Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
GERRY WEBER - BETTY BARCLAY
TAIFUN OG FL.
GÆÐAFATNAÐUR
50-70% afsláttur
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Útsala
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Nýjar peysur
Útsalan í fullum gangi
Enn er hægt að gera góð kaup
Kr. 14.990
Str. S-XXXL - 100% bómull
Litir: Grátt, svart, bleikt
Enn meiri afsláttur 50-70%
af útsöluvörum
Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755 •
Smart fit, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
„Ég neita að trúa öðru en Hæstirétt-
ur Íslands taki sér nú Hæstarétt Sví-
þjóðar til fyrirmyndar og kafi nú ofan
í þessa hugmynd sem „shaken baby“
heilkennið er,“ segir Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður Sigurðar Guð-
mundssonar sem dæmdur var fyrir að
hafa valdið dauða ungbarns á dag-
gæslu í Kópavogi árið 2001. Munnleg
málsmeðferð var í Hæstarétti í gær
um hvort endurupptaka málsins feng-
ist heimiluð.
Endurupptökunefnd samþykkti ár-
ið 2015 beiðni Sigurðar um endurupp-
töku 18 mánaða dóms sem hann hlaut
í Hæstarétti í apríl 2003 fyrir að eiga
að hafa verið valdur að dauða níu
mánaða barns með því að hrista það.
Byggði nefndin ákvörðun sína á nið-
urstöðu dómkvadds matsmanns, dr.
Waney Squier, og umsögn réttar-
meinafræðingsins Þóru Steffensen
sem krufði barnið á sínum tíma. Rík-
issaksóknari hefur dregið þá niður-
stöðu í efa.
Sveinn Andri segir lítið hafa gerst í
málinu frá 2015, utan að ríkissaksókn-
ari hafi á þeim tíma aflað nýrrar
matsgerðar. Ekkert hafi hins vegar
komið fram sem breyti stöðu málsins.
„Ríkissaksóknari krafðist frávísunn-
ar á þeim forsendum annars vegar að
endurupptökunefndin hefði ógilt dóm
Hæstaréttar, sem nefndinni væri
ekki heimilt og hins vegar að ekki
hefðu verið lagaskilyrði til staðar til
að fallast á endurupptökuna,“ segir
hann.
„Það sem Hæstiréttur metur núna
er hvort lögmæt skilyrði hafi verið til
staðar hjá endurupptökunefnd fyrir
að samþykkja endurupptöku,“ bætir
hann við. Vísi Hæstiréttur málinu nú
frá þá er því lokið, en annars mun það
koma til efnislegrar meðferðar síðar.
Spurður hvort hann sé bjartsýnn á
útkomuna segist Sveinn Andri neita
að trúa öðru en Hæstiréttur Íslands
taki sér hæstarétt Svíþjóðar til fyr-
irmyndar í þessu máli, en Hæstirétt-
ur Svíþjóðar hefur þegar hafnað hug-
myndum um „shaken baby“
heilkennið.
Hæstiréttur metur skil-
yrði fyrir endurupptöku
Munnleg málsmeðferð í tengslum við „shaken baby“ málið
Morgunblaðið/Golli
Hæstiréttur Svokallað „shaken
baby“-mál er nú til umfjöllunar.
Verðbólgu-
væntingar
markaðsaðila
bæði til
skamms og
langs tíma eru
lægri nú en
þær voru í
október sl.
samkvæmt
könnun Seðlabanka Íslands meðal
markaðsaðila.
Í frétt frá Seðlabankanum segir
að miðað við miðgildi svara í könn-
uninni vænti markaðsaðilar þess að
verðbólga verði 3,6% á fyrsta árs-
fjórðungi í ár, aukist í 3,7% á öðr-
um fjórðungi og haldist þar út árið.
Þá vænti þeir þess að verðbólga
verði 3,5% eftir eitt ár og 3% eftir
tvö ár. Jafnframt búast markaðs-
aðilar við að verðbólga verði að
meðaltali um 2,8% á næstu fimm
og tíu árum sem er 0,2 prósentum
minna en í síðustu könnun bankans
í október sl.
Í könnuninni kom jafnframt fram
að 24% svarenda töldu taumhald
peningastefnunnar vera of laust um
þessar mundir sem er lægra hlut-
fall en í síðustu könnun.
tobj@mbl.is
Væntingar
um 3,6%
verðbólgu
Gert er ráð fyrir því að nauðsyn-
legar undirbúningsaðgerðir vegna
uppbyggingar borgarlínu hefjist
strax í ár og á næsta ári. Þetta kom
fram í máli Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar samgönguráðherra í sérstakri
umræðu um almenningssamgöngur
og borgarlínu á Alþingi í gær.
Þetta væri samkvæmt niðurstöðu
samráðshóps Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins
varðandi uppbyggingu samgöngu-
innviða á höfuðborgarsvæðinu.
Hann sagði að í framhaldinu væri
gert ráð fyrir því að verklegar
framkvæmdir við fyrsta áfanga
hæfust að fullu 2021. „Þannig eru í
samgönguáætlun áætlaðar 300
milljónir króna á árinu 2019 og 500
milljónir króna á árinu 2020 til þess
að standa við samkomulagið,“ sagði
ráðherra.
Kolbeinn Óttarsson Proppé,
þingmaður VG og málshefjandi
umræðunnar, sagði að samkvæmt
umferðarspá myndi umferð á höf-
uðborgarsvæðinu aukast um 40%
til ársins 2033 ef einungis yrði ráð-
ist í stofnvegaframkvæmdir. Ráð-
herra sagði að ráðast þyrfti í
stofnvegaframkvæmdir og umbæt-
ur á almenningssamgöngum sam-
hliða.
Framkvæmdir hefjist 2021
Umræða um almenningssamgöngur og borgarlínu á þingi
SMARTLAND
Fasteignir