Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
360° snúningur
Leður
Verð frá 249.000.-
WAVE Lounge Soft
Bjarni Jónsson,rafmagnsverk-fræðingur og
fyrrverandi rafmagns-
stjóri ISAL, á 70 ára af-
mæli í dag. Hann hóf
störf hjá ISAL árið
1980, en þar áður hafði
hann unnið hjá Kvær-
ner Engineering við
Ósló, þar sem hann
vann við hönnun á raf-
kerfum olíuborpalla í
Norðursjó, og hjá RA-
RIK í Reykjavík frá
október 1976, en þar
var hann verkefna-
stjóri við uppsetningu
rafbúnaðar, prófanir
og gangsetningu
aðveitustöðva, m.a. í
Byggðalínu.
„ISAL hefur verið
brautryðjandi á mörg-
um sviðum, t.d. við að
leysa eldsneyti af hólmi með rafmagni í hitunarferlum, og hófst ég
þegar handa við það hjá ISAL.“ Þá hafði Bjarni forgöngu um mikla
sjálfvirknivæðingu verksmiðjunnar með innleiðingu á iðntölvum.
Hann gegndi lykilhlutverki á rafmagnssviði við framleiðsluaukn-
ingu verksmiðjunnar í stórum jafnt sem smáum skrefum og og tók
virkan þátt í innleiðingu vottaðrar gæðastjórnunar og öryggis-,
heilsu- og umhverfisstjórnunar. Bjarni lauk störfum hjá ISAL árið
2015.
Ræktunarstörf hafa verið áhugamál Bjarna, matjurta- og skóg-
rækt. „Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík, en var sjö sumur fram
á fermingarárið á Snæringsstöðum í Vatnsdal. Sveitavist af þessu
tagi, þar sem börnum og unglingum voru fengin verðug verkefni,
var borgarbörnum ómetanleg. Kannski var grunnurinn lagður
þarna að áhugamálinu.“
Bjarni heldur upp á afmælið með matarveislu fyrir fjölskylduna á
heimili sínu.
Eiginkona Bjarna er Þuríður Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur
á Landspítalanum. Börn þeirra eru Jón Ásgeir, bæklunarskurð-
læknir í Þórshöfn í Færeyjum, Sólrún Þórunn, sjúkraliði og hjúkr-
unarfræðinemi, Eyjólfur Ari, rafeindavirki og tæknimaður hjá
Teledyne Gavia í Kópavogi, og Ásgerður Fanney, lögfræðingur hjá
Ríkisskattstjóra. Barnabörnin eru sjö talsins.
Verkfræðingurinn Bjarni Jónsson.
Skipti um orkugjafa
í hitunarferlum
Bjarni Jónsson er sjötugur í dag
B
jörn Grétar Sveinsson
fæddist 19. janúar 1944
á Þórarinsstaðaeyrum
(Eyrunum) við Seyðis-
fjörð og ólst þar upp
fyrstu tvö árin en flutti þá með móð-
ur sinni og stjúpföður til Eskifjarðar
þar sem hann ólst síðan upp.
Björn Grétar er gagnfræðingur
frá Héraðsskólanum að Laugarvatni
1960 og húsasmiður frá Iðnskóla
Eskifjarðar 1966. Hann stundaði
nám við Félagsmálaskóla MFA og
hefur sótt ýmis námskeið.
Björn Grétar var verkamaður auk
þess að stunda sjómennsku um
skeið. Hann starfaði síðan við húsa-
smíði sem og við smíðar og lager-
störf hjá RARIK. Hann var formað-
ur Verkalýðsfélagsins Jökuls Höfn í
Hornafirði og varð síðan formaður
og framkvæmdastjóri hjá Verka-
mannasambandi Íslands um árabil.
Eftir að hann hætti hjá VMSÍ vann
hann um árabil á verkfræðistofu í
Reykjavík og þegar hann flutti á
Eskifjörð á nýjan leik hóf hann störf
sem verkamaður hjá álverinu í
Reyðarfirði.
Björn Grétar sat í hreppsnefnd og
bæjarstjórn Eskifjarðar 1970-74 og
var formaður Alþýðubandalags Eski-
fjarðar til 1974. Hann var vara-
þingmaður fyrir Alþýðubandalagið á
Austurlandi 1987-91 og í fram-
kvæmdastjórn VMSÍ frá 1987 þar til
hann lét af störfum sem formaður og
framkvæmdastjóri árið 2000. Björn
Grétar var varabæjarfulltrúi í bæjar-
stjórn Hafnar í Hornafirði 1990-93,
formaður húsnæðisnefndar Hafnar
1990-93 og formaður stjórnar Elli- og
hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs á
Höfn 1990-93. Hann var ritari
Alþýðubandalagsins 1987-89 og vara-
forseti Alþýðusambands Austurlands.
Björn Grétar Sveinsson, fyrrverandi formaður VMSÍ – 75 ára
Á skektunni sinni Björn Grétar hefur gaman af allri veiði og hér er hann í Reyðarfirði við veiðar á svartfugli.
Fékk félagsmálastúss-
ið með móðurmjólkinni
Hjónin Björn Grétar og Guðfinna
stödd á Spáni fyrir nokkrum árum.
Kópavogur Bríet Sól
Guðmundsdóttir fædd-
ist 15. apríl 2018 kl.
9.17. Hún vó 2.714 g og
var 46 cm löng. For-
eldrar hennar eru Haf-
dís Guðnadóttir og
Guðmundur Geir Jóns-
son.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is