Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 33
í þennan berjamó þangað til fyr- ir nokkrum dögum. En hann lýs- ir nokkuð vel rólyndi þínu, góð- mennsku og dugnaði. Ég vildi óska þess að það væri haust og við gætum farið einu sinni enn í berjamó. Sakna þín elsku afi. Brynja Gunnarsdóttir. Þegar Svanbjörg frænka mín hringdi og tilkynnti mér að Jón, eiginmaður hennar, væri látinn hvarflaði hugurinn ósjálfrátt rúma sex áratugi aftur í tímann þegar ég kom fyrst til sumar- dvalar á Hánefsstöðum hjá þeim hjónum. Í hönd fór mikilvægt þroskaskeið í lífi mínu sem ég verð þeim ævinlega þakklátur fyrir. Á þessum tíma höfðu þau Jón og Svanbjörg nýtekið við búinu á Hánefsstöðum og með ríkri samheldni og ótrúlega mik- illi vinnu og þrautseigju tókst þeim á fáum árum að gera það að einu því stærsta á öllu Aust- urlandi. Jón var ekki maður margra orða, en lét þeim mun frekar verkin tala. Árið 1958 var að mig minnir nýkominn traktor á Há- nefsstaði og því byrjað að vélslá, en samt sem áður voru allstór þýfð svæði enn slegin með orfi og ljá. Er mér enn í fersku minni hve fljótur Jón var að slá á þann hátt og jafnframt hve vandvirkur hann var því að gras- ið var alls staðar snöggslegið og ljáförin regluleg. Einnig var hann fjárglöggur svo af bar, enda alinn upp við fjárbúskap á æskuslóðunum í Vopnafirði. Þá er mér sérstaklega minn- isstætt og sýndi hvern mann Jón hafði að geyma hve annt hann lét sér um Jóhannes Ólafsson, en við jafnaldrarnir vorum sam- an í sveitinni í þrjú sumur. Jó- hannes hafði nýlega misst föður sinn í hörmulegu sjóslysi og ég gerði mér ekki fyllilega grein fyrir því þá, en þeim mun betur síðar, að með þessu vildi Jón gera honum föðurmissinn ögn léttbærari sem tókst, að ég held, enda varð vinátta þeirra tveggja mjög náin. Þegar maður kom fyrst í sveitina fyrir austan var eins og komið væri í annan heim sem var mjög frábrugðinn þeim sem maður hafði lifað og hrærst í fram að því. Ekkert rafmagn var t.d. á Hánefsstöðum í þann tíma þótt það kæmi um svipað leyti og sumardvöl minni þar eystra lauk. Jafnframt þurfti fyrst í stað að snúa heyinu og raka það saman með hrífum þar til fyrsta múgavélin kom til sögunnar. Á þessum árum fluttu síðustu íbúarnir brott af Eyrunum, sem svo eru nefndar og höfðu fyrr á 20. öldinni verið fjölmenn byggð, svo og af bæjunum Háeyri, Hrauni og Þórarinsstöðum, þannig að Hánefsstaðir voru orðnir eina byggða bólið sunn- anmegin Seyðisfjarðar síðasta sumarið sem ég dvaldi þar. Ef- laust hafa þetta verið mikil við- brigði fyrir Jón og Svanbjörgu, en þau létu það ekki á sig fá og hafa haldið áfram búrekstri allt til þessa dags af sama mynd- arbrag og áður, þó síðari árin með æ meiri aðstoð barna sinna og barnabarna. Gegnum árin höfum við Þór- hildur heimsótt þau Jón og Svanbjörgu á Hánefsstöðum og tekið á móti þeim hér fyrir sunn- an. Þá hefur gefist gott tóm til að ræða um menn og málefni og við það kynntist ég Jóni á annan hátt en fyrr. Þótt við værum ekki sammála um allt sem á góma bar voru lífsviðhorf okkar í stórum dráttum þau sömu. Með honum er genginn afar mætur maður sem skilaði ómet- anlegu framlagi til samfélagsins, enda gerði hann ávallt meiri kröfur til sjálfs sín en annarra. Vegna fráfalls hans sendum við hjónin og synir okkar þrír Svan- björgu og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Eiríkur Tómasson. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Gunnar Halldórs- son er látinn. Vinur okkar og félagi til margra ára í Álfta- neshreyfingunni sem bauð fram til sveitarstjórnar á Álftanesi í þrennum kosningum 2002, 2006 og 2010. Gunnar og kona hans Álfhildur Friðriksdóttir sem lést fyrir rúm- um fjórum árum, voru áhuga- samir og virkir félagar í Álftanes- hreyfingunni. Þau hjónin sóttu flesta fundi og samkomur hreyf- ingarinnar og tóku þátt í um- ræðum og tillögugerð. Gott var að heimsækja þau á Túngötuna og setjast niður við eldhúsborðið, Gunnar Halldórsson ✝ Gunnar Hall-dórsson fædd- ist 10. apríl 1926. Hann lést 24. des- ember 2018. Útför Gunnars fór fram 9. janúar 2019. þiggja veitingar, ráð og hvatningu í bar- áttunni við þá ver- andi meirihluta á Álftanesinu sem lengi hafði setið að völdum. Mörgum íbúum þótti meiri- hlutinn vera hallur undir verktaka og vanrækja hugmynd- ir íbúanna þegar kom að uppbygg- ingu og fögnuðu því tilkomu kröftugrar íbúahreyfingar. Þau hjónin voru í þessum hópi. Þau voru samrýmd enda oftast nefnd saman, Gunnar og Álfhildur, þeg- ar um þau var rætt í vinahópnum. Gunnar var einstaklega glað- lyndur og hlýr maður. Hann var áhugasamur um öll fram- kvæmdamál í sveitinni, enda reyndur vinnumaður sem fyrr- verandi skipstjóri og síðar smið- ur og byggingameistari. Álfhild- ur var jafn áhugasöm um félagsmálin og var pólitísk, hrein- skiptin og talaði tæpitungulaust um menn og málefni. Það var fyr- ir áhuga og þátttöku fólks eins og þeirra hjóna sem Á-listinn náði meirihluta á Álftanesi 2006 með stór markmið í félags- og um- hverfismálum. Heimili Gunnars og Álfhildar var vinalegt og garð- urinn umhverfis sem þau rækt- uðu af natni. Þau voru virk og gefandi í félagsmálastarfinu og sífellt forvitin um hvað væri á döfinni. Þau voru þátttakendur í ýmsu öðru félags- og menningarstarfi í sveitarfélaginu og frumkvöðlar að stofnun félags eldri borgara á Álftanesi þar sem Gunnar var fyrsti formaður. Bæjarstjórn Álftaness þakk- aði þeim þessi mikilvægu störf með því að velja þau heiðurs- sveitunga Álftaness. Með þessum fáu línum viljum við lýsa þakklæti fyrir vináttu og samstarf og flytja kveðju frá fé- lögum okkar í Álftaneshreyfing- unni. Við færum aðstandendum þeirra hjóna samúðarkveðjur. Sigurður Magnússon og Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúar Álftaneshreyfingarinnar. ✝ Kristín Ing-veldur Ingólfs- dóttir (Kiddý) fæddist 7. febrúar 1938. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 17. des- ember 2018. Foreldrar henn- ar voru Sigurjóna Anna Sófusdóttir, f. 26. janúar 1916, d. 16. febrúar 1984, og Ingólfur Eyjólfsson, f. 3. apr- íl 1916, d. 30. júlí 1952. Þau skildu. Bræður Kristínar voru Már Ingólfur, f. 30. maí 1942, d. 24. mars 2002, og Magnús Nord- gulen, f. 14. nóvember 1949, sem Sigurjóna eignaðist með seinni eiginmanni sínum Alfred Nordgulen. Eiginmaður Kristínar var Ás- janúar 1986, Sigþór Ingi, f. 30. nóvember 1989, Kristín Sóley, f. 22. maí 1993, og Arnór Valur, f. 22. janúar 1998. 3) Kristrún, f. 10. október 1970. Eiginmaður hennar er Sigurður Bjarnason. Börn Kristrúnar eru Svanur Þór, f. 11. júlí 1991, og Ásta Berglind, f. 26. mars 1997. Son- ur Ástu er Gabríel Dagur, f. 22. október 2018. Kristín fæddist í Hafnarfirði og gekk í Flensborgarskóla. Kristín og Ásgeir hófu sinn bú- skap í Reykjavík en árið 1957 fluttu þau á Selfoss. Þau bjuggu þar í sambýli með Ólöfu systur Ásgeirs og Hirti Þórarinssyni eiginmanni hennar á Tryggva- götu 5. Árið 1961 hófu þau byggingu íbúðarhúss á Engja- vegi 30 sem þau fluttust í árið 1963 og bjuggu þar allar götur síðan. Kristín starfaði lengst af við verslunarstörf hjá Kaupfélagi Árnesinga og síðustu árin var hún með eigin verslunarrekst- ur. Útför Kristínar fór fram frá Selfosskirkju 7. janúar 2019. geir Sigurðsson, f. 11. nóvember 1933, og gengu þau í hjónaband 11. nóv- ember 1956. Börn Kristínar og Ás- geirs eru: 1) Anna, f. 15. apríl 1956. Eiginmaður hennar er Christopher John Newman, f. 25. apríl 1955. Börn Önnu eru Daði Hrafn, f. 11. ágúst 1977. Eiginkona hans er Sigurlaug Jóhannesdóttir. Börn Daða eru Lilja Bríet, f. 31. mars 2005, og Kristófer, f. 15. apríl 2009. Hannah Ýr, f. 4. febrúar 1994, og Orlando Thor, f. 26. október 1997. 2) Sigurður Ingi, f. 13. mars 1959. Eiginkona hans er Guðrún Sigurðardóttir. Börn Sigurðar eru Ásgeir Andri, f. 3. Kristín var rösk, glöð og hressileg manneskja. Fyrstu bú- skaparárin okkar Ólafar á Sel- fossi vorum við í sama húsinu Ás- geir mágur minn og Kristín kona hans. Systkinin Ólöf og Ásgeir voru mjög samrýnd og var sam- vera okkar allra eins og um eina fjölskyldu væri að ræða. Anna litli engillinn þeirra fékk að fljúga á milli heimilanna og varð hún að hluta til í þykjust- unni dóttir okkar. Hún tók svo skemmtilegan þátt í þessu hlut- verki, að þegar hún kom til okkar að hitta Ólöfu frænku sína þá hét hún Sigga. Þetta er svipmynd og upphaf að því innilega sambandi sem ríkt hefur meðal okkar. Heimili þeirra Kristínar og Ásgeirs var alla tíð staður gleði og næmleika fyrir vellíðan heimafólks og gesta. Við sem nánastir vorum nutum að sjálfsögðu mest þess- ara kosta heimilisins. Kristín fagnaði gestum sínum og hélt uppi glaðværð og hispursleysi sem gerði umræðuefni dagsins skemmtilegt og áhugavert. Þess- ir eiginleikar voru henni svo eðli- legir að það kom ekki á óvart hvernig kunningjar og starfs- félagar tengdust henni. Hún hélt mikilli tryggð og stöðugu sambandi við vinkonur sínar frá æskudögunum í Hafn- arfirði. Þá er ómetanlegt framlag hennar í vinnuhópi Rauða kross- ins á Selfossi. Hún var í Félagi eldri borgara á Selfossi og það var oft glatt á hjalla hjá félögum hennar í glerslistahópnum og mikið unnið þar. Listaverk þeirra prýða mörg heimili á Selfossi. Hún var félagi í Oddfellow- stúkunni. Þar naut hún ómetan- legrar og gagnkvæmrar systra- vináttu. Kristín og Bryndís mágkona hennar ráku tískuvöruverslun í nokkur ár á Selfossi. Þar kom fram smekkvísi hennar og næm- leiki sem hentaði vel í þeim við- kvæma og samkeppnisharða rekstri sem þar var og er viðvar- andi. En framar öllu öðru var það húsmóðirin, sem hugsaði um vel- ferð og framtíð barna sinna og bjó manni sínum yndislegt og að- laðandi heimili. Þegar gestir kvöddu fóru þeir glaðari en þegar þeir komu. Veikindum sínum tók hún af mikilli ró og yfirvegun. Hún kvartaði ekki en tók þessari ófrá- víkjanlegu umbreytingu af miklu æðruleysi Við kveðjum Kristínu með söknuði og innilegum þökkum fyrir samfylgdina og það sem hún gaf sínum nánustu og samferða- fólki sínu. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Hjörtur Þórarinsson. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Þann 17. desember bárust okkur Þórusystrum þær sorgar- fréttir að Kiddý systir okkar væri fallin frá. Við höfðum heimsótt hana nokkrum dögum áður og við sáum að hverju stefndi en með sínum einstaka húmor og skemmtilegheitum gerði hún stundina létta og skemmtilega eins og henni var einni lagið. Kiddý var alltaf svona, við vissum hvar hún var og hún studdi okkur og þrátt fyrir að ýmsir erfiðleikar hafi dunið á henni var hún sterk og stóð af sér storma lífsins, sá alltaf jákvæðu hliðina, sá það sem hún vildi sjá. Kiddý gekk til liðs við Oddfell- owregluna 1996 og við Þórusyst- ur höfum notið krafta hennar, vináttu og kærleika þessi 22 ár sem hún starfaði í Reglunni. Hennar verður sárt saknað og skarð hennar verður vandfyllt. Við kveðjum fullar þakklætis fyr- ir vináttu hennar og kærleika. Við Þórusystur sendum innilegar samúðarkveðjur til eiginmanns hennar, barna og fjölskyldna þeirra. Hvíl í friði, kæra systir. Guð blessi minningu þína. Friður sé með sálu þinni. Margrét Halla Ragnars- dóttir, Yfirmeistari Rbst. nr. 9 Þóru I.O.O. F. Kristín Ingveldur Ingólfsdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓTTARS MÖLLER, fv. forstjóra. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Miklatorgs á Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaka umönnun og hlýju. Emilía Björg Möller Valgeir Ástráðsson Kristín Elísabet Möller Jóhannes Jóhannesson Erla Möller Sigurður Kr. Sigurðsson Auður Margrét Möller Guðmundur Már Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til ykkar allra fyrir hlýhug, blóm og kveðjur vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR INGIBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Brekkugötu 36, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Asparhlíð fyrir hlýhug og góða umönnun. Sigþrúður Tobíasdóttir Lúðvík Freyr Jóhannsson Sigurlaug Anna Tobíasdóttir Páll E. Þorkelsson Gísli Karl Sigurðsson ömmu-, langömmu- og langalangömmubörnin Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim sem heiðruðu minningu ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SÓLVEIGAR KRISTINSDÓTTUR. Við þökkum fyrir hlýjar kveðjur og falleg orð sem um hana hafa verið sögð. Minningin um ást hennar og kærleika mun lifa. Guðmundur K. Einarsson Helga Einarsdóttir Kristín Andrea Einarsdóttir Jóhann Ingibergsson Berghildur Ýr Einarsdóttir Haukur Einarsson Ásdís Erla, Sigrún Björk Einar Aron, Hilmir Nói og Birkir Ísak Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHILDUR JÓHANNESDÓTTIR, lést sunnudaginn 13. janúar á Hrafnistu í Reykjavík. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 24. janúar klukkan 13. Jóhannes Zophoníasson Hróðný Bogadóttir Árni Zophoníasson Ingibjörg Friðbertsdóttir Nanna Lovísa Zophoníasd. barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.