Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
LOKADAGAR
ÚTSÖLU
ENNMEIRI
VERÐLÆKKUN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þingflokkur skiptir verkum
Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði telur óþarft að flýta flokksráðsfundi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafn-
arfirði telur enga ástæðu til að
kalla flokksráð saman til fundar
nú. Hvort sem er standi til að gera
það í mars eða apríl. Þá sé það ekki
á valdi flokksráðsfundar að breyta
verkaskiptingu meðal þingmanna
flokksins, það sé verkefni þing-
flokksins.
Birgi Þórarinssyni, þingmanni
Miðflokksins í Suðurkjördæmi,
finnst ekki rétt að þeir þingmenn
sem stigu tímabundið til hliðar
vegna Klaustursmála geti gengið
að trúnaðarstörfum sínum fyrir
flokkinn vísum. Kom þetta fram í
tilkynningu sem hann sendi frá sér
í gær til að bera til baka frétt
Fréttablaðsins um að hann væri á
leið í Sjálfstæðisflokkinn. Hann
sagðist jafnframt hafa komið þeirri
skoðun sinni á framfæri við for-
mann Miðflokksins að hann teldi
rétt að boða til flokksráðsfundar
eins fljótt og auðið væri til þess að
fara yfir stöðuna og stokka m.a.
upp spilin í verkaskiptingu þing-
manna.
Einbeiti sér að þingstörfum
Gunnar Bragi Sveinsson er for-
maður þingflokks Miðflokksins
og Bergþór Ólason er formaður
umhverfis- og samgöngunefndar
þingsins samkvæmt samkomulagi
stjórnar og stjórnarandstöðu og í
krafti þingstyrks Miðflokksins.
Sigurður Þ. Ragnarsson, bæjar-
fulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði,
segir mikilvægt að þingmenn ein-
beiti sér að þingstörfum frekar en
þeim látum sem verið hafi. Þingið
verði að halda áfram og allir þing-
menn hafi umboð út kjörtímabilið.
Hann segist af þeim ástæðum ekki
geta leyft sér að gera athuga-
semdir við setu Bergþórs og
Gunnars Braga. Vegna ástandsins
í þinginu leggur hann áherslu á að
þingmenn eigi hvorki né megi
ákveða með hverjum þeir vinni.
Kjósendur ákveði það með at-
kvæði sínu.
Birgir
Þórarinsson
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Ekki er útilokað að eitthvað gæti far-
ið að rofa til á samráðsvettvangi
vinnumarkaðarins og stjórnvalda en
ákveðnar þreifingar eru í gangi að
sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar,
formanns VR.
Ekki dró til sérstakra tíðinda á
sáttafundi samninganefnda VR, Efl-
ingar og Verkalýðsfélaga Akraness
og Grindavíkur með SA í gær. Fylgt
er áfram þeirri áætlun sem lagt var
upp með fyrir sáttafundina í þessari
viku samkvæmt upplýsingum Ragn-
ars Þórs. Næsti sáttafundur verður
haldinn á morgun og er þá gert ráð
fyrir lengri umræðum.
Á fundinum í gær voru m.a. til
skoðunar hugmyndir eða sýn SA á
mögulegar breytingar á vinnumark-
aðinum í takt við það sem tíðkast
hefur í Danmörku. „Við ætlum að sjá
hvaða málum við getum þokað áfram
sem undirhóparnir hafa sent til okk-
ar. Það verður langur fundur á föstu-
daginn,“ segir Ragnar Þór.
Hann á þó ekki von á að úrslita-
stund renni upp í viðræðunum á
morgun. „Ætli það verði þá ekki
frekar í næstu viku sem eitthvað
gæti farið að skýrast og þá þarf líka
afstaða stjórnvalda að liggja fyrir
gagnvart kröfugerðinni okkar áður
en við getum tekið ákvarðanir um
næstu skref,“ segir hann.
Í dag kemur samninganefnd ASÍ
saman til að fara yfir stöðuna gagn-
vart stjórnvöldum og ræða á lífeyr-
ismál og kanna hvort menn ná sam-
an um þau á vettvangi ASÍ eins og
tókst í skatta- og húsnæðismálunum.
omfr@mbl.is
Gæti farið að rofa eitthvað til
í samskiptum við stjórnvöld
Boðaður er langur sáttafundur á morgun um ýmis mál
Morgunblaðið/Hari
Fundur Formenn Eflingar og VR.
Gera á tilraun til að skjóta gervi-
hnattamerki í einn eða fleiri hnúfu-
baka í Eyjafirði í dag, en vegna
veðurs djúpt úti af Norðurlandi leit-
aði hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson þar vars. Tilgangurinn er
m.a. að afla upplýsinga um ferðir
hnúfubaka á þessum árstíma, sem
jafnframt geta gefið vísbendingar
um hvar loðnan heldur sig.
Gísli Víkingsson, hvalasérfræð-
ingur á Hafrannsóknastofnun, segir
þekkt að hnúfubakur haldi sig mik-
ið á sömu svæðum og loðnan frá
hausti. Í september 2015 hafi t.d.
verið metið að um sjö þúsund
hnúfubakar hafi verið á loðnuslóð
við Grænland. Þá virðist vetrarseta
hnúfubaka hér við land hafa aukist
jafnt og þétt.
„Endanlegt markmið er að reyna
að meta afrán hnúfubaks á loðnu,“
segir Gísli. „Auk þess að merkja
hnúfubaka reynum við að taka húð-
sýni til að reyna að meta fæðu
hnúfubaks með ísótópum. Það ætti
að geta gefið mynd af fæðu-
samsetningu og þá hvort hvalurinn
er að éta loðnuna fyrst og fremst
eða það sama og loðnan er að éta
eins og átu.“
Tvær byssur um borð
Hann segir að um borð í Árna
séu tvær byssur til að nota í þessu
verkefni, önnur til að skjóta gervi-
hnattamerki og hin til að taka húð-
sýni. Til að geta skotið merkjum
eða aflað sýna þarf veður að vera
þokkalegt svo hægt sé að komast á
gúmbát í návígi við hvalinn.
aij@mbl.is
Vilja fræð-
ast um fæðu
og ferðir
Hnúfubakur Listsýning á Eyjafirði,
mannvirki á Hjalteyri í baksýn.
Reynt að merkja
hnúfubak í Eyjafirði
Þótt snjóað hafi yfir ærslabelginn á íþróttasvæð-
inu í Borgarnesi geta börnin ærslast þar. Búið er
að moka snjónum af efsta hluta leiktækisins svo
hægt er að hoppa þar og skoppa, standandi, sitj-
andi eða liggjandi, úr og í snjóskaflinn.
Veðurstofan spáir áfram norðlægri átt og
kulda. Él verða næstu daga og allt að 15 stiga
frost í innsveitum. Heldur herðir frostið á laug-
ardag þegar birtir til á landinu. Þá er gert ráð
fyrir 5-20 stiga frosti og að kaldast verði í inn-
sveitum norðanlands. Þó er gert ráð fyrir að það
þykkni upp um kvöldið með vaxandi austlægri
átt sunnan- og suðvestantil á landinu og dragi úr
frosti. Aftur fer að élja eða snjóa á sunnudag.
Ærslast á belgnum í Borgarnesi
Morgunblaðið/Eggert
Allt að 20 stiga frosti spáð á laugardag og að kaldast verði í innsveitum norðanlands