Morgunblaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 25
meðalstór þ.e. hvert þeirra er með færri en 250 starfsmenn og langflest með færri en 10 starfsmenn. Þessi litlu og með- alstóru fyrirtæki skapa 73% af rúmlega 150.000 störfum á al- mennum vinnumarkaði og greiða 69% af laununum. Þetta eru fyrirtækin sem myndu þurfa að mæta stærstum hluta krafna sem forsvarsmenn laun- þegahreyfingarinnar hafa lagt fram. Íslenskt launafólk fær stærri hluta af virðisauka í samfélag- inu en launafólk í nokkru öðru iðnvæddu ríki, eða 63%. Meðallaun á Íslandi eru þau næsthæstu í heimi, lágmarkslaun þau þriðju hæstu í heimi, tekjujöfnuður er sá mesti í heimi og eignajöfnuður er að aukast. Við borgum há laun á Íslandi og viljum hafa það þannig. En hóflegar launhækkanir inn- an þess svigrúms sem er til staðar eru lykilforsenda þess að við getum gert það áfram. Öflugt atvinnulíf er ein mesta gæfa Íslendinga. Frum- kvæði fólks sem hefur byggt upp atvinnurekstur til að skapa sér og öðrum lífsviðurværi er grundvöllur velferðarinnar hér á landi. Það er drifkraftur ein- staklinga, áræðni og útsjónar- semi sem hefur skapað störf og skatttekjur sem hefur þýtt að í stað þess að vera ein fátækasta þjóð Evrópu erum við nú ein sú ríkasta. Við erum í ein- staklega góðri stöðu og í fyrirtækjunum eru sköpuð mikil verðmæti. Það þarf því engan að undra að fólk greini á um hvernig skipta eigi verðmætunum. Það væri tímasóun að þræta um skiptingu á litlu sem engu. Útgangspunkturinn ætti að vera svigrúm í rekstri fyrirtækja til þess að hækka laun. Ef við hækkum laun umfram það þá mun verðbólga fara af stað og launahækkanir skila sér ekki í auknum kaupmætti til fólks. Vöruverð, vextir og verðtryggð húsnæðislán hækka. Íslensku útflutningsfyrirtækin munu tapa hlut í samkeppni við fyrirtæki í öðrum löndum. Störf verða færri en ella og starfsöryggi minnkar. Kannanir sýna að svigrúmið er mismikið eftir fyrirtækjum. Hjá sumum er það nokk- uð, hjá öðrum er það minna en ekkert. Þetta hefur komið fram í uppsögnum og gjaldþrotum undanfarið. Vandinn er sá að launhækkanir ganga jafnan jafnt yfir öll fyrirtæki, sama hvert svigrúm þeirra er. Hvernig er hið dæmigerða íslenska fyrir- tæki? Af ríflega 20.000 fyrirtækjum sem sjá fólki fyrir vinnu í landinu eru 99% lítil og Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson »Útgangspunkturinn ætti að vera svigrúm í rekstri fyrirtækja til þess að hækka laun. Ef við hækkum laun um- fram það þá mun verðbólga fara af stað og launahækkanir skila sér ekki í auknum kaup- mætti til fólks. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Miklar kröfur á lítil fyrirtæki 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Orka er ein af mikilvægustu forsendum efnahagslegra framfara og hefur svo verið frá öndverðri 19. öld. Þörf fyrir orku hefur vaxið hratt á til- tölulega stuttum tíma. Það var einungis fyrir um það bil 50 árum, sem athyglin fór að beinast að neikvæðum áhrifum orkuframleiðslu. Orkuframleiðsla heimsins skapar í flestum tilfellum mik- inn umhverfisvanda. Þótt nýt- ing orkugjafanna hafi stórbatnað vex þörfin fyrir orkuna hraðar. Ekki eru enn í sjón- máli neinar raunhæfar lausnir á orkuþörf heimsins. Vandamálin sem fylgja orkufram- leiðslu nútímans vaxa stöðugt, þótt margvís- legar tæknilegar lausnir séu til athugunar. Verðlagning á orku, einkum heimsmarkaðs- verð á olíu og ekki síður skattlagning á þetta tiltölulega ódýra hráefni, ræður að miklu leyti hagvexti eða samdrætti og at- vinnuleysi í heiminum. Íslendingar eru tiltölulega vel settir hvað orku varðar. Meginorkulindir þjóðarinnar – vatnsorka og jarðhiti – eru taldar með þeim umhverfisvænstu sem til eru. Þessar orku- lindir eru miklar miðað við mannfjölda á Ís- landi en ekki óþrjótandi. Orkan, sem fæst með nýtingu vatnsfalla og jarðhita, er til- tölulega ódýr og sem slík mikilvæg grund- vallarforsenda velferðar Íslendinga, bæði fyrirtækja og einstaklinga. Það sem sólin er Ítölum og frjósemi jarðvegsins Frökkum, er orkan forgjöf Íslendinga. Það er enn í okk- ar höndum hvernig við förum með þá for- gjöf. Áður en þriðji svokallaði orkupakkinn var samþykktur var lögð áhersla innan ESB á að leggja grunn að sjálfbærum, öruggum og samkeppnishæfum orkumarkaði. Á síðustu árum liðinnar aldar skilgreindi ESB raf- orku og þjónustu henni tengda sem hverja aðra vöru og þjónustu. Með öðrum orðum voru orkumál þá skilgreind sem hluti af því sem fjórfrelsið nær yfir. Þó njóta orkumál nokkurrar sérstöðu, ekki síst að því er varðar öryggismál. Innan ESB eru skiptar skoðanir um orkulindir. Í sambandinu eru ríki sem framleiða mikinn hluta raforku sinnar í kjarnorkuverum. Í nokkrum löndum þess hefur verið dregið úr framleiðslu kjarnorku og víða er mikil andstaða við þá orku- lind. Það er hverri þjóð ESB frjálst að ákveða hvaða orku hún nýtir, en verslun með orku á að vera sem frjálsust á hinum sameiginlega markaði. Hins vegar er áhersla nú lögð á sjálf- bæra orku innan sameiginlegs markaðar sambandsins. Innan EES hafa Íslendingar sérstöðu að því er umhverfisvæna og sjálfbæra orku varðar. Í þriðja orkupakkanum bein- ist athyglin að nokkrum meg- inatriðum. Áhersla er lögð á tengsl orku- neta yfir landamæri. Þess er freistað að víkja úr vegi hindrunum er varða viðskipti með orku yfir landamæri. Sett er regluverk um eftirlitsaðila, sem tryggja að markmið tilskipana ESB om orkumarkað verði virt. Eftirlitsaðilum er tryggt sjálfstæði gagn- vart stjórnvöldum, þó svo að orkumál heyri undir ráðherra. Til þess að reglur ESB um markaðs- aðgang séu virtar hafa hinir sjálfstæðu eft- irlitsaðilar ekki annað leiðarljós en tilskip- anir ESB um orku- og markaðsmál. Nái eftirlitsaðilar tveggja landa innan ESB (EES) ekki samkomulagi, t.d um grunnvirki yfir landamæri – svo sem sæstreng – fer málið fyrir ACER í tilfelli ESB-lands, en fyrir ESA ef EES-land á í hlut. Í því tilfelli verða valdheimildir þessara stofnana virkar. Tenging Íslands við orkumarkaðinn Ísland er ekki tengt raforkukerfi ESB og getur ekki orðið hluti af orkumarkaði ESB án slíkrar tengingar. Til þess þarf sæ- streng. Þótt sú tenging virðist fjarlægur möguleiki, er talsverður áhugi erlendra orkufyrirtækja, fyrirtækja og fjármála- manna á slíkri framkvæmd. Tenging um sæstreng er hugsanlega áhugamál ein- hverra Íslendinga svo og fyrirtækja. Slík tenging gæti einnig verið áhugamál stórra orkufyrirtækja innan ESB eða ríkisstjórna innan sambandsins, sem myndu þá beita fyrir sig tilskipunum ESB um sameigin- legan orkumarkað. Í því tilfelli yrðu vænt- anlega virk fyrir Ísland ákvæði reglugerðar ESB um Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði, reglugerð um skilyrði fyrir aðgangi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri og tilskipun um sameiginlegar reglur um innri markað fyrir raforku. Aðalatriði deilunnar Í stórum dráttum stendur deilan einkum um tvö atriði. Verður hér fjallað um þá skoðun að í þriðja orkupakkanum sé alls ekki um neitt framsal valds í orkumálum að ræða, umfram það sem þegar hefur orðið með aðild að fyrri orkupökkum svo og að EES samningnum. Einnig verður vikið að þeirri fullyrðingu að þriðji orkupakkinn hafi ekki áhrif á raforkuverð á Íslandi. Þessum málflutningi til stuðnings vitnar Hilmar Gunnlaugsson hrl. til ákvæðis grein- ar 194(2) í sáttmálanum um starfshætti ESB. Lögmaðurinn bendir á að þótt orku- mál séu almennt á sameiginlegu forræði ESB og aðildarríkja þess „þá breyti það engu um rétt aðildarríkis til að ákvarða með hvaða skilyrðum orkulindir þeirra eru nýttar, hvaða orkugjafa það velur og al- menna tilhögun orkuafhendingar“ (Hilmar Gunnlaugsson hrl. í Bændablaðinu 29. sept. sl.). Tilvitnunin er rétt svo langt sem hún nær. Með aðild að þriðja orkupakkanum geta Íslendingar haldið áfram að ákveða með hvaða skilyrðum orkulindir þeirra eru nýtt- ar (en þau skilyrði mega þá ekki mismuna kaupendum orkunnar), hvaða orkugjafa við veljum (t.d. getum við hafnað gastúrbínum og kjarnorku) og almenna tilhögun orkuaf- hendingar í samræmi við ákvæði TFEU194 (2). En í þessum ákvæðum er Íslendingum alls ekki tryggður réttur til að ákveða ein- hliða hvort aðrir aðilar, fyrirtæki eða ESB- ríki, fái aðgang að íslenskri orku. Sá að- gangur getur einungis orðið um sæstreng. Með öðrum orðum höfum við ekki lengur forræði yfir ráðstöfun orku úr orkulindum okkar sem markaðir ESB kunna að ágirn- ast, ef fjármagn finnst til að leggja streng til landsins. Slíkur aðgangur að orkumark- aði er eitt af meginatriðum þriðja orku- pakkans. Ef við getum ekki ráðstafað orkunni sem seld yrði hæstbjóðanda, er stutt í það að við getum heldur ekki stýrt nýtingu orkulindanna, enda hafa orkufram- leiðslufyrirtæki landsins mikinn áhuga – svo ekki sé meira sagt – á að framleiða og selja sem mest. Ég tel það vera rétt hjá fjármálaráð- herra, Bjarna Benediktssyni, að með þriðja orkupakkanum sé alls ekki gert skylt að leggja rafstreng til landsins. En ef þeir að- ilar finnast innan EES, sem hafa áhuga á að tengjast íslenska orkumarkaðinum með sæstreng, þá getum við ekki hafnað því að sá strengur verði lagður. Það gengur gegn ákvæðum Evrópuréttar að íslensk stjórn- völd reyni að hindra það. Komi upp deilur um slíka tengingu fara sjálfstæðar eftirlits- stofnanir með það mál, sem Íslendingar hafa ekki aðild að. Niðurstaða Veruleg áhersla hefur verið lögð á það af hálfu ESB að draga úr valdi ríkisstjórna og þjóðþinga ríkja sambandsins, en flytja vald til miðstjórnar og embættismanna. Í þriðja orkupakkanum eru ákvæði sem tryggja sjálfstæði raforkueftirlits gagnvart innlendu framkvæmdavaldi, ráðherrum og ráðu- neytum. Leitast er við að stofna til sam- vinnu eftirlitsaðila og ef þeir ráða ekki við að leysa málin í anda Evrópuréttar, koma fjölþjóðlegar eftirlitsstofnanir (ACER og ESA í tilfelli EFTA-ríkja) að málunum. Þegar fullyrt er að þriðji orkupakkinn muni „ekki breyta orkuverði á Íslandi“ né leiða til lagningar sæstrengs, virðist mér sú fullyrðing ekki standast skoðun. Orkupakk- inn markar leið þeirra aðila, sem vilja virkja markmið ESB um sameiginlegan orkumarkað og auðveldan aðgang yfir landamæri að orku, sem skilgreind er af sambandinu sem vara og þjónusta. Það á sérstaklega við um orku sem telst sjálfbær. Á þeim markaði sem öðrum ræður hæst- bjóðandi verði. Því verður hvorki innlendum fyrirtækjum né einstaklingum tryggð orka á því hagstæða verði, sem verið hefur efna- hagsleg forgjöf einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi. Eftir Tómas I. Olrich » Orkupakkinn markar leið þeirra aðila, sem vilja virkja markmið ESB um sam- eiginlegan orkumarkað og auð- veldan aðgang yfir landamæri að orku, sem skilgreind er af sambandinu sem vara og þjón- usta. Það á sérstaklega við um orku sem telst sjálfbær. Tómas Ingi Olrich Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Forgjöf Íslendinga Glerfínn Þessi ferfætlingur sem var á ferð við Rauðavatn á dögunum var sparilegur með klút. Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.