Morgunblaðið - 19.01.2019, Page 42

Morgunblaðið - 19.01.2019, Page 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tvær sýningar verða opnaðar kl. 16 í dag í Ásmundarsafni, annars veg- ar sýning á verkum Ásmundar Sveinssonar, Undir sama himni, og hins vegar sýning á verkum Sig- urðar Guðmundssonar, Skúlptúr og nánd. Sýningin á verkum Ásmund- ar er yfirlitssýning en sýningin á verkum Sigurðar er sú fyrsta í röð þar sem sjónum verður beint að verkum listamanna í almennings- rými og nálgun þeirra við list sem hluta af daglegu umhverfi manna, eins og því er lýst í tilkynningu. Af útiverkum og verkum eftir Sigurð sem sjá má í almenningsrými má nefna Fjöruverk við Sæbraut, verk hans inni í höfuðstöðvum Alvogen og fyrir utan þær og ævintýralegt verk hans við Barnaspítala Hrings- ins. Á báðum sýningum eru sýndar minni frummyndir hinna ýmsu verka sem og skissur og teikningar og einnig listaverk sem þykja ein- kennandi fyrir list beggja og hafa hugmyndaleg eða formræn tengsl við verk þeirra í almenningsrými. Árið 2019 er ár listar í almennings- rými hjá Listasafni Reykjavíkur og sýning Sigurðar er sú fyrsta af fimm einkasýningum jafnmargra listamanna sem eiga verk í al- mannarými í borginni. Sýningar- stjórar sýninganna tveggja sem opnaðar verða í dag eru Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna og Yean Fee Quay, verkefnisstjóri sýninga hjá Listasafni Reykjavíkur. Ógeðslegt að sjá illa farið útilistaverk Uppsetning sýningar Sigurðar er í fullum gangi þegar blaðamann ber að garði í Ásmundarsafni, nokkrum dögum fyrir opnun. Upp- setningin er skammt á veg komin og því fá verk að sjá, enn sem kom- ið er. Þó má sjá prótótýpur eða frumgerðir nokkurra, m.a. verks eftir Sigurð sem stendur fyrir utan World Class líkamsræktarstöðina í Laugardal og minnir á bautastein en í skúlptúrnum fléttast saman fjöldi nakinna líkama karla og kvenna. Einnig má sjá frumgerð verks sem Sigurður gerði fyrir fyr- irtækið Alvogen og bendir hann á að frumgerðirnar séu unnar í raun- efni, þ.e. sama efni og lokaverkin. Verkið í Alvogen er til að mynda úr ryðfríu stáli og formið er kunn- uglegt, minnir á marga fyrri skúlp- túra Sigurðar. Listamaðurinn er spurður að því hvort hann viti hversu marga úti- skúlptúra hann hafi gert á ferlinum og segist hann ekki hafa hugmynd um það. En þeir eru býsna margir, bæði hér á landi sem erlendis. „Áreiðanlega 15, eitthvað svoleið- is,“ segir Sigurður svo og á þar við fjöldann hér á landi. Hann segir nauðsynlegt að skúlptúrarnir séu úr föstum efnum sem þoli álag úti- verunnar. „Það er svo ógeðslegt að sjá útilistaverk sem er illa farið,“ segir Sigurður og grettir sig, „og er kannski úr einhverjum gervi- efnum.“ Verða að standast tímans tönn Sigurður segist aldrei hafa gert sýningu á borð við þessa og segist ekki búa til sýningar svona al- mennt eða oftast nær. „Ég bý til verk og svo bý ég til annað verk,“ útskýrir hann. „Ég er ekkert á móti þessu, sko, ég kann bara ekk- ert á þetta,“ bætir hann við af sinni alkunnu kímni og á þar við sýn- inguna. – Þú ert ekki sýningarstjórinn en hefur þó eitthvað um það að segja hvað er sýnt, er það ekki? „Nei, í raun og veru ekki, við tókum allt sem var til taks og á staðnum,“ svarar Sigurður og að sýningargripirnir komi víða að og frá mörgum eigendum. „Ég á ekk- ert verk hérna,“ segir hann bros- andi. – Þegar útilistaverk er pantað hjá þér, býrðu þá til verk sem þú miðar við staðinn eða er það ein- faldlega framhald af þínum fyrri verkum? „Ég sæki alltaf „the mandate to myself“ en þau eru alltaf ný fyrir mér líka, ný nálgun og svona,“ svarar Sigurður og segist verða að vera alveg klár á því að verkin verði ekki honum og afkomendum hans til skammar er fram líða stundir. Erótískir líkamshlutar – Verkin þín fyrir World Class eru dálítið frábrugðin öðrum útilistaverkum þínum, er það ekki? „Í öllum verkunum í World Class, snýst allt um líkamshluta, þetta líkamlega og með erótískum blæ.“ – Hann er nú hálfgert reðurtákn, skúlptúrinn sem stendur fyrir utan stöðina í Laugum? „Já, já og það er bara hið besta mál,“ segir Sigurður og hlær, „það fór fyrir brjóstið á sumum og það er allt í lagi.“ – Það er augljós húmor í verk- inu, ekki satt? „Jú, jú og ég hef líka gert verk úti á Nesi fyrir World Class og svo er ég að gera fyrir Hafnarfjörð núna,“ segir Sigurður og á þar við nýja líkamsræktarstöð þar í bæ. Hann segir níu metra langa lág- mynd, eins og hálfs metra háa, eiga eftir að teygja sig eftir anddyri stöðvarinnar, lágmynd sem er á leið til landsins með skipi. Eins og tónlist Við tyllum okkur í kaffihorn „Verkin mín eru merkingarfælin“  Verk í almenningsrými tekin fyrir í nýrri sýningaröð í Ásmundarsal  Sigurður Guðmundsson fyrstur í röðinni Sunneva Ása Weisshappel opnar einkasýninguna Umbreyting í dag kl. 16 í Galleríi Porti, Laugavegi 23b. Um sýninguna segir m.a. í texta eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur að með því að setja ólíka hluti saman verði til myndmál, með uppfyllingu verði til form og skúlptúrar sem komi að innan. Formin umbreytist og til- gangur fæðist. Sú einfalda athöfn að losa sig við uppsafnað drasl byrji smám saman að öðlast merkingu og myrkur verði ljós. Umbreytingin kosti ómæld átök, líkt og að snúa trukki á fullri ferð um 180 gráður. „Um leið er þetta ekki annað en lífrænt ferli. Þolinmæðisverk sem einungis verður unnið með því að gefast aldrei upp og jafnframt að af- sala sér allri stjórn. Þannig verður til hámenningarlegt kitsch. Rókókó úr drasli sem annars hefði farið á haugana. Sunneva Ása Weisshappel rekur stefnumótaþjónustu fyrir lág- kúru og hámenningu. Sorp verður safngripir. Verði lampi. Verði ljós. Verði spegill. Verði afskræmd, líf- ræn fegurð. Verði ský með óljósum og óvæntum formum. Dulin heim- speki. Hversdagsleg dulspeki. Verði landslag. Landslag af nútíma- samfélagi. Verði verðmæti,“ skrifar Guðrún. Sunneva útskrifaðist af mynd- listarbraut við Listaháskóla Íslands árið 2013 og stofnaði í kjölfarið Al- gera Studio sem hún rak í þrjú ár og hélt þar fjölda viðburða og sýninga ásamt meðlimum Algera. Umbreyting er fyrsta einkasýning Sunnevu eftir útskrift og í myndlist hennar er sjálfinu gjarnan stillt upp sem rannsóknarvettvangi til að skoða og spegla samtímann, segir í tilkynningu. Sunneva hafi sýnt myndlist sína víða, innanlands sem utan. Hún hefur einnig leikstýrt og unnið við gerð fjölda tónlistarmynd- banda og fengið tilnefningar til verð- launa, bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur einnig hannað búninga fyrir leikhús og hlaut Grímuverð- laun fyrir búninga sína í Njálu árið 2015. Ljósmynd/Sara Maria Yasdani Listakonan Sunneva Ása. Umbreyting í Porti TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Þegar engar kanntu regl-urnar, þá veistu ekki hve-nær og hvort þú ert að brjóta þær.“ Mesta gróskan í ís- lenskri neðanjarðartónlist á þessari stundu er hjá listasamlaginu post- dreifingu, sem minnir um margt á starfsemi Smekkleysu í upphafi. Virknin er gríðarleg en ólíkt þeim smekklausu eru post- dreifingjar ekki að flagga sínum við- burðum eða út- gáfum né held- ur að spila með fjölmiðla eða frægt fólk eins og Smekkleysingjar gerðu svo skemmtilega. Meðvituð kaldhæðni og súrrealismi fylgir ekki kynslóð- inni nýju, einlægni og ákveðið lát- leysi fylgir henni fremur. Fram- kvæmdagleðin hefur hins vegar erfst. Þannig var útgáfa og tón- leikastarfsemi post-dreifingar á síðasta ári með mesta móti en þjón- Stundarfjórðungur af stuði aði fyrst og síðast þeim sem sam- laginu tengjast, sem stuðningur við sannanlega sköpunarþörf þeirra fylgihnatta sem hverfast um fyrir- bærið. Margt af því sem hefur komið frá post-dreifingu tónlistarlega er með því allra besta sem maður hef- ur heyrt hérlendis í árafjöld hvað neðanjarðartónlist viðkemur. Það eru beinlínis engar reglur, tónlistin fer bara eitthvað á köflum, eins og heyra má t.d. hjá sideproject, Sus- an_Creamcheese og Tucker Carl- son’s Jonestown Massacre. Ég hvet þig lesandi góður til að athuga þessi mál, en post-dreifing heldur úti bústinni bandcampsíðu. Þar má greina ýmislegt sameiginlegt með listamönnunum, t.a.m. viljandi vonda umslagshönnun, með með- vitaðri kæruleysislegri áru ein- hvern veginn. Mjög töff. Letur- gerðirnar eru oft fáránlegar og umslögin samskeyttar myndir, eins og sex ára barn hafi verið að leika sér í Paint. Korter í flog er ein þessara sveita, og átti hún eina allra bestu plötu síðasta árs – Flog í korter (sem er eins og nafnið gefur til kynna ekki nema fimmtán mín- útna löng. Og eitt langt lag). Þann- ig að er þetta plata? Það sem flækir mál enn frekar er að plata þessi kom bara út á youtube og styðst við ansi sýrða myndbandsskreytingu. Það sem er að breytast í tónlist í dag er einmitt vettvangurinn sem fólk nýtir sér til að koma tónlistinni á framfæri. Plötur eru einhvers staðar alls staðar og hvergi. Eitt- hvað af lögum með Korteri í flog er á Soundcloud, plata frá 2017, Lög til að slá við, er þá á Bandcamp og einnig Spotify reyndar. Ekki hef ég heyrt af neinum áformum um að Flog í korter verði vistuð neins staðar annars staðar en á youtube. Upplýsingar eru þá í takt við þetta; sveitin er skipuð fjölda manns, átta samkvæmt fésbókar- síðu, og myndir þar ógreinilegar »Þar má greina ým-islegt sameiginlegt með listamönnunum, t.a.m. viljandi vonda um- slagshönnun, með með- vitaðri kæruleysislegri áru einhvern veginn. Listasamlagið post-dreifing skýlir alls kyns snilldarböndum af yngra taginu um þessar mundir og Korter í flog er eitt af þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.