Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 www.apotekarinn.is - lægra verð REYKLAUS VERTU Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ Nicotinell Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsog , p ín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. stöflur orða lástur. Inniheldur nikót * * 15% afsláttur af öllu lyfjatyggigúmmí, öllum styrkleikum og pakkningarstærðum. Afslátturinn gildir út janúar 2019. Ný vefsíða www.Nicotinell.is með ávaxtabragði sé ekki jafn skað- leg og rafrettugufa með tóbaks- bragði. Því er talið að reglur um bragðefni í rafrettum og rafrettu- vökva geti haft mikil áhrif á notkun ungs fólks á þessum vörum. Nadja Frederiksen, aðalráðgjafi hjá Norrænu velferðarmiðstöðinni, sagði í frétt um skýrsluna að grein- ar um málið sem unnið var út frá væru byggðar á bandarískum gögn- um. Ástæða væri til að ætla að svip- að ætti við um unga Norð- urlandabúa. „Á Norðurlöndum sjáum við yfir- leitt meiri notkun ungs fólks á reyk- lausu tóbaki (munntóbaki) og raf- rettum en það sem gildir um meðaltal allra aldurshópa,“ sagði Nadja. Daglegar tóbaksreykingar eru með minnsta móti í Noregi og Sví- þjóð en þar er munntóbak mikið notað, einkum af körlum. Munn- tóbak og rafrettur leiða til aukinnar nikótínneyslu á Norðurlöndum og þessar vörur eru sérstaklega vin- sælar á meðal ungs fólks. Þess vegna er talin þörf á að kortleggja betur notkun á þessum varningi, ekki síst með áherslu á notkun bragðefna. Í skýrslunni er m.a. lagt til að Norðurlöndin afli kerfisbundið gagna um notkun á reyklausu tób- aki og rafrettum líkt og um tóbaks- reykingar, til að fylgjast með breyt- ingum á neysluvenjum á þessu sviði. Einnig til að fylgjast með því hve stór hluti neytenda kýs bragðbætt- ar vörur. Sérstaklega verði kannað hvaða þátt bragðefnin eiga í því að ungt fólk á Norðurlöndum fer að nota reyklaust tóbak og rafrettur. Borin verði saman áhrif löggjafar um rafrettur í hverju og einu landi á Norðurlöndum. Þannig mætti at- huga hvaða áhrif bann Finna á að selja bragðbættar rafrettur og raf- rettuvökva hefur haft á notkun ungs fólks á þessum vörum. Ungt fólk veipar mest „Ungt fólk notar rafrettur mun meira en eldra fólk. Hér eru skörp skil hvað varðar veipið á milli fólks sem er yngra eða eldra en 44 ára,“ sagði Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Embætti land- læknis. Hann sagði að aukning í notkun á rafrettum hjá fullorðnum væri hætt að mælast, að minnsta kosti í bili. Viðar sagði að evrópsku tóbaks- varnarlögin (TPD) hefðu ver- ið uppfærð árið 2014. Samkvæmt þeim verður bannað að bragð- bæta tóbak sem er selt innan ESB frá 20. maí 2020. Tóbak eigi að bragðast og líta út eins og tóbak en ekki að vera í dulargervi ein- hvers annars. Einnig segir þar að ungt fólk sé ginnkeypt fyrir því að prófa bragðefni og sum þeirra hafi ýtt undir tóbaksnotkun ungs fólks. „Á þessum forsendum bönnuðu Finnar rafrettuvökva með sælgæt- is- og ávaxtabragði,“ sagði Viðar. „Þeir vísa í fylgigögn með evrópsku tóbaksvarnarlögunum og banna þetta á þeim forsendum.“ Honum þótti það áhugavert að Finnar kysu að fara þessa leið. En hvernig rímar aukin rafrettunotkun við minnkandi reykingar hér á landi? „Það hefur dregið úr reykingum hér í marga áratugi. Rafrettu- notkun fullorðinna mældist mjög lít- il fyrir árið 2015,“ sagði Viðar. Hann benti á að samkvæmt Talnabrunni Embættis landlæknis frá júní 2018 hefði dagleg notkun á rafrettum aukist talsvert mikið á milli áranna 2015 og 2018. Árið 2018 var dagleg notkun á rafrettum hjá fólki yngra en 35 ára orðin meiri en daglegar reykingar í þeim aldurshópi. Á sama tíma dró úr daglegum reyk- ingum í nánast öllum aldurshópum. „Ungmennin eru í svo miklum mæli að prófa að veipa að það er áhyggjuefni, að mínu mati. En það er nauðsynlegt að skipta um- ræðunni um rafrettur í tvennt. Ann- ars vegar um fullorðið fólk sem er að hætta að nota tóbak og velur að veipa í staðinn. Hins vegar um ungt fólk sem er að byrja að veipa, oft án þess að hafa reykt áður,“ sagði Við- ar. Hann sagðist horfa til gildistöku laganna um rafrettur 1. mars. „Í lögunum er bannað að nota rafrettur í grunn- og framhalds- skólum og einnig þar sem fram fer skipuleg starfsemi með börnum og ungmennum. Við teljum mikilvægt að þessum lögum verði framfylgt,“ sagði Viðar. Hann sagði að spurnir hefðu borist af tilvikum úr fram- haldsskólum þar sem fólk var að veipa. Bragðbætt gufa tælir unga fólkið  Íslendingar eiga Norðurlandamet í veipi  Lög um rafrettur 1. mars  Bragðefnin vinsæl hjá ungu fólki  Ungt fólk notar rafrettur meira en eldra fólk  Bragðbætt tóbak bannað 2020 Nikótínneysla á Norðurlöndum Hlutfallslegur fjöldi þeirra sem nota tóbak eða rafrettur daglega 11 aðilar hafa sent Neyt-endastofu tilkynningu 68 tilkynningar hafa borist um markaðssetningu á nikótínvökva fyrir rafrettur 9 tilkynningar hafa borist um búnað og fylgihluti fyrir rafrettur Land og ár Reykja tókbak daglega Nota munntóbak daglega* Nota rafrettur daglega, alls Aldur Karlar Konur Alls Karlar Konur Alls Ísland (2018) 18+ ára 8.9% 8.9% 8.9% 6.2% 0.6% 3.4% 4.8% 18-24 ára 12.9% 3% 7.3% 5.5% Svíþjóð (2018) 16-84 ára 7% 7% 7% 18% 4% 11% 1% 16-29 ára 16% 3% 10% 1% Danmörk (2018) 15+ ára 17% 17% 17% 1.5% 0.2% 0.8% 3% 15-29 ára 4.9% 0.5% 2.6% 4.3% Noregur (2018) 16-74 ára 12% 11% 12% 18% 7% 12% 1.2%** 16-24 ára 22% 16% 19% Færeyjar (’18) 18+ ára 24% 15% 20% Finnland (2017) 20-64 ára 15% 12% 13% 5% 1% 3% 1% 20-34 ára 9% 1% Álandseyjar (2016) 18-79 ára 9% 6% 8% 13% 1% 7% 0.3% 18-24 ára 10% Grænland (2014) 18+ ára 56% 57% 57% 6.1% 1.3% 3.2% 16-24 ára 11% *Tölur fyrir Ísland ná yfir munntóbak og neftóbak. **Byggt á IPSOS könnun frá 2015-2017. Heimild: Nordicwelfare.org Tilkynningar um mark- aðssetningu rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur Heimild: Neytendastofa 29. jan. 2019 Viðar Jensson verkefnisstjóri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veipað á Laugaveginum Dagleg notkun á rafrettum hjá fólki yngra en 35 ára er meiri en daglegar reykingar sama aldurshóps. Myndin er úr safni. FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslendingar nota rafrettur meira en þegnar annarra Norðurlandaþjóða. Hlutfall Íslendinga 18 ára og eldri sem nota rafrettur daglega er 4,8%. Notkunin er enn meiri í aldurs- hópnum 18-24 ára en 5,5% þeirra nota rafrettur daglega. Þetta kemur fram í skýrslu Norrænu velferðar- miðstöðvarinnar um áhrif bragðefna á notkun á reyklausu tóbaki og raf- rettum. Skýrslan er hluti af Nor- ræna tóbaksverkefninu (Nordic To- bacco Project). Neytendastofa hefur eftirlit Lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur taka gildi 1. mars næstkomandi. Neytendastofa fer með markaðseftirlit með rafrettum og áfyllingum fyrir þær. Þeir sem ætla að flytja inn og selja rafrettur og áfyllingar með nikótíni hér á landi eftir að lögin taka gildi þurfa að tilkynna vörurnar til Neytenda- stofu. Ekki má flytja inn eða selja vöru sem ekki hefur verið tilkynnt um. Neytendastofu höfðu borist 68 til- kynningar um nikótínvökva af mis- munandi gerðum og tilkynningar um níu tæki með fylgihlutum á þriðjudaginn var. Tilkynningarnar komu frá ellefu aðilum, það er frá framleiðendum eða innflytjendum. „Ekki hafa verið veitt leyfi vegna þeirra enn sem komið er, en Neyt- endastofu er falið að hafa eftirlit með lögunum, þ. á m. sölustöðum, frá og með 1. mars 2019 og mark- aðssetning á tilkynntum vörum sem uppfylla gildandi reglur heimil frá sama tíma. Listi um þær vörur sem uppfylla skilyrði til markaðs- setningar hér á landi verður birtur á vefsíðu Neytendastofu fyrir þann tíma,“ sagði í skriflegu svari Neyt- endastofu til Morgunblaðsins. Böndin berast að bragðefnum Bragðefni sem bætt er í vökva rafrettna eru talin hvetja til þess að ungt fólk fari að nota rafrettur (veipa), að sögn Norrænu velferðar- miðstöðvarinnar. Rafrettuvökva er hægt að fá með og án nikótíns og hann er framleiddur í um 7.000 mis- munandi bragðtegundum. Til dæm- is er hægt að fá mentólbragð, ýmiss konar ávaxtabragð, sætubragð, súkkulaðibragð og bragð sem líkist gosdrykkjum eða áfengistegundum. Bragðefnin virðast höfða til unga fólksins og þeirra sem ekki hafa áð- ur reykt tóbak. Svo virðist sem unga fólkið telji að rafrettugufa t.d.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.