Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Líklegt er aðeinungisforfallnir áhugamenn um stjórnmál hafi fylgst með enn ein- um hápunkti brex- itmálsins í Neðri málstofu breska þingsins í fyrrakvöld. Aðrir telja með réttu að þeir geti varið tíma sínum betur. En sérvitringum til afsökunar er að breska þingið dregur upp sérdeilis góða mynd þegar mik- ið er undir, ólíkt þinginu í litla sæta húsinu við Austurvöll. Þegar þar eru mikilvæg mál á ferð hefst einatt bjálfalegt mál- þóf þar sem ræðumaður talar í hringi tímunum saman. Það hafa að vísu verið einstaka menn sem komu vel undirbúnir til leiks og héldu málefnalegum þræði alla ræðuna. Það var þó aðeins undantekningin sem sannaði regluna. Almenningur sem heyrir í fréttum að mikil átök eigi sér stað í þinghúsinu leitar frétta en sér aðeins þingforseta syfjulegan í sínum stól, og ræðumann sem lætur dæluna ganga yfir tómum sal. Ræðu- maðurinn reynir stundum að vekja sjálfan sig með því að krefjast þess að „viðkomandi“ ráðherra komi í salinn og jafn- vel öll ríkisstjórnin. Hann á enga lögmæta kröfu til þess að ráðherrann sitji í salnum og láti eins og hann hlusti á ruglið. Núverandi þingforseti á ekki gott með að taka á slíkum kröf- um því hann hefur iðulega áður haft þær í frammi af meiri þótta en flestir aðrir og skulu þá stóryrði hans ekki nefnd til sögunnar. Í breska þingsalnum eru þegar mest liggur við á sjöunda hundrað þingmanna og eru þó einungis sæti fyrir rúm 400 þeirra. Barnapíuþjóðfélög eins og Ísland og önnur Norðurlönd væru fyrir löngu búin að kalla á vinnueftirlitið, öryggiseft- irlitið, loftgæðaeftirlitið og öll hin eftirlitin við slíkar að- stæður. Við Austurvöll er algengt að fram fari nafnakall með skýr- ingum þar sem hver þingmað- urinn af öðrum endurtekur stuttan útdrátt af margsögðum sjónarmiðum. Ekki í Neðri málstofunni. Þegar að þing- forseti hefur samþykkt at- kvæðagreiðslur og tilteknar viðauka- eða breytingatillögur gefur hann þingmönnum fyrir- mæli um að ganga til atkvæða og það í orðsins fylltu merk- ingu. Allur skarinn stormar þá út úr þingsalnum og velur að fara um annan gang af tveimur. Með því segir hann já eða nei. Fjórir þingmenn valdir af þing- forseta telja atkvæðin og koma saman í salinn eftir furðu skamma stund og segir einn þeirra forseta úr- slitin upphátt og réttir honum svo blað með sameig- inlegri niðurstöðu þeirra. Þing- forsetinn hrópar tölurnar og því næst hvort já eða nei „hafi haft það“. Það hrópar hann tvisvar. Á skömmum tíma af- greiddu hátt á sjöunda hund- rað þingmenn 8 þýðingamiklar atkvæðagreiðslur og því næst gerðu forsætisráðherrann, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og leiðtogar annarra flokka grein fyrir sínu mati á nið- urstöðunni á 1-2 mínútum hver. Þá tóku fjölmiðlarnir við. Flestir töldu að dagurinn hefði verið góður fyrir Theresu May ólíkt þeim þegar hún beið ósig- ur á dögunum sem var meiri en sést hafði um aldir. Nú hafði henni tekist að sameina Íhalds- flokk sinn sem var klofinn í herðar niður við fyrrgreindan ósigur. En hversu lengi? Allar viðaukatillögur sem forsætis- ráðherrann lagðist gegn voru felldar utan ein þar sem nokk- urra þingmanna meirihluti náðist um tillögu sem sagði að þingið lýsti andstöðu við að Bretar færu úr ESB án samn- ings við Brussel um fyrir- komulag þess. Sú atkvæða- greiðsla lýsti viðhorfi en var ekki bindandi. Lögbundið er að Bretar skuli yfirgefa ESB þann 29. mars. Nýja löggjöf þarf til að breyta því. Fyrr- nefnd atkvæðagreiðsla var ályktun en ekki lög. May forsætisráðherra fékk hins vegar samþykkt nýtt veganesti í viðræður við ESB. Hún hafði að vísu sagt margoft sjálf að viðræðum væri lokið. Eini samningurinn sem völ væri á væri samþykktur og undirritaður með fyrirvara um samþykkt þingsins. Svo heppi- lega vildi til að þessi eini samn- ingur væri jafnframt besti samningur sem völ væri. En að ráðum forsætisráðherrans sjálfs hefur breska þingið nú samþykkt tillögu um að May skuli knýja á um tilteknar laga- lega bindandi breytingar á eina samningnum sem völ er. For- sætisráðherrann viðurkenndi að leiðtogar ESB myndu ekki verða himinlifandi en ekki væri samt vonlaust að þeir myndu fallast á hina nýju kröfu. Þeir ítrekuðu að vísu strax í kjölfar niðurstöðu breska þingsins að ekki kæmi til greina að opna samningana á nýjan leik né að breyta þeim með lagalega bindandi hætti. „En það er alltaf von“ sagði Megas um árið og Theresa May tekur undir það. Eftir tæpa tvo mánuði á Bretland að vera komið út úr ESB} Langavitleysa eða tær snilld É g ætlaði að skrifa um starfsemi Norðurskautsráðsins og metn- aðarfull áform gegn hlýnun jarðar. Ekkert verkefni er mik- ilvægara fyrir framtíð okkar á þessari plánetu. Vandamálið er að framtíð- arvandamál, jafnvel vandamál náinnar fram- tíðar, víkja oft fyrir dægurþrasinu. Í staðinn fyrir Norðurskautsráðið og hlýnun jarðar fór tími minn á þinginu að stórum hluta í fjalla- baksleið meirihluta umhverfis- og samgöngu- nefndar við að koma á veggjöldum. Metfjöldi umsagna barst um þetta mál og voru 95% þeirra á móti veggjöldum. En ég næ ekki einu sinni að fjalla almennilega um það mál hér. Nei, það mál víkur líka fyrir öðru í þess- um pistli. Þessi pistill er um þvingaða sam- vinnu. Alþingi Íslendinga er undarlegur staður. Merkilegur að mörgu leyti og mjög ómerkilegur að öðru. Alþingi hefur alla burði til þess að vera stórmerkilegur staður og stofnun en því miður er óhugnanlegt hvernig ómerki- leg hegðun þingmanna getur eyðilagt þessa ímynd. Það eru ekki bara þau orð sem féllu á barnum hérna við hlið- ina sem draga þingið niður í svaðið. Það er líka lands- réttarmálið, skattaskjólsskýrslan sem Bjarni stakk ofan í skúffu og fjöldamörg önnur mál sem velkjast um án þess að nokkur sæti ábyrgð. Það er einkenni þessara mála að þau eru þvæld fram og til baka, sett í nefnd og beðið eftir að þau gleymist. Málin gleymast hins vegar aldrei alveg. Alþingi sem stofnun og tákn lýðræðis verð- ur fyrir orðstírsskaða því að þessi mál eru aldrei kláruð á fullnægjandi máta. Skoðanir nokkurra þingmanna opinber- uðust á Klaustri. Í staðinn fyrir að við- urkenna, afsaka og axla ábyrgð þá var reynt að þvæla málið. Engin afsökunarbeiðni, bara langur listi af blórabögglum, stólahljóðum og útúrsnúningum. Það er ætlast til þess að þingmenn starfi með fólki sem sýndi, sam- kvæmt skilgreiningum sérfræðinga, andlegt ofbeldi gagnvart samstarfsfólki sínu. Það er ætlast til samstarfs án þess að því fylgi snef- ill af afsökun, eftirsjá eða ábyrgð. Fyrir um ári síðan fóru allir þingmenn í gegnum ráðstefnu um nákvæmlega það of- beldi sem uppljóstraðist á barnum. Þingið samþykkti viðbætur við siðareglur gegn kyn- ferðislegri áreitni og ofbeldi í kjölfarið. Samt gerðist þetta. Samt er þetta mál að þvælast fyrir öðrum stórum hagsmunamálum almennings. Það þvælist fyrir af því að það næst aldrei góð niðurstaða í mál þar sem samvinna er þvinguð. Þess vegna verðum við að segja nei, hingað og ekki lengra. Við verðum að leiða þetta og önnur sambærileg mál til lykta. Við verðum að gera það á sanngjörnum forsendum en ekki pólitískum. Það þarf hins vegar tvo til. Nýleg yfirlýsing þingmanns Mið- flokksins, Birgis Þórarinssonar, fær plússtig í kladdann. Þar er tekið á málinu með ábyrgum hætti. Fleiri mættu taka hann sér til fyrirmyndar. Björn Leví Gunnarsson Pistill Þvinguð samvinna Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.com STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen um allt land, en mestu skiptir vöxtur í iðnaði á Norðurlandi eystra. Þegar sjónum er beint að ein- stökum landssvæðum kemur á daginn að framleiðsla jókst hvergi meira á landinu en á Suðurlandi frá 2008 til 2016, eða um 18%. Langmestur vöxt- ur þar hefur verið í verslun, gistingu, veitingum og flutningum og bendir Sigurður á að engin atvinnugrein á Suðurlandi hefur dregist saman að nokkru ráði frá 2008. Á Suðurnesjum er það stóraukin umferð um Keflavíkurflugvöll sem skýrir hagvöxt í landshlutanum að langmestu leyti allt frá 2008 til 2016 en iðnaður og sjávarútvegur hefur einnig dafnað þar. Í samantekt er vakin athygli á 11% vexti á Norðurlandi vestra, en þar óx framleiðsla lengi einna hægast á landinu. „Framleiðsla virðist vera á uppleið á Vestfjörðum síðustu árin, þótt hún sé ekki miklu meiri 2016 en 2008. Þess ber að gæta að þar hefur laxeldi aukist töluvert eftir 2016. Framleiðsla á Vesturlandi er ekki miklu meiri 2016 en 2008, en hún hef- ur aðeins tekið við sér seinustu árin. Á Austurlandi virðist framleiðsla frem- ur fara minnkandi eftir góðan vöxt fyrst eftir að álver tók til starfa í Reyðarfirði,“ segir í samantekt helstu niðurstaðna. Fram kemur í úttektinni að þeg- ar horft er á öll árin frá 2008 til 2016 megi sjá að í upphafi dróst framleiðsla meira saman á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni, en höfuðborgin sækir á með tímanum. Árið 2016 jókst framleiðsla um 8% á höfuðborg- arsvæðinu, en um 5% utan þess. Höfuðborgin togar enn til sín fólk. Fluttu t.d. að jafnaði tveimur til þremur hundruðum fleiri á ári frá Vesturlandi, Vestfjörðum, Norður- landi og Austfjörðum til höfuðborg- arsvæðisins en í hina háttina en bent er á að straumurinn hefur heldur minnkað á síðari árum. Ekki missa þó allir landshlutar fólk til höfuðborg- arinnar. 2016 og 2017 fluttu rúmlega þúsundi fleiri frá höfuðborgarsvæðinu til Suðurnesja og Suðurlands en hina leiðina. Ljóst er af þessari úttekt að þjónustugreinar eru miklu sterkari á höfuðborgarsvæðinu en í byggðum landsins. Fram kemur að yfir 90% framleiðslu á höfuðborgarsvæðinu eru þjónusta af einhverju tagi, auk byggingarstarfsemi. Vörur eru aðeins rúm 8%. „Utan höfuðborgarsvæðisins eru vörur hins vegar um 35% af því sem framleitt er. Sjávarútvegur er þar víðast hvar 10-20% framleiðsl- unnar – en hann skiptir ekki miklu máli í atvinnulífi höfuðborgarinnar.“ Mestur vöxturinn á Suðurlandi frá hruni Einstök svæði » Hvergi á landinu er lax- veiði jafnmikilvæg og á Vest- urlandi og tekjur af stangveið- um taldar tæp 70% af hagnaði og launakostnaði í landbúnaði. » Á Vestfjörðum var fram- leiðsla svipuð árið 2016 og á hrunárinu 2008. » Rekstrarafkoma í sjávar- útvegi á Norðurlandi eystra er með því besta sem gerist. »M iðgildi atvinnutekna á mann í Fjarðabyggð var tæpum 30% yfir landsmeðaltali 2016. Hagvöxtur eftir landshlutum 2008-2016 Heimild: Byggðastofnun Landshlutar Höfuð- borgarsv. Lands- byggð Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurl. vestra Norðurl. eystra Austur- land Suðurland Allt landið 2009 -7% -5% -7% -5% 7% 3% -2% -15% -5% -6% 2010 -4% -2% -2% -2% -9% -2% -2% 5% -4% -3% 2011 1% 1% -6% 0% -2% -1% 3% 9% 2% 1% 2012 0% 4% 1% 0% 2% 3% 5% 8% 5% 1% 2013 3% 2% 11% 1% 3% 5% 0% -6% 4% 3% 2014 3% 2% 5% 5% -5% -6% -1% 7% -1% 2% 2015 5% 4% 9% 1% 4% 0% 4% -4% 7% 4% 2016 8% 5% 7% 4% 4% 7% 5% -2% 9% 7% 2008-16 9% 11% 17% 4% 1% 11% 15% -1% 18% 10% SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Uppgangur í atvinnulífinuhefur verið afar misjafn áeinstökum svæðum lands-ins á árunum sem liðin eru frá hruni bankanna 2008. Á þremur landsvæðum; Suðurlandi, Suður- nesjum og Norðurlandi eystra, óx framleiðsla meira en annars staðar. Hagvöxtur var 15-18% í þessum hlut- um landsins á árunum 2008-2016, langt yfir landsmeðaltali sem var 10%. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu um hagvöxt landshluta 2008- 2016 sem dr. Sigurður Jóhannesson hjá Hagfræðistofnun HÍ vann í sam- vinnu við þróunarsvið Byggðastofn- unar. Bent er á að meginskýringin á hagvexti á landinu 2008 til 2016 er vöxtur í þjónustugreinum; verslun, hótelum og veitingahúsum, sam- göngum og fjarskiptum. „Allan hag- vöxt á höfuðborgarsvæðinu frá 2008 til 2016 og mestallan vöxt á Suð- urnesjum og á Suðurlandi má skýra með vexti í „ferðaþjónustugreinum“. Höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Suðurland verða líka fyrir mestu höggi ef bakslag verður í straumi ferðamanna hingað til lands – ef rétt er að tala um högg, því að íslenskur vinnumarkaður ræður illa við að sinna ferðamannafjöldanum núna og hús- næðismarkaður í höfuðborginni varla heldur. Undanfarin þrjú ár hafa út- lendingar tekið að sér nær öll ný störf í veitinga- og gistihúsarekstri,“ segir í skýrslunni. Næst á eftir ferðaþjónustu vex iðnaður mest hér á landi. Hann dafnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.