Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 24

Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 AIR OPTIX® COLORS Linsur í lit TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Til leigu um 330 m2 verslunar-, / þjónustu- eða skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. Húsnæðið skiptist upp í opinn afgreiðslu-/ verslunarsal, fjórar lokaðar skrifstofur, eitt fundarherbergi og snyrtingar. Kerfisloft og vönduð lýsing í lofti. Aðgengi fatlaðra er gott. Virðisaukaskattur leggst ekki við leigufjárhæðina. Laust strax! 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Ármúli 28, 108 Rvk. Gerð: Verslunar-,/ þjónustu- eða skrifstofuhúsnæði Stærð: 330 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Helgi Már Karlsson Löggiltur leig miðlari, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. 897 7086 | 534 1024 hmk@jofur.is SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ferðin var fyrst og fremst tæki- færi til þess að kynna sér það starf sem þarna fer fram og sjá þá upp- byggingu sem hefur skilað sér fyr- ir þá fjármuni sem Ísland hefur sent þangað síðustu ár,“ segir Ás- laug Arna Sigurbjörnsdóttir, for- maður utanríkismálanefndar Al- þingis, en hún og Logi Einarsson, annar varaformaður nefndarinnar, heimsóttu nýverið Malaví, annað af þeim tveimur ríkjum sem Ísland á í tvíhliða þróunarsamvinnu við. Þau Áslaug og Logi hófu ferða- lag sitt í Lilongwe, höfuðborg Malaví, ásamt þingmönnum frá Svíþjóð og Danmörku, sem einnig hafa átt í þróunarsamvinnu við Malaví. „Við hittum þar ráðamenn, bæði heilbrigðisráðherra landsins og þingnefndir, einkum á heilbrigð- issviðinu og fórum yfir þau verk- efni sem þau samtök sem Ísland hefur verið í sambandi við hafa með höndum,“ segir Áslaug og nefnir þar sérstaklega UNICEF og samtökin Gavi, en þau hafa einkum sinnt bólusetningum. Áslaug vekur athygli á því að ný- lega hafi verið samþykkt að verja 120 milljónum króna til Gavi. „Með þeim fjármunum er hægt að bólu- setja hundruð þúsunda barna í Malaví,“ segir Áslaug og bætir við að með samvinnu við stjórnvöld þar hafi tekist að bólusetja næstum níu af hverjum tíu börnum þar. Vonin sé að með viðbótarfjármagn- ingu verði hægt að bólusetja fleiri. Fólksfjölgun ógnar árangri Áslaug segir stærstu áskorunina vera of mikla fólksfjölgun í Malaví, sem ógni þeim árangri sem náðst hafi í landinu. Hún bendir á að 51% af íbúum landsins sé 18 ára eða yngri, og að 45% þeirra barna sem fæðist í landinu fæðist móður sem er 18 ára eða yngri. „Þannig að barneignir of ungra kvenna, eig- inlega barna, eru stórt vandamál.“ Á sama tíma taki þær oft mikinn þátt í erfiðisvinnu innan samfélags- ins. Eitt markmiðið sé því að reyna að seinka barneignum kvenna í Malaví og gera þær að virkari þátt- takendum í samfélaginu, en helm- ingur kvenna í landinu giftist fyrir 18 ára aldur. Áslaug bætir við að þau hafi rætt ítarlega um jafnréttismál við ráða- menn í Malaví, en þau eru rauður þráður í allri utanríkisstefnu og þróunarsamvinnu Íslands. „Við reyndum að koma því til skila út frá sjónarmiði Íslands hversu mik- inn árangur samfélög geta náð með jafnréttismálum, ekki síst í efna- hagslegu tilliti,“ segir Áslaug. Menntakerfið skiptir máli Eftir ferðina til Lilongwe fóru Áslaug og Logi til Mangochi, en það er hérað í Malaví þar sem 1,2 milljónir manna búa. Þar stendur Ísland að byggðaþróunarverkefni í samvinnu við stjórnvöld í héraðinu, þar sem stuðlað er að ýmiskonar félagslegri uppbyggingu sam- félagsins, ekki síst í mennta- kerfinu. „Þar má nefna uppbyggingu tólf skóla í héraðinu, sem hýsa 25.000 börn, Þar er lögð áhersla á að allir nemendur komist fyrir innandyra, þar sem búið er að byggja húsnæði og kaupa námsgögn, auk þess sem við leggjum áherslu á að börnin fái að borða í upphafi skóladagsins, sem aftur gerir það líklegra að þau haldi áfram í skólanum.“ Áslaug segir að hún og Logi hafi heimsótt skóla sem Ísland kom fyrst að árið 2012, sem nú hýsir 2.000 börn. „Frá þeim tíma hefur fjölgað um næstum helming í skól- anum, en það sem skiptir ekki síð- ur máli er að brottfall úr skólanum hefur minnkað úr 25% í 5%.“ Ás- laug bætir við að hluti af stuðningi Íslands felist í að mennta kennara sem fari svo á samning hjá skól- anum í kjölfarið og þá taki Malaví við að borga þeim laun. „Þannig að í kjölfarið verður skólinn sjálfbær. Þegar við höfum lokið við upp- bygginguna í þessum skóla þá get- um við sleppt hendinni og farið kannski að gera nýjan skóla eða sinnt öðrum verkefnum.“ Áslaug segir það mikilvægt að treysta stoðir menntakerfisins í Malaví upp á framtíðina. „Við sáum þarna verulegan ávinning, þar sem börn sem höfðu verið að læra undir tré, án skólabóka, sjaldnast með menntaða kennara, og héldust illa í námi, þeirri stöðu hefur algjörlega verið snúið við.“ Kóleru eytt í héraðinu Áslaug nefnir einnig að í Man- gochi hafi Ísland komið að bygg- ingu 550 vatnsbrunna, sem eru þá oft í nágrenni við skóla og heil- brigðisþjónustu. Einn árangurinn sem hlotist hefur af því átaki er að síðastliðin þrjú ár hefur ekki komið upp kólerutilfelli í héraðinu. Þá hefur Ísland aðstoðað við að láta reisa fæðingarheimili og heilsugæslur fyrir konur og börn í héraðinu. „Það er stór þáttur í jafnréttisáherslunni okkar. Það fæðast mjög mörg börn, og við höf- um reynt að draga úr dánartíðni meðal ungbarna og andláti kvenna af barnsförum.“ Þá hefur Ísland látið reisa fjölda fæðingarheimila svo að sú þjónusta sé nær kon- unum, sem annars þyrftu að fara um langan veg til að fæða börnin. „Svo erum við í þessari viku að opna stóra fæðingardeild sem get- ur sinnt öllum tilvikum, meðal ann- ars með fullbúinni skurðstofu,“ segir Áslaug. Þá tekur Ísland þátt í að mennta heilbrigðisstarfsfólk sem starfi á heilsugæslunum. „Það var mjög gaman að sjá hversu mikla og góða þjónustu við erum að veita,“ segir Áslaug og bætir við að á því fæðingarheimili sem hún og Logi heimsóttu hafi átta börn fæðst daginn áður. Sjálfbærni er markmiðið Áslaug segir að það sem standi upp úr eftir ferðalagið hafi verið að sjá þau áhrif sem Ísland getur haft. „Eins og að sjá hvað hafi raunveru- lega verið byggt upp fyrir þá fjár- muni sem við höfum varið í þróun- arsamvinnu við Malaví, en hún nemur 11% af allri þróunarsam- vinnu Íslands, og um leið að sjá hvernig þau verkefni geta orðið sjálfbær og hvernig við vinnum í nánu samstarfi við sveitarstjórn- ina, sem lærir um leið mikið á því samstarfi og hvernig eigi að standa að málum inn í framtíðina,“ segir Áslaug. Hún segir sjálfbærnina skipta höfuðmáli í þessum efnum. „Það er mjög mikilvægt í allri samvinnu okkar við erlend ríki þar sem við getum gert stóra hluti þó við séum smá, eins og í Mangochi, að við horfum til framtíðar og að mark- miðið sé að á endanum getum við sleppt hendinni og stuðlað að því að samfélagið beri sig sjálft.“ Getum gert stóra hluti þó við séum smá  Þingmennirnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Logi Einarsson heimsóttu Malaví á dögunum  Kynntu sér þau verkefni sem Ísland hefur stutt við í landinu  Stuðlað að aukinni sjálfbærni Vatnsberi Áslaug Arna bar m.a. vatn úr einum af þeim vatnsbrunnum sem reistir hafa verið í Malaví fyrir tilstuðlan þróunarsamvinnu við Ísland. Hjón af Vestfjörðum, sem hlutu 2. vinning í Víkingalottói ásamt tveim- ur Dönum 19. desember sl., heim- sóttu nýverið skrifstofu Íslenskrar getspár með vinningsmiðann góða sem færði þeim vinning upp á tæpar 22 milljónir. Miðann hafði bóndinn keypt hjá N1 á Þingeyri en þangað lá leið hans fyrst og fremst til að kaupa mjólk í kaffið. Þegar á staðinn var komið ákvað hann að grípa með sér 10 raða sjálfvalsmiða og það reyndist verða hinn mesti happafengur því miðinn færði þeim vinninginn, segir í til- kynningu frá Íslenskri getspá. Það má því með sanni segja að það hafi verið heppilegt að heimilið skyldi vera mjólkurlaust. Ætla hjónin að huga að endurbótum á heimilinu. Vestfirsk hjón unnu 22 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.