Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 39

Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 39
Björn Grétar flutti frá Eskifirði til Vestmannaeyja 1975 þar sem hann vann meðal annars við að byggja íþróttahúsið í Eyjum, þaðan flutti hann til Hafnar í Hornafirði árið 1978 og til Reykjavíkur árið 1993. Hann flutti síðan aftur til Eski- fjarðar og bjó þar í nokkur ár áður en hann flutti á ný til Reykjavíkur. Áhugamál Björn Grétar hefur fjölmörg áhugamál og þar ber trúlega fyrst að nefna stjórnmál, verkalýðsmál og landsmálin almennt, en á þeim víg- stöðvum hefur hann marga fjöruna sopið. Án þess að fara nánar út í skoðanir hans í þeim efnum má segja, án þess að ýkja nokkurn skap- aðan hlut, að hann sé ekki oft sam- mála þeim skoðunum sem Mogginn setur fram. Hann fékk félagsmála- stússið með móðurmjólkinni. Á yngri árum, og reyndar langt fram eftir aldri, lék Björn Grétar í vörn Austra á Eskifirði í fótbolta og var bara orðinn nokkuð fullorðinn þegar hann hætti því. Veiðar hafa alltaf verið mikið áhugamál hjá Birni Grétari og þá bæði skotveiði og ekki síður stangveiði. Rjúpur, gæsir og svartfuglar hafa verið í veiðipoka hans um margra ára skeið og bleikja og lax ekki sjaldnar. Hann fer jafnan eldsnemma að morgni á Þingvelli og rennir þar fyrir bleikju og veiðin hefur stundum verið ævintýralega mikil, enda veit hann nákvæmlega hvað hann er að gera þegar kemur að því að fara með stöng í Þingvalla- vatn. Síðustu árin hefur Björn Grétar verið fastagestur í Breiðholtslaug- inni og mætir þar jafnan klukkan sex að morgni ásamt góðum hópi fastra viðskiptavina þar. Fjölskylda Björn Grétar kvæntist 14.3. 1965 Guðfinnu Maríu Björnsdóttur, f. 1.2. 1944, verkakonu. Hún er dóttir Björns Helgasonar, f. 12.12. 1913, d. 3.4. 1949, sjómanns á Borgarfirði eystra, og Margrétar Sigurjóns- dóttur, f. 13.8. 1926, d. 30.9. 2018, verkakonu í Reykjavík. Þau Björn Grétar og Guðfinna hafa verið saman frá árinu 1963, eða í 56 ár. Börn Björns Grétars og Guðfinnu: 1) Guðbjörg, f. 1.4. 1964, eiginmaður hennar er Ásgeir Guðnason renni- smiður, þau eiga tvær dætur, Birnu Maríu og Silvíu Rán; 2) Björn Ingi, f. 1.2. 1967, leiðbeinandi í Danmörku; 3) Sveinn Brimir, f. 18.1. 1971, rann- sóknarlögreglumaður á Suður- nesjum, sambýliskona hans er Svan- hildur Agnarsdóttir, vaktstjóri í Bláa lóninu, þau eiga þrjú börn: Guðný Ellen, Björn Grétar og Agnar Alex. Grétar og Guðfinna eiga orðið fimm langafa- og langömmubörn. Hálfbræður Björns Grétars: Guðni Magnús, f. 5.9. 1946, búsettur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Gísladóttur, Magnús á einn son frá fyrri sambúð, Guðgeir; Skúli Unnar, f. 13.1. 1957, stjórnmálafræðingur og ferðaráðgjafi í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Hörpu Hafsteinsdóttur, þau eiga þrjár dætur, Elísu, Guðbjörgu og Selmu. Foreldrar Björn Grétars: Guð- björg Björnsdóttir, f. 7.9. 1923, d. 21.5. 1988, verkakona, og William Warner, bandarískur hermaður á Seyðisfirði í seinni heimsstyrjöld- inni. Kjörfaðir Björns Grétars og eiginmaður Guðbjargar var Sveinn Sörensen, f. 26.5. 1920, d. 12.11. 1992, járnsmiður. Þau bjuggu í Dagsbrún á Eskifirði. Björn Grétar Sveinsson Jórunn Björnsdóttir húsfreyja í Breiðuvík, N-Múl. Guðjón Gíslason vinnumaður á Héraði Grímlaug Margrét Guðjónsdóttir húsfreyja í Breiðuvík Björn Björnsson bóndi á Héraði Guðbjörg Björnsdóttir húsfreyja á Eskifirði Anna Björnsdóttir húsfreyja Björn Pétursson kennari á Austurlandi Ragnhildur Hjálmarsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sveinn Benjamín Sveinsson sjómaður í Reykjavík Nikolína Sveinsdóttir húsfreyja á Eskifirði Sören Kr. Sörensen smiður á Eskifirði Kristen Sörensen húsfreyja í Danmörku Johannes M. Sörensen í Danmörku Úr frændgarði Björns Grétars Sveinssonar Sveinn Jóhannes Sörensen járnsmiður á Eskifirði Sigmund Tekist var á í pólitíkinni og verkalýðsbaráttunni þá sem nú. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Baldvin Ómar Magnússon Lögg. Fasteignasali Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177 baldvin@huseign.is Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is Við getum boðið margar gerðir stálgrindarhúsa með fullmáluðum einangruðum samlokueining- um, gluggum, glerveggjum og fleira en þetta er líklegasti ódýrasti byggingarmátinn í dag. Nú getum við boðið stálgrindarhús frá ýmsum fyrirtækjum í Evrópu og Asíu á mjög hagstæðu verði sem uppfylla öll evrópsk skilyrði. Við vinnum með kaupanda/arkitekti eða yfir- verktaka frá fyrstu hugmynd til verkloka. Þannig verður ódýrasti byggingarmátinn staðreynd. Hugmyndir af stálgrindarhúsum: Íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, knattspyrnuhús, skrifstofubyggingar, verksmiðjuhús, gripahús, íþróttastúkur, brýr og ýmislegt fleira. Nánari upplýsingar veitir Helgi Snorrason í síma 615 2426. Stálgrindarhús Sæmundur Tryggvi Sæmunds-son fæddist 19. janúar 1869(16. janúar segir Íslendinga- bók, en fleiri heimildir segja 19. jan.) í Gröf í Öngulstaðahreppi í Eyja- firði. Foreldrar hans voru hjónin Sæmundur Jónasson, bóndi þar, f. 1801, d. 1873, og Ingileif Guðrún Jónsdóttir, f. 1831, d. 1887, hús- freyja. Fjögurra ára missti Sæmundur föður sinn, en níu ára réðst hann smali að Látrum á Látraströnd, S- Þing. Þá var hann kirtlaveikur og vanþroska. Eigur hans voru aðeins ein nærföt, sem hann hafði með sér í litlum klút, utan fatanna er hann stóð í. En hann braggaðist vel á Látrum og varð Sæmundur hinn gjörvilegasti maður. Hann varð orð- lagður kraftamaður og snöggur til orða og athafna. Sæmundur lærði siglingafræði 1888-90 og hóf þá skipstjórn. Hann var um langt skeið frægur aflamað- ur á hákarlaskipum og síðar meðeig- andi og skipstjóri á Hjalteyri frá Ak- ureyri, sem var undir hans stjórn og annarra, og var það landsfrægt afla- skip. Eftir það var Sæmundur á ýmsum skipum og flutningaveiðum. Sæmundur bjó um tólf ára skeið á Stærra-Árskógi á Árskógsströnd og var oft kenndur við þann stað. Síðast var hann hafnarvörður á Ísafirði. Fyrri eiginkona Sæmundar var Sigríður Jóhannesdóttir, f. 1873, d. 1908, húsfreyja frá Kussungsstöðum í Fjörðum. Börn þeirra voru Guð- rún, Þórhallur, bæjarfógeti á Akra- nesi, Sigmundur, Elín, Ingileif, Jón Reykjalín skipstjóri, Jóhannes Óli, skólastjóri og útgefandi á Akureyri, og Guðmundur. Seinni kona Sæ- mundar var Jórunn Kristinsdóttir, en þau skildu. Sonur Sæmundar með Vilborgu Jónsdóttur, vinnu- konu á Stærra-Árskógi, var Gestur, f. 1903, d. 2004. Guðmundur G. Hagalín skráði ævisögu Sæmundar í tveimur bind- um (útg. 1936-38) og heitir hún Virkir dagar. Sæmundur lést 23.1. 1958. Merkir Íslendingar Sæmundur Sæmundsson Laugardagur 101 árs Áslaug Helgadóttir 95 ára Árni B. Tryggvason 90 ára Ragnar Haraldsson 85 ára Kristín Hendrikka Jónsd. 80 ára Rut Árnadóttir Þórdís Sigurðardóttir 75 ára Guðleifur Axelsson Guðrún Davíðsdóttir Jóhannes Jón Eyleifsson Sigurlína Björgvinsdóttir 70 ára Friðborg Gísladóttir Hannes Oddsson Hrafnhildur Garðarsdóttir Jón Eiríksson Kolbrún Antonsdóttir Róbert G. Geirsson Rögnvaldur Ólafsson 60 ára Adolf Hjörvar Berndsen Árni Björnsson Barbara Duerr Guðmundur J. Jóhannsson Heimir Bragason Ingi Rúnar Sigurðsson Jóhann Kristinn Marelsson María Brink Már Jónsson Úlfar Hróarsson Vignir Þorláksson 50 ára Auður Elva Jónsdóttir Guðmundur P. Haraldsson Hartmann Páll Halldórsson Hilmar E. Sveinbjörnsson Mohamed Nadhir Óðinn Vignir Jónasson Óskar Jónsson Raymond N. Larssen Tryggvi Sigurður Bjarnason Ægir Emilsson 40 ára Anna Kristjánsdóttir Ágústa Kolbrún Jónsdóttir Ásthildur J. L Kolbeins Freyja Kristinsdóttir Guðleif Ágústa Nóadóttir Gunnar Friðriksson Ingveldur Oddný Jónsdóttir Íris Pétursdóttir Jenný Magnúsdóttir Jitka Hamrová Lára Magnúsdóttir Stefanía Sigurðardóttir Tomasz Wojcinski 30 ára Ari Rannveigarson Arndís Magnúsdóttir Davíð Helgi Andrésson Elín Vigdís Andrésdóttir Erna Ósk Agnarsdóttir Fanney Ósk Pálsdóttir Fríða Margrét Pétursdóttir Jóhannes Diego Rodriquez Kamila Wiszowata Kristín Elísabet Csillag Lúðvík Már Ríkharðsson Monika Barbara Walkowska Ólafur Unnar Ólafsson Rebekka Sigrún D. Lynch Sigurður Ásgeir Árnason Sigþrúður Oddsdóttir Skender Morina Sveinbjörn Jóhannsson Yasmin A. De Lima Silva Þyri R. Björgvinsdóttir Sunnudagur 90 ára Borghildur B. Fenger Ingigerður Eyjólfsdóttir Matthía Margrét Jónsdóttir Sverrir Valdemarsson 85 ára Anna Hildiþórsdóttir Edvard G. Oliversson Hermann Sigfússon Jóna Margrét Þórðardóttir Þórarinn Magnússon 80 ára Ellert B. Sigurbjörnsson Jónas A. Kjerúlf Reynir Sigurðsson 75 ára Arnheiður Björnsdóttir Hreinn Frímannsson Hrólfur Þ. Hraundal Kristinn Karl Dulaney Kristín R. Trampe Magnús Jónasson 70 ára Auðbjörg Pálsdóttir Ásta Gréta Samúelsdóttir Ásta Reynisdóttir Elín Guðmundsdóttir Gísli Jóelsson Haukur Sveinsson Jón H. Sigurmundsson Óskar Hansson Ragnhildur Hjálmarsdóttir Sven Axel Ferm 60 ára Edda Guðmundsdóttir Guðlaugur Á. Kristþórsson Hafdís Kristinsdóttir Jóhann Grímur Hauksson Jón Pétursson Kjartan Jóhannsson Kristín Jóhannsdóttir Margrét Jónína Bragadóttir Ólafur Prebensson Ómar Sveinsson Sigríður Erla B. Júlíusdóttir Steinn Ágúst Steinsson Sæþór Gunnarsson Þórunn Birna Björgvinsd. Þuríður Ingólfsdóttir 50 ára Ásta Bjarnadóttir Berglind Axelsdóttir Bogdan Jacek Gierczuk Bryndís Anna Bjarnadóttir Dóra Birna Kristinsdóttir Hafdís Björg Sigurðardóttir Helga Aðalbjörg Árnadóttir Inga Brynja Magnúsdóttir Íris Guðmundsdóttir Jóhanna Eyjólfsdóttir Krzysztof Klimuszko Sebastiana Maria Dantas Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Örn Einarsson 40 ára Ásmundur Helguson Fannar Jónsson Grzegorz Swiecicki Guðbjörg Hákonardóttir Guðni Helgason Jerzy Baranowski Jón Haukdal Þorgeirsson Lilja Dögg Ásgeirsdóttir Maríanna Rúnarsdóttir Sveinbjörg Bjarnadóttir 30 ára Arkadiusz Kniec Auður Alfa Ólafsdóttir Berglind Eiðsdóttir Björn Breiðfjörð Gíslason Garðar Bjarnason Grétar Már Garðarsson Helgi Durhuus Ingibjörg Ólafsdóttir Matthildur Dögg Jónsdóttir Noor Dhiaa Subhi Sara Jóhanna Jónsdóttir Sigyn Jónsdóttir Steina Dögg Vigfúsdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.