Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 24

Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Aðstæðurtil skatt-rann- sókna hafa ger- breyst á undanförnum árum. Settar hafa verið reglur um skipti á upplýsingum milli landa og bankar og vörslustofn- anir eiga ekki lengur að geta komist upp með að neita að veita upplýsingar um peninga og eignir við- skiptavina, sem eru skatt- greiðendur í öðrum lönd- um, geyma hjá þeim. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri lýsir þessum breytingum í at- hyglisverðu opnuviðtali við Viðskiptablað Morgun- blaðsins á fimmtudag. Bryndís bendir á að þessar breytingar hafi ekki í för með sér að þeir sem vilji komast undan því að borga skatta eigi sér ekkert af- drep lengur. Upplýsingar séu misábyggilegar og ekki séu öll ríki þátttakendur í átakinu. Það er vitaskuld ekki við því að búast að hulunni verði svipt af peninga- þvætti og öðrum feluleik með fjármagn í einu vet- fangi. Hagsmunirnir eru miklir og freistingarnar eftir því. Þá má ekki gleyma því að um er að ræða kerfi, sem dafnað hefur í skjóli þeirra sömu ráðamanna og nú gefa sig út fyrir að ráðast til atlögu gegn því. Dugar þar að nefna Jean-Claude Junc- ker, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, sér- legan verndara og skapara skattaskjólsins Lúxem- borgar. Einhvern tímann var sagt að bara vextir af því fé, sem forustumenn í við- skiptum og pólitík í Afríku hefðu dregið sér og væru með í aflandsfelum, myndu duga til afborgana af öllum opinberum skuldum álf- unnar. Hér á Íslandi er ef til vill ekki jafn mikið í húfi en umfangið ber þó ekki að vanmeta. Bryndís segir í viðtalinu að enn séu nokk- ur mál tengd Panama- skjölunum í vinnslu hjá skattrannsóknarstjóra. Í þeim gögnum sem emb- ættið keyptu og tengdu Ís- lendinga við skattaskjól voru 500 félög í eigu 400 hundr- uð Íslendinga. Bryndís segir einnig að það sé orðinn hluti af skipulagðri glæpastarfsemi að herja á skattkerfi. Ásetningur sé ríkari en áður og nefnir hún sérstaklega bygging- arstarfsemi og svokölluð keðjumál. Þar megi rekja umfangsmikil skattsvik til undanskota undirverktaka þar sem fyrirtæki nýti sér glufur í virðisaukaskatts- kerfinu. Sérstaklega athyglisvert er að lesa kaflann í viðtal- inu þar sem Bryndís lýsir því hvernig sér hafi verið hótað og jafnvel reynt að bera á hana fé. Nefnir hún að gengið hafi verið svo langt að hóta ættingjum starfsmanns atvinnumissi. Hún segir að slíkar hótanir hafi ekki haft áhrif á hvernig tekið hafi verið á málum, en sú spurning vaknar hvort ekki hefði átt að fylgja hótunum eftir með því að leita til lögreglu þótt vissulega geti verið erfitt með sönnunarfærslu eins og Bryndís segir og bætir við: „Það er nú sjaldnast þannig að hótanir séu gerðar í vitna viðurvist eða settar á blað.“ Þessar tilraunir til að hafa áhrif á opinbera starfsmenn vekja um leið til umhugsunar og vekja spurningar um það hvernig þeir hinir sömu hegða sér þegar þeir þurfa fyrir- greiðslu annars staðar í kerfinu. Stundum mætti ætla að sumir haldi að undanskot undan skatti séu lítið ann- að en leikur og jafnvel sjálfsögð sjálfsbjargar- viðleitni. Talið er að um- fang skattsvika hafi verið um þrjú til sjö prósent af landsframleiðslu undan- farna áratugi eða um tíu prósent af tekjum hins opinbera. Þeir sem svíkja undan skatti fá ókeypis far í samfélaginu, hvort sem það er mennta- eða vel- ferðarkerfið. Afleiðing skattsvika er þyngri byrð- ar fyrir þá sem borga sína skatta. Það myndi sannar- lega muna um það ef lækka mætti skatta um tíu pró- sent. Gagnsæi er orðið meira og erfiðara að fela slóð peninga} Færri skattsvikaskjól Á rið 1932 ríkti ringulreið í Þýska- landi. Atvinnuleysi var mikið og milljónir lifðu við kröpp kjör, þjóð- in hafði tapað heimskulegri styrj- öld 14 árum áður og stjórnmálin voru í upplausn. Á þingi sátu fulltrúar 10 flokka og allt í allt störfuðu nærri 30 stjórnmála- samtök af ýmsu tagi í landinu. Stjórn- málamennirnir gátu ekki komið sér saman um stefnu. Árið 2019 ríkir ringulreið í Bretlandi. At- vinnuleysi er lítið og lífskjör betri en oftast áð- ur, en þjóðin tapaði heimskulegri þjóðar- atkvæðagreiðslu tveimur og hálfu ári áður og stjórnmálin eru í upplausn. Á þing voru kosnir fulltrúar átta flokka, en þingflokkarnir sjálfir auk þess flestir margklofnir í fylkingar. Stjórn- málamennirnir geta ekki komið sér saman um stefnu. Sama ár ríkir ringulreið í Bandaríkjunum. Atvinnuleysi er lítið og lífskjör betri en oftast áður, en þjóðin tapaði heimskulegri forsetakosningu rúmlega tveimur árum áður og pólitíkin er í upplausn. Stjórnmálamennirnir geta ekki komið sér saman um stefnu. Churchill sagði eitthvað á þá leið að lýðræðið væri af- leitt, en samt ekki eins slæmt og hin stjórnkerfin sem völ er á. Orð sem rifjast upp á öld lýðskrumaranna. Spurningin er hvernig hægt er að vinna sig út úr kreppu lýðræðisins. Ef stjórnmálamenn hafa lært eitthvað af sög- unni ættu þeir að vita að aldrei næst árangur ef andstæð- ingar tala ekki saman. Sá sem þvingar fram niðurstöðu sem vinnur gegn almannaheill, bara vegna þess að hann er í aðstöðu til þess, á von á að andstæðingurinn muni svara í sömu mynt næst þegar hann nær yfirhöndinni. Til eru nokkrar tegundir stjórnmálamanna. Hættulegastir eru þeir sem líta á stjórnmálin sem leik þar sem aðalatriðið er að komast til valda og nýta sér þau svo sér og sínum liðs- mönnum í vil, en kosta kapps að koma sífellt höggi á andstæðinga sína. Á Íslandi höfum við nú í tvígang séð stjórnmálamenn sem vilja nota dómskerfið til þess að klekkja á andstæðingum sínum, í hvorugt skiptið þeim til sóma sem að stóðu. Oft eru slíkir stjórnmálamenn hentistefnu- menn. Boris Johnson skrifaði tvær greinar vor- ið 2016, aðra með Brexit – hina á móti. Valdi svo, nánast af handahófi, að birta þá seinni. Trump skiptir oft um stefnu í sömu setningu. Brexit-málið sýnir að það er enginn vandi að hætta í Evrópusambandinu. Þann hluta afgreiddu Bretar með því að tilkynna um úrsögn fyrir tæplega tveimur árum. En það er erfitt að hætta og njóta jafnframt allra kostanna við að- ild. Samt tókst Theresu May að ná samningum við önnur aðildarríki. Vandinn er sá að hún hefur ekki náð að semja við sína eigin flokksmenn. Deila Breta er fyrst og fremst við sjálfa sig. Engir ná árangri í samningaviðræðum ef allir byrja á því að setja ófrávíkjanleg skilyrði. Hamfarir af mannavöldum eru verstar. Benedikt Jóhannesson Pistill Sjaldan valda tveir þá einn deilir Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ávinnufundi fiskifræð-inga á Hafrannsókna-stofnun og forystumannaí Landssambandi smá- bátasjómanna í vikunni var farið yfir ýmsa möguleika til að draga úr meðafla við grásleppuveiðar. MSC- vottun fyrir grásleppuveiðar við Ís- land var afturkölluð í ársbyrjun 2018 þar sem meðafli við veiðarnar er talinn umfram viðmiðunarmörk hvað varðar landsel, útsel og teistu. Haraldur Einarsson fiskifræð- ingur segir að á fundinum hafi ver- ið farið yfir ýmsa möguleika og mörgum boltum kastað á loft. Sumt af því sé tæpast raunhæft á grá- sleppuveiðum og annað kosti tals- verða fjármuni fyrir útgerðina. Einfaldari og ódýrari leiðir verði vonandi hægt að prófa á vertíðinni í vor í samvinnu sjómanna og fiski- fræðinga. Hann segir þekkt að grásleppa veiðist í leiðigildrur við land, svip- aðar og hafa verið notaðar við veið- ar til áframeldis á þorski. Önnur hugmynd sé að nota lítil flottroll við veiðarnar eða flotdragnót. Grásleppa er mikið í yfirborði en er veidd við botn þegar hún kemur upp að landi til að hrygna. Þeirri hugmynd var velt upp að veiða grásleppuna í reknet við yfir- borð og ekki er útilokað að það verði prófað. Haraldur bendir þó á að reknetaveiðar séu yfirleitt bann- aðar, meðal annars út af meðafla, og alls óvíst að minna kæmi af fugli og sel í reknetin heldur en í venju- leg grásleppunet. Boð um að hádegis- maturinn sé tilbúinn Mismunandi litur á netum var til umræðu og einnig að nota ljós eða hljóð til að fæla seli frá net- unum. Spurður hvort hljóðfælur hafi dugað erlendis, segir Haraldur að þær hafi gert það tímabundið. „Selurinn áttar sig hins vegar fljótt á því að þessi óhljóð sem hann er í fyrstu hræddur við eru í rauninni boð um að hádegismaturinn sé tilbúinn. Þarna er matur í netum og selurinn mætir að sjálfsögðu, þannig að áhrifin virðast vera skammvinn,“ segir Haraldur. Hann segir að hugsanlega sé hægt að þróa einhverjar aðferðir á litlu svæði þar sem vandamálið vegna meðafla sé mest, en halda hefðbundnum veiðum áfram annars staðar. Betra sé að loka einni vík heldur en heilum firði. Þá sé nauð- synlegt að auka eftirlit og afla nán- ari upplýsinga um hegðun grá- sleppunnar og veiðarnar, m.a. með betri upplýsingum í afladagbókum. „Óbreytt ástand er ekki góður kostur,“ segir Haraldur. Hugarflug um grá- sleppu til framtíðar Nú stendur yfir skoðanakönnun meðal félagsmanna Landssambands smábátasjómanna, sem hafa rétt til grásleppuveiða. Spurt er um mál- efni tengd grásleppuveiðum, en með könnuninni er meðal annars ætlað að skoða hug manna til MSC-vottunar á grásleppu, skráningar meðafla og fyrirkomulags veiða á komandi vertíð. LS gagnrýndi á síðasta ári harðlega framreikning Hafrannsóknastofn- unar á meðafla úr skýrslum veiðieftirlitsmanna Fiskistofu. Meðal annars sagði að skorti á að tekið væri tillit til útbreiðslu dýra, tímabils sem mælingar fóru fram á, dýpis á veiðislóð og fjölda leyfa á hverju svæði. Skoðanakönnun leyfishafa LANDSSAMBAND SMÁBÁTASJÓMANNA Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Komið úr róðri Grásleppan er vorboði á Þórshöfn á Langanesi eins og annars staðar á landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.