Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 ✝ Ragna JóhannaRagnarsdóttir fæddist á Siglufirði 22. júlí 1943. Hún lést á Kanaríeyjum 14. janúar 2019. Foreldrar Rögnu voru Ragnar Árna- son, f. 2.10. 1921, d. 5.11. 1998, og Halla Hafliðadóttir, f. 1.5. 1924, d. 5.9. 2005. Ragna ólst upp hjá móðurömmu sinni og -afa, Jó- hönnu Sigvaldadóttur og Hafliða Jónssyni á Siglufirði. Systkini Rögnu sammæðra eru Maríanna, f. 1948, og Guðmunda, f. 1956. Systkini samfeðra eru Sigurður Rúnar, f. 1949, d. 2019, Kolbrún fyrri samböndum. 3) Hafliði, f. 1964, hann er í sambúð með Otgoo Badam, f. 1967. Hafliði á tvær dætur og tvo syni frá fyrri samböndum og fjögur barna- börn. 4) Þór, f. 1969, hann er kvæntur Árnýju Leifsdóttur, f. 1974, þau eiga tvo syni og eina dóttur. Fjölskyldan flutti til Þorláks- hafnar árið 1973 og hafa þau hjónin búið þar æ síðan. Ragna og Emil hafa síðustu ár haft vet- ursetu á Kanaríeyjum. Ragna starfaði lengst af við verslun og var virkur félagi í Kvenfélagi Þorlákshafnar. Hún var einn af fyrstu starfsmönnum leikskólans í Þorlákshöfn en það var kvenfélagið sem stofnaði hann, þar var hún í átta ár. Í 22 ár starfaði hún í apótekinu í Þor- lákshöfn en síðustu starfsárin var hún í fiskvinnslu. Útför Rögnu fer fram frá Þor- lákskirkju í Þorlákshöfn í dag, 31. janúar 2019, klukkan 14. Björk, f. 1954, og Svanhvít Björk, f. 1956. Fimmtán ára gömul kynntist Ragna eftirlifandi eiginmanni sínum, Emil Helga Péturs- syni. Þau hófu bú- skap 1960 og giftust árið 1963. Börn þeirra eru: 1) Jó- hanna Sigríður, f. 6.9. 1961, hennar maður var Guð- finnur Georg Pálmason, f. 1961, d. 2017. Þau eiga saman tvo syni en fyrir átti Jóhanna einn son. 2) Björgvin Ragnar, f. 1963, kvænt- ur Lindu Jóhannesdóttur, f. 1968, þau eiga einn son hvort frá Það var fyrir rúmum tuttugu og tveimur árum sem ég hitti Röggu fyrst, konuna sem átti eftir að skipa svo stóran sess í lífi mínu. Við Þór sonur hennar höfðum ver- ið að hittast í nokkra mánuði og þegar við loksins uppgötvuðum að við værum bæði Siglfirðingar var ekki hægt að bíða með það lengur að hitta verðandi tengdaforeldra. Ég var frekar feimin þegar ég gekk inn um þvottahúsdyrnar á húsinu á Selvogsbrautinni en komst fljótt að því að það var ástæðulaust, mér var tekið eins og týndu dótturinni af þeim hjónum og æ síðan hafa samskiptin verið á þann máta. Sennilega hefur ekki skemmt fyrir að við áttum sameiginlegan bakgrunn og merkilega mikil tengsl miðað við fólk sem hafði aldrei áður hist og tengingin átti bara eftir að styrkjast. Við Þór fluttumst til Þorláks- hafnar vorið 2005. Á meðan við biðum eftir að fá húsnæði afhent bjuggum við Leifur, elsti sonur okkar, á heimili þeirra Röggu og Emils en Þór varð eftir í Hafn- arfirði þar sem hann sótti vinnu. Þann tíma leið mér aldrei eins og ég væri boðflenna, gestur eða ókunnug, heldur eins og við vær- um fjölskylda. Þau hjónin hafa ætíð síðan ver- ið okkur innan handar við alla skapaða hluti. Ragga var aldrei langt undan í stóru viðburðunum í lífi okkar fjöl- skyldunnar, hún var ásamt mömmu minni skírnarvottur þeg- ar Leifur, elsti sonur okkar Þórs, var skírður, þær komu einnig báð- ar með mér að velja brúðarkjól fyrir brúðkaupið okkar, skírnar- veisla Emils Hrafns var haldin á heimili þeirra hjóna og dóttir okk- ar, Sæunn Jóhanna, heitir í höf- uðið á báðum ömmum sínum. Þá eru ótaldar allar máltíðirnar, ut- anlandsferðirnar, útilegurnar, spilakvöldin og spjallið við eldhús- borðið. Ég get ekki minnst Röggu öðruvísi en að nefna þrjóskuna, þrjóskari manneskju hef ég nefni- lega aldrei hitt. Ég veit ekki hvort þetta var meðfætt en það er alveg ljóst að það komu tímabil í lífi hennar þar sem þrjóskan gagnað- ist henni betur en nokkuð annað, m.a. þegar Emil fékk heilablóðfall rúmlega fimmtugur. Ég er nokk- uð sannfærð um að hún hafi átt stóran þátt í því hvað hann hefur náð góðum bata. Ragga var samt ekki bara þrjósk, hún var líka afskaplega hlý og glaðlynd kona enda vinmörg með eindæmum. Börnin mín eru svo heppin að eiga góðar minningar um ömmu sína sem sýndi þeim taumlausa umhyggju, passaði þau þegar hún gat og hughreysti ef á þurfti að halda. Ég á líka minningar um þau öll þar sem þau liggja utan í ömmu sinni og mala eins og kettir á með- an hún klórar þeim á bakinu. Blessunarlega hafa þau öll erft eitthvað af þrjósku og sjálfstæði Röggu ekki síður en hjarta- hlýjuna. Við Ragga vorum ekki alltaf sammála, sérstaklega þegar kom að dægurþrasinu, en í stóru mál- unum, því sem skiptir raunveru- legu máli í lífinu, vorum við á sömu blaðsíðu í sömu línu. Hún var ekki bara tengdamóðir mín heldur líka vinkona sem ég sakna sárt. Það er með trega sem ég kveð þessa góðu konu en samt fyrst og fremst með þakklæti. Takk fyrir allt, Ragga mín, sjáumst hinum megin. Árný Leifsdóttir. Bernskuvinkona mín, Ragna Jóhanna Ragnarsdóttir, ólst upp hjá ömmu sinni Jóhönnu Sigvalda- dóttur og Hafliða Jónssyni skip- stjóra, sem báru hana á höndum sér. Í litla húsið á Laugarvegi 8 var alltaf jafn gott að koma og ein- stök gestrisni. „Stelpur mínar, gjörið svo vel að fá ykkur abbels- ínur,“ sagði afinn, heppinn að ná í þennan sjaldséða ávöxt handa barnabarninu. Skildi svo ekkert í hlátrasköllunum sem hann fékk að launum. Og amman bakaði eftir pöntun, brúnu lagskiptu tertuna með hvíta kreminu. Oft vorum við samtímis á sumr- um hjá skyldmennum á Akureyri, Ragga hjá Ragnari föður sínum og konu hans á Hótel Akureyri, sem fjölskyldan rak. Sá Ragnar ekki sólina fyrir dóttur sinni. Tíu ára gömlum bauð hann okkur vin- konunum í ógleymanlega tjaldferð í Mývatnssveit. Syntum við laf- hræddar í skuggalegu gjótunum við Grjótagjá, fórum í Dimmu- borgir og út í Slútnes, ævintýra- eyjuna gróskumiklu, sáum ótal sjaldgæfar fuglategundir á vatn- inu og borðuðum dásamlegan Mý- vatnssilung á hótelinu. Rúmum tuttugu árum seinna gistum við sjö æskufélagar um verslunarmannahelgi á Hótel Akureyri. Vináttuböndin sem við bundumst veturinn ’58 slitnuðu aldrei, og var eins og við hefðum hist í gær, gamla bus kompaníið, svokallaða. Gegndi Willys-jeppinn hans Þórhalls þar höfuðmáli og allar ferðirnar á honum, öll kvöld, jafnt í færð sem ófærð á vetrum, en skikkuð af foreldrum að halda okkur heima á aðfangadagskvöld, og fannst skítt. Nú hafa fjögur horfið sjónum um stund, Björgvin, Guðmundur (Muggi), Ragga og Þórhallur. Halldóra sem giftist Björgvini og Emil Helgi, eigin- maður Röggu, lifa maka sína. Sjaldan hef ég séð ástfangnara og glæsilegra par en Röggu og Emil, bæði dökk yfirlitum og fal- leg. Kornung hófu þau búskap í kjallaraíbúð í Grænukinn í Hafnarfirði ásamt frumburði sín- um, Jóhönnu Sigríði. Það var eins og Ragga hefði ekki gert annað en að sinna barnauppeldi og matseld, svo vel fórst henni hvort tveggja úr hendi. Liti ég inn að kvöldlagi var sú stutta steinsofnuð í vögg- unni sinni og allt fágað og fínt. Ragga var bráðflink í höndunum, fékk 10 í handavinnu hjá fröken Arnfinnu, og undum við okkur við sameiginlegt áhugamál, hannyrð- ir. Og mikið gátum við hlegið. Þeg- ar Emil kom heim eftir erilsaman dag á verkstæðinu við að sjá litlu fjölskyldunni farboða, brást ekki að sá góði drengur bauðst til að skutla mér heim í Eskihlíðina, þótt dauðþreyttur væri. Vorið 1957 fermdust 76 skóla- systkin í Siglufjarðarkirkju, sam- heldinn árgangur 1943. Síðast hittumst við haustið 2017 á Siglu- firði í tilefni 60 ára afmælisins. Þeirra daga er nú gott að minnast. Innilega samúð votta ég Emil Helga, börnum og öðrum ást- vinum. Ólöf Þórey Haraldsdóttir. Það eru margar leiftrandi minningar sem leita á hugann nú þegar við kveðjum mæta og góða vinkonu til 50 ára. Ég kynntist Röggu þegar mennirnir okkar unnu á bifreiðaverkstæði Egils Vilhjálmssonar og við sem ungar konur með börn á svipuðum aldri heimsóttum hvor aðra og drukk- um kaffi saman meðan börnin léku sér. Á verkstæðinu vann hópur ungra manna með mikla jeppa- dellu, voru því margar frístund- irnar notaðar í ferðir inn á hálendi Íslands jafnt sumar sem vetur. Hugurinn fer ósjálfrátt í ferðalag aftur í tímann, strákarnir með höf- uðið niðri í húddi á biluðum bíl og við stelpurnar sitjandi uppi í fjalls- hlíð, sungum hástöfum og kærð- um okkur kollóttar þó einhver bíll- inn væri óökufær eða þegar tjaldsúlurnar gleymdust heima og tjaldinu reddað með þvotta- kústum og skrúfjárnum. Þetta var góður hópur sem haldið hefur saman í 38 ár og hist að minnsta kosti einu sinni á ári. Helgin eftir þrettándann er frátekin fyrir þennan fögnuð. Emil og Ragga voru á Kanarí og ekki með okkur nú síðast, við hringdum þó til þeirra svo þau vissu að þeirra væri sárt saknað, tveimur dögum seinna var Ragga farin. Það duldist engum að til margra ára gekk Ragga ekki heil til skógar en ævinlega hress og kát og til í allt, aldrei kvartaði hún og ef við spurðum um líðan hennar var svarið „er bara fín, eða þetta er allt að koma“. Verst fannst henni þegar hún hætti að geta dansað, þau hjón dönsuðu mikið og voru einkar glæsileg á dans- gólfinu svo eftir því var tekið. Emil og Ragga voru einkar samrýnd, náin hönd í hönd á æv- innar vegi, saman nutu þau tilver- unnar heima í Þorlákshöfn, í Þjórs- árdalnum og síðast en ekki síst á eyjunni góðu, Gran Canaria, þar sem sól skín á himni allan ársins hring og allt iðar af lífi. Þar nutu þau sín vel í sólinni og hitanum. Vinahópurinn er stór og allir voru velkomnir til Emils og Röggu, oft margt um manninn einkum þegar svalakórinn hittist og haldnar voru söngæfingar við mismikinn fögnuð nágrannanna. Við hjónin dvöldum á Kanarí síðastliðið haust, þar áttum við margar og góðar stundir með Em- il og Röggu, það eru okkur mætar minningar. Við kveðjum góða vinkonu og þökkum samfylgdina. Þangað til næst, Birna og Þorgeir. Ragna Jóhanna Ragnarsdóttir ✝ Steinunn Guð-jónsdóttir fæddist 18. mars 1924 í Gröf á Grenivík. Hún lést 20. janúar 2019 á Grenilundi, Greni- vík. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guðjón Ágústsson útvegsbóndi, f. 12. ágúst 1886, d. 29. desember 1940, og Sigríður Jó- hannsdóttir húsmóðir, f. 9. júní 1887, d. 24. mars 1973. Steinunn átti tvær systur, Oddnýju, f. 17. mars 1919, d. 31. júlí 2007, og Kristrúnu Aðalbjörgu, f. 29. ágúst 1920. barnabörn, 3) Ægir, f. 10. febr- úar 1951, d. 8. nóvember 1970, 4) Aðalheiður, f. 4. maí 1953, maki Birgir Pétursson, þau eiga tvo syni og barnabörnin eru fimm, 5) Björgólfur, f. 28. ágúst 1955, maki Málfríður Pálsdóttir, þau eiga tvær dæt- ur og þrjú barnabörn, 6) Sig- ríður, f. 11. júlí 1961, maki Val- ur Smári Friðvinsson, þau eiga einn son og tvö barnabörn, 7) Oddný, f. 4. janúar 1967, maki Arnþór Pétursson, þau eiga þrjú börn. Steinunn og Jóhann Adolf bjuggu alla tíð á Grenivík. Hún vann hefðbundin störf við út- gerðina í Gröf frá unga aldri. Síðan tóku við húsmóðurstörf, en eftir að börnin voru komin á legg sá hún um ráðskonu- störf í verbúð Gjögurs í Grindavík. Útför Steinunnar fer fram frá Grenivíkurkirkju í dag, 31. janúar 2019, klukkan 14. Steinunn giftist þann 13. nóvember 1948 Jóhanni Adolf Oddgeirssyni skip- stjóra frá Hlöðum, Grenivík, f. 9. nóvember 1913, d. 5. apríl 1999, og eignuðust þau sjö börn. Þau eru: 1) Oddgeir, f. 30. ágúst 1946, d. 19. apríl 2005, maki Margrét Rós Jóhannesdóttir, börn þeirra eru fjögur, barna- börnin eru 11 og barnabarna- börnin eru þrjú, 2) Guðjón Aðalbjörn, f. 10. febrúar 1948, maki Elísabet Ragnarsdóttir, börn þeirra eru þrjú og tvö Elsku amma. Það er svo skrýtið að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur, mynd þín lifir enn svo skýr í huga okkar, eins og þú bíðir enn eftir okkur þegar við komum næst og heimsækjum þig á Grenó. Til- hugsunin um að þú verðir ekki til staðar næst þegar við komum stingur í hjartað og tárin brjótast fram. Ótal minningar brjótast fram í hugann þegar við hugsum til þín, þær fyrstu frá öllum stundunum í Hafbliki. Að fara í pössun til þín var alltaf svo spennandi því hjá þér máttum við gera nánast allt sem við vildum: skrattast uppi á háalofti, hjóla úti í sumarsólinni þó löngu væri komið kvöld, borða eins mikið og við vildum af heimabökuðu og aðkeyptu sæt- meti og svo framvegis. Allar stundirnar sem við eyddum við eldhúsborðið í Hafbliki og spil- uðum svartapétur og öll kvöldin sem þú sast með okkur uppi í rúmi og mataðir okkur á soðnum fiski sem stappaður var með kartöflum, smjöri og tómatsósu á meðan þú sagðir okkur þjóð- sögur frá svæðinu sem á þeim tíma hljómuðu einstaklega ógn- vekjandi. En það var allt í lagi, því hjá þér beið líka heimsins hlýjasti faðmur, fylltur af því sem nú virðist óendurgjaldanleg ást og væntumþykja. Þó samverustundir okkar hafi síðar meir færst yfir á Grenilund og að mestu snúist um stutt spjall um daginn, veginn og lífið þá var tilfinningin að heimsækja þig alltaf sú sama. Hjartað fyllt- ist af hlýju, væntumþykju og tím- inn stóð í stað. Það var ekkert sem máli skipti nema líðandi stund og staður. Elsku amma okkar, við eigum eftir að sakna þín á allan hátt. Glettnislega brosið, hláturinn og athugasemdirnar þínar eru okk- ur greypt í minni sem og raul þitt og söngl sem alltaf mátti vænta þegar þögn sló á þá sem í heim- sókn voru hverju sinni. Takk fyr- ir allar stundirnar sem við áttum saman og takk fyrir allt sem þú gafst okkur. Minning þín mun ávallt lifa í hjarta okkar og huga. Þín barnabörn, Sólveig Kristín og Steinunn Helga. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Kær kveðja, Ægir, Jóhann Adolf (Addi), Oddgeir og Rannveig. Í dag kveðjum við elsku ömmu sem var okkur alltaf svo undur góð. Hún var alltaf til staðar og vildi allt fyrir okkur gera. Við eigum margar dýrmætar minn- ingar um ljúfar og skemmtilegar samverustundir með henni. Þá minnumst við allra spila- stundanna með henni og þá kenndi hún okkur margt um gildi lífsins og mikilvægi þess að vera góð manneskja. Alltaf sagði hún við okkur þegar við kvöddum hana að við ættum að muna að vera góð börn og koma vel og eins fram við alla. Það fannst henni mikilvægt og það tileinkaði hún sér í lífinu. Hún amma var mjög bóngóð kona og vildi allt fyrir alla gera. Við elskuðum ömmu mjög mikið og við eigum eftir að sakna henn- ar mikið en við vitum það jafn- framt að hún var orðin södd líf- daga og nú er hún komin á góðan stað til afa og strákanna sinna, Oddgeirs og Ægis. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Hvíl í friði, elsku amma, og hafðu þökk fyrir allt. Auður Sif, Steinar Adolf og Pétur Þór. Steinunn Guðjónsdóttir Ástkær dóttir mín og systir okkar, RANNVEIG PÁLSDÓTTIR, læknir, Strandvegi 7, Garðabæ, lést miðvikudaginn 16. janúar. Jarðarför hennar fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 1. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Soffía Stefánsdóttir Svana Pálsdóttir Guðbjörg Pálsdóttir Gísli Pálsson Soffía Pálsdóttir og fjölskyldur Ástkær fóstursonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, HREINN JAKOB ELVAR GUÐMUNDSSON, Frumskógum 1b, lést á heimili sínu 24. janúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 4. febrúar klukkan 15. Sigurlína Sigurðardóttir Ingibjörg Rósa Guðmundsd. Aðalsteinn Már Ólafsson Sigurborg S. Guðmundsdóttir Ásmundur Helgason Auðun Már Guðmundsson og fjölskyldur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.