Morgunblaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 48
útsala
50%
afsláttur
af öllum vörum
Dúettinn Sycamore Tree heldur
tónleika í Bæjarbíói í kvöld kl.
20.30. Með Gunna Hilmarssyni og
Ágústu Evu Erlendsdóttur, sem
skipa dúettinn, koma fram Unnur
Birna Björnsdóttir á fiðlu, Arnar
Guðjónsson á bassa, Matthías Stef-
ánsson á gítar og fiðlu, Óskar Þor-
marsson á slagverk og Lilja Cardew
á píanó.
Sycamore Tree leikur
í Bæjarbíói í kvöld
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 19. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Arnór Þór Gunnarsson var, að mati
Morgunblaðsins, besti leikmaður
íslenska karlalandsliðsins í hand-
knattleik í riðlakeppni heimsmeist-
aramótsins í handknattleik sem
lauk í München á fimmtudag. Liðið
er nú komið til Kölnar til keppni í
milliriðli. Í blaðinu í dag fá allir
leikmenn Íslands einkunnir og um-
sagnir um frammistöðu sína til
þessa. »2-3
Arnór var bestur
í riðlakeppninni
Seinni dagur Django-daga í Reykja-
vík fer fram í dag í Iðnó. Markmið
Django-daga er að minnast belg-
íska gítarfrumkvöðulsins Django
Reinhardt. Á tónleikum kvöldsins,
sem hefjast kl. 20.30, koma fram
Robin Nolan, sem þykir mikill
áhrifavaldur í heimi sígaunadjass,
klarinett- og saxófónleikarinn og
tónskáldið Haukur Gröndal og fiðlu-
leikarinn og tónskáldið Greta Sal-
óme. Auk þeirra koma
fram Dan Cassidy á
fiðlu, Gunnar
Hilmarsson á gít-
ar, Jóhann Guð-
mundsson á gítar
og Leifur Gunn-
arsson á
kontra-
bassa.
Django minnst með
tónum í Iðnó í kvöld
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Rögnvaldur Ólafsson glímukappi
fór glaður frá München í Þýska-
landi í gær eftir að hafa séð ís-
lenska handboltalandsliðið tryggja
sér sæti í 12 liða úrslitum heims-
meistarakeppninnar. „Þetta er góð
afmælisgjöf,“ sagði kappinn, sem
er sjötugur í dag og heldur upp á
afmælið í Búdapest í Ungverja-
landi.
Félagarnir og glímudómararnir
Rögnvaldur og Garðar Erlendsson,
heiðursfélagar Glímusambands Ís-
lands, hafa mætt á helstu stórmót-
in með íslensku landsliðunum í fót-
bolta og handbolta undanfarin ár.
Þetta er fjórða handboltamótið í
röð og auk þess eltu þeir fótbolt-
ann, voru á HM í Rússlandi í
fyrrasumar, EM í Frakklandi og
EM kvenna í Hollandi. „Við ætl-
uðum að fá þrjá fyrir einn og sjá
tvo leiki í Evrópukeppninni í körfu
í Finnlandi, þegar Íslendingar
sóttu Finna heim í fótboltanum, en
áttum ekki heimangengt,“ segir
Rögnvaldur.
Rögnvaldur hefur verið tengdur
við glímu frá barnsaldri, var sigur-
sæll keppnismaður í KR, kynnti og
kenndi glímu í skólum um árabil
og var lengi dómari í íþróttinni.
„Ég fór meira að segja út í Gríms-
ey til þess að kynna glímuna en nú
er ég hættur,“ segir hann.
Dómari í þremur greinum
Þó glíman hafi verið aðalmálið
æfði Rögnvaldur líka handbolta og
fótbolta og aflaði sér þjálfararétt-
inda auk dómararéttinda í hand-
bolta, lyftingum og glímu. „Ég hef
alltaf haft áhuga á öllum íþróttum
og æfði boltagreinarnar til þess að
vera í sem bestu formi í glímunni.“
Stuðningsmennirnir voru bók-
staflega í skýjunum þegar Morg-
unblaðið náði í Rögnvald. „Við er-
um að fljúga til Búdapest, himin-
lifandi,“ sagði hann og átti vart til
orð yfir frammistöðu landsliðsins á
móti Makedóníu. „Þetta var æsi-
leikur, Bjöggi var í miklu stuði í
markinu og varnarleikurinn var
fastur. Arnar Freyr var í heims-
klassa í vörninni og ekki er annað
hægt en að vera ánægður.“
Rögnvaldur segir að þeir noti
gjarnan ferðirnar til þess að skoða
nærumhverfið. „Víða má sjá
skemmtilegan byggingarstíl þó
maður leggist ekki á bæn í öllum
kirkjum,“ segir hann og bætir við
að þeir hafi ekki orðið varir við
handboltaáhuga í München fyrir
utan keppnishöllina. „Það var til
dæmis allt annað og skemmtilegra
andrúmsloft í Split í fyrra, þar
gengu allir í takt og íslensku
stuðningsmönnunum var sérlega
vel tekið, allir elskaðir og dáðir.“
Eins rómar hann stemninguna á
EM í Póllandi 2016. „Það er alltaf
meiri stemning í minni höllum,“
segir hann. „Það var líka galli hvað
íslensku áhorfendurnir voru dreifð-
ir í höllinni í München, en sigurinn
á Makedóníu er fyrir öllu. Það er
leiðinlegt að missa af næstu leikj-
um en við sáum ekki fyrir að liðið
kæmist áfram.“
Stuðningsmenn Rögnvaldur Ólafsson til vinstri og Garðar Erlendsson studdu Japan á móti Spáni í München.
Himinlifandi skýjum
ofar eftir árangurinn
Rögnvaldur með landsliðinu og fagnar 70 ára afmælinu