Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 41

Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 41
DÆGRADVÖL 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hvernig væri að halda upp á daginn með því að bjóða völdum vinum til fagn- aðar? Þú hugsar þig ekki um tvisvar þegar þú færð tilboð frá vini. 20. apríl - 20. maí  Naut Smávegis bjartsýni væri ekki úr vegi, en reyndu að spenna bogann ekki of hátt í byggingabröltinu. Byrjaðu smátt og þá vex þér styrkur til að takast á við stærri mál. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér kann að þykja framkoma ein- hverra vinnufélaga skrýtin. Láttu innkaup al- veg eiga sig þar til seinnipartinn í dag og forðastu að láta æsa þig upp. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hugmyndaauðgi þín dregur langt í samkeppni við aðra. Streita hefur læðst að þér undanfarið, mundu að heilsan skiptir öllu og best að ráðast í aðgerðir strax. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Notaðu tækifærið og reyndu að eign- ast nýja vini. Fáðu aldraðan ættingja til að leysa frá skjóðunni um líf sitt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Tilvera þín þjónar vissum tilgangi, þótt þér finnist það ekki augljóst eins og er. Ef þú bara breytir örlítið út af vananum verður dagurinn allur annar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er margt sem leitar á hugann ein- mitt nú þegar þú þarft að vera í næði og einbeita þér að ákveðnu verki. Svaraðu þörf- um annarra með opnu hjarta, en hugsaðu fyrst um þínar eigin. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert tilbúin/n til að leggja á þig aukna vinnu til að hjálpa einhverjum í dag. Komdu hugmyndum þínum á framfæri. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú talar. Þú kemur makanum í uppnám með hugmynd sem þú færð, en þú þekkir þitt heimafólk og brosir að látunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Kringumstæður fara úr bönd- unum, þú tekur stjórnina og sýnir leiðtoga- hæfileika þína. Vegna yfirvegaðs styrks þíns dregst fólk að þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mikilvæg ábending frá vini getur leitt til varanlegrar heilsubótar. Þú býður fólki birginn og vinnur sigur. Þú verður stundum að telja upp að þremur áður en þú tjáir þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leggðu áherslu á að vera skýrmælt (ur) við aðra í dag, notaðu innsæið, það mun reynast vel. Haltu fast í allar jákvæðar hugsanir, það fleytir þér yfir allar hindranir. Víkverji hefur oft heyrt talað um for-heimskandi áhrif poppmenningar, en er lítið gefinn fyrir slíka stimpla. Hann er þó ekki frá því að þegar kem- ur að bresku hljómsveitinni Pink Floyd séu slíkar fullyrðingar réttlæt- anlegar. x x x Nú sér Víkverji fyrir sér að aðdá-endur þessarar ágætu hljóm- sveitar séu byrjaðir að bretta upp ermarnar og mótmæla hástöfum og biður þá vinsamlegast að hinkra augnablik. Í upphafi árs lenti kínverska geim- farið Chang’e-4 á þeirri hlið tunglsins, sem vísar frá jörðu. Nokkuð var fjallað um þetta í fréttum og þótti meðal ann- ars til marks um að Kínverjar væru að sækja í sig veðrið í kapphlaupi stór- veldanna um ítök í geimnum. x x x Fyrir 46 árum gaf hljómsveitin PinkFloyd út plötuna Dark Side of the Moon. Talið er að platan hafi selst í 45 milljónum eintaka og hafa fáar plötur selst jafn mikið. Samfellt var platan á bandaríska vinsældalistanum í 741 viku frá 1973 til 1988. x x x Þegar sagt var frá geimskoti Kín-verja í fréttum í Ríkissjónvarpinu sagði að kínverska geimfarið hefði lent á skuggahlið tunglsins. Víkverji heyrði fréttaþul breska ríkisútvarpsins, BBC, tala um skuggahlið tunglsins þar sem hann hlustaði í bíl sínum. x x x Víkverji veit fyrir satt að það er eng-in skuggahlið á tunglinu. Þar rís sólin og hnígur rétt eins og á jörðu niðri. Möndulsnúningur tunglsins er jafn langur umferðartímanum um jörðina eins og segir á stjörnufræði- vefnum og vísar því alltaf sama hlið þess að henni. Rekur Víkverji hins vegar allt tal um skuggahlið tunglsins til þekktustu plötu hinnar fornfrægu hljómsveitar. x x x Því má svo bæta við að nafnið á kín-verska geimfarinu, Chang’e, er einfaldlega heiti tunglgyðjunnar í kín- verskri goðafræði. vikverji@mbl.is Víkverji Nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur (Fyrra Korintubréf 13.13) Vísnagátan er sem endranær eft-ir Guðmund Arnfinnsson: Ómerk talin er sú kvinna. Afar þörf í sendiferð. Smala hjörð er hennar vinna. Hún er bíll af verstu gerð. Helgi Seljan svarar: Kjaftatík er köpuryrði, kannski senditíkin líka. Smalatík ég vísast virði, varla er bíltík hægt að flíka. Sigmar Ingason á þessa lausn: Illmálgir kölluðu konu tík, kannast flestir við senditík. Tík getur smalað fé af fjalli, finnst á bíltíkum margur galli. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig; Tík er kölluð bitch í bænum, þó böðlist senditíkur meir. Tík nær hjörð af heiðum vænum. Hinkr’á Fordtík bændur þeir. „Þá er það lausn vikunnar,“ segir Helgi R. Einarsson: Skeytt við smala-, sendi- og bíl-, af slægð sú kona er rík. Augljóst mál, því ekkert víl, orðið það er tík. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Tík er ómerk talin kvinna. Tík er þörf í sendiferð. Trygg mun smalatíkin vinna. Tík er bíll af verstu gerð. Þá er limra: Er gengur um götur hún Lena, prófastsdóttirin pena, hvolpar elta hana og gelta, því hún er með tíkarspena. Og síðan er ný gáta eftir Guð- mund: Hrökk ég upp af drauma dúr, drýpur regnið skýjum úr, algerlega út úr kú er til reiðu gáta nú: Lamb, sem fjarska lítið er Löngum sagt um fiman mann. Á jólum einhver í hann fer. Af ánægju sá mala kann. Gamall húsgangur í lokin: Kveða skal við kindina kvæðis litlu myndina; sú mun forðast syndina er sér í gluggagrindina. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ein er tíkin og kann ekki að gelta Í klípu „ég er ekki mikill biblíumaÐUR. ÞAÐ ER SAMT FREKAR SVALT AÐ VERA BOÐIÐ Í ÁRITUNINA.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ég baÐST AFSÖKUNAR!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... einfalt reiknings dæmi. HVAÐ ELSKA ÉG HEITT VIÐ ÞIG? LEYF’ MÉR AÐ TELJA ÞAÐ UPP … PEPPERÓNÍ … KRYDDPYLSA OG LAUKUR … AUKAOSTUR … ENN EITT PÍTSU- LJÓÐIÐ! HVÍ BROSIR ÞESSI BJÖRN? HANN VEIT EKKI AÐ ÞÚ KANNT EKKI AÐ LESA! ALLAR VEIÐAR BANNAÐAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.