Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 59
MENNING 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Metacosmos, tónverk sem Anna Þorvaldsdóttir samdi fyrir Fíl- harmóníuhljómsveitina í New York og frumflutt var af sveitinni í apríl í fyrra, verður flutt í fyrsta sinn hér á landi í Eldborg í kvöld af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tón- leikarnir eru á dagskrá hátíð- arinnar Myrkir músíkdagar og á þeim verða einnig flutt verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Pál Ragnar Pálsson og Veronique Vöku. Heimsfrumflutningur á þremur verkum Verk Veronique Vöku nefnist Lendh og verður það heims- frumflutt líkt og verk Maríu Huld- ar, Oceans, og Páls Ragnars, Crevace, sem er konsert fyrir flautu og fagott. Verk Þuríðar nefnist Flutter og er flautukons- ert. Anna var útnefnd staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands í upp- hafi síðasta árs og mun hún semja ný tónverk fyrir hljómsveitina auk þess sem sveitin mun flytja önnur nýleg verk eftir hana og er Meta- cosmos þeirra á meðal. Einleikarar á tónleikunum verða Hallfríður Ólafsdóttir, Martin Kuuskmann og Mario Caroli og hljómsveitarstjóri Daníel Bjarnason. „Alltaf á fullu“ Metacosmos var um nýliðna helgi flutt af sinfóníuhljómsveit sem jafnan er talin ein sú besta í heimi, Fílharmóníuhljómsveitinni í Berlín, og er það til marks um hversu hátt skrifuð Anna er orðin sem tónskáld í heimi klassískrar tónlistar. Og hún hefur nóg að gera, eins og fram kemur í samtali hennar við blaðamann. „Ég er alltaf á fullu, er að klára núna stórt verk sem verður frum- flutt í Gautaborg af Gautaborgar- sinfóníunni, það var pantað af þeim og er líka í samvinnu við Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Það er stórt verk, 45 mínútur af hljóm- sveitartónlist og verður frumflutt í maí. Íslenski dansflokkurinn verð- ur líka með, Erna Ómarsdóttir mun stýra honum í nýju verki við tónlistina þannig að þetta er mjög spennandi,“ segir Anna og bætir við að ýmis verkefni verði á dag- skrá hjá henni næstu árin. –Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af verkefnaleysi, heyri ég … „Nei, það er mjög mikil gæfa að þurfa að segja við nei flestum verkefnum. Það er auðvitað bara lúxusvandamál, í sjálfu sér,“ svar- ar Anna kímin. Að sogast inn í svarthol Anna er beðin um að lýsa verk- inu, Metacosmos. „Það sem ég var mikið að hugsa um – og varð innblásturinn að verkinu – er sambandið á milli óreiðu og fegurðar. Mér fannst það mjög áhugaverður innblástur fyrir þetta verk og það kemur inn bæði í gegnum ferli, strúktúrinn á verkinu og í smærri einingum í verkinu,“ segir hún. Anna segist hafa ímyndað sér hvernig væri að detta inn í svart- hol og yfirfært þá tilfinningu í verkið. „Að dragast inn í afl sem er miklu sterkara en þú sjálfur og þurfa bara að gefa eftir og fylgja með. Þetta var hugleiðingin á bak við verkið en svo stendur tónlistin náttúrlega á sínum fótum.“ –Það er nú ansi flott að fá verk- pöntun frá svona hljómsveit, ekki satt? „Jú, jú, það er rosalega stórt og mikill heiður. Verkið er svo búið að vera á dagskrá hjá mjög mörg- um hljómsveitum núna, var í síð- ustu viku hjá Berlínarfílharm- óníunni.“ –Sem þykir nú ein besta sinfóníuhljómsveit í heimi … „Já, hún er mjög góð,“ segir Anna og hlær við, „þannig að það er bara frábært.“ Allar með sinn karakter Anna hefur heyrt þrjár hljóm- sveitir flytja Metacosmos, í New York, Berlín og núna í Reykjavík. Hún segir alltaf áhugavert að heyra ólíkar hljómsveitir flytja sama verkið, burtséð frá því hvaða verk um ræðir. „Það eru allar hljómsveitir með sinn karakter og sín einkenni og mér finnst það of- boðslega áhugavert sem tónskáld því auðvitað er allur efniviðurinn sá sami, allir tónarnir en orkan og hljóðfæraleikararnir og stjórnend- urnir eru auðvitað með sinn eigin karakter sem þeir koma með í flutninginn. Það er ofboðslega dýr- mætt og þess vegna er líka mjög áhugavert að skrifa verk fyrir ákveðnar hljómsveitir, til dæmis, því þá getur maður verið innblás- inn af þeirra orku þó svo allar hljómsveitir geti spilað verkið. Hér á Íslandi heyrir maður strax að hljómsveitin er vön að spila tónlist eftir mig, þau hafa spilað nokkur verk. Þannig að maður finnur hvernig þau þekkja strax tónmálið, það er rosalega skemmtilegt,“ segir Anna. „Drungalegt ferðalag“ Esa-Pekka Salonen stjórnaði Fílharmóníuhljómsveitinni í New York í flutningi á verkinu í apríl í fyrra og í gagnrýni dagblaðsins New York Times, sem birt var 5. apríl, skrifar hinn virti rýnir Ant- hony Tommassini að hann hafi verið hugfanginn af flókinni sam- setningu tóna og lita í verkinu. „Fröken Þorvaldsdóttir fór vissu- lega með okkur í drungalegt ferða- lag, kaflaskipt en þó skýrt,“ skrif- ar hann meðal annars og greini- legt er að hann hreifst mjög af verkinu. Í Berlín var það Alan Gil- bert sem hélt á tónsprotanum fyrir fáeinum dögum og var sömuleiðis gerður góður rómur að þeim tón- leikum. Anna segir að þó mikill munur geti verið á stjórnendum vilji þeir oftast ræða við tónskáldin um verkin og ráðfæra sig við þau. „Það er skemmtilegt og þegar verkið var t.d. frumflutt í New York stjórnaði Esa-Pekka Salonen flutningnum og það var alveg ynd- islegt því hann er frábær stjórn- andi og tónskáld sjálfur og þekkir tónlistina mína vel, hefur stjórnað nokkrum verkum eftir mig,“ segir Anna. Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir tónskáldaspjalli í kvöld fyrir tónleikana og hefst það kl. 18.30 í Hörpuhorni. Árni Heim- ir Ingólfsson mun þar ræða við Önnu um verkið og tilurð þess og tónleikarnir hefjast svo kl. 19.30. Frekari upplýsingar um Myrka músíkdaga má finna á vef Hörpu, harpa.is. Sambandið á milli óreiðu og fegurðar  Metacosmos Önnu Þorvaldsdóttur flutt í Eldborg í kvöld Morgunblaðið/Hari Á æfingu Anna Þorvaldsdóttir í Eldborgarsal Hörpu þar sem verk hennar Metacosmos verður flutt í fyrsta sinn hér á landi í kvöld. Hún kveðst hafa ímyndað sér hvernig væri að detta inn í svarthol og yfirfært þá tilfinningu í verkið. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s Lau 16/2 kl. 20:00 202. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s Fös 15/2 kl. 20:00 201. s Sýningum lýkur í mars. Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 1/2 kl. 20:00 Lokas. Sýningum lýkur 1. febrúar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s Þri 5/2 kl. 20:00 aukas. Sun 10/2 kl. 20:00 30. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s Mið 6/2 kl. 20:00 aukas. Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Sun 3/2 kl. 20:00 Lokas. Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Fim 31/1 kl. 20:00 7. s Fim 7/2 kl. 20:00 9. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Fös 15/2 kl. 20:00 10. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Athugið, takmarkaður sýningafjöldi. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fim 31/1 kl. 18:00 Frums Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Fös 1/2 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 13/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 22:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30 Fim 21/2 kl. 19:30 Fös 1/2 kl. 22:00 Fim 14/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 19:30 Lau 2/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 22:00 Lau 2/2 kl. 22:00 Fös 15/2 kl. 22:00 Lau 23/2 kl. 19:30 Fim 7/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 19:30 Mán 25/2 kl. 22:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 3/2 kl. 20:00 Sun 17/2 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Matur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.