Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Morgunblaðinu hefur borist eftirfar- andi yfirlýsing frá Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanrík- isráðherra og fyrrverandi formanni Alþýðuflokksins, í tilefni af fjölmiðla- umfjöllun síðustu daga um meinta háttsemi hans í garð kvenna. Fjórar konur stigu nýverið fram og sögðu í Stundinni frá áreitni og ofbeldi sem þær hefðu orðið fyrir af hendi Jóns Baldvins. Fleiri konur hafa síðan stigið fram á netinu og sagst ýmist vera þolendur eða vitni auk þess sem dóttir hans, Aldís, kom fram í viðtali í Ríkisútvarpinu og sagði að Jón Bald- vin hefði misnotað vald sitt til þess að nauðungarvista hana á geðdeild eftir að hún hótaði honum lögsókn vegna kynferðisbrota. Yfirlýsingin er svo- hljóðandi: „Án dóms og laga Yfirlýsing að gefnu tilefni. Að undanförnu hefur mátt lesa í hefðbundnum fjölmiðlum og á sam- félagsmiðlum sögur nafngreindra kvenna um vítaverða hegðun undir- ritaðs gagnvart kvenþjóðinni, jafnvel hálfa öld aftur í tímann.  Þessar sögur eiga það meðal ann- ars sameiginlegt að vera ýmist hreinn uppspuni eða þvílík skrum- skæling á veruleikanum, að sannleik- urinn er óþekkjanlegur. Sannleikur- inn er því nú þegar fyrsta fórnar- lambið í þessu leikriti. Það bíður síns tíma að leiðrétta það, m.a. af eftirfar- andi ástæðum:  Meginástæðan er sú, að söguberar eru ýmist í nánum fjölskyldu- tengslum við okkur Bryndísi eða nánir vinir elstu dóttur okkar. Við Bryndís erum sammála um, að fjöl- skylduböl af þessu tagi – því að það er það – verði ekki útkljáð í réttarsal, né heldur til lykta leitt í fjölmiðlum. Við stefnum dóttur okkar ekki fyrir dóm – lái okkur hver sem vill.  En hver er þá okkar ábyrgð á fjöl- skyldubölinu, sem mér er svo tíðrætt um? Ætlum við að skella allri skuld af ógæfu fjölskyldunnar á aðra? Er þetta virkilega allt öðrum að kenna? Því fer fjarri. Sjálfur ber ég þunga sök af því að hafa valdið langvarandi ósætti innan fjölskyldu Bryndísar. Bréfaskipti mín við Guðrúnu Harð- ardóttur, systurdóttur Bryndísar, þegar hún var 17 ára, voru hvort tveggja með öllu óviðeigandi og ámælisverð. Á því hef ég beðist margfaldlega afsökunar, bæði Guð- rúnu sjálfa og fjölskyldu hennar, sem og opinberlega. Ég hef leitað eftir fyrirgefningu, en án árangurs. Á þessu máli ber ég einn ábyrgð – og enginn annar.  Seinni tíma ásakanir um áreitni við Guðrúnu á barnsaldri eru hins vegar tilhæfulausar með öllu. Það mál var rannsakað í tvígang af lög- reglu og saksóknara, m.a. með yf- irheyrslum og vitnaleiðslum, og vísað frá í bæði skiptin, enda varð vitnum við komið. Öll gögn, sem máli skipta, liggja fyrir og eru öllum aðgengileg, m.a. á heimasíðu minni (www.jbh.is).  Hvers vegna er elstu dóttur okkar svo mjög í nöp við foreldra sína, eins og raun ber vitni? Hversu margar eru þær fjölskyldur í okkar litla sam- félagi, sem eiga um sárt að binda vegna geðrænna vandamála einhvers í fjölskyldunni? Hversu algengt er það ekki, að reiði og hatur, sem af hlýst, beinist fyrst og fremst að nán- ustu aðstandendum? Þetta er kjarni málsins. Eftir að hafa oftar en einu sinni orðið við ákalli geðlækna um nauðungarvistun elstu dóttur okkar á geðdeild, snerist vinarþel og ástúð dóttur til föður að lokum í hatur, sem engu eirir, eins og frásagnir hennar bera vott um. Nauðungarvistun er síðasta neyðarúrræði geðlæknis. Á þessum tíma þurfti að lögum heimild náins aðstandanda til að beita þessu neyðarúrræði. Dóttir okkar treysti mér einum til þess og lét bóka það. Þeir sem halda því fram, að einhver svokallaður „valdamaður“ geti sigað lögreglu á varnarlausa einstaklinga að geðþótta, vita ekki hvað þeir eru að tala um. Sem betur fer hefur þess- ari kvöð nú verið létt af aðstand- endum.  Allar tilraunir til sátta, einnig með milligöngu sálusorgara og sérfræð- inga, hafa engan árangur borið. Þetta er nógu sár lífsreynsla fyrir alla, sem hlut eiga að máli, þótt ekki bætist við, að fjölmiðlar vilji velta sér upp úr ógæfu annarra með því að lepja upp einhliða og óstaðfestan óhróður, að óathuguðu máli. Það er satt að segja hreinn níðingsskapur að færa sér í nyt fjölskylduharmleik eins og þann, sem við höfum mátt búa við í áratugi, til þess að ræna fólk mannorðinu, í skjóli þess að vörnum verði vart við komið. Það verður hvorki réttlætt með sannleiksást né réttlætiskennd. Það er ekki rann- sóknarblaðamennska. Það er sorp- blaðamennska.  Hvað er þá til ráða til að hnekkja ósönnum og ærumeiðandi aðdrótt- unum í fjölmiðlum? Varðar það ekki við lög að bera ósannar sakir á aðra? Hingað til hefur það talist vera svo. Og til þess eru dómstólar í réttarríki að leiða sannleikann í ljós – útkljá málin. En eins og áður sagði, munum við Bryndís hvorki lögsækja veika dóttur okkar né þær frændsystur Bryndísar, sem hlut eiga að máli. Fremur kjósum við að láta þetta yfir okkur ganga; og bera harm okkar í hljóði að sinni.  Ég vil líka taka það fram, að ómerkilegan pólitískan skæting, hvort heldur hann er framreiddur af formanni Sambands sjálfstæðis- kvenna eða af fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar, virðum við ekki svars. Það hefur ekki þótt vera nein- um til vegsauka með okkar þjóð hingað til að sparka í liggjandi fólk. Og að því er varðar mína pólitísku arfleifð uni ég því vel að vera að lok- um dæmdur af verkum mínum.  Fyrst í stað fannst mér, að ég gæti með engu móti setið þegjandi undir öllum þessum ásökunum, ásamt per- sónuníðinu, sem flæðir yfir alla bakka á svokölluðum samfélags- miðlum. Við nánari íhugun er niður- staðan samt sú, að í þessu eitraða andrúmslofti, þar sem ósannar full- yrðingar og níð hafa fengið að grass- era athugasemdalaust dögum sam- an, sé það til lítils annars en að skemmta skrattanum. Ekki vegna þess að þögn sé sama og samþykki; heldur vegna hins, að málflutningur sem byggist á staðreyndum, mun engin áhrif hafa á óvildarmenn mína. Við treystum því hins vegar, að það fólk, sem þekkir okkur Bryndísi per- sónulega af eigin reynslu, sjái í gegn- um moldviðrið.  Að öllu þessu virtu, er það niður- staða okkar Bryndísar, að sálarheill okkar umsetnu fjölskyldu eigi að hafa forgang, umfram réttarhöld í kastljósi fjölmiðla, að svo stöddu. Heildstæð greinargerð, þar sem öll- um framkomnum sakargiftum verði gerð verðug skil, verður því að bíða betri tíma. Því er ekki að neita, að mál af þessu tagi vekja ýmsar áleitnar spurningar, sem eru ekki á sviði einkamála, heldur varða almanna- heill. Getum við ekki lengur treyst því, að hver maður teljist saklaus, uns hann hefur verið sekur fundinn fyrir dómi? Skal hann samt teljast sekur samkvæmt dómstóli fjölmiðla, þótt sýknaður hafi verið af réttum yf- irvöldum að rannsókn lokinni? Þetta er sjálfur tilvistarvandi okkar brot- hætta réttarríkis. Á því berum við öll ábyrgð.“ Yfirlýsing frá Jóni Baldvin Hannibalssyni Stofnun Árna Magnússonar er að kanna nafngiftir lögbýla eftir að ný lög um örnefni tóku gildi 2015. Hef- ur starfsfólk á nafnfræðisviði í sam- starfi við örnefndanefnd óskað eftir upplýsingum frá sveitarfélögum landsins um breytingar á nöfnum lögbýla og nöfn á nýjum eða lög- heimilum á lóðum í dreifbýli. Aðalsteinn Hákonarson, sérfræð- ingur á nafnfræðasviði, segir að könnunin sé tilraun til að kortleggja stöðuna í þessum efnum, eftir að breytt var um fyrirkomulag. Hann segir að svör séu komin frá þónokkr- um sveitarfélögum. Samkvæmt ákvæðum laga sem áður giltu var skylt að afla leyfis ör- nefnanefndar til að breyta heitum á lögbýlum og skrá ný. Með laga- breytingum árið 2015 var sveitar- stjórnum falið að meta hvort nöfnin samræmdust markmiðum örnefna- laga. Aðalsteinn segir að hugmyndin hafi verið að örnefnanefnd og nafn- fræðisvið myndu fylgjast með og gera athugasemdir ef eitthvað þætti hafa misfarist. Gagnagrunnur um nafngiftir sem ætlunin var að setja upp og átti að auðvelda þetta eftirlit hefur hins- vegar ekki verið settur upp. Morgunblaðið/Heiddi Kátt í Kjós Leyfi þarf fyrir nöfnun lögbýla en ekki heyrúlluskreytingum. Kanna nafngiftir býla eftir breytingu  Óskað upplýsinga frá sveitarfélögum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum auðvitað drullufúl yfir þessari niðurstöðu,“ segir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra og stjórnar- maður í Sorpstöð Suðurlands. Sorpa bs. hefur hafnað beiðni Sorpstöðvar Suðurlands um tíma- bundna framlengingu á samningi um urðun. Þetta var staðfest á stjórnarfundi Sorpu fyrir skemmstu. „Í ljósi samskipta lítur stjórn Sorpu svo á að fyrir liggi ákvörðun SOS um að samstarfi og viðskiptum við Sorpu sé lokið enda hafa forsendur ekki breyst,“ segir í fundargerð stjórnar Sorpu. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá er stefnt að útflutningi sorps frá sveitarfélögum á Suðurlandi en sá útflutningur getur ekki hafist fyrr en í sumar. „Við gátum ekki uppfyllt skilyrði þess samnings sem Sorpa bauð okkur. Þar var krafa um að finna nýjan urðunarstað og það hefði fal- ið sér í nokkurra ára vinnu við skipulagsmál og fleira. Við ósk- uðum því eftir því að þeir myndu hjálpa okkur næstu sex mánuðina en þeir neituðu því líka,“ segir Anton Kári en nú er þess beðið að svör berist frá ýmsum sorpeyðing- arstöðvum á Suðurlandi um tíma- bundna urðun. „Vonandi fáum við svör sem allra fyrst. Það er að vísu ekkert ófremdarástand í sorpmálum en sveitarfélögin þurfa að vinna hratt. Við erum með alla anga úti.“ Sunnlendingar fá ekki framlengingu hjá Sorpu  Hefja útflutning sorps í sumar Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynntu í ríkisstjórninni í gær áform um að skoða í sameiningu breyt- ingar til að styðja betur barnshaf- andi konur á landsbyggðinni. Samkvæmt frétt á vef Stjórnar- ráðsins verður skipaður starfs- hópur sem á að móta og leggja fram tillögur að úrbótum, hvort sem er innan fæðingarorlofskerf- isins eða með öðrum hætti. Starfshópurinn mun fara yfir að- stæður þessara kvenna með tilliti til staðsetningar fæðingarþjónustu á landsvísu en margar þeirra þurfa að dveljast fjarri heimabyggð, með tilheyrandi tilkostnaði, í nokkurn tíma til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu. Óskað verður eftir tilnefningum í þessa vinnu á næstu dögum en gert er ráð fyrir að tveir formenn leiði hópinn, annar frá fé- lags- og barnamálaráðherra og hinn frá heilbrigðisráðherra. Áform um að styðja barnshafandi konur á landsbyggðinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.