Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
✝ Ragna JóhannaRagnarsdóttir
fæddist á Siglufirði
22. júlí 1943. Hún
lést á Kanaríeyjum
14. janúar 2019.
Foreldrar Rögnu
voru Ragnar Árna-
son, f. 2.10. 1921, d.
5.11. 1998, og Halla
Hafliðadóttir, f. 1.5.
1924, d. 5.9. 2005.
Ragna ólst upp hjá
móðurömmu sinni og -afa, Jó-
hönnu Sigvaldadóttur og Hafliða
Jónssyni á Siglufirði. Systkini
Rögnu sammæðra eru Maríanna,
f. 1948, og Guðmunda, f. 1956.
Systkini samfeðra eru Sigurður
Rúnar, f. 1949, d. 2019, Kolbrún
fyrri samböndum. 3) Hafliði, f.
1964, hann er í sambúð með
Otgoo Badam, f. 1967. Hafliði á
tvær dætur og tvo syni frá fyrri
samböndum og fjögur barna-
börn. 4) Þór, f. 1969, hann er
kvæntur Árnýju Leifsdóttur, f.
1974, þau eiga tvo syni og eina
dóttur.
Fjölskyldan flutti til Þorláks-
hafnar árið 1973 og hafa þau
hjónin búið þar æ síðan. Ragna
og Emil hafa síðustu ár haft vet-
ursetu á Kanaríeyjum.
Ragna starfaði lengst af við
verslun og var virkur félagi í
Kvenfélagi Þorlákshafnar. Hún
var einn af fyrstu starfsmönnum
leikskólans í Þorlákshöfn en það
var kvenfélagið sem stofnaði
hann, þar var hún í átta ár. Í 22
ár starfaði hún í apótekinu í Þor-
lákshöfn en síðustu starfsárin
var hún í fiskvinnslu.
Útför Rögnu fer fram frá Þor-
lákskirkju í Þorlákshöfn í dag,
31. janúar 2019, klukkan 14.
Björk, f. 1954, og
Svanhvít Björk, f.
1956.
Fimmtán ára
gömul kynntist
Ragna eftirlifandi
eiginmanni sínum,
Emil Helga Péturs-
syni. Þau hófu bú-
skap 1960 og giftust
árið 1963. Börn
þeirra eru: 1) Jó-
hanna Sigríður, f.
6.9. 1961, hennar maður var Guð-
finnur Georg Pálmason, f. 1961,
d. 2017. Þau eiga saman tvo syni
en fyrir átti Jóhanna einn son. 2)
Björgvin Ragnar, f. 1963, kvænt-
ur Lindu Jóhannesdóttur, f.
1968, þau eiga einn son hvort frá
Það var fyrir rúmum tuttugu og
tveimur árum sem ég hitti Röggu
fyrst, konuna sem átti eftir að
skipa svo stóran sess í lífi mínu.
Við Þór sonur hennar höfðum ver-
ið að hittast í nokkra mánuði og
þegar við loksins uppgötvuðum að
við værum bæði Siglfirðingar var
ekki hægt að bíða með það lengur
að hitta verðandi tengdaforeldra.
Ég var frekar feimin þegar ég
gekk inn um þvottahúsdyrnar á
húsinu á Selvogsbrautinni en
komst fljótt að því að það var
ástæðulaust, mér var tekið eins og
týndu dótturinni af þeim hjónum
og æ síðan hafa samskiptin verið á
þann máta.
Sennilega hefur ekki skemmt
fyrir að við áttum sameiginlegan
bakgrunn og merkilega mikil
tengsl miðað við fólk sem hafði
aldrei áður hist og tengingin átti
bara eftir að styrkjast.
Við Þór fluttumst til Þorláks-
hafnar vorið 2005. Á meðan við
biðum eftir að fá húsnæði afhent
bjuggum við Leifur, elsti sonur
okkar, á heimili þeirra Röggu og
Emils en Þór varð eftir í Hafn-
arfirði þar sem hann sótti vinnu.
Þann tíma leið mér aldrei eins og
ég væri boðflenna, gestur eða
ókunnug, heldur eins og við vær-
um fjölskylda.
Þau hjónin hafa ætíð síðan ver-
ið okkur innan handar við alla
skapaða hluti.
Ragga var aldrei langt undan í
stóru viðburðunum í lífi okkar fjöl-
skyldunnar, hún var ásamt
mömmu minni skírnarvottur þeg-
ar Leifur, elsti sonur okkar Þórs,
var skírður, þær komu einnig báð-
ar með mér að velja brúðarkjól
fyrir brúðkaupið okkar, skírnar-
veisla Emils Hrafns var haldin á
heimili þeirra hjóna og dóttir okk-
ar, Sæunn Jóhanna, heitir í höf-
uðið á báðum ömmum sínum. Þá
eru ótaldar allar máltíðirnar, ut-
anlandsferðirnar, útilegurnar,
spilakvöldin og spjallið við eldhús-
borðið.
Ég get ekki minnst Röggu
öðruvísi en að nefna þrjóskuna,
þrjóskari manneskju hef ég nefni-
lega aldrei hitt. Ég veit ekki hvort
þetta var meðfætt en það er alveg
ljóst að það komu tímabil í lífi
hennar þar sem þrjóskan gagnað-
ist henni betur en nokkuð annað,
m.a. þegar Emil fékk heilablóðfall
rúmlega fimmtugur. Ég er nokk-
uð sannfærð um að hún hafi átt
stóran þátt í því hvað hann hefur
náð góðum bata.
Ragga var samt ekki bara
þrjósk, hún var líka afskaplega hlý
og glaðlynd kona enda vinmörg
með eindæmum.
Börnin mín eru svo heppin að
eiga góðar minningar um ömmu
sína sem sýndi þeim taumlausa
umhyggju, passaði þau þegar hún
gat og hughreysti ef á þurfti að
halda. Ég á líka minningar um þau
öll þar sem þau liggja utan í ömmu
sinni og mala eins og kettir á með-
an hún klórar þeim á bakinu.
Blessunarlega hafa þau öll erft
eitthvað af þrjósku og sjálfstæði
Röggu ekki síður en hjarta-
hlýjuna.
Við Ragga vorum ekki alltaf
sammála, sérstaklega þegar kom
að dægurþrasinu, en í stóru mál-
unum, því sem skiptir raunveru-
legu máli í lífinu, vorum við á sömu
blaðsíðu í sömu línu. Hún var ekki
bara tengdamóðir mín heldur líka
vinkona sem ég sakna sárt.
Það er með trega sem ég kveð
þessa góðu konu en samt fyrst og
fremst með þakklæti.
Takk fyrir allt, Ragga mín,
sjáumst hinum megin.
Árný Leifsdóttir.
Bernskuvinkona mín, Ragna
Jóhanna Ragnarsdóttir, ólst upp
hjá ömmu sinni Jóhönnu Sigvalda-
dóttur og Hafliða Jónssyni skip-
stjóra, sem báru hana á höndum
sér. Í litla húsið á Laugarvegi 8
var alltaf jafn gott að koma og ein-
stök gestrisni. „Stelpur mínar,
gjörið svo vel að fá ykkur abbels-
ínur,“ sagði afinn, heppinn að ná í
þennan sjaldséða ávöxt handa
barnabarninu. Skildi svo ekkert í
hlátrasköllunum sem hann fékk
að launum. Og amman bakaði eftir
pöntun, brúnu lagskiptu tertuna
með hvíta kreminu.
Oft vorum við samtímis á sumr-
um hjá skyldmennum á Akureyri,
Ragga hjá Ragnari föður sínum
og konu hans á Hótel Akureyri,
sem fjölskyldan rak. Sá Ragnar
ekki sólina fyrir dóttur sinni. Tíu
ára gömlum bauð hann okkur vin-
konunum í ógleymanlega tjaldferð
í Mývatnssveit. Syntum við laf-
hræddar í skuggalegu gjótunum
við Grjótagjá, fórum í Dimmu-
borgir og út í Slútnes, ævintýra-
eyjuna gróskumiklu, sáum ótal
sjaldgæfar fuglategundir á vatn-
inu og borðuðum dásamlegan Mý-
vatnssilung á hótelinu.
Rúmum tuttugu árum seinna
gistum við sjö æskufélagar um
verslunarmannahelgi á Hótel
Akureyri. Vináttuböndin sem við
bundumst veturinn ’58 slitnuðu
aldrei, og var eins og við hefðum
hist í gær, gamla bus kompaníið,
svokallaða. Gegndi Willys-jeppinn
hans Þórhalls þar höfuðmáli og
allar ferðirnar á honum, öll kvöld,
jafnt í færð sem ófærð á vetrum,
en skikkuð af foreldrum að halda
okkur heima á aðfangadagskvöld,
og fannst skítt. Nú hafa fjögur
horfið sjónum um stund, Björgvin,
Guðmundur (Muggi), Ragga og
Þórhallur. Halldóra sem giftist
Björgvini og Emil Helgi, eigin-
maður Röggu, lifa maka sína.
Sjaldan hef ég séð ástfangnara
og glæsilegra par en Röggu og
Emil, bæði dökk yfirlitum og fal-
leg. Kornung hófu þau búskap í
kjallaraíbúð í Grænukinn í
Hafnarfirði ásamt frumburði sín-
um, Jóhönnu Sigríði. Það var eins
og Ragga hefði ekki gert annað en
að sinna barnauppeldi og matseld,
svo vel fórst henni hvort tveggja
úr hendi. Liti ég inn að kvöldlagi
var sú stutta steinsofnuð í vögg-
unni sinni og allt fágað og fínt.
Ragga var bráðflink í höndunum,
fékk 10 í handavinnu hjá fröken
Arnfinnu, og undum við okkur við
sameiginlegt áhugamál, hannyrð-
ir. Og mikið gátum við hlegið. Þeg-
ar Emil kom heim eftir erilsaman
dag á verkstæðinu við að sjá litlu
fjölskyldunni farboða, brást ekki
að sá góði drengur bauðst til að
skutla mér heim í Eskihlíðina,
þótt dauðþreyttur væri.
Vorið 1957 fermdust 76 skóla-
systkin í Siglufjarðarkirkju, sam-
heldinn árgangur 1943. Síðast
hittumst við haustið 2017 á Siglu-
firði í tilefni 60 ára afmælisins.
Þeirra daga er nú gott að minnast.
Innilega samúð votta ég Emil
Helga, börnum og öðrum ást-
vinum.
Ólöf Þórey Haraldsdóttir.
Það eru margar leiftrandi
minningar sem leita á hugann nú
þegar við kveðjum mæta og góða
vinkonu til 50 ára. Ég kynntist
Röggu þegar mennirnir okkar
unnu á bifreiðaverkstæði Egils
Vilhjálmssonar og við sem ungar
konur með börn á svipuðum aldri
heimsóttum hvor aðra og drukk-
um kaffi saman meðan börnin léku
sér. Á verkstæðinu vann hópur
ungra manna með mikla jeppa-
dellu, voru því margar frístund-
irnar notaðar í ferðir inn á hálendi
Íslands jafnt sumar sem vetur.
Hugurinn fer ósjálfrátt í ferðalag
aftur í tímann, strákarnir með höf-
uðið niðri í húddi á biluðum bíl og
við stelpurnar sitjandi uppi í fjalls-
hlíð, sungum hástöfum og kærð-
um okkur kollóttar þó einhver bíll-
inn væri óökufær eða þegar
tjaldsúlurnar gleymdust heima og
tjaldinu reddað með þvotta-
kústum og skrúfjárnum. Þetta var
góður hópur sem haldið hefur
saman í 38 ár og hist að minnsta
kosti einu sinni á ári. Helgin eftir
þrettándann er frátekin fyrir
þennan fögnuð.
Emil og Ragga voru á Kanarí
og ekki með okkur nú síðast, við
hringdum þó til þeirra svo þau
vissu að þeirra væri sárt saknað,
tveimur dögum seinna var Ragga
farin.
Það duldist engum að til
margra ára gekk Ragga ekki heil
til skógar en ævinlega hress og
kát og til í allt, aldrei kvartaði hún
og ef við spurðum um líðan hennar
var svarið „er bara fín, eða þetta
er allt að koma“. Verst fannst
henni þegar hún hætti að geta
dansað, þau hjón dönsuðu mikið
og voru einkar glæsileg á dans-
gólfinu svo eftir því var tekið.
Emil og Ragga voru einkar
samrýnd, náin hönd í hönd á æv-
innar vegi, saman nutu þau tilver-
unnar heima í Þorlákshöfn, í Þjórs-
árdalnum og síðast en ekki síst á
eyjunni góðu, Gran Canaria, þar
sem sól skín á himni allan ársins
hring og allt iðar af lífi. Þar nutu
þau sín vel í sólinni og hitanum.
Vinahópurinn er stór og allir
voru velkomnir til Emils og
Röggu, oft margt um manninn
einkum þegar svalakórinn hittist
og haldnar voru söngæfingar við
mismikinn fögnuð nágrannanna.
Við hjónin dvöldum á Kanarí
síðastliðið haust, þar áttum við
margar og góðar stundir með Em-
il og Röggu, það eru okkur mætar
minningar.
Við kveðjum góða vinkonu og
þökkum samfylgdina.
Þangað til næst,
Birna og Þorgeir.
Ragna Jóhanna
Ragnarsdóttir
✝ Steinunn Guð-jónsdóttir
fæddist 18. mars
1924 í Gröf á
Grenivík. Hún lést
20. janúar 2019 á
Grenilundi, Greni-
vík.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Guðjón Ágústsson
útvegsbóndi, f. 12.
ágúst 1886, d. 29.
desember 1940, og Sigríður Jó-
hannsdóttir húsmóðir, f. 9. júní
1887, d. 24. mars 1973.
Steinunn átti tvær systur,
Oddnýju, f. 17. mars 1919, d.
31. júlí 2007, og Kristrúnu
Aðalbjörgu, f. 29. ágúst 1920.
barnabörn, 3) Ægir, f. 10. febr-
úar 1951, d. 8. nóvember 1970,
4) Aðalheiður, f. 4. maí 1953,
maki Birgir Pétursson, þau
eiga tvo syni og barnabörnin
eru fimm, 5) Björgólfur, f. 28.
ágúst 1955, maki Málfríður
Pálsdóttir, þau eiga tvær dæt-
ur og þrjú barnabörn, 6) Sig-
ríður, f. 11. júlí 1961, maki Val-
ur Smári Friðvinsson, þau eiga
einn son og tvö barnabörn, 7)
Oddný, f. 4. janúar 1967, maki
Arnþór Pétursson, þau eiga
þrjú börn.
Steinunn og Jóhann Adolf
bjuggu alla tíð á Grenivík. Hún
vann hefðbundin störf við út-
gerðina í Gröf frá unga aldri.
Síðan tóku við húsmóðurstörf,
en eftir að börnin voru komin
á legg sá hún um ráðskonu-
störf í verbúð Gjögurs í
Grindavík.
Útför Steinunnar fer fram
frá Grenivíkurkirkju í dag, 31.
janúar 2019, klukkan 14.
Steinunn giftist
þann 13. nóvember
1948 Jóhanni Adolf
Oddgeirssyni skip-
stjóra frá Hlöðum,
Grenivík, f. 9.
nóvember 1913, d.
5. apríl 1999, og
eignuðust þau sjö
börn. Þau eru: 1)
Oddgeir, f. 30.
ágúst 1946, d. 19.
apríl 2005, maki
Margrét Rós Jóhannesdóttir,
börn þeirra eru fjögur, barna-
börnin eru 11 og barnabarna-
börnin eru þrjú, 2) Guðjón
Aðalbjörn, f. 10. febrúar 1948,
maki Elísabet Ragnarsdóttir,
börn þeirra eru þrjú og tvö
Elsku amma.
Það er svo skrýtið að hugsa til
þess að þú sért farin frá okkur,
mynd þín lifir enn svo skýr í huga
okkar, eins og þú bíðir enn eftir
okkur þegar við komum næst og
heimsækjum þig á Grenó. Til-
hugsunin um að þú verðir ekki til
staðar næst þegar við komum
stingur í hjartað og tárin brjótast
fram.
Ótal minningar brjótast fram í
hugann þegar við hugsum til þín,
þær fyrstu frá öllum stundunum í
Hafbliki. Að fara í pössun til þín
var alltaf svo spennandi því hjá
þér máttum við gera nánast allt
sem við vildum: skrattast uppi á
háalofti, hjóla úti í sumarsólinni
þó löngu væri komið kvöld, borða
eins mikið og við vildum af
heimabökuðu og aðkeyptu sæt-
meti og svo framvegis. Allar
stundirnar sem við eyddum við
eldhúsborðið í Hafbliki og spil-
uðum svartapétur og öll kvöldin
sem þú sast með okkur uppi í
rúmi og mataðir okkur á soðnum
fiski sem stappaður var með
kartöflum, smjöri og tómatsósu á
meðan þú sagðir okkur þjóð-
sögur frá svæðinu sem á þeim
tíma hljómuðu einstaklega ógn-
vekjandi.
En það var allt í lagi, því hjá
þér beið líka heimsins hlýjasti
faðmur, fylltur af því sem nú
virðist óendurgjaldanleg ást og
væntumþykja.
Þó samverustundir okkar hafi
síðar meir færst yfir á Grenilund
og að mestu snúist um stutt
spjall um daginn, veginn og lífið
þá var tilfinningin að heimsækja
þig alltaf sú sama. Hjartað fyllt-
ist af hlýju, væntumþykju og tím-
inn stóð í stað. Það var ekkert
sem máli skipti nema líðandi
stund og staður.
Elsku amma okkar, við eigum
eftir að sakna þín á allan hátt.
Glettnislega brosið, hláturinn og
athugasemdirnar þínar eru okk-
ur greypt í minni sem og raul þitt
og söngl sem alltaf mátti vænta
þegar þögn sló á þá sem í heim-
sókn voru hverju sinni. Takk fyr-
ir allar stundirnar sem við áttum
saman og takk fyrir allt sem þú
gafst okkur. Minning þín mun
ávallt lifa í hjarta okkar og huga.
Þín barnabörn,
Sólveig Kristín
og Steinunn Helga.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlést okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Kær kveðja,
Ægir, Jóhann Adolf (Addi),
Oddgeir og Rannveig.
Í dag kveðjum við elsku ömmu
sem var okkur alltaf svo undur
góð. Hún var alltaf til staðar og
vildi allt fyrir okkur gera. Við
eigum margar dýrmætar minn-
ingar um ljúfar og skemmtilegar
samverustundir með henni. Þá
minnumst við allra spila-
stundanna með henni og þá
kenndi hún okkur margt um gildi
lífsins og mikilvægi þess að vera
góð manneskja. Alltaf sagði hún
við okkur þegar við kvöddum
hana að við ættum að muna að
vera góð börn og koma vel og
eins fram við alla. Það fannst
henni mikilvægt og það tileinkaði
hún sér í lífinu.
Hún amma var mjög bóngóð
kona og vildi allt fyrir alla gera.
Við elskuðum ömmu mjög mikið
og við eigum eftir að sakna henn-
ar mikið en við vitum það jafn-
framt að hún var orðin södd líf-
daga og nú er hún komin á góðan
stað til afa og strákanna sinna,
Oddgeirs og Ægis.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem)
Hvíl í friði, elsku amma, og
hafðu þökk fyrir allt.
Auður Sif, Steinar Adolf
og Pétur Þór.
Steinunn
Guðjónsdóttir
Ástkær dóttir mín og systir okkar,
RANNVEIG PÁLSDÓTTIR,
læknir,
Strandvegi 7, Garðabæ,
lést miðvikudaginn 16. janúar.
Jarðarför hennar fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 1. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Soffía Stefánsdóttir
Svana Pálsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Gísli Pálsson
Soffía Pálsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær fóstursonur minn, bróðir okkar,
mágur og frændi,
HREINN JAKOB ELVAR
GUÐMUNDSSON,
Frumskógum 1b,
lést á heimili sínu 24. janúar.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 4. febrúar klukkan 15.
Sigurlína Sigurðardóttir
Ingibjörg Rósa Guðmundsd. Aðalsteinn Már Ólafsson
Sigurborg S.
Guðmundsdóttir
Ásmundur Helgason
Auðun Már Guðmundsson
og fjölskyldur