Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 54
54 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume
frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng
augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að
hætta að taka þetta bætiefni inn.“
Edda Dungal
Hair Volume inniheldur
jurtir og bætiefni sem sem
eru mikilvæg fyrir hárið og
getur gert það líflegra
og fallegra.
Er hárlos eða þunnt hár að plaga þig?
Ég hlakka til sérhvers nýs dag og mæti tilverunni af æðruleysiog lífsgleði,“ segir Einar Ingi Magnússon á Selfossi, sem er 53ára í dag. Hann vinnur hjá Bílahöllinni í Reykjavík en starfaði
áður í um 30 ár hjá OLÍS. Var lengi umboðsmaður félagsins á Hellu en
kom svo til starfa í höfuðstöðvunum. Sinnti þar fjölbreyttum verk-
efnum og var á ferðinni víða um land.
„Að kynnast landinu og fólkinu í gegnum starfið fannst mér algjör
forréttindi,“ segir Einar, sem lét af störfum hjá OLÍS árið 2016. Um
líkt leyti fóru alvarleg veikindi að láta á sér kræla; fyrst áfall af óskil-
greindum ástæðum og í kjölfarið kvillar tengdir hjarta og gangvirki.
„Valið stóð milli þess að lifa eða deyja og spurningunni þar um var
auðvelt að svara. Veikindi síðustu ára hafa fengið mig til að endur-
meta tilveruna og breyta um lífsstíl. Hef oft þurft á sjúkrahús og fór
svo í eftirmeðferð á Reykjalundi, tók mér tak og á þremur árum létti
ég mig úr 209 kílóum í 119. Gjörbreytti mataræðinu og fæ mér minna
á diskinn, byrja hvern dag á gönguferð og set heilsuna og sjálfan mig
alltaf forgang. Að hugarfarið væri rétt og jákvætt var samt forsenda
þess að árangur næðist,“ segir Einar Ingi sem á tvö börn; Magnús
Yngvar 27 ára og Andreu Önnu 14 ára. Barnabörnin eru tvö.
„Bíladellan er alltaf til staðar,“ segir Einar Ingi spurður um áhuga-
mál. „Rallakstur, bensínafgreiðsla, áhættuakstur í bíómynd, við-
gerðir, vélsleðar, fjórhjól, að festa jeppann í sköflum og pyttum og
svo framvegis. Þetta er allt á ferilskránni, sem er skrautleg rétt eins
og lífið sjálft. Í þeim anda verður líka afmælisdagurinn; vinna og sam-
vera með börnunum mínum og eitthvert sprell til viðbótar.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lífsgleði „Skrautleg ferilská eins og lífið sjálft,“ segir Einar Ingi.
Rétta hugarfarið
Einar Ingi Magnússon er 53 ára í dag
S
igfús Þór Elíasson fæddist
31. janúar 1944 í Vest-
mannaeyjum og ólst þar
upp. „Ég sprangaði og
gerði eins og Eyjapeyja
er siður – flest það sem mátti ekki
gera.“
Sigfús lauk skyldunámi og lands-
prófi í Vestmannaeyjum, og stúd-
entsprófi frá Laugarvatni 1964. Hann
lauk kandídatsprófi í tannlækningum
frá HÍ 1971 og meistaraprófi frá In-
diana University í Indianapolis í
Bandaríkjunum 1974, með tann-
sjúkdómafræði og tannfyllingu sem
aðalgrein og fyrirbyggjandi tann-
lækningar og efnisfræði tannfylling-
arefna sem aukagrein. Hann fékk
sérfræðiréttindi í tannfyllingu og
tannsjúkdómafræði 1987.
Sigfús var aðstoðarprófessor í
tannlækningum við University of
Minnesota, School of Dentistry í Min-
neapolis 1974-1978 og sjúkrahús-
tannlæknir við University Hospital í
Minneapolis 1974-1975. „Það var gott
að vera Íslendingur í Minnesota, þeir
voru hrifnir af skandinavíska hreimn-
um þar. Ég kynntist þónokkrum
Vestur-Íslendingum, þar á meðal
Valdimar Björnssyni, fyrrverandi
fjármálaráðherra Minnesota-ríkis.
Það var síðan annaðhvort að verða
Ameríkani eða koma heim í fámennið
og skila einhverju til baka, og ég sé
ekki eftir þeirri ákvörðun.“
Sigfús hefur rekið tannlækninga-
stofu frá 1978 þangað til um síðustu
áramót. Hann var skipaður prófessor
í tannsjúkdómafræði og tannfyllingu
við Tannlæknadeild HÍ 1979 og lét af
störfum 2014. Hann var deild-
arforseti Tannlæknadeildar í fimm
ár, og sat í háskólaráði Háskóla Ís-
lands sama tíma, og varadeildar-
forseti í samtals 16 ár. „Þegar ég kom
heim var tannheilsan hér á landi
mjög slæm og áttum við heimsmet í
tannskemmdum, en nú er hún á pari
við það sem gengur og gerist annars
staðar.“
Sigfús var aðalfulltrúi Íslands í
stjórn NIOM, norrænu tannlækn-
ingastofnunarinnar í Osló, 1978-2015,
og sjórnarformaður um skeið. Síðan
2011 hefur hann verið í hlutastöðu
vísindamanns við NIOM. Rann-
sóknastörf gegnum tíðina hafa eink-
Sigfús Þór Elíasson, tannlæknir og prófessor emeritus – 75 ára
Með barnabörnunum Sigfús og Ólafía eiga ellefu barnabörn en tvö þeirra voru ekki fædd þegar myndin var tekin.
Tannlæknir og kennari
Kennarinn Sigfús fylgist með nem-
anda um miðjan 9. áratuginn.
Reykjavík Pétur Kor-
mákur Valgerðarson
fæddist 9. mars 2018 kl.
14.49 á Landspítalanum
í Reykjavík. Hann var 52
cm langur og 3.930 g.
Foreldrar hans eru
Helga Lóa Kristjáns-
dóttir og Valgerður
Jóhannsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is