Morgunblaðið - 19.01.2019, Page 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019
kjöti er í greininni ráðlagður 29
grömm, sem er áþekkt magn og einn
og hálfur kjúklinganaggur, og
eggjaneysla verði ekki meiri en sem
samsvarar um einu og hálfu eggi í
viku hverri. Þá er lagt til að meira sé
borðað af grófu korni eins og byggi
og brúnum hrísgrjónum og að kart-
öfluneysla fari ekki yfir 50 grömm á
dag.
Aftur á móti þurfi neysla ávaxta,
grænmetis og bauna eins og t.d.
kjúklingabauna og linsubauna að
aukast verulega, einkum meðal fá-
tækari þjóða þar sem um 800 millj-
ónir jarðarbúa neyti ekki nægilegs
magns hitaeininga. Hvatt er til auk-
innar neyslu á hnetum og fræjum og
í þessum manneldismarkmiðum er
t.d. mælt með allt að 75 grömmum af
jarðhnetum á dag. Með þessu muni
neysla flestra mikilvægra næringar-
efna aukast en minna verði neytt af
mettaðri fitu.
Í greininni segir að verði raunin
sú að þorri mannkyns fari eftir
manneldismarkmiðunum verði hægt
að koma í veg fyrir 11,6 milljónir
ótímabærra dauðsfalla, ýmist vegna
hungurs eða ofneyslu matar, á ári
hverju.
Sætindi Í grein sinni í læknatímaritinu Lancet leggja sérfræðingarnir til
minni sykurneyslu. Milljónir deyja á ári hverju vegna slæmra neysluvenja.
Safarík steik Sérfræðingarnir leggja til að hver fullorðinn einstaklingur neyti ekki meira kjöts daglega en sem
samsvarar 14 grömmum og að það innihaldi ekki fleiri en 30 hitaeiningar. Það samsvarar einni beikonsneið.
Lagt er til að
daglegur skammtur af
fuglakjöti verði 29
grömm, sem er áþekkt
og einn og hálfur kjúkl-
inganaggur, og eggja-
neysla verði ekki meiri
en sem samsvarar einu
og hálfu eggi á viku.
Baunir Mælt er með því að neysla ávaxta, grænmetis og bauna eins og til dæmis kjúklingabauna og linsubauna verði
aukin verulega, einkum meðal fátækari þjóða. Einnig er mælt með aukinni neyslu á hnetum og fræjum.
kopavogur.is