Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
AIR OPTIX® COLORS
Linsur í lit
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til leigu um 330 m2 verslunar-, / þjónustu- eða skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. Húsnæðið skiptist upp í opinn
afgreiðslu-/ verslunarsal, fjórar lokaðar skrifstofur, eitt fundarherbergi og snyrtingar. Kerfisloft og vönduð
lýsing í lofti. Aðgengi fatlaðra er gott. Virðisaukaskattur leggst ekki við leigufjárhæðina. Laust strax!
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL LEIGU
Ármúli 28, 108 Rvk.
Gerð: Verslunar-,/ þjónustu-
eða skrifstofuhúsnæði
Stærð: 330 m2
Allar nánari upplýsingar veitir:
Helgi Már Karlsson
Löggiltur leig miðlari, löggiltur
fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
897 7086 | 534 1024
hmk@jofur.is
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ferðin var fyrst og fremst tæki-
færi til þess að kynna sér það starf
sem þarna fer fram og sjá þá upp-
byggingu sem hefur skilað sér fyr-
ir þá fjármuni sem Ísland hefur
sent þangað síðustu ár,“ segir Ás-
laug Arna Sigurbjörnsdóttir, for-
maður utanríkismálanefndar Al-
þingis, en hún og Logi Einarsson,
annar varaformaður nefndarinnar,
heimsóttu nýverið Malaví, annað af
þeim tveimur ríkjum sem Ísland á í
tvíhliða þróunarsamvinnu við.
Þau Áslaug og Logi hófu ferða-
lag sitt í Lilongwe, höfuðborg
Malaví, ásamt þingmönnum frá
Svíþjóð og Danmörku, sem einnig
hafa átt í þróunarsamvinnu við
Malaví. „Við hittum þar ráðamenn,
bæði heilbrigðisráðherra landsins
og þingnefndir, einkum á heilbrigð-
issviðinu og fórum yfir þau verk-
efni sem þau samtök sem Ísland
hefur verið í sambandi við hafa
með höndum,“ segir Áslaug og
nefnir þar sérstaklega UNICEF
og samtökin Gavi, en þau hafa
einkum sinnt bólusetningum.
Áslaug vekur athygli á því að ný-
lega hafi verið samþykkt að verja
120 milljónum króna til Gavi. „Með
þeim fjármunum er hægt að bólu-
setja hundruð þúsunda barna í
Malaví,“ segir Áslaug og bætir við
að með samvinnu við stjórnvöld
þar hafi tekist að bólusetja næstum
níu af hverjum tíu börnum þar.
Vonin sé að með viðbótarfjármagn-
ingu verði hægt að bólusetja fleiri.
Fólksfjölgun ógnar árangri
Áslaug segir stærstu áskorunina
vera of mikla fólksfjölgun í Malaví,
sem ógni þeim árangri sem náðst
hafi í landinu. Hún bendir á að 51%
af íbúum landsins sé 18 ára eða
yngri, og að 45% þeirra barna sem
fæðist í landinu fæðist móður sem
er 18 ára eða yngri. „Þannig að
barneignir of ungra kvenna, eig-
inlega barna, eru stórt vandamál.“
Á sama tíma taki þær oft mikinn
þátt í erfiðisvinnu innan samfélags-
ins. Eitt markmiðið sé því að reyna
að seinka barneignum kvenna í
Malaví og gera þær að virkari þátt-
takendum í samfélaginu, en helm-
ingur kvenna í landinu giftist fyrir
18 ára aldur.
Áslaug bætir við að þau hafi rætt
ítarlega um jafnréttismál við ráða-
menn í Malaví, en þau eru rauður
þráður í allri utanríkisstefnu og
þróunarsamvinnu Íslands. „Við
reyndum að koma því til skila út
frá sjónarmiði Íslands hversu mik-
inn árangur samfélög geta náð með
jafnréttismálum, ekki síst í efna-
hagslegu tilliti,“ segir Áslaug.
Menntakerfið skiptir máli
Eftir ferðina til Lilongwe fóru
Áslaug og Logi til Mangochi, en
það er hérað í Malaví þar sem 1,2
milljónir manna búa. Þar stendur
Ísland að byggðaþróunarverkefni í
samvinnu við stjórnvöld í héraðinu,
þar sem stuðlað er að ýmiskonar
félagslegri uppbyggingu sam-
félagsins, ekki síst í mennta-
kerfinu.
„Þar má nefna uppbyggingu tólf
skóla í héraðinu, sem hýsa 25.000
börn, Þar er lögð áhersla á að allir
nemendur komist fyrir innandyra,
þar sem búið er að byggja húsnæði
og kaupa námsgögn, auk þess sem
við leggjum áherslu á að börnin fái
að borða í upphafi skóladagsins,
sem aftur gerir það líklegra að þau
haldi áfram í skólanum.“
Áslaug segir að hún og Logi hafi
heimsótt skóla sem Ísland kom
fyrst að árið 2012, sem nú hýsir
2.000 börn. „Frá þeim tíma hefur
fjölgað um næstum helming í skól-
anum, en það sem skiptir ekki síð-
ur máli er að brottfall úr skólanum
hefur minnkað úr 25% í 5%.“ Ás-
laug bætir við að hluti af stuðningi
Íslands felist í að mennta kennara
sem fari svo á samning hjá skól-
anum í kjölfarið og þá taki Malaví
við að borga þeim laun. „Þannig að
í kjölfarið verður skólinn sjálfbær.
Þegar við höfum lokið við upp-
bygginguna í þessum skóla þá get-
um við sleppt hendinni og farið
kannski að gera nýjan skóla eða
sinnt öðrum verkefnum.“
Áslaug segir það mikilvægt að
treysta stoðir menntakerfisins í
Malaví upp á framtíðina. „Við sáum
þarna verulegan ávinning, þar sem
börn sem höfðu verið að læra undir
tré, án skólabóka, sjaldnast með
menntaða kennara, og héldust illa í
námi, þeirri stöðu hefur algjörlega
verið snúið við.“
Kóleru eytt í héraðinu
Áslaug nefnir einnig að í Man-
gochi hafi Ísland komið að bygg-
ingu 550 vatnsbrunna, sem eru þá
oft í nágrenni við skóla og heil-
brigðisþjónustu. Einn árangurinn
sem hlotist hefur af því átaki er að
síðastliðin þrjú ár hefur ekki komið
upp kólerutilfelli í héraðinu.
Þá hefur Ísland aðstoðað við að
láta reisa fæðingarheimili og
heilsugæslur fyrir konur og börn í
héraðinu. „Það er stór þáttur í
jafnréttisáherslunni okkar. Það
fæðast mjög mörg börn, og við höf-
um reynt að draga úr dánartíðni
meðal ungbarna og andláti kvenna
af barnsförum.“ Þá hefur Ísland
látið reisa fjölda fæðingarheimila
svo að sú þjónusta sé nær kon-
unum, sem annars þyrftu að fara
um langan veg til að fæða börnin.
„Svo erum við í þessari viku að
opna stóra fæðingardeild sem get-
ur sinnt öllum tilvikum, meðal ann-
ars með fullbúinni skurðstofu,“
segir Áslaug. Þá tekur Ísland þátt í
að mennta heilbrigðisstarfsfólk
sem starfi á heilsugæslunum. „Það
var mjög gaman að sjá hversu
mikla og góða þjónustu við erum að
veita,“ segir Áslaug og bætir við að
á því fæðingarheimili sem hún og
Logi heimsóttu hafi átta börn
fæðst daginn áður.
Sjálfbærni er markmiðið
Áslaug segir að það sem standi
upp úr eftir ferðalagið hafi verið að
sjá þau áhrif sem Ísland getur haft.
„Eins og að sjá hvað hafi raunveru-
lega verið byggt upp fyrir þá fjár-
muni sem við höfum varið í þróun-
arsamvinnu við Malaví, en hún
nemur 11% af allri þróunarsam-
vinnu Íslands, og um leið að sjá
hvernig þau verkefni geta orðið
sjálfbær og hvernig við vinnum í
nánu samstarfi við sveitarstjórn-
ina, sem lærir um leið mikið á því
samstarfi og hvernig eigi að standa
að málum inn í framtíðina,“ segir
Áslaug.
Hún segir sjálfbærnina skipta
höfuðmáli í þessum efnum. „Það er
mjög mikilvægt í allri samvinnu
okkar við erlend ríki þar sem við
getum gert stóra hluti þó við séum
smá, eins og í Mangochi, að við
horfum til framtíðar og að mark-
miðið sé að á endanum getum við
sleppt hendinni og stuðlað að því
að samfélagið beri sig sjálft.“
Getum gert stóra hluti þó við séum smá
Þingmennirnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Logi Einarsson heimsóttu Malaví á dögunum
Kynntu sér þau verkefni sem Ísland hefur stutt við í landinu Stuðlað að aukinni sjálfbærni
Vatnsberi Áslaug Arna bar m.a. vatn úr einum af þeim vatnsbrunnum sem
reistir hafa verið í Malaví fyrir tilstuðlan þróunarsamvinnu við Ísland.
Hjón af Vestfjörðum, sem hlutu 2.
vinning í Víkingalottói ásamt tveim-
ur Dönum 19. desember sl., heim-
sóttu nýverið skrifstofu Íslenskrar
getspár með vinningsmiðann góða
sem færði þeim vinning upp á tæpar
22 milljónir.
Miðann hafði bóndinn keypt hjá
N1 á Þingeyri en þangað lá leið hans
fyrst og fremst til að kaupa mjólk í
kaffið. Þegar á staðinn var komið
ákvað hann að grípa með sér 10 raða
sjálfvalsmiða og það reyndist verða
hinn mesti happafengur því miðinn
færði þeim vinninginn, segir í til-
kynningu frá Íslenskri getspá. Það
má því með sanni segja að það hafi
verið heppilegt að heimilið skyldi
vera mjólkurlaust. Ætla hjónin að
huga að endurbótum á heimilinu.
Vestfirsk hjón unnu 22 milljónir króna