Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Hvort sem þig vantar að selja, kaupa,
leigja eða láta gera verðmat, erum við
reiðubúin að liðsinna þér.
Við leggjum áherslu á traust og
heiðarleg vinnubrögð, yfir 20 ára reynsla.
Hafðu samband og við aðstoðum þig.
HB FASTEIGNIR
Hrafnhildur Bridde
Löggiltur fasteignasali
hrafnhildur@hbfasteignir.is
s: 821-4400
Ármúli 4-6, 108 Reykjavík – Sími 821 4400 – www.hbfasteignir.is
ÞEKKING - ÞJÓNUSTA - ÞINN HAGUR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þess var minnst í gær að hálf öld var
liðin frá því að Bítlarnir stigu á svið í
síðasta sinn. Það er óhætt að segja að
síðustu tónleikar þeirra sem hljóm-
sveit hafi verið mjög frábrugðnir
þeim sem hljómsveitin hafði haldið á
árunum 1963-1966.
Á þeim árum spiluðu Bítlarnir fyrir
framan alls kyns áhorfendur, sem
jafnan öskruðu frá sér allt vit og troð-
fylltu hvern þann vettvang sem
hljómsveitin sýndi sig á. Þá urðu Bítl-
arnir jafnframt fyrsta hljómsveitin til
þess að halda tónleika á stórum
íþróttaleikvangi þegar þeir spiluðu á
Shea Stadium 15. ágúst 1965 fyrir
framan rúmlega 55.000 manns. Tón-
leikaferðirnar reyndu hins vegar
mjög á þanþol Bítlanna, og ákváðu
þeir að hætta þeim árið 1966.
Endalok goðsagnarinnar
Mikið vatn hafði hins vegar runnið
til sjávar í ársbyrjun 1969, og voru
tónleikarnir á þakinu hugsaðir sem
lokapunktur verkefnis sem Bítlarnir
höfðu þá verið að vinna að frá áramót-
um 1969. Upphaflega hugmyndin var
sú, að Bítlarnir myndu koma saman á
ný, „Get Back“ eins og það er kallað á
ensku, semja lög og flytja á tónleikum
fyrir framan áheyrendur í fyrsta sinn
í þrjú ár. Þá átti tónlistin að vera
hrárri og nær rótum Bítlanna en síð-
ustu þrjár plötur sveitarinnar höfðu
verið.
Allt ferlið yrði svo kvikmyndað og
gerð heimildarmynd úr efniviðnum,
sem Michael Lindsay-Hogg, leik-
stjóri sem meðal annars vann með
Bítlunum að myndskeiðum fyrir lögin
Paperback Writer og síðar Hey Jude,
myndi setja saman. Lindsay-Hogg
var með háleitar hugmyndir fyrir
þessa endurkomu stærstu hljóm-
sveitar allra tíma. Lagði hann meðal
annars til að Bítlarnir héldu Get
Back-tónleikana í Túnis fyrir framan
nákvæmlega 1.000 manns, hvorki
fleiri né færri. Ósætti innan hljóm-
sveitarinnar og taugaspenna varð
hins vegar til þess að minna varð úr
en leikstjórinn vildi. Þegar til kast-
anna kom var ákveðið að fara bara
upp á þak hljóðversins þar sem Bítl-
anir höfðu verið og halda tónleikana
þar.
Síðasta „áheyrnarprufan“
Ekkert var tilkynnt um tónleikana
fyrirfram og voru gangandi vegfar-
endur í nágrenninu, sem einkum er
þekkt fyrir fínar klæðskeraverslanir
og fjármálastarfsemi, því nokkuð
undrandi þegar taktfastur hljóm-
urinn sem einkennir lagið Get Back
skar þögnina í morgunsárið. Bítl-
arnir, ásamt hljómborðsleikaranum
Billy Preston, fluttu þar einnig lögin
Don’t Let Me Down, I’ve Got a Feel-
ing, One After 909 og Dig a Pony, og
endurtók sveitin nokkur laganna.
Hópur fólks safnaðist saman á
nærliggjandi þökum og á götunni fyr-
ir neðan og reyndi að sjá hvað væri
eiginlega í gangi. Tónleikarnir tóku
hins vegar snarpan enda þegar tveir
lögregluþjónar báðu hljómsveitina
um að vinsamlega hætta að spila, þar
sem ekki hafði verið beðið um leyfi
fyrir hávaðanum. Rifjuðu Bítlarnir
síðar upp að þeir hefðu helst viljað
spila þar til lögreglumennirnir hefðu
handtekið þá, þar sem það hefði verið
mjög dramatískur endir á bæði tón-
leikunum og Get Back-kvikmyndinni.
Þegar hljómsveitin lauk við að spila
Get Back í þriðja og síðasta sinn á
tónleikunum, ákvað John Lennon,
forsprakki sveitarinnar, að þakka fyr-
ir sig á sinn einstaka hátt: „Ég vil fyr-
ir hönd hljómsveitarinnar þakka fyrir
okkur og ég vona að við höfum staðist
áheyrnarprufuna.“ Ætli það sé ekki
óhætt að segja nú, þegar tónlist Bítl-
anna lifir enn góðu lífi hálfri öld síðar,
að þeir hafi gert það?
Síðustu tónleikar stærstu
hljómsveitar allra tíma
Hálf öld liðin frá tónleikum Bítlanna á þaki Apple-hljóðversins í Lundúnum
Bítlarnir Hálf öld er liðin frá tónleikunum sem Bítlarnir héldu á þaki Apple-
hljóðversins, en það voru síðustu tónleikar stærstu hljómsveitar allra tíma.
Jóakim Danaprins, yngri sonur
Margrétar Danadrottningar og
Hinriks heitins Danaprins, flytur
ásamt fjölskyldu sinni til Parísar í
haust þar sem hann hyggst setjast
á skólabekk og gangast undir her-
þjálfun.
Þetta var tilkynnt á vefsíðu
dönsku hirðarinnar í gær. Þar seg-
ir að Jóakim, sem er foringi í
danska hernum, hafi fengið boð frá
franska varnarmálaráðherranum
um að þiggja skólavist í franska
herskólanum École Militaire í París
en námið er ætlað þeim sem hafa
þegar komist til nokkurra metorða
innan hersins. Prinsinn fékk þetta
boð í tengslum við opinbera heim-
sókn Frakklandsforseta til Dan-
merkur í fyrra.
Á vefsíðunni segir einnig að Jóa-
kim verði fyrsti danski herforing-
inn sem fari í þetta nám, en 30 eru
teknir inn í það á hverju ári. Flest-
ir þátttakendurnir eru franskir en
nokkrir koma frá samstarfsríkjum
Frakklands. Námið verður stundað
sex daga vikunnar og tekur eitt ár.
Jóakim fæddist árið 1969 og
verður því fimmtugur í ár. Hann er
giftur Marie prinsessu, sem er
frönsk, og eiga þau börnin Hinrik
og Athenu og einnig á prinsinn
synina Nikolai og Felix af fyrra
hjónabandi. Á vefsíðu hirðarinnar
segir að þetta fyrirkomulag muni
ekki hafa áhrif á starfsskyldur Jóa-
kims og Marie.
Ljósmynd/Kongehuset.dk/Kamilla Bryndum
Konunglegt Jóakim Danaprins og
eiginkona hans, Marie prinsessa,
hyggja á flutning til Parísar.
Jóakim Danaprins
flytur til Parísar
Tveir durian-ávextir voru nýlega
seldir fyrir metfé, 1.000 banda-
ríkjadollara hvor, sem eru um
120.000 íslenskar krónur, í borg-
inni Tasikmalaya í Indónesíu.
Ávöxturinn er þekktur fyrir að
gefa frá sér fnyk, sem hefur m.a.
verið líkt við táfýlu og rotþró, en
þykir bragðgóður og er þekktur
sem „konungur ávaxtanna“ í Asíu.
Í frétt AFP er nafns kaupandans
ekki getið, en þar kemur fram að
hann sé einlægur aðdáandi þessara
ávaxta.
Illþefjandi ávöxtur
seldist fyrir metfé
INDÓNESÍA
Bítlarnir og nýsjálenski leikstjórinn Sir Peter Jackson,
sem þekktastur er fyrir að hafa sett ævintýri Tolkiens á
hvíta tjaldið, tilkynntu í gær nýja heimildarmynd, sem
Jackson mun vinna úr 55 klukkutímum af upptökum
sem gerðar voru í tengslum við verkefnið, sem á end-
anum varð að kvikmyndinni Let It Be. Sú mynd kom út í
maí 1970 eftir að tilkynnt hafði verið um að hljómsveitin
væri hætt störfum, og þótti hún á þeim tíma veita inn-
sýn í þann erfiða starfsanda sem ríkti meðal Bítlanna
síðustu mánuðina. „Ég var feginn að sjá að raunveru-
leikinn var allur annar,“ sagði Jackson um efniviðinn sem hann hefur í
höndunum. „Vissulega eru dramatískar stundir, en það er ekkert af því
ósætti sem lengi hefur verið tengt við verkefnið. Það að sjá John, Paul,
George og Ringo vinna saman og búa til lög sem nú eru klassísk frá
grunni er ekki bara áhugavert, það er fyndið, upplífgandi og furðulega ná-
in lífsreynsla,“ sagði Jackson.
Fær 55 klukkutíma af upptökum
NÝ HEIMILDARMYND UM LET IT BE-VERKEFNIÐ
Peter Jackson