Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Ný netverslun www.tiskuhus.is
Str.
38-58
Hlynur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri viðskiptasviðs hjá Isavia, segir
farþegaspá félagsins byggða á bestu
fáanlegu upplýsingum frá flugfélög-
unum. Meðal annars sé horft til flug-
framboðs og pantana á flughliðum.
Haft var eftir Skarphéðni Berg
Steinarssyni ferðamálastjóra í Morg-
unblaðinu í gær að farþegaspá Isavia
væri ekki vel rökstudd að mati
Ferðamálastofu. Hún hefði áætlað að
brottförum frá Keflavík myndi
fækka um 8-10% milli ára en ekki um
rúm 2% eins og Isavia spáir.
Spurður um þessa gagnrýni á
skort á rökstuðningi segir Hlynur að
ekki sé tilefni til að útskýra sérstak-
lega aðferðafræðina í spánni. Hún
skýri sig sjálf.
„Við höfum skoðað sætaframboðið
í flugáætlun Ice-
landair, WOW air
og annarra flug-
félaga og leggjum
svo saman. Það er
öll aðferðafræðin.
Það þarf ekki að
útskýra hana nán-
ar með hagfræði-
legum hugtökum.
Við vinnum út frá
tölunum frá flug-
félögunum,“ segir Hlynur. Isavia
áætli breytingar á fjölda tengi-
farþega og farþega sem koma inn í
landið fyrst og fremst út frá breyt-
ingum á flugáætlun Icelandair og
WOW air. Isavia gefi ekki út áætlaða
nýtingu á einstökum flugleiðum. Þótt
Icelandair áformi að auka framboðið
um 10% í ár sé heildarframboðið að
dragast saman. Þá sé dreifingin að
breytast. Margir áfangastaða sem
falli niður, einkum í Bandaríkjunum,
hafi verið með hátt hlutfall skipti-
farþega.
Spáðu hærra hlutfalli
„Fulltrúar Icelandair og WOW air
virðast telja að hlutfall flugfarþega
sem koma inn í landið muni hækka
milli ára. Flugáætlun mun liggja
fyrir á föstudag [á morgun]. Þá skila
flugfélögin inn upplýsingum um flug-
hlið sem þau ætla ekki að nota,“ segir
Hlynur og rifjar upp að í fyrra hafi
Icelandair, WOW air og Isavia spáð
enn hærra hlutfalli skiptifarþega á
kostnað til-og-frá-farþega en raunin
varð. Spár verði alltaf spár.
Skortir ekki rökstuðning
Framkvæmdastjóri viðskiptasviðs hjá Isavia vísar gagn-
rýni ferðamálastjóra á bug Spá byggist á bestu gögnum
Hlynur
Sigurðsson
Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport
Associates, áætlar að 500 manns muni að
jafnaði starfa hjá félaginu í ár. Það þjón-
ustar um 20 flugfélög í Keflavík.
Félagið sagði upp 237 starfsmönnum
fyrir áramót vegna endurskipulagningar
hjá WOW air, stærsta viðskiptavini sínum.
Um 156 starfsmenn voru síðan endur-
ráðnir og fækkaði þeim því um 81.
„Stóra breytingin er WOW air. Við
vorum með 700 starfsmenn sl.sumar en
verðum með um það bil 500 í sumar. Það
er u.þ.b. 30% fækkun,“ segir Sigþór.
Ör vöxtur félagsins
Með þessari fækkun munu álíka margir
starfa hjá Airport Associates í sumar og
sumarið 2016. Umsvif félagins í Keflavík
hafa margfaldast á síðustu árum.
„Það er orðin mjög lítil sveifla í fjölda
starfsmanna hjá okkur yfir árið. Skýringin
er m.a. að sum flugfélög fækka ferðum
yfir sumarið en auka framboðið yfir vet-
urinn. Til dæmis er easyJet með um 200
flug á mánuði yfir veturinn en 65-68 flug
yfir sumarið. WOW air heldur hins vegar
sjó. Félagið eykur aðeins við framboðið
yfir sumarið. Starfsemin verður því til-
tölulega jöfn hjá okkur, a.m.k. í ár,“ segir
Sigþór Kristinn.
Hann telur aðspurður að meira muni
draga úr flugframboðinu í ár en Isavia
áætlar í nýrri spá. „Ég held að niður-
skurðurinn verði meiri en Isavia spáir en
að flugið muni svo rétta mjög hratt úr
kútnum. Ég held að strax árið 2020 verði
flugumferðin í svipuðu horfi og í fyrra.
Það er enda mjög líklegt að WOW air haldi
þá áfram að vaxa. WOW air er stóra breyt-
an í þessu núna. Tilfinning mín er sú að
þótt nú sé tímabundin niðursveifla verði
aukning í fluginu á næstu árum,“ segir
Sigþór Kristinn.
Spáir meiri sam-
drætti en Isavia
ÁÆTLUN FORSTJÓRA AABAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Yngvi Harðarson, hagfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Analytica, segir fækkun flugfar-
þega og ferðamanna munu draga úr hagvexti.
Þannig sé útlit fyrir samdrátt á fyrri hluta árs-
ins. Þ.e.a.s. að hagvöxtur verði neikvæður. Á
síðari hluta ársins sé hins vegar líklegt að þetta
snúist við. Samt sem áður sé ekki útlit fyrir
meira en 1-2% hagvöxt í ár en heildaráhrif
ráðist m.a. af gengisþróun krónu.
„Af því að samdrátturinn er svo skarpur
fyrstu mánuði ársins er afar líklegt að það hafi
samdráttaráhrif í landsframleiðslu þannig að
við gætum lent í efnahagslægð. Alþjóðlega
skilgreiningin á efnahagslægð er samdráttur
tvo ársfjórðunga í röð,“ segir Yngvi.
Hann bendir á að samkvæmt nýrri farþega-
spá Isavia muni farþegum fækka fyrstu þrjá
mánuði ársins sé leiðrétt fyrir árstíðasveiflu en
fjölga aftur í sumar. Þá muni farþegum hafa
fækkað fimm mánuði í röð á sama grunni.
Spáir Isavia að erlendum ferðamönnum sem
fara um Keflavíkurflugvöll muni fækka um
2,4% milli ára og heildarfjöldi farþega um
völlinn dragast saman um 8,7%. Fyrra hlut-
fallið samsvarar 56 þúsund erlendum ferða-
mönnum og það síðara 850 þús. flugfarþegum.
Meiri líkur á meiri samdrætti
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur hjá
Landsbankanum, telur meiri líkur en minni á
að samdrátturinn verði meiri. Það sé mun lík-
legri niðurstaða en að farþegar verði fleiri en
spáð er, þótt slíkt sé líka möguleiki. Það hafi
enda aldrei verið jafn mikil óvissa um farþega-
spá Isavia. Ástæðan sé óvissa um WOW air,
ásamt því sem Icelandair sé í biðstöðu.
„Icelandair bíður næstu skrefa hjá WOW air
og mun örugglega að einhverju leyti bregðast
við þeim. Útlitið er nokkuð skýrt fram í
febrúar, mars og apríl en þá er mesta fækkun
farþega. Á því tímabili fækkar farþegaþotum
WOW air og Icelandair verður ekki komið með
nýju vélarnar. Félagið á von á sex nýjum þot-
um í ár sem byrja að koma með vorinu. Ice-
landair er eina flugfélagið sem eykur fram-
boðið í ár. Spáin um flugumferðina er því háð
því hvað Icelandair gerir, og hvernig þeim
gengur, og svo auðvitað WOW air.“
Skapar svigrúm til verðhækkana
Sveinn bendir á að verð flugmiða í ár sé mik-
ill óvissuþáttur í þessu efni.
„Þróunin muni ráðast af verði flugmiða. Mín
skoðun er sú að ef Icelandair gæti setið eitt að
framboðinu á vissum flugleiðum gæti félagið
hækkað verð. Félagið mun leitast við að bæta
afkomuna í gegnum verð. Slíkt mun koma Ice-
landair ágætlega en gæti fækkað ferðamönn-
um til landsins. Hvort það getur hækkað verð
er svo annað mál,“ segir Sveinn.
Líklegt sé að hingað komi 2,2 milljónir er-
lendra ferðamanna með flugi í ár, jafnvel færri,
borið saman við rúmar 2,3 milljónir í fyrra. Það
yrði um 5% samdráttur. Sú fækkun komi sam-
tímis auknu framboði á hótelgistingu í mið-
borginni og annarri þjónustu fyrir ferðamenn.
Það sé álit margra að ferðaþjónustan verði í
varnarbaráttu í ár. „Takist að halda fjöldanum
í 2,2 milljónum ættu fjárfestingar á höfuðborg-
arsvæðinu að bera sig. Reksturinn gæti orðið
þyngri úti á landi. Það eru vísbendingar um að
Airbnb-gisting í Reykjavík sé að gefa eftir. Það
ætti að hjálpa hótelunum. Ferðamenn gætu því
leitað aftur í gömlu góðu hótelin. Ferðaþjón-
ustan í heild ætti að spjara sig í ár. Það er ekki
fyrr en ferðamönnum fækkar um tveggja stafa
tölu sem þetta fer að verða verulegt áhyggju-
efni.“
Mun skerða tekjur Isavia
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia,
segir aðspurður að samdráttur í fjölda farþega
muni skerða tekjur Isavia.
„Á móti þeirri lækkun koma jákvæð áhrif af
gengislækkun krónunnar enda er hluti not-
endagjaldskrár Keflavíkurflugvallar í evrum.
Þó er ljóst að EBITDA-afkoma félagsins
[hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og
skatta] mun lækka. Afkoman verður þó ásætt-
anleg. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að hún
muni eftir sem áður standa undir fyrirhuguð-
um framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli. Sam-
drátturinn mun ekki hafa áhrif á
uppbyggingaráform Keflavíkurflugvallar.
Eins og sakir standa gerum við ráð fyrir að
uppbyggingaráformin verði óbreytt.“
Færri sumarstarfsmenn en í fyrra
Guðjón segir að vegna færri farþega gætu
sumarstarfsmenn Isavia orðið eitthvað færri í
sumar en ella. Síðasta sumar hafi verið um 400
sumarstarfsmenn hjá Isavia á Keflavíkurflug-
velli. Hjá Icelandair fengust þær upplýsingar
að það verði að meðaltali um 3.500 stöðugildi
hjá félaginu í ár, borið saman við 3.200 í fyrra.
Fyrirspurn var send til WOW air varðandi
umsvifin í ár en henni var ekki svarað.
Spáir samdrætti í hagkerfinu
Analytica telur fækkun ferðamanna leiða til samdráttar Hagvöxtur verði neikvæður næstu mánuði
Greinandi hjá Landsbankanum telur útlit fyrir meiri samdrátt í fluginu en Isavia áætlar í nýrri spá
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Keflavíkurflugvöllur er einn stærsti, ef ekki stærsti, vinnustaður landsins.
Airport Associates
Fjöldi starfsmanna yfir
háannatímann 2012 til 2019
Heimild: Upplýsingar
frá félaginu
’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19
100
170
240
300
500
600
700
500
Tölur Hagstofunnar benda til að færri gisti-
nætur á höfuðborgarsvæðinu hafi selst á
Airbnb-vefnum í fyrra en árið áður.
Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur hjá
Greiningu Íslandsbanka, segir að ef farþega-
spá Isavia rætist séu allar líkur á frekari
samdrætti. Það geti aftur haft áhrif á fast-
eignaverð í miðborginni.
„Fækkun íbúða sem notaðar eru í skamm-
tímaleigu gæti þýtt aukið framboð fyrir inn-
lenda markaðinn. Það kæmi til með að kæla
markaðinn enn frekar. Undanfarna mánuði
hafa heyrst raddir um að framboð nýrra
íbúða í miðborginni gæti orðið umfram eftir-
spurnina. Spurningin er hvort framboðið sé
of mikið og of seint. Menn gætu farið að
horfa til þess að tímasetja verkefnin í mið-
borginni betur. Að gæta sín á því að setja
ekki of margar eignir á markað í einu,“ segir
Elvar Orri sem telur þetta dæmi um mikil
efnahagsleg áhrif ferðaþjónustunnar.
Fækkun gæti kælt fasteignamarkaðinn
GREINANDI BENDIR Á SAMDRÁTT Í ÚTLEIGU AIRBNB-ÍBÚÐA
Óvissa og lúxus ÞG Verk hefur hægt á sölu
nýrra íbúða á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon