Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LYSEFJORD N°5859
120x200 cm 99.900 kr. Nú 74.900 kr.
160x200 cm 129.900 kr. Nú 96.900 kr.
180x200 cm 139.900 kr. Nú 99.900 kr.
HÖFÐAGAFL N°01
120x200 cm 19.900 kr. Nú 14.900 kr.
160x200 cm 24.900 kr. Nú 17.900 kr.
180x200 cm 29.900 kr. Nú 21.900 kr.
LYSEFJORD
WWW.ILVA.IS/NORTHBEDS
2
3
4
5
6
1
Nýtt
25%
KYNNINGARAFSLÁTTUR
1 Teygjanlegt efni sem má þvo
2 Comfort svampur - 5 cm
3 7 svæða pokagormar - 15 cm
4 Stuðningssvampur
5 Bonell-pokagormar - 13 cm
6 Sterkur viðarrammi - 8 cm
Fyrstu tónleikar ársins í röðinni Á
ljúfum nótum í Fríkirkjunni verða
haldnir í dag kl. 12 í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Á þeim verða fluttir
skemmtilegir dúettar og aríur úr
ýmsum áttum. Flytjendur eru Hall-
veig Rúnarsdóttir sópran, Jón Svav-
ar Jósefsson barítón og Hrönn Þrá-
insdóttir píanóleikari. Milli laga
munu þau fara með gamanmál og
mögulega kemur leynigestur fram
með þeim.
Hallveig, Jón og Hrönn
á ljúfum nótum
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 17. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Fjögur bestu liðin, að mati Gunnars
Valgeirssonar, sérfræðings Morg-
unblaðsins, eru komin í undan-
úrslitin í bandarísku NFL-ruðnings-
deildinni sem fara fram um næstu
helgi. New Orleans Saints og Kans-
as City Chiefs verða á heimavelli og
standa því vel að vígi fyrir leiki sína
gegn Los Angeles Rams og New
England Patriots. »4
New Orleans og Kans-
as standa vel að vígi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Kanadíska tón-
listarkonan Al-
anis Morissette
verður heiðruð
með tónleikum
annað kvöld á
Græna hattinum
á Akureyri.
Heiðurs-
hljómsveitin sem flytur lög hennar
er skipuð dyggum aðdáendum
hennar og mun hljómsveitin flytja
breiðskífuna Jagged Little Pill í
heild sinni og aðra slagara Moris-
sette. Hljómsveitina skipa Arna
Rún Ómarsdóttir, Helgi Reynir
Jónsson, Björgvin Birkir Björgvins-
son, Jón Ingimundarson, Erla Stef-
ánsdóttir, Gunnar Leó Pálsson og
Rósa Björg Ómarsdóttir.
Alanis Morissette
heiðruð fyrir norðan
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Á veitingastaðnum Horninu á mót-
um Hafnarstrætis og Pósthús-
strætis mátti fá mat að ítölskum
hætti í fyrsta sinn á Íslandi og stað-
urinn hefur kætt matgæðinga í nær
40 ár. Hann er með elstu veitinga-
stöðum landsins og hefur verið í eigu
sömu eigenda og á sama nafnnúmeri
og kennitölu frá upphafi. „Við lögð-
um ákveðna línu í byrjun, höfum
haldið okkur við hana og hún hefur
gengið vel,“ segir Jakob H. Magnús-
son, sem á staðinn ásamt fjölskyldu
sinni.
Jakob og Valgerður Jóhanns-
dóttir, eiginkona hans, bjuggu lengi í
Danmörku, en fluttu aftur heim 1979
og opnuðu Hornið í samstarfi við
Guðna Erlendsson, frænda Jakobs, í
júlí sama ár. Guðni flutti aftur út
nokkrum árum síðar en hjónin héldu
rekstrinum áfram og standa enn
vaktina.
Fjölskyldan tekur öll þátt í
rekstrinum og vinnunni. Dóttirin
Ólöf er matreiðslumeistari eins og
Jakob, Hlynur, eldri sonurinn, er
með föður sínum í rekstrinum og
vinnur í eldhúsinu og Jakob Reynir
er þjónn. Samtals eru 18 starfsmenn
á sumrin og 15 til 16 á veturna. „Við
höfum haft gott starfsfólk í gegnum
tíðina og höfum gætt okkar á því að
þenja okkur ekki mikið út heldur
beina kröftunum á einn stað,“ segir
Jakob. Hann vann á ítölskum veit-
ingastað í Kaupmannahöfn og
kynntist þar ítalskri matargerð, sem
var óþekkt á Íslandi. Eftir heimkom-
una vann hann á veitingastaðnum
Skrínunni á Skólavörðustíg á meðan
þau voru að koma Horninu í gang.
Trú upprunanum
„Við höfum alla tíð verið trú því
sem við byrjuðum á, haldið í sérhæf-
inguna í pítsum og pasta, og lagt
mikið upp úr úrvals hráefni og góð-
um mat.“
Veitingaflóran í miðbæ Reykja-
víkur var ekki burðug fyrir 40 árum,
nokkrir staðir sem buðu upp á heim-
ilismat á Laugavegi og Askur á Suð-
urlandsbraut. Jakob rifjar upp að
Hressó hafi verið lokað klukkan níu
á kvöldin, Nautið hafi líka verið í
Austurstræti og Hótel Borg og
Naustið skammt frá. „Svo voru það
Hótel Holt, Hótel Saga og Hótel
Loftleiðir. Þetta var ósköp fátæklegt
og því má segja að bylting hafi orðið
á þessu sviði, en nú er svo komið að
matarsala er nánast í hverju rými í
miðbænum, sem er kannski of mikið
af því góða,“ segir Jakob. Tekur
samt fram að gaman sé að fylgjast
með gróskunni enda margir flottir
staðir og kokkar í borginni.
Horninu var strax mjög vel tekið.
„Fólki fannst reyndar skrýtið að
sitja ekki í básum og sjá hvorki
gardínur né teppi, en breytt um-
hverfi féll í kramið,“ segir Jakob.
„Reksturinn hefur alla tíð gengið
ágætlega,“ áréttar hann og segir að
helsta breytingin sé sú að áður hafi
gestir setið lengi eftir mat en nú fari
þeir fyrr á kvöldin. „Viðskiptavin-
irnir eru ánægðir, þeir vita að hverju
þeir ganga og því höldum við áfram
á sömu braut. Við heyrum fólk tala
um tvo rótgróna staði; Hornið og
Mokka, og ég er ósköp ánægður með
að vera nefndur með kaffihúsinu.“
Morgunblaðið/RAX
Fjölskyldan á Horninu Jakob fyrir framan og síðan frá vinstri Hlynur, Valgerður, Ólöf og Jakob Reynir.
Hornið traust í 40 ár
Í eigu sömu fjölskyldu og á sömu kennitölu frá byrjun