Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Næsta vor er áætlað að endurnýja
umferðarljósabúnað á vestasta hluta
Sæbrautar. Samhliða því verða
gerðar breytingar á nokkrum gatna-
mótum. Meðal annars verður það
sem kallað er hægribeygju-
framhjáhlaup frá Snorrabraut inn á
Sæbraut aflagt. Umferð til hægri
verður á annarri af þeim tveimur ak-
reinum sem í dag liggja að gatna-
mótunum.
Tillaga samgöngustjóra og borg-
arhönnunar var tekin fyrir á síðasta
fundi skipulags- og samgönguráðs
og hún samþykkt með fyrirvara um
samþykki lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins.
Fram kemur í tillögunni að vorið
2019 sé áætlað að endurnýja um-
ferðarljósabúnað á gatnamótum Sæ-
brautar og Frakkastígs, Sæbrautar
og Snorrabrautar og Sæbrautar og
Katrínartúns. Gatnamót Sæbrautar
og Frakkastígs verða færð og end-
urgerð í samræmi við deiliskipulag.
Gatan liggur nú á milli lóðanna
Skúlagata 11 og 13 en verður færð
um það bil 50 metra til vesturs og
mun liggja í beinu framhaldi af
Frakkastíg.
Á hinum tvennum gatnamótunum
er gert ráð fyrir að lagfæra göngu-
leiðir samhliða m.a. með því að setja
leiðilínur og viðvörunarrönd/hellur
fyrir blinda og sjónskerta. Einnig
verður stöðvunarlína færð 2,5 metra
frá gönguþverun til samræmis við
leiðbeiningar um gönguþveranir og
þess gætt við stillingu umferðarljós-
anna að grænt ljós logi nægjanlega
lengi fyrir gangandi vegfarendur.
Það hefur einhver áhrif á þjónustu-
stig umferðar eftir Sæbraut en eftir
sem áður er þjónustustig ásættan-
legt að mati tillöguhöfunda. Verk-
efnið er unnið í samvinnu við Vega-
gerðina þar sem Sæbraut er
þjóðvegur í þéttbýli.
Með því að fella niður hægri-
beygjuframhjáhlaup frá Snorra-
braut inn á Sæbraut á að bæta ör-
yggi og aðgengi gangandi. Í staðinn
munu ökumenn sem hyggjast
beygja til hægri frá Snorrabraut
þurfa að velja akrein sem í dag er
ætluð vinstribeygju. Athugun á
áhrifum þessa á afköst sýni að um-
ferðarrýmd gatnamótanna rúmi
þessa breytingu vel.
Á gatnamótum Katrínartúns og
Guðrúnartúns er í dag skilgreind
gönguþverun en hún er alveg úti í
gatnamótunum. Lagt er til að bæta
þessa gönguþverun með því að færa
hana innar í Guðrúnartún. Til að
koma því við þarf að fella niður eitt
bílastæði.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
ráðinu bókuðu að mikilvægt væri að
ljósastýring yrði bætt víða í borg-
inni. Snjallar ljósastýringar væru
ein skynsamlegasta lausnin í um-
ferðar- og öryggismálum.
Ljósin á Sæbraut endurnýjuð í vor
Breytingar verða jafnframt gerðar á gatnamótum Gata verður færð um 50 metra til vesturs
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Gatnamót Hægri beygja af Snorrabraut á Sæbraut verður afnumin næsta vor. Ökumenn þurfa þá að velja akrein sem ætluð hefur verið vinstribeygju.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Wifi búnaður
fylgir með öllum
varmadælummeðan
birgðir endast
Mission Extreme
Umhverfisvænn kælimiðill
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er engin spurning að þetta er
grafalvarlegt mál eins og Elín Björg
lýsir málavöxtum,“ segir Páll Magn-
ússon, alþingismaður og fyrrverandi
útvarpsstjóri.
Eins og Morgunblaðið hefur greint
frá hefur Elín Björg Ragnarsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sam-
taka fiskframleiðenda og útflytjenda,
sent erindi til siðanefndar RÚV
vegna framgöngu fréttaskýringar-
þáttarins Kastljóss árið 2012. Elín er
ósátt við að viðtal sem tekið var við
hana þar sem hún ræddi almennt um
samkeppnislega mismunun í inn-
lendri fiskvinnslu og nauðsyn aðskiln-
aðar veiða og vinnslu var ekki birt en
síðar notað í umfjöllun þáttarins um
meint brot Samherja á gjaldeyris-
lögum. Vill hún
meina að látið hafi
verið að því liggja
að hún væri að tjá
sig um málefni
Samherja, en það
mál var ekki kom-
ið upp þegar við-
talið var tekið. El-
ín kveðst hafa
sent útvarps-
stjóra, Kastljós-
inu og fréttastofu RÚV tölvupóst þar
sem hún hafi lýst óánægju með þessa
„misnotkun“ á viðtalinu en aldrei
fengið nein svör. Sigmar Guðmunds-
son, þáverandi ritstjóri Kastljóssins,
sagði í gær að liðsmenn Kastljóss
hefðu árangurslaust reynt að ná sam-
bandi við Elínu í kjölfar erindis henn-
ar.
„Ef lýsing Elínar Bjargar sem
fram kemur í þessari blaðagrein er
rétt, að klippt hafi verið saman viðtöl
um allt annað efni en var til umfjöll-
unar, þá er um hreina fréttafölsun að
ræða. Það er auðvitað grafalvarlegt
mál. Það ber þó að hafa í huga að ég
hef ekki enn séð andsvör þeirra sem
um þetta véluðu á sínum tíma,“ segir
Páll. „Hún vísar til þess að hafa sent
mér sem útvarpsstjóra tölvupóst um
þetta mál. Ég verð því miður að segja
að þó ég ætti lífið að leysa þá man ég
ekki eftir þessum tölvupósti. Það fel-
ur ekki í sér neina staðhæfingu um að
hann hafi ekki verið sendur, ég geri
ráð fyrir að þetta sé allt hárrétt. Ég
verð bara að játa að ég man ekkert
eftir honum. Mér þykir það í sjálfu
sér leitt vegna þess að þessi atvikalýs-
ing hennar hefði að minnsta kosti gef-
ið tilefni til þess að ég, sem útvarps-
stjóri, kallaði eftir svörum um málið.“
Grafalvarlegt mál ef um
„fréttafölsun“ er að ræða
Fyrrverandi útvarpsstjóri man ekki eftir erindi Elínar Bjargar
Páll
Magnússon
Ríkissáttasemjari hefur tilnefnt
12 aðstoðarsáttasemjara sem
koma til með að aðstoða í þeim
kjaraviðræðum sem nú standa yf-
ir og framundan eru.
Hóp aðstoðarsáttasemjara
skipa: Aðalsteinn Leifsson, fram-
kvæmdastjóri hjá EFTA, Ástráð-
ur Haraldsson, héraðsdómari,
Bergþóra Ingólfsdóttir, héraðs-
dómari, Elín Blöndal, lögfræð-
ingur og markþjálfi, Elísabet S.
Ólafsdóttir, skrif-stofustjóri ríkis-
sáttasemjara, Guðbjörg Jóhannes-
dóttir, sóknarprestur og MA í
sáttamiðlun, Helga Jónsdóttir,
lögfræðingur, Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, héraðsdómari, Jó-
hann Ingi Gunnarsson, sálfræð-
ingur og ráðgjafi, Kristín Ingólfs-
dóttir, fyrrv. rektor Háskóla
Íslands, Magnús Jónsson, fyrrv.
veðurstofustjóri og Þórður S.
Gunnarsson, lögmaður.
Tólf aðstoða
við sáttamiðlun