alveg
sama hvað fólk segir um bækurnar
mínar svo lengi sem það viðurkennir
að hver bók sé skárri en sú næsta á
undan. Maður vill vera að taka stöð-
ugum framförum. Það þýðir líka að
þær bestu hljóta að vera óskrifaðar,
sem er mjög góð tilhugsun,“ segir
Guðrún Eva og bætir við að hana
langi til að skrifa fleiri smásagnasöfn.
„Miðað við viðtökur hef ég á til-
finningunni að það séu fleiri en ég
sem þyrstir í aðeins minna strúktúr-
eraðan skáldskap og aðeins minna
framvindudrifinn skáldskap. Þá
verður það óvart um leið minna form-
úlerað og gefur lesandanum meira
pláss. Þá er áskorunin að hafa þetta
aðgengilegt, að fólki þyki þetta
skemmtilegt og upplifi strax miklar
tilfinningar gegnum lesturinn, en um
leið fær lesandinn mikið rými til að
upplifa söguna og endinn á sinn hátt,
því hann er ekki á neinn hátt mat-
aður. Markmið mitt í þessum sögum
var að hafa eitthvað stórt inni í litlu,
svona eins og hús sem er stærra að
innan en það er að utan,“ segir Guð-
rún Eva og tekur fram að hún sé í
augnablikinu afhuga snyrtilega
skáldsagnaforminu. „Ég hugsa að ég
muni skrifa fleiri skáldsögur, en að
þær verði þá drifnar áfram af ein-
hverju öðru en plotti. Ég muni þurfa
að beita öðrum brögðum til að við-
halda athygli lesandans.“
Varpar ljósi á öll bókverk
„Mér þykir sérstaklega vænt um
að vera verðlaunuð fyrir Fíusól,“ seg-
ir Kristín Helga Gunnarsdóttir sem
verðlaunuð er fyrir sjöttu og síðustu
bók sína um stelpuna uppátækja-
sömu. Þetta er í þriðja sinn sem
Kristín Helga hlýtur Fjöruverðlaunin
í flokki barna- og unglingabókmennta
og annað árið í röð því í fyrra var hún
verðlaunuð fyrir Vertu ósýnilegur,
flóttasaga Ishmaels. Auk Fíasól gefst
aldri upp voru tilnefndar bækurnar
Lang-elstur í leynifélaginu eftir
Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og
Sjúklega súr saga eftir Sif Sigmars-
dóttur og Halldór Baldursson.
Í umsögn dómnefndar um vinn-
ingsbókina segir að umræðan um sið-
ferðileg álitamál sé „sett fram af
barnslegri einlægni en um leið alvöru
sem dýpkar undirtón sögunnar. Per-
sónur bókarinnar eru ekki byggðar
upp af staðalímyndum heldur eru
þær lifandi og margræðar rétt eins
og heimur Fíusólar.“
„Ég hélt að Fíasól væri farin frá
mér,“ segir Kristín Helga, en síðasta
bókin um Fíusól kom út 2010. „En
svo átti ég býsna margar sögur sem
söfnuðust saman og hæfðu henni svo
vel og eina sem kallaði á frekari úr-
vinnslu,“ segir Kristín Helga sem í
verðlaunabók sinni lætur Fíusól leita
til umboðsmanns barna. „Hún kemst
að því að margir krakkar eru í flókn-
um og erfiðum aðstæðum og stofnar
því björgunarsveit sem berst fyrir
réttindum barna. Stóru málin sem
mörg börn glíma við í dag eru þessar
tvískiptu aðstæður þar sem börn búa
til helminga á tveimur stöðum og
jafnvel skipta lífinu sínu algjörlega í
tvennt. Stundum gengur þetta út í
öfgar og stundum dansar þetta ljúf-
lega. Mér fannst áhugavert að skoða
það með augum Fíusólar.“
Aðspurð um þýðingu Fjöruverð-
launanna segir Kristín Helga þau
hafa mikla þýðingu. „Því þetta er ljós
– ekki bara á verkin sem eru tilnefnd
og verðlaunuð heldur vonandi á öll
hin bókverkin,“ segir Kristín Helga
og bendir á að verðlaunin varpi ekki
bara sterku ljósi á kvennabókmenntir
heldur líka á barna- og unglingabæk-
ur. „Við sem skrifum fyrir börn höld-
um í raun uppi bókmenntalífi til fram-
tíðar, vegna þess að ef börn lesa ekki í
dag hver á þá að lesa á morgun?“
Fiðrildaáhrif á samfélagið
„Við unnum þessa bók af hugsjón af
því að okkur fannst þetta mikilvægt
umfjöllunarefni. Þess vegna finnst
mér mjög vænt um bæði þessi verð-
laun og tilnefninguna til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna því það er stað-
festing á því að samfélaginu finnist
þetta málefni mikilvægt. Þessi verð-
laun hjálpa bókinni vonandi að hafa
fiðrildaáhrif á samfélagið,“ segir Auð-
ur Jónsdóttir sem er höfundur Þján-
ingarfrelsisins ásamt Báru Huld Beck
og Steinunni Stefánsdóttur. Að auki
voru í flokki fræðibóka og rita al-
menns eðlis tilnefndar Aldarsaga hár-
iðna á Íslandi eftir Báru Baldurs-
dóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur
og Skiptidagar – Nesti handa nýrri
kynslóð eftir Guðrúnu Nordal.
Í umsögn dómefndar um
Þjáningarfrelsið segir að bókin sé
„mikilvægt og tímabært framlag til ís-
lenskra bókmennta“ auk þess sem
bókin sé liður í því að standa vörð um
tjáningarfrelsið.
„Í bókinni fáum við að kynnast
heiminum að baki fréttaflutningnum.
Fjallað er um raunveruleg dæmi sem
gefa innsýn í aðstæður sem blaða-
menn geta átt við að etja í störfum
sínum og áleitnar spurningar, hug-
myndir og vangaveltur sem varða
grunngildi fjölmiðlunar og stöðu fjöl-
miðla og tjáningarfrelsis á Íslandi í
upphafi 21. aldarinnar.“
Það er ekkert launungarmál að
kveikjan að bókinni var meiðyrðamál
sem höfðað var gegn Auði vegna pist-
ils hennar sem birtist á vef Kjarnans.
„Upphaflega ætlaði ég að skrifa ess-
eyju-bók um það að vera stefnt fyrir
orð sín, en eftir því sem ég heyrði
fleiri reynslusögur annarra vatt efnið
upp á sig og bókin breyttist í viðtals-
bók,“ segir Auður og rifjar upp að
þær Bára og Steinunn hafi tekið um
50 viðtöl fyrir bókina. „Það varð að
skrifa þessa bók hratt til þess að hún
stæði með því ástandi sem hún er að
lýsa, því þessi mál breytast hratt nú
um stundir. Umræðan um tjáningar-
frelsið er þörf,“ segir Auður og bendir
á að þegar rætt sé um tjáningarfrelsið
og skilyrði þess þurfi samtímis að
ræða fjölmiðla, virkni þeirra, rekstr-
arskilyrði og starfsumhverfi. „Fjöl-
miðlar eru ein grunnstoð þess að
virkt, frjálslynt lýðræði fái að dafna,“
segir Auður og bendir á að fjölmiðlar
eigi undir högg að sækja í breyttum
heimi „þar sem upplýsingastreymið
og upplýsingamengunin er endalaus;
upplýsingamengun og ókeypis fals-
fréttir ógna meðan fólk þarf oft að
borga fyrir vandaðar fréttaskýringar.
Það verður að vera hægt að ræða opið
og leitandi um fjölmiðla og hvernig
best sé hlúð að þeim án þess að eyrna-
merkja slíka umræðu pólitískum
skotgröfum.“
Ástin, Þjáningarfrelsið
og Fíasól verðlaunuð
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, afhent
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Verðlaunahafar F.v. í fremri röð Steinunn, Auður og Guðrún Eva, fyrir aftan þær Bára Huld og Kristín Helga.
HAHA nefnist leikrit sem Borgarleik-
húsið býður öllum unglingum í 10.
bekk í Reykjavík að sjá þessa vikuna á
Nýja sviði leikhússins. Ráðgert er að
alls muni um 1.400 unglingar sjá upp-
færsluna. Höfundar verksins og leik-
arar eru Sigurbjartur Sturla Atlason
og Jóhann Kristófer Stefánsson, sem
hingað til hafa verið þekktari sem tón-
listarmennirnir Sturla Atlas og Joey
Christ. Í sýningunni skoða þeir and-
lega heilsu ungs fólks í víðu samhengi.
Samkvæmt upplýsingum frá Borgar-
leikhúsinu er þetta í fjórða skiptið sem
það býður 10. bekkingum í leikhús, en
fyrsta skiptið var árið 2015.
10. bekkingum boðið í Borgarleikhúsið
Samtal Sturla Atlas í HAHA.
Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is
HVOLFARARKARA
Handhægir ryðfríir karahvolfarar
í ýmsum gerðum.
Tjakkur vökvadrifinn með
lyftigetu frá 900 kg.
Halli að 110 gráðum.
Vinsælt verkfæri í
matvælavinnslum
fiski – kjöti – grænmeti
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta