Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3 1. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 26. tölublað 107. árgangur
WIZAR
HÆGINDASTÓLL
Fullt verð frá: 199.900 (Tau)
ÚTSÖLUVERÐ FRÁ 159.920
STILLANLEG
HEILSURÚM
VERÐ FRÁ 264.065
Á ÚTSÖLUNNI
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-70% AFSLÁTTUR
ATVINNU-
BLAÐ MORG-
UNBLAÐSINS
SVARTA
HÚFAN
MIKILVÆG
ÞORRABLÓT
GÓÐ BÚBÓT
FÉLAGA
FOKK OFBELDI-HÚFUR TIL SÖLU 28 VIÐSKIPTAMOGGINNFINNA VINNU 8 SÍÐUR
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins vilja að endurskoðuð
verði áform um að setja upp lista-
verk í formi tveggja pálmatrjáa í
glerhjúpum í Vogabyggð. Verkið á
að kosta 140 milljónir króna. Hyggj-
ast þeir leggja tillögu þessa efnis
fram á fundi borgarráðs í dag.
„Þetta er gríðarlega há fjárhæð,
ekki aðeins fyrir tvö pálmatré heldur
einnig í samhengi við listkaup borg-
arinnar. Þetta er margföld sú fjár-
hæð sem borgin ver til listaverka-
kaupa á ári,“ segir Eyþór Laxdal
Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna.
Borgin greiðir helming kostnaðar og
leggur innviðagjald á húsbyggj-
endur fyrir hinum helmingnum.
Segir Eyþór að allt komi þetta úr
vösum borgarbúa því innviðagjaldið
hækki verð íbúða og geri þær auk
þess illseljanlegri. »18, 41, 58
Vilja endurskoða áform
um pálmatré á torginu
Sjálfstæðismenn með efasemdir
Margt bendir til þess að inflúensan, sem gjarnan
herjar á landsmenn á þessum tíma árs, gæti orð-
ið öllu vægari en undanfarin ár. Kemur þar til að
bóluefnið sem fékkst til landsins í haust virðist
hafa verið gott auk þess sem fleiri en oftast áður
mættu í sprautu, eða um 68 þúsund manns á
landinu öllu. Þetta segir Óskar Reykdalsson,
læknir og settur forstjóri Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins. Inflúensan byrjar gjarnan að
láta á sér kræla í nóvember en nær hámarki í
febrúar og mars. Inflúensu má skipta í nokkra
flokka en einkennin eru þó jafnan hin sömu; fólk
veikist snögglega, fær háan hita og verki í höfuð
og bein. „Jú, flensutilvikin eru aðeins að byrja að
detta inn hjá okkur núna, en þetta er heldur
rólegra en í meðalári,“ segir Óskar.
Bóluefni vegna flensunnar er nú uppurið en
fólk kemur þó ýmissa erinda vegna í sprautu,
sem Eva Ösp Bergþórsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur á Heilsugæslunni í Árbæ, mundar hér
fagmannlega. »14
Morgunblaðið/Hari
Vetrarflensan væntanlega vægari en áður
Prentsmiðjan
Oddi hefur kynnt
til sögunnar nýja
tegund vatns-
heldra pappa-
kassa til mat-
vælaflutnings
sem leysa eiga
kassa úr frauð-
plasti af hólmi.
Kristján Geir
Gunnarsson, for-
stjóri fyrirtækisins segir hina nýju
vöru stórt skref í átt til aukinnar um-
hverfisverndar, m.a. í íslenskum
sjávarútvegi. Í gær var starfsfólki
Odda tilkynnt að nú væri unnið að því
að skipta fyrirtækinu upp í tvö að-
skilin og sjálfstæð félög. Eftir breyt-
ingarnar mun Prentsmiðjan Oddi
hafa með höndum alla prentvinnslu
en Kassagerð Reykjavíkur verður
endurvakin og mun hún halda utan
um alla umbúðasölu sem byggð hefur
verið upp innan Odda. Samhliða
breytingunum missa 8 starfsmenn
vinnuna.
Kristján Geir ræðir í ítarlegu við-
tali í ViðskiptaMogganum í dag þær
gríðarlegu breytingar sem fyrirtækið
hefur gengið í gegnum á und-
anförnum árum. Frá árinu 2013 hef-
ur starfsfólki félagsins fækkað um
ríflega 70%. Kristján Geir segir að
breytingaferli síðustu missera muni
hins vegar tryggja viðgang fyr-
irtækjanna tveggja sem nú verða til.
Skera upp
herör gegn
frauðplasti
Odda verður skipt
upp í tvö fyrirtæki
Kristján Geir
Gunnarsson
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Kauptilboð sem Kólfur hf. hefur
gert í ríflega 19% hlut félagsins
Hvatningar í Bláa lóninu, gengur
út frá því að heildarvirði fyrirtæk-
isins nemi 50 milljörðum króna.
Þetta herma heimildir Viðskipta-
Moggans en þar er í dag greint frá
því að stærstu eigendur fyrr-
nefnds hlutar í Bláa lóninu hafi
ekki enn tekið endanlega afstöðu
til þess hvort þeir gangi inn í
kauptilboð Kólfs hf. Frestur sem
eigendurnir hafa, en í þeim hópi
eru nokkrir af stærstu lífeyrissjóð-
um landsins, rennur út nú í lok
dags. Fyrrnefndan eignarhlut eiga
þessir aðilar í gegnum fjárfesting-
arsjóðinn Horn II sem aftur er
eigandi að 49,5% hlut í félaginu
Hvatningu sem á ríflega 39% hlut í
Bláa lóninu. Skv. ársreikningi
Horns II fyrir árið 2017 var Bláa
lónið metið á ríflega 40 milljarða
króna. Á rúmu ári hefur félagið
því vaxið að verðgildi um nærri 10
milljarða króna. Sé miðað við fyrr-
nefnt verðmat, sem liggur til
grundvallar kauptilboði Kólfs í
hlutinn í Hvatningu, sést að Bláa
lónið er orðið nærri jafn verðmætt
og stærsta ferðaþjónustufyrirtæki
landsins, Icelandair Group. Við
lokun markaða í gær nam mark-
aðsvirði þess 54 milljörðum króna.
Meta Lónið á 50 milljarða
Verðmæti Bláa lónsins nálgast markaðsvirði Icelandair
M »ViðskiptaMogginn