Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 22
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Gengi íslensku krónunnar lækkaði
um 6,4% á árinu 2018, samanborið
við 0,7% lækkun árið 2017 og 18,5%
hækkun árið 2016. Innan ársins
2018 var flökt
krónunnar, eða
munur hæsta og
lægsta gengis,
17,3%. Þetta
kemur fram í
frétt frá Seðla-
banka Íslands.
Spurður að því
hvort íslenska
krónan sé óstöð-
ugur gjaldmiðill
segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, í samtali
við Morgunblaðið að það fari eftir
því við hvað er miðað. Eins og fram
komi í samanburðartöflu í frétt
Seðlabankans þá flöktu gjaldmiðlar
eins og ástralíudalur um 15,3% og
bandaríkjadalur, sem er með dýpsta
markað allra mynta í heimi, eins og
Jón Bjarki orðar það, um 11,2% á
síðasta ári. „Árið 2018 voru miklar
sveiflur á gjaldeyrismörkuðum al-
mennt í heiminum, ekki hvað síst á
bandaríkjadal. Okkar mynt sveiflað-
ist reyndar mest, samkvæmt gögn-
um Seðlabankans, en við erum auð-
vitað minnst í þessum samanburði
og með eina minnstu fljótandi mynt
í heiminum,“ segir Jón Bjarki.
Stilla fyrstu átta mánuðina
Hann segir að árið hafi skipst í
tvennt á gjaldeyrismarkaði hér á
landi. Stilla hafi ríkt fyrstu átta
mánuði ársins, en síðustu mánuðir
ársins hafi verið tími veikingar. „Ef
þessi samanburðartafla á flökti
myntanna hefði verið fyrir fyrstu
átta mánuði síðasta árs, þá hefði
krónan verið fyrir neðan meðallag í
þessu tilliti.“
Jón segir að viðskiptaafgangur
hafi nú viðhaldist lengur en nokkru
sinni í lýðveldissögunni. „Það styður
þá skoðun mína að krónan sé ekki
langt frá jafnvægisraungengi sínu.“
Jákvæð áhrif af veikingu krón-
unnar sjást á innflutningi og útflutn-
ingi, að sögn Jóns Bjarka. Lifnað
hafi yfir eftirspurn frá sumum
markaðssvæðum í ferðaþjónustunni,
á sama tíma og hægt hafi á móti á
innflutningsvexti. T.a.m. hafi dregið
úr innflutningi á bifreiðum. „Þegar
gengið lækkaði þá bötnuðu skamm-
tímahorfur fyrir utanríkisviðskipt-
in.“
Spurður um árið framundan segir
Jón Bjarki að óvissan um gengi
krónunnar sé að sínu mati samhverf,
ekki sé afgerandi munur á líkunum
á styrkingu og veikingu. „Við lifum
áfram við gjaldeyrisinnflæði frá við-
skiptajöfnuðinum. Afgangur síðasta
árs ætti að verða um 90 milljarðar,
og hann getur einn og sér fjármagn-
að talsvert stóran hluta af því út-
flæði sem hefur verið, og verður
áfram vegna þess að lífeyrissjóðirnir
vilja fjárfesta út úr hagkerfinu. Það
sem ræður úrslitum um styrkingu
eða veikingu krónunnar er hvort við
fáum erlenda fjárfestingu til að
standa á móti því sem eftir stendur.“
Hann bætir við að menn haldi lík-
lega að sér höndum í bili vegna
óvissu í ferðaþjónustu til skamms
tíma, og óvissu á vinnumarkaði. „En
ef spilast sæmilega úr því, ásamt því
að við erum með stóran gjaldeyris-
varaforða, viðvarandi afgang af
utanríkisviðskiptum, skuldléttan
ríkissjóð og stöndug fyrirtæki, þá
þarf ekki mikið til að fá erlenda fjár-
festa inn í landið til að jafna þetta
útflæði. Því er engin sérstök ástæða
til að búast við meiri veikingu krón-
unnar.“
90 milljarða afgangur
Gengi íslensku krónunnar 2018
155
160
165
170
175
180
185
190
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
Heimild: Seðlabanki Íslands
Vísitala meðalgengis
Hækkun á línunni sýnir styrkingu krónunnar
en lækkun sýnir veikingu
Gengi krónunnar lækkaði um 6,4% 2018 Ekki ástæða til að búast við frekari
veikingu Miklar sveiflur voru á gjaldeyrismörkuðum almennt í heiminum
Krónan
» Gjaldeyrisforði Seðlabanka
Íslands nam 736 milljörðum
króna í árslok, sem er 26% af
vergri landsframleiðslu.
» Hrein gjaldeyrissala
Seðlabankans á markaðnum
nam 2,9 milljörðum króna á
síðasta ári.
Jón Bjarki
Bentsson
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum.
Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
maður á fjárhagssviði mun taka við starfi fjár-
málastjóra. Ný deild, ferla- og upplýsingatækni,
mun heyra beint undir forstjóra.
Samhliða breytingum í skipuriti félagsins
verður einnig ráðist í breytingar á siglingakerfi
þess. Þannig verður vikulegum strandsiglingum
frá Íslandi fækkað og verða þær aðra hverja
viku og þá verður fækkað um eitt skip í siglinga-
kerfi félagsins í Noregi.
Hins vegar verður aukið við þjónustu við
ferskfisk- og uppsjávarviðskiptavini í Færeyjum
með vikulegum siglingum frysti- og gámaskips-
ins Svartfoss milli Færeyja og Bretlands auk
þess sem aðra hverja viku verða siglingar frá
milli Hollands og Færeyja.
Eimskipafélag Íslands tilkynnti talsverðar
breytingar á skipuriti félagsins og starfsemi við
lokun markaða í gær, tveimur dögum eftir að til-
kynnt var um ráðningu nýs forstjóra, Vilhelms
Más Þorsteinssonar. Breytingar á mannahaldi
ná til 10 stöðugilda hjá félaginu þar sem þau ým-
ist verða lögð niður eða taka breytingum. Stöð-
urnar eru flestar tengdar millistjórnendum hjá
félaginu. Þá kom einnig fram í tilkynningu frá
fyrirtækinu að laun nýs forstjóra muni taka mið
af þeirri áherslu stjórnar að lækka þurfi kostnað
félagsins.
Helstu breytingar eru þær að Hilmar Pétur
Valgarðsson fjármálastjóri mun taka við nýju
rekstrarsviði og Egill Örn Petersen forstöðu-
Skipulagsbreytingar hjá Eimskip
Hætta vikulegum strandsiglingum frá Íslandi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hagræðing Stjórnendur vilja lækka kostnað.
● Nýkjörna stjórn Haga hf. skipa þau
Davíð Harðarson, Eiríkur S. Jóhanns-
son, Erna Gísladóttir, Katrín Olga Jó-
hannesdóttir og Stefán Árni Auðólfs-
son. Með því náðu þeir fimm
frambjóðendur í stjórnarkjörinu inn
sem tilnefningarnefnd félagsins hafði
gert tillögu um en átta manns voru í
framboði. Í þeim hópi var Jón Ásgeir
Jóhannesson, stofnandi Bónuss.
Stjórnin hefur skipt með sér verkum
og verður Erna Gísladóttir stjórnar-
formaður og Davíð Harðarson varafor-
maður stjórnar.
Ný stjórn félagsins verður kjörin á
aðalfundi þann 7. júní næstkomandi.
Samþykktu tillögu
tilnefningarnefndar
19. janúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.43 121.01 120.72
Sterlingspund 155.13 155.89 155.51
Kanadadalur 90.64 91.18 90.91
Dönsk króna 18.379 18.487 18.433
Norsk króna 14.055 14.137 14.096
Sænsk króna 13.343 13.421 13.382
Svissn. franki 121.35 122.03 121.69
Japanskt jen 1.1067 1.1131 1.1099
SDR 167.75 168.75 168.25
Evra 137.22 137.98 137.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.5226
Hrávöruverð
Gull 1294.0 ($/únsa)
Ál 1839.0 ($/tonn) LME
Hráolía 61.05 ($/fatið) Brent
● Nægilegur fjöldi
skuldabréfaeig-
enda WOW air
samþykkti þær
skilamálabreyt-
ingar sem óskað
var eftir í kjölfar
þess að fjárfest-
ingafélagið Indigo
Partners tilkynnti
að það hygðist fjár-
festa í félaginu. Til-
lögur að breyttum skilmálum höfðu ver-
ið sendar eigendum skuldabréfanna 14.
desember síðastliðinn og höfðu þeir
tímann fram til 17. janúar til þess að
bregðast við þeim. Vaxtakjörin á bréf-
unum og höfuðstóll þeirra mun ekki
taka breytingum í kjölfar skilmálabreyt-
inganna.
Skuldabréfaeigendur
samþykktu skilmálana
Skúli
Mogensen
STUTT